17.03.1966
Neðri deild: 56. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (565)

148. mál, Iðnlánasjóður

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Þetta frv. staðfestir það, sem ég og fleiri hafa haldið hér fram, að sú breyting, sem gerð var á iðnlánasjóðslögunum 1962, hafi gengið of skammt. Það sést bezt á því, að nú leggur hæstv. ríkisstj. fram frv., þar sem gert er ráð fyrir verulega meiri eflingu iðnlánasjóðs en á þinginu 1962. Ég hygg samt, að það sé ekki ofmælt, þó að sagt sé, að hér sé einnig of skammt gengið. Ég vil í því sambandi benda hv. þd. á annað frv. um iðnlánasjóð, um breyt. á l. um iðnlánasjóð, sem nýlega hefur verið lagt fram í þessari hv. d. Þar er gert ráð fyrir verulega meiri aukningu á starfsfé iðnlánasjóðs en í þessu frv. Meginmunurinn á þessu frv. og því, sem ég og nokkrir aðrir þm. hafa flutt, er sá, að í þessu frv. er gert ráð fyrir að hækka framlag ríkisins til iðnlánasjóðs úr 2 millj. í 10 millj. kr., en í því frv., sem ég flyt ásamt nokkrum öðrum hv. þm., er gert ráð fyrir, að framlag ríkissjóðs verði jafnhátt tekjum þeim, sem sjóðurinn fær af gjaldi því, er iðnaðurinn greiðir til hans samkv. 1. tölul. í 5. gr. laganna. Eins og upplýst er í grg. þessa frv., námu þessar tekjur, þ.e. það, sem iðnaðurinn greiðir sjálfur til sjóðsins, á s.l. ári um 15 millj. kr., en gert er ráð fyrir, að þær nemi á þessu ári, eins og hæstv. ráðh. upplýsti hér rétt áðan, milli 17 og 18 millj. kr. Samkv. okkar frv. mundi því framlag ríkisins til iðnlánasjóðs hækka í 17—19 millj. kr. á þessu ári, í stað þess að það hækkar aðeins um 10 millj. og þó má gera ráð fyrir, að þessi munur verði enn þá meiri á næstu árum. Ef þróunin verður eitthvað lík því, sem hún hefur verið, kemur þetta gjald, sem iðnaðurinn greiðir til sjóðsins, til með að hækka árlega. Hér er að sjálfsögðu um talsverðan mun að ræða.

En með þessu er þó ekki öll sagan sögð, og það sjá menn bezt með því að líta í það frv. um fiskveiðasjóð, sem ríkisstj. hefur lagt fram nokkurn veginn samtímis því frv., sem hér liggur fyrir. Í frv. um fiskveiðasjóð er gert ráð fyrir, að ríkisframlagið verði jafnhátt og tekjur fiskveiðasjóðs verða af útflutningsgjaldi hverju sinni. Það hefur verið krafa iðnaðarmanna, bæði iðnrekendasambandsins og Landssambands iðnaðarmanna, að iðnaðurinn nyti í þessum efnum jafnréttis við aðra atvinnuvegi, að til stofnlánasjóðs hans yrði greitt jafnhátt tillag og iðnaðurinn sjálfur greiðir til sjóðsins, alveg eins og á sér stað bæði í sambandi við fiskveiðasjóð og stofnlánadeild landbúnaðarins. Þessi tvö frv., sem ég nú nefndi, þetta frv. og frv. ríkisstj. um fiskveiðasjóð, sem lagt er fram nokkurn veginn samtímis, sýnir, að hér er verið að gera upp á milli atvinnuvega. Iðnaðurinn er ekki látinn hafa sama rétt og sjávarútvegurinn. Það er enn haldið áfram þeirri gömlu venju að líta á hann sem einhvern 2. flokks atvinnuveg við hliðina á sjávarútvegi og landbúnaði. Þessu þarf vissulega að breyta, því að iðnaðurinn er þegar orðinn svo þýðingarmikill hér á landi og á þó eftir að verða þýðingarmeiri, að það er ekki nema sjálfsagt jafnréttismál, að honum sé í hvívetna tryggð sams konar aðstaða og öðrum öndvegisatvinnuvegum þjóðarinnar. Þess vegna felst í því frv., sem ég og nokkrir aðrir þm. hafa lagt fram um iðnlánasjóð, ekki aðeins það, að það er lagt til, að ríkisframlagið verði verulega hærra, heldur einnig það, sem er ekki síður mikilvægt, að iðnaðinum sé í þessum efnum tryggð jafnréttisaðstaða við aðra atvinnuvegi. Ég vildi því vænta þess, fyrst hæstv. ríkisstj. hefur nú fallizt á það að gera nokkrar endurbætur á tekjuöflun iðnlánasjóðs, að hún gangi svo langt, að sjóðnum verði í þessum efnum veitt full jafnréttisaðstaða við aðra atvinnuvegi.

