18.11.1965
Neðri deild: 19. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í B-deild Alþingistíðinda. (596)

11. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Frv. það um fuglaveiðar og fuglafriðun, sem hér kemur til 2. umr., er endurskoðun á fyrri l. um þetta efni, gerð af fuglafriðunarnefnd og nokkrum öðrum sérfróðum mönnum.

Flestar þær breyt., sem frv. gerir á gildandi l., virðast sjálfsagðar og eru óumdeildar. Rýmkað er allverulega um hömlur á baráttu gegn grágæs, sem valdið hefur bændum vaxandi tjóni, og er það gert skv. eindregnum óskum þeirra. Þá er veiði svartfugls á snörufleka bönnuð, en hún hefur raunar lagzt niður af sjálfu sér alls staðar á landinu, að undanteknum tveimur stöðum. Enn er veiðitíma fugla breytt hvað nokkrar tegundir snertir, og eru reglur um það efni gerðar einfaldari en áður voru. Um allt þetta er algert samkomulag, og gerir menntmn. till. um 3 breyt., sem eru á þskj. 58 og þurfa varla skýringar við.

1. brtt. er leiðrétting. 2. brtt. er leiðrétting á formsatriði, því að ekki er hægt að setja í lög,

að breyta megi lögum með reglugerð einni. Verður því að vera undanþáguákvæði í öðru formi. Og loks eru sett örlítið strangari ákvæði en áður voru um vernd arnar, fálka, snæuglu og haftyrðils, sem taldar eru þær 4 fuglategundir í landinu, sem hætta er á að kunni að eyðast.

Þessu til viðbótar gerir frv. ráð fyrir breyttum baráttuaðferðum gegn svartbak, og er lagt til, að lög um eyðingu svartbaks, sem sett voru á síðasta þingi, verði felld úr gildi, en reglugerðir samkv. þessum l. og ákvæði þeirra komi í staðinn.

Eins og sjá má á nál. á þskj. 57, hafa 3 af 5 nm. í menntmn., hv. 3. þm. Sunnl., hv. 3. þm. Vestf. og hv. 2. þm. Norðurl. v., skrifað undir nál. með fyrirvara, og er sá fyrirvari bundinn við þær breyt., sem frv. gerir varðandi eyðingu svartbaks. Í samræmi við það hafa þessir 3 þm. flutt sérstaka brtt., sem þeir að sjálfsögðu munu gera grein fyrir.

Hér er um athyglisvert mál að ræða, sem getur snert margt fleira en eyðingu svartbaks. Kjarni þess er sá, að vísindamenn eru nú þeirrar skoðunar, að yfirleitt sé tilgangslaust að reyna að eyða fuglategundum, sem verða mjög útbreiddar, með því að skjóta fuglinn. Er þessi skoðun íslenzkra sérfræðinga í samræmi við það, sem nú virðist vera álit sérfróðra manna í öðrum löndum, og hefur þróun löggjafar óðum gengið í þá átt, að hætt er við að veita sérstök verðlaun fyrir fuglaeyðingu á þennan hátt. Að sjálfsögðu er ekki ætlunin að banna það, að svartbakur sé skotinn. Oft getur það að sjálfsögðu komið að miklu gagni á takmörkuðum svæðum eða við að verja einstaka staði gegn ágangi fugla, sem mikið er af. En það er skoðun vísindamannanna, að verðlaunaveitingar úr opinberum sjóðum fyrir skotna fugla eigi ekki rétt á sér og þar sé um illa meðferð á opinberu fé að ræða, því að fyrir þær fáist ekki sá árangur, sem talið var áður fyrr að fengist. Til að skýra þetta vil ég leyfa mér að lesa örlítinn kafla úr grg. eftir Agnar Ingólfsson fuglafræðing, sem hefur lagt mikla stund á lifnaðarhætti mávanna, þar á meðal kynnt sér þær aðferðir, sem beitt hefur verið til að útrýma mávum eða fækka þeim.

