22.03.1966
Neðri deild: 58. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (549)

106. mál, atvinnuleysistryggingar

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Fyrir eigi alllöngu var lagt fram á þskj. 106 frv. til l. um breyt. á l. nr. 29 frá 1956, um atvinnuleysistryggingar. Það frv., sem upphaflega var lagt fram, fjallaði einungis um eitt atriði, þ.e.a.s. rýmkun á útlánareglum núgildandi laga um atvinnuleysistryggingar, en síðan hefur frv. tekið alimiklum breyt. í meðferð Ed. á málinu, svo sem þskj. 312 ber með sér, og skal vikið örlítið nánar að þeim breyt. síðar.

Á síðari hluta árs 1955 var hér á landi mikil og víðtæk vinnudeila og um leið ein sú lengsta. sem nánast tók til landsins alls. Við lok þessarar áhrifamiklu kjaradeilu var samið um eitt mjög merkilegt atriði í kjarasamningum hér á landi. Þáverandi hæstv. ríkisstj. gaf fyrirheit um að beita sér fyrir lagasetningu um, að stofnaður skyldi sérstakur atvinnuleysistryggingasjóður, sem ári seinna, eða hinn 7. apríl 1956, var endanlega staðfest með lagasetningunni um atvinnuleysistryggingasjóð, og eiga lög þessi því nú um þessar mundir 10 ára afmæli.

Óhætt mun að fullyrða, að án tilkomu þessara tillagna um sjóðinn hefði þá ekki verið samið um þá kauphækkun, er endanlega var um samið. og er því tvímælalaust, að hér var brúað bil, sem með öðrum hætti virtist þá vart mögulegt, og verkalýðshreyfingin sætti sig við mun lægri kauphækkanir vegna tilkomu þessara laga eða fyrirheits um þá lagasetningu.

Í sambandi við þessi merku tímamót í sögu þessara laga þykir mér rétt að gefa þær upplýsingar hér, að sjóðurinn hafði samþykkt lán og verðbréfakaup um s.l. áramót fyrir samtals 515 millj. og 600 þús. kr., sem voru veitt til íbúðalána, hafnarbótalána, fiskiðnaðar og annars iðnaðar, félagsheimila verkalýðsfélaganna, hitaveitulán til Reykjavíkurborgar og ýmis önnur smærri atriði. Eign sjóðsins var á sama tíma eða í árslok 736.7 millj. kr., en hins vegar höfðu atvinnuleysisbætur á þessum starfstíma sjóðsins aðeins numið 7.5 millj. kr. Af þessu yfirliti má glögglega sjá, að sjóðurinn hefur veitt mikilvæga fjárhagsaðstoð til atvinnu- og félagsmála, — aðstoð, sem fullyrða má, að orðið hefði á annan veg, ef sjóðsins hefði ekki notið við.

Í þeim umr., sem fram fóru við stofnun sjóðsins hér á hv. Alþ., og í umr. í dagblöðum og á mannfundum var mikil áherzla lögð á, að æskilegasta hlutverk sjóðsins yrði það að koma með fjárveitingum sínum í veg fyrir atvinnuleysi. Þessu hlutverki hefur sjóðsstjórnin gegnt samkv. gildandi lagaákvæðum á þann hátt, sem framangreint yfirlit ber með sér.

Í upphaflegu lögunum um sjóðinn, sem enn eru óbreytt að öllu öðru leyti en því, að árið 1958 var samþ. breyting á stjórnaraðild sjóðsins, var gert ráð fyrir endurskoðun l. eftir tiltekinn tíma.

Með bréfi, dags. 28. sept. 1960, skipaði þáv. hæstv. félmrh., Emil Jónsson, 5 manna n. til að endurskoða lögin N. starfaði lengi og vann að mjög ýtarlegri endurskoðun á hinum einstöku ákvæðum l. Samkomulag náðist hins vegar ekki um afgreiðslu frv. Nefndin samdi samt sem áður frv. og skilaði því til rn. um miðjan marzmánuð 1964. En tveir nefndarmanna, það voru fulltrúar Alþýðusambandsins og vinnuveitenda, skiluðu hvor um sig séráliti og gerðu grein fyrir sérskoðunum sínum. Þessi sérálit svo mikilvægra aðila hafa til þessa komið í veg fyrir, að frv. þetta væri flutt. En að sjálfsögðu ber brýna nauðsyn til, að enn þá einu sinni verði reynt að ná samkomulagi um þau veigamiklu atriði, sem fólust í þessari heildarendurskoðun, og reynt verði, eftir því sem kostur er á, að koma fram frv. til staðfestingar þeirri endurskoðun. En ég held, að það sé rétt og eðlilegt, að hér komi fram þau höfuðatriði, sem í frv. þessu fólust, þrátt fyrir það, að það hafi ekki verið flutt.