Þá er rétt að víkja að því, að í þessu frv. ríkisstj. felst sú nýbreytni, að gert er ráð fyrir sérstakri lántöku fyrir sjóðinn og verði því fé, sem honum aflast þannig, varið til sérstakra hagræðingarlána. Ég vil í þessu sambandi benda á það, að fyrir nokkru hafa framsóknarmenn í Ed. lagt fram frv. um framleiðnilánadeild við Framkvæmdabanka Íslands, sem er ætlað líkt hlutverk og þetta. Það frv. hefur reyndar verið áður flutt hér á Alþ., en ekki náð þá fram að ganga. Samkv. því frv. er ætlazt til, að tryggðar verði 800 millj. kr. 10 næstu árin til að veita atvinnuvegunum svipuð hagræðingar- og framleiðnilán og gert er ráð fyrir í þessu frv., að iðnlánasjóður verði gerður fær um að veita iðnaðinum að nokkru leyti. Ég held, að það sé óhjákvæmilegt að taka þetta upp, ekki aðeins í sambandi við iðnaðinn, heldur líka aðra atvinnuvegi, og þess vegna megi það, sem hér er lagt til í sambandi við iðnlánasjóð, ekki verða til þess að torvelda framgang frv. framsóknarmanna um framleiðnilánadeildina. Það er tvímælalaust jafnmikil þörf fyrir framgang þess máls, þó að það atriði verði samþ., sem felst í þessu frv. um sérstök hagræðingarlán.

Þá vil ég víkja að því, sem ég tel ekki síður þýðingarmikið, að þó að unnið sé að því að bæta úr stofnlánaþörf iðnaðarins, eins og gert er með þessu frv. að nokkru leyti, er ekki síður þörf að bæta úr rekstrarlánaþörf hans. Hún er kannske enn þá meiri og tilfinnanlegri en jafnvel sjálf stofnlánaþörfin. Í því sambandi vil ég minna á till., sem við nokkrir framsóknarmenn höfum flutt á þingi nú og reyndar oft áður, þess efnis, að Seðlabankinn endurkaupi hráefna- og framleiðsluvíxla af iðnaðinum með líkum hætti og hann kaupir slíka víxla af sjávarútvegi og landbúnaði. Það þarf ekki að rekja það, því að það er öllum hv. þm. kunnugt, hve stórkostlega rekstrarkostnaður atvinnuveganna hefur aukizt á undanförnum árum, og það hefur að sjálfsögðu aukið þörf þeirra fyrir rekstrarlán. Þó að rekstrarlán til iðnaðarins hafi nokkuð farið hækkandi á undanförnum árum, nægir það hvergi nærri til að mæta þessari vaxandi þörf. Auk þess kemur það til viðbótar, að þegar íslenzkar iðngreinar þurfa að fara að keppa við erlendar iðngreinar í vaxandi mæli, eykst þessi lánaþörf enn meira, sem liggur í því, að erlend iðnaðarfyrirtæki geta veitt kaupendunum oft og tíðum svo og svo langa lánsfresti, en það getur íslenzkur iðnaður ekki gert, nema hann fái tilsvarandi aðstoð frá ríkisvaldinu eða bönkunum til þess að veita slík lán. Ég hygg þess vegna, að það, sem nú sé kannske einna mest aðkallandi hjá iðnaðinum, auk þess sem bætt er úr þörf hans fyrir aukin stofnlán, sé einmitt þetta, að það sé bætt úr hinni miklu þörf hans fyrir stóraukin rekstrarlán og það verður ekki gert með öðrum hætti en þeim, að Seðlabankinn leysi úr þessum vanda hans, líkt og hann leysir úr vanda sjávarútvegs og landbúnaðar. Því hefur að vísu verið haldið fram hér í d. eða í sameinuðu þingi, að það sé í raun og veru búið að bæta úr þessari þörf með einhverjum reglum, sem Jóhannes Nordal hefur samið um, að Seðlabankinn veiti iðnaðinum slíka aðstoð eða endurkaupi af honum slíka víxla. En þær reglur eru svo furðulega saman settar og skringilega útbúnar, að þær velta iðnaðinum enga úrlausn í þessum efnum, og þess vegna tekur því ekki, að á þær sé minnzt. Það þarf allt annað og miklu meira að gera fyrir iðnaðinn í þessu sambandi heldur en felst í þessum reglum Jóhannesar Nordals. Ég vil þess vegna nota þetta tækifæri til að skora á hæstv. ríkisstj. að vinna nú einnig að því að leysa úr rekstrarlánaþörf iðnaðarins með því að fallast á þá till., sem fyrir þinginu liggur í þessum efnum og í raun og veru er ekki annað en endurnýjun á gömlum þingvilja, því að till. um þetta efni var einmitt samþ. hér fyrir 8 árum eða nokkru áður en vinstri stjórnin fór frá völdum og hefði vafalaust verið framkvæmd þá, ef sú stjórn hefði farið lengur með völd og sá ráðh., sem fór með bankamálin í þeirri stjórn, hefði ekki sýnt sérstaka tregðu í því að framkvæma þetta mál. En það er sannarlega kominn tími til þess, að þingviljinn fái að njóta sín í þessum efnum, því að ég trúi ekki öðru en hann sé fyrir hendi og Seðlabankanum sé ekki látið haldast það uppi að sýna þá tregðu í þessum efnum, sem skaðar nú iðnaðinn kannske meira en nokkuð annað.