12.04.1966
Efri deild: 62. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (585)
148. mál, Iðnlánasjóður
Frsm. (Sveinn Guðmundsson):
Herra forseti. Iðnn. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á l. nr. 45 frá 3. apríl 1963, um iðnlánasjóð, 148. mál Nd. Nefndin hefur orðið sammála um að mæla með frv., en einstakir nm. Áskilja sér rétt til þess að fylgja brtt. eða koma fram með brtt., eins og fram kemur í nál. á þskj. 439.
Það má segja, að í tíð núv. hæstv. ríkisstj. sé brotið blað um framþróun íslenzks iðnaðar hvað fjármögnun snertir. Með samþykkt laga um iðnlánasjóð 1963 varð hin mesta stökkbreyting í aðstöðu íslenzks iðnaðar til fjárfestingarlána. Með samþykkt þessa frv. fær iðnlánasjóður möguleika til lántöku, allt að 250 millj. kr. að hámarki, en nú nema lántökur sjóðsins nær 70 millj. kr. Nýir lántökumöguleikar eru því 180 millj. kr. Af lántökuheimildinni, 250 millj. kr., er gert ráð fyrir, að 100 millj. renni til stofnunar sérstaks lánaflokks innan iðnlánasjóðs til hagræðingarlána fyrir íslenzkan iðnað. Er hér um algert nýmæli að ræða, sem hefur mjög mikla þýðingu, eins og nú horfir. Gert ár ráð fyrir, að þessi hagræðingarlán verði með hagstæðum lánskjörum, lánstími lengri en gerist hjá sjóðnum, lægri vextir og lánin afborgunarlaus fyrst í stað. Hefur þetta hina stórkostlegustu þýðingu. Allir þekkja dæmir. um það, þegar fjárfestingarlánin falla, áður en framkvæmdin er farin að skila arði.
Með þessu lagafrv. er einnig gengið út frá, að framlag ríkisins til iðnlánasjóðs hækki á næsta ári úr 2 millj. í 10 millj. kr. Hér er einnig um byltingu að ræða, og er þarna að verulegu leyti komið til móts við óskir, sem samtök iðnaðarins í landinu hafa sett fram. Það er fróðlegt að sjá í grg., sem fylgir með lagafrv. þessu, að framlög ríkissjóðs til iðnlánasjóðs hafa numið frá stofnun sjóðsins 1935 til ársins 1965, í 30 ár samtals, aðeins 20 millj. kr. Átak það, sem nú skal gert, er auk lántökuheimildanna, að ríkissjóður leggi iðnlánasjóði 10 millj. kr. árlega eða sömu upphæð og meðaltal 15 ára, miðað við framlag ríkisins frá stofnun.
Með samningi um álbræðslu í Straumsvík, sem nú hefur verið lagður fyrir hv. Alþ., er gert ráð fyrir, að væntanleg álbræðsla greiði iðnlánasjóðsgjald, 4.1% af framleiðslugjaldi því, sem bræðslunni er gert að greiða. Hér er einnig um verulegar tekjur að ræðra til handa iðnlánasjóði, eða um 3 millj. kr. á ári, þegar álbræðslan hefur náð fullum afköstum. En á 25 ára tímabili má gera ráð fyrir, að álbræðslan hafi greitt iðnlánasjóði um 60 millj. kr. með óbreyttu heimsmarkaðsverði á áli. Miðað við verðþróun í heiminum má gera ráð fyrir, að þessi upphæð verði mun hærri.
Eins og fram kemur í mjög ýtarlegri grg. með frv., hefur framlag ríkisins til iðnlánasjóðs numið 20 millj. kr. þau 30 ár, sem sjóðurinn hefur starfað. Hins vegar er iðnlánasjóðsgjaldið, sem iðnaðurinn sjálfur greiðir, komið upp í 33 millj. á þremur árum, og við bætast væntanlega í ár 17 millj. kr. Hefur þá iðnaðurinn sjálfur lagt fram til sjóðsins 50 millj. kr. á 4 árum.
