14.03.1966
Efri deild: 49. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (544)
106. mál, atvinnuleysistryggingar
Frsm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):
Herra forseti. Ég hygg, að það hafi verið smávegis misskilningur hjá hæstv. félmrh., er hann taldi, að ég hefði ekki gert mér grein fyrir því, að endurskoðun á atvinnuleysistryggingalögunum hefði farið fram. Mér var fullkomlega kunnugt um það. En það, sem ég sagði, var, að endurskoðunin hefði ekki komið fram hér á Alþ. Mér var kunnugt um, að það lá fyrir árangurinn af starfi þessarar nefndar, sem skipuð var árið 1960.
Ég hef í raun og veru ekki ástæðu til þess að fara miklu frekar út í þær umr., sem hér hafa orðið. Það er eins og hæstv. félmrh. sagði, þær breytingar, sem n. í heild stendur að, fjalla um efni, sem hefur orðið samkomulag um, og það þótti ekki rétt að fara lengra í brtt. en sem því næmi. Sumt af því, sem hv. 9. þm. Reykv. leggur til í sínum brtt., kann að hafa við nokkur rök að styðjast, og má vera, að sumt sé til bóta. Hins vegar þykir mér sumar röksemdir hans nokkuð hæpnar, og vík ég þá sérstaklega að því, eins og hann sagði, að það væri eðlilegt, að atvinnuleysistryggingabætur væru greiddar fyrir helgidaga, eins og slysabætur eru greiddar fyrir helgidaga. Ég held, að hér liggi til grundvallar þessari skoðun hjá hv. 9. þm. Reykv., að það megi leggja slys og atvinnuleysi að jöfnu. En það er langt frá því, að svo megi gera, og eftir því sem ég veit bezt, er það aldrei gert í tryggingalöggjöf. Það er jafnan litið svo á, að grundvöllur slysatrygginga sé miklu öruggari en grundvöllur atvinnuleysistrygginga. En hv. þm. segir: Þeir, sem eru atvinnulausir, þurfa líka að lifa á helgidögum. — Auðvitað er þetta rétt. og þetta hefðum við vitað, þó að læknisfróður maður hefði ekki sagt. En þetta eru engin rök í þessu máli. Þegar menn eru búnir að koma á 5 daga vinnuviku, gerum við ráð fyrir auðvitað. að verkamenn lifi hina 2 daga vikunnar, þó að þeir hafi ekki tekjur nema í 5 daga. Og atvinnuleysisbæturnar eru miðaðar við það. að þær séu það háar, að mönnum sé stoð af þeim til þess að lifa alla daga vikunnar, bæði virka daga og helgidaga.
Þetta var annar þáttur þess, sem hv. þm. lagði mesta áherzlu á. Hinn þátturinn var sá, að sjóðsstjórninni yrði heimilað að veita verkalýðsfélögunum lán, vaxtalaus eða með lágum vöxtum til bygginga félagsheimila eða orlofsheimila.
Ég efast ekki um, að þetta gæti verið gott í sjálfu sér. En ég efast um, að þetta eigi að hafa forgang, af því að ég hef þá bjargföstu trú, að meginatriðið í þessu máli og það, sem kemur launþegum bezt, sé að koma í veg fyrir atvinnuleysi. Og þó að félagsheimili séu gagnleg, tek ég hitt fram yfir, og því tel ég ekki, að það sé brýn nauðsyn að samþykkja þetta núna frekar en aðrar till., sem hv. þm. leggur fram. En það er eins og ég sagði í minni fyrri ræðu, að það er fullkomin ástæða — og það eru allir sammála um — að gera verulegar breytingar á atvinnuleysistryggingalögunum. Það eru stórgallar á þeirri löggjöf, og einn mesti gallinn eru þau ákvæði, að það skuli ekki vera einn tryggingasjóður fyrir allt landið, heldur sérreikningar fyrir hvert verkalýðsfélag, Það er stór galli, vegna þess að í þeim byggðarlögum í landinu, þar sem atvinnuvegirnir eiga í vök að verjast, þar sem atvinna er minnst og þar sem tekjur atvinnuleysistrygginganna eru þar af leiðandi minnstar, er mest þörfin fyrir að greiða bætur. Það er þess vegna ekki vansalaust að hafa atvinnuleysistryggingalöggjöfina þannig, að það skuli vera svo, að möguleikarnir til þess að greiða bætur skuli vera í öfugu hlutfalli við þörfina. Þetta er ekki vansalaust.
Ég efast ekki um, að hv. 9. þm. Reykv. vilji í sjálfu sér endurbæta þessa löggjöf, og það kann að vera, eins og ég sagði áðan, að sumt af hans brtt. stefni í þá átt. En hversu miklu þýðingarmeira væri það ekki, ef hann ynni á þeim vettvangi, þar sem ætla verður, að hann hafi aðstöðu til, að vinna þeirri skoðun fylgi að afnema sérreikninga verkalýðsfélaganna og gera atvinnuleysistryggingasjóðinn að einum tryggingasjóði fyrir allt landið? Ég hygg, að hv. þm. gerði enn þá meira gagn með því að beita sér fyrir slíkri breytingu og vinna að því, að samstaða geti orðið um slíka breytingu.
Það væri e.t.v. ástæða til þess að nefna aðra stórgalla á þessari löggjöf, en ég skal ekki fara út í þá sálma hér nema þá að gefnu tilefni.