17.03.1966
Neðri deild: 56. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í B-deild Alþingistíðinda. (566)

148. mál, Iðnlánasjóður

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Það eru eflaust allir sammála um, að það er mikil þörf fyrir að auka lánastarfsemina við iðnaðinn, bæði hvað snertir stofnlán og eins rekstrarlán. Hins vegar geta að sjálfsögðu verið deildar skoðanir um, hve mikið eigi að gera hverju sinni. Ég held, að það fari ekki á milli mála, að það frv., sem hér liggur nú fyrir, er til bóta og stefnir í rétta átt í þessum efnum, bæði með auknu framlagi af ríkissjóðs hálfu og einnig með því, að heimildir til lána eru verulega rýmkaðar. Alþb. mun þess vegna styðja þetta mál og veita því brautargengi hér í þinginu, og ég tel óþarft að hafa um það mörg orð, en vil aðeins lýsa yfir, að Alþb. mun styðja þetta frv.