24.03.1966
Neðri deild: 59. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (570)
148. mál, Iðnlánasjóður
Frsm. (Jónas G. Rafnar):
Herra forseti. Á undanfarandi áratugum hafa sjávarútvegur og landbúnaður átt greiðan aðgang að hagstæðum stofnlánum úr öflugum lánasjóðum. Í því sambandi má sérstaklega minna á fiskveiðasjóð, sem veitt hefur lán til kaupa á nýjum skipum og skipasmíði innanlands, stofnlánadeild sjávarútvegsins og stofnlánadeild landbúnaðarins.
Öðru máli gegnir hins vegar um iðnaðinn, sem þó hefur á undanförnum árum stórum fært út kvíarnar og mun nú veita fleirum atvinnu en nokkur annar atvinnuvegur. Vöntun á stofnlánum hefur beinlínis staðið uppbyggingu iðnaðarins fyrir þrifum og leiðir m.a. til þess, að hann er nú verr undir það búinn en skyldi að standast samkeppni við erlendar framleiðsluvörur, eftir að rýmkað var um innflutning þeirra.
Rétt er þó að taka fram, að Framkvæmdabanki Íslands, sem stofnaður var með lögum 1953, hefur veitt ýmsum greinum iðnaðarins mikla hjálp, auk lánveitinganna til fiskvinnslustöðva og í þarfir landbúnaðarframleiðslunnar.
Það er langt síðan forvígismenn iðnaðarins hófu að berjast fyrir því, að iðnreksturinn eignaðist eigin stofnun, sem veitt gæti framkvæmdalán til langs tíma. Óhætt er að segja. að fyrsti árangur þessarar baráttu hafi verið stofnun iðnlánasjóðs árið 1935. Lengi vel hafði sjóðurinn yfir sáralitlu fjármagni að ráða og lánaði því nær eingöngu til véla- og tækjakaupa. Ríkisframlag til sjóðsins var fyrst 25 þús. kr. á ári, sem nokkrum sinnum var svo hækkað. en aldrei svo mikið, að nokkra verulega þýðingu gæti haft fyrir getu sjóðsins sjálfs.
Á árinu 1962 fól iðnmrh. fjögurra manna n. að endurskoða löggjöfina um iðnlánasjóð, og tillögur þessarar n. voru síðan lagðar fyrir Alþingi í frumvarpsformi og samþ. óbreyttar sem lög frá Alþ. í apríl 1963. En það má segja, að með þessum lögum hafi verið mörkuð greinileg þáttaskil í starfsemi iðnlánasjóðs. Sjóðnum var tryggður nýr tekjustofn. 0.4% gjald, sem innheimtist af iðnaðinum í landinu, og þetta gjald var lagt á sama stofn og aðstöðugjald til sveitarfélaganna. Þá voru einnig sett fyllri ákvæði um lántökuheimild til sjóðsins og endurlán hans. Starfssvið sjóðsins var aukið, þar sem gert var ráð fyrir lánveitingu til byggingar verksmiðju- og iðnaðarhúsa og til endurskipulagningar iðnfyrirtækja, auk véla- og tækjakaupanna, og upphæð lána var ákveðin allt að 60% kostnaðarverðs og ýtarleg ákvæði sett um, gegn hvaða tryggingu slík lán skyldu veitt.
Iðnlánasjóðsgjaldið hefur fyllilega skilað þeim tekjum, sem vonazt var til, en þær munu hafa numið til síðustu áramóta röskum 33 millj. kr.
Sjóðurinn hefur fengið að láni að tilhlutan ríkisstj. frá árinu 1961 til þessa 66.5 millj. Útlán hans námu árið 1964 50.6 millj. og 1965 58.3 millj. Þegar það er haft í huga, að útlánin voru fyrir 5 árum um 4 millj. og að meðaltali á árunum 1955—1959 2.2 millj., þá er ljóst, hversu geta hans hefur stórkostlega vaxið, og má segja, að nú fyrst hafi sjóðurinn þýðingu fyrir iðnaðinn í landinu.
Frv. það, sem hér er til umr., um breyt. á l. um iðnlánasjóð, felur í sér ákvæði, sem enn munu valda tímahvörfum í starfsemi sjóðsins, ef frv. nær fram að ganga. Í fyrsta lagi er lagt til í frv. að hækka árlegt framlag ríkissjóðs til sjóðsins úr 2 millj. í 10 millj. kr., í fyrsta skipti á árinu 1967. Með þessari hækkun styrkist hagur sjóðsins að sjálfsögðu mjög mikið, og þetta ríkisframlag mun stuðla að örum vexti hans á tiltölulega skömmum tíma.
Þá er einnig lagt til að hækka hina almennu lánsheimild sjóðsins úr 100 millj. í 150 millj., en ónotað er af heimildinni nú sem stendur um 33 millj. kr.
Í þriðja lagi er heimilað, að sjóðurinn taki álit að 100 millj. kr. lán til þess að mynda nýjan lánaflokk í því skyni að veita sérstök svonefnd hagræðingarlán til viðbótar hinum almennu útlánum sjóðsins.
Allar þessar till. miða að því að gera iðnlánasjóð sem færastan um að styðja iðnað Íslendinga með hagstæðum stofnlánum, eins og komizt er að orði í 1. gr. laganna um iðnlánasjóð.
Sjóðurinn hefur núna öruggar tekjur þar sem er 0.4% gjaldið, en það eitt mun gefa á þessu ári sennilega um 17 millj. kr. Á næsta ári verður ríkissjóðsframlagið 10 millj. Eigið fé sjóðsins er nú þegar um 72 millj. Af þessu er ljóst, að þarna verður um mjög öfluga lánastofnun að ræða innan tiltölulega fárra ára.
Eins og fram kemur í nál. hefur iðnn. athugað frv., og nefndin mælir með efni frv., en tveir nm, flytja brtt. á þskj. 343, þar sem lagt er til, að gengið verði lengra hvað varðar framlag ríkissjóðs til iðnlánasjóðs. Meiri hl. n. lítur svo á, að það sé mjög myndarlega farið af stað með því að hækka ríkisframlagið upp í 10 millj., og einnig telur meiri hl., að miðað við reynslu sé ekki ástæða til þess að hækka lánsheimildina fram úr því, sem ráð er fyrir gert í frv. Meiri hl. n. leggur því til, að frv. verði samþ. óbreytt.