Það fylgir vaxandi siðmenningu og velmegun, að þessar fuglategundir elta mannabyggðir, lifa á úrgangi ýmiss konar, bæði frá verksmiðjum, sláturhúsum, frystihúsum og heimilum manna, og mávum hefur fjölgað svo, að til alvarlegs baga er á mörgum stöðum.

Agnar Ingólfsson bendir á, að sú aðferð að greiða verðlaun fyrir eyðingu meindýra hafi mjög verið notuð í mörgum löndum, t.d. Bandaríkjunum, Bretlandi og Norðurlöndum og viðar. „En á seinni árum hefur mikið verið rætt og ritað um þessa aðferð. Komið hefur í ljós, að í langflestum tilvikum, sem rannsökuð hafa verið, hafa þessar verðlaunaveitingar reynzt algerlega gagnslausar. Samkv. því hefur aðferðin verið lögð niður víðast hvar. Einna lengst hefur hún haldið velli í Bandaríkjunum, en þar er nú hvert ríkið á fætur öðru að leggja hana niður. Nýlega var samþ. á fundi Alþjóðafuglaverndunarráðsins ályktun þess efnis, að skora á öll aðildarríki ráðsins að hætta slíkum verðlaunaveitingum, þar sem þær eru gagnslausar að mestu. Það, sem einkum mælir á móti verðlaunaveitingum, er þetta:

1) Það hefur sýnt sig, að þeir einstaklingar, sem drepnir eru vegna verðlaunanna, eru ávallt svo fáir, að engu máli skiptir fyrir heildarstofninn, nema hann sé mjög lítill. Þessar verðlaunaveitingar hafa því oftast verið bein sóun á fé.

2) Í þau fáu skipti, sem aðferðin hefur borið árangur, hefur hún reynzt mjög kostnaðarsöm, og hefði verið unnt að ná sama árangri á mun ódýrari hátt með öðru en veitingu verðlauna.

3) Oft eru það tiltölulega fá dýr, sem mestu tjóni valda, og er þá oftast reynt að drepa þau, án tillits til þess, hvort til verðlauna er að vinna eða ekki.

4) Alls staðar, þar sem þessi aðferð hefur verið notuð, hefur verið töluvert um svík í sambandi við hana. Nægir í þessu sambandi að nefna nærtæk dæmi, eins og tilbúning minkaskotta og greiðslu verðlauna fyrir ýmsar aðrar mávategundir en svartbak.

5) Þessi eyðingaraðferð er fremur ógeðfelld, þar sem hún hvetur menn til að taka sér byssu í hönd og drepa dýr eingöngu í þeim tilgangi að hljóta verðlaun fyrir.“

Agnar Ingólfsson segir ennfremur:

„Vil ég nú víkja nokkru nánar að greiðslu verðlauna fyrir eyðingu svartbaks. Hér að framan hef ég komist að þeirri niðurstöðu, að eyða þyrfti a.m.k. 125 þús. svartbökum á ári hverju, til þess að einhverjar líkur séu fyrir því, að svartbökum fækki verulega. Það ætti einnig að vera ljóst af framanrituðu, að engin líkindi eru til, að menn geti haft áhrif á stærð svartbaksstofnsins með skotum, jafnvel þótt há verðlaun væru greidd fyrir hvern unninn svartbak, og mundu þessar verðlaunaveitingar því aðeins vera sóun á fé. Ef reyna á að eyða þessum fjölda svartbaka á ári, er auðsætt, að ráða verður til þess hóp manna, sem starfi eingöngu að þessu verki með stórvirkum aðferðum. Það má teljast mjög góður árangur, ef einum slíkum veiðimanni tekst að eyða 5 þús. svartbökum á ári. Mundi því þurfa að fá a.m.k. 25 veiðimenn til þess að ná þessum árangri. Samkv. núgildandi l. eru greiddar allt að 12 kr. fyrir hvern unninn svartbak, en sú upphæð mun vart nægja fyrir skotum.“ — Þetta var skrifað, áður en frv. var samþ., sem hækkaði verðlaunin í 20 kr. „Sé miðað við 20 kr. verðlaun, mundu verðlaunaveltingar fyrir 125 þús. svartbaka nema 2 1/2 millj. kr. Þar sem góð svartbaksskot munu nú kosta um 10 kr., og þar sem óhætt mun að reikna með því, að hjá góðum skyttum falli ekki svartbakur nema að meðaltali í öðru hverju skoti, er ólíklegt að menn fari að stunda svartbaksveiðar að nokkru ráði vegna verðlaunanna. Ef ráða ætti sérstaka svartbaksveiðimenn, yrði að sjálfsögðu að greiða þeim fullt kaup auk verðlaunanna. Ef launin til þeirra eru áætluð 100 þús. kr. á ári, mundi þessi liður nema 2 1/2 millj. kr.“