Helztu breyt. umrædds frv. frá gildandi lögum voru eftirfarandi:

1) Hálfar vaxtatekjur leggist við stofnsjóðinn. 2) Lögbinda beri reglur um ráðstöfun á handbæru fé sjóðsins. 3) Auk þeirra verkalýðsfélaga, sem lögin taka nú til, gildi þau einnig um félög verzlunarfólks. Þetta ákvæði hefur nú komið til kasta síðustu kjarasamninga verzlunarfólks og því verið heitið af ríkisstj., að frá og með næstu áramótum muni aðild þeirra verða lögfest. 4) Einfaldari reglur um færslu tekna sjóðsins á sérreikninga verkalýðsfélaganna. 5) Rýmkuð skilyrði fyrir bótarétti, m.a. með breyttu ákvæði um biðtíma, en það ákvæði hefur verið tekið upp í þeim breyt., sem hv. heilbr: og félmn. Ed. gerði á frv. frá því, sem það var upphaflega flutt, og kemur fram á þskj. 312. 6) Upphæð atvinnuleysisbóta verði hin sama og upphæð slysabóta. Til þessarar till. í frv. er einnig tekið tillit í fyrrgreindum breytingum Ed. og kemur einnig fram á þskj. 312. 7) Felld er niður krafa gildandi laga um ríkisábyrgð á láni milli sérreikninga, þegar starfsfé á sérreikningi er þrotið til bótagreiðslna. 8) Auk ýmissa minni háttar breytinga eru til samræmis við ákvæði skattal. o. fl. gerðar breytingar í frv.

Svo sem í upphafi sagði, ólu margir með sér þær vonir, að sjóðurinn gæti, er honum yxi fiskur um hrygg, komið með lánastarfsemi sinni í veg fyrir atvinnuleysi. Það hefur sjóðurinn vissulega gert, og tel ég, að það hafi verið til stórfellds hagræðis fyrir hinar ýmsu atvinnugreinar og þá ekki sízt fyrir þá staði, sem erfiðast hafa átt í þeim efnum undanfarin ár. En ýmsum og þá fyrst og fremst forsvarsmönnum verst stæðu sveitarfélaganna hefur hins vegar fundizt, að forsendur fyrir lánum úr sjóðnum, þ.e.a.s. sjálf lánsskilyrðin, væru of þröngar. Sérstaklega hefur um það verið kvartað, að þar væri engin heimild um að mega veita beina styrki eða vaxtalaus lán til þeirra staða, sem við verulegt og langvarandi atvinnuleysi eiga við að stríða. Samkv. gildandi l. má því aðeins veita lán, að sett sé fyrir því öruggt veð eða trygging og/eða ríkisábyrgð. Staðreynd er það hins vegar, að einmitt þeir staðir, sem átt hafa við langvarandi atvinnuleysi að stríða, eru jafnan verst settir með útvegun fullnægjandi veða eða trygginga og ábyrgða. Í þessum umr. fyrrgreindra aðila hefur oft verið bent á þann möguleika, að atvinnuleysistryggingasjóður lánaði atvinnubótasjóði slík lán upp að fyrir fram ákveðnu marki, en sá sjóður hefur lagaheimild til slíkra styrkja og gæti endurlánað hlutaðeigandi aðilum. Stefnt er að því með upphaflegu frv. þessu að tryggja þetta fyrirkomulag, og kemur það fram í síðustu mgr. 3. gr. frv., eins og það er nú orðið, og er m.ö.o. það upphaflega frv., sem ég minntist hér á.

Ég vona, að sú n., sem mál þetta fær hér til meðferðar, yfirfari gaumgæfilega þær aðrar breytingar, sem samkomulag gæti orðið um, en áherzla hefur verið á það lögð að reyna að ná fram sem mestri einingu hér á hv. Alþ. um þær breytingar, sem kostur væri á til bóta í starfsemi sjóðsins, því að um allt starf sjóðsins frá öndverðu hefur tekizt mikil og góð eining og hefur ríkt um þessi vandasömu mál mjög lofsverður friður, og hygg ég, að það séu allra velviljaðra manna óskir, að svo megi enn verða.

Ég lýsti því í Ed. og get endurtekið það hér, að ég fagna þeim breytingum, sem Ed. gerði á frv., og tel, að þær séu til bóta, hafði reyndar skorað á n. í upphafi í framsöguræðu að athuga einmitt sérstaklega þessi tvö atriði, hvað og gert var, og alger samstaða fékkst um þetta að lokum. Þó að brtt. hafi verið felldar við frv., þá var það endanlega afgreitt samhljóða.

Herra forseti. Ég legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.