Fram til ársins 1965 hafði iðnlánasjóður lánað út 80 millj. kr., aðallega til vélakaupa, og oft svo smátt sniðið, að ekki kom að fullu gagni. Á s.l. ári hafði hagur sjóðsins hins vegar batnað svo vegna tilkomu lána að tilhlutan hæstv. ríkisstj. af PL-480 fé og frá bankakerfinu samkv. framkvæmdaáætlun ríkisstj., að útlán s.l. ár urðu 58.5 millj., m.ö.o.: útlán sjóðsins jukust á þessu eina ári um nær 75%, og námu heildarútlán þá frá stofnun sjóðsins 139.6 millj. kr. Þar af eru vélalán 86 millj., en 53.6 millj. kr. í byggingarlánum. Á s.l. ári veitti iðnlánasjóður 217 lán, en synjaði 154.
Það er fróðlegt nú að gera sér grein fyrir stöðu iðnlánasjóðs nokkuð fram í tímann, t.d. fram til ársloka 1970, miðað við þá fjármöguleika, sem sjóðurinn hefur nú og honum eru skapaðir með þessu frv. og álsamningnum. Stofnsjóður í árslok 1965 er sem næst 72 millj. kr. og skuldir sjóðsins 68 millj. Útlán eru því samtals 140 millj. kr. Auknar lántökur samkv. þessu lagafrv. verða 180 millj. Vaxtatekjur og þóknun s.l. ár urðu 10 millj. kr., og má því áætla þær fram til ársloka 1970 með öllum þessum möguleikum, sem sjóðnum eru skapaðir, samtals 75 millj. kr. Ganga verður út frá, að lán úr Framkvæmdasjóði aukist heldur en minnki, miðað við lán þau, sem Framkvæmdabankinn hefur að undanförnu lánað til iðnaðar. En í framsöguræðu hæstv. iðnmrh. um frv. til l. um Framkvæmdasjóð í hv. Nd. upplýsti ráðh., að tekið verði tillit til þess, hvað Framkvæmdabankinn hefur lánað íslenzkum iðnaði undanfarin ár, þegar kemur til, að ákveða skal lán úr Framkvæmdasjóði. Ef þetta nemur að jafnaði á ári 40 millj. kr., bætast sjóðnum hér 160 millj. kr. til ársloka 1970. Ríkisframlagið í ár verður 2 millj. kr., en hækkar svo samkv. þessu lagafrv. í 10 millj. kr. á ári. Nemur þetta framlag þá á þessu tímabili 32 millj. kr. Iðnlánasjóðsgjaldið, sem á s.l. ári er líklega 17 millj. kr., má áætla með aukningu og tilkomu álbræðslunnar að nemi 125 millj. kr. Samkv. þessum hugleiðingum verður því iðnlánasjóður og þar með útlán iðnlánasjóðs í árslok 1970, með því, sem sjóðurinn hefur nú til umráða í útlánum, samtals 712 millj. kr. Sé gengið út frá, að sjóðurinn fái sömu fyrirgreiðslu úr bankakerfinu sem á síðasta ári og standi þannig straum af afborgunum lána, má ganga út frá, að iðnlánasjóður eigi fyrir sér að fimmfaldast frá því, sem nú er, á næstu 5 árum. Ef sjóðnum verða á þessu tímabili fengin aukin verkefni frá hæstv. ríkisstj. eða hv. Alþ., fylgja þar væntanlega með auknir fjármöguleikar.
Að þessu athuguðu er ekki annað séð en vel sé hugsað fyrir þessum fjárfestingarsjóði iðnaðarins á þessu tímabili, sem ég hef rætt um, til ársloka 1970. Hér er um slíka byltingu að ræða í fjárfestingarlánum fyrir íslenzkan iðnað og þann skilning frá hendi ríkisvaldsins og núv. hæstv. iðnmrh., að þetta ber að þakka alveg sérstaklega. Er þess að vænta, að nú verði gert jafnmyndarlegt átak varðandi rekstrarfjárþörf þessarar þýðingarmiklu atvinnugreinar.
Eins og ég gat um í upphafi, mælir iðnn. með þessu frv. um breyt. á l. um iðnlánasjóð, og er þess að vænta, að hv. þdm. veiti þessu máli stuðning.