Á þennan hátt rekur fuglafræðingurinn, hvílíkur kostnaður það yrði, ef reynt væri með þessari aðferð að drepa a.m.k. 125 þús. svartbaka á ári, en það telja þeir vera lágmark, til þess að það sjái verulega á stofninum. Hins vegar benda hinir sérfróðu menn á, að ýmsar aðrar aðferðir til eyðingar svartbaks ryðji sér til rúms. Fram eru komin ýmis lyf, sem geta komið í staðinn fyrir hættulegt eitur, og þar að auki er mikið gert að því að úða yfir hreiður, þannig að eggin eyðileggist, án þess fuglinn verði þess var, og hefur það líka borið góðan árangur. Loks telja sérfræðingarnir, að hér á landi væri hagkvæmast og skynsamlegast að halda uppi varnaraðgerðum við þá staði, þar sem tjón af völdum þessara fugla er mest, sem er aðallega við æðarvarp, og beita þar eitri á takmörkuðum svæðum undir föstu eftirliti. Telja þeir, að á þann hátt sé hægt að verja æðarvarpið og forða frá því tjóni, sem þar verður mest, enda er yfirleitt um að ræða staðbundinn hluta svartbaksstofnsins á slíkum stöðum, sem mestu tjóni veldur.

Hér hefur áður verið gerð tilraun til þess að fá menn til að eyða þessum fugli fyrir verðlaun. Það var á árunum 1942—54. Samkv. yfirliti um greiðslur, sem þá voru inntar af hendi, voru að meðaltali drepnir rösklega 3 þús. svartbakar á ári. En samkv. beztu vitund manna þarf að drepa töluvert á annað hundrað þús., til þess að sjáist á stofninum.

Þetta eru nokkrar þær röksemdir, sem fram eru færðar fyrir því, að við eigum að hætta við þá aðferð að veita peningaverðlaun af opinberu fé fyrir svartbaksdráp, en eigum að skipuleggja aðgerðir á annan hátt, verja æðarvarp og aðra staði, þar sem tjóni er valdið, og gera það með nýjustu aðferðum, sem við þyrftum þó að reyna á skipulagsbundinn hátt við íslenzkar aðstæður.

Þetta deilumál, sem getur snert fleira en mávana eina, er að mörgu leyti líkt rjúpnamálinu fræga, sem miklum umr. olli á þingi fyrir allmörgum árum. Þá voru margir þm. þeirrar skoðunar, að veiðimenn væru alvarlegasta hættan, sem steðjaði að rjúpnastofninum, við yrðum því að banna rjúpnaskot til þess að vernda stofninn. Þá héldu sérfræðingar fram sömu skoðun og þeir hafa í þessu svartbaksmáli, að skotin mundu ekki ráða úrslitum um rjúpnastofninn. Þeirra aðferð var reynd, og mér skilst, að hún hafi sannazt. Rjúpnastofninn, sem virtist vera orðinn mjög litill, hefur rétt sig við aftur, og nú er mjög mikið um rjúpu, enda þótt skot hennar hafi ekki verið takmörkuð. Finnst mér, að taka mætti nokkurt tillit til þess, að þessi reynsla hefur nýlega fengizt, þegar deilt er um sömu grundvallaratriði í nýju máli. Af þeim sökum hefur meiri hluti menntmn. viljað samþykkja þetta stjórnarfrv., eins og það er lagt fram, en minni hl. n. gerir brtt. við þetta eina atriði.