18.11.1965
Neðri deild: 19. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 776 í B-deild Alþingistíðinda. (603)
11. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Á þskj. 85 hef ég leyft mér að flytja brtt., sem er við 5. gr. frv., um, að 2. mgr. hljóði svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Fuglaveiðar á afréttum utan landareigna lögbýla eru háðar leyfum sveitarstjórna eða upprekstrarfélaga, sem afréttirnar eiga eða nota.“
Frv. þetta, sem hér er til umr, nú, var sent búnaðarþingi til umsagnar, er það síðast starfaði. Búnaðarþing gerði nokkrar aths. við frv., og m.a. lagði það til, að þessi mgr. 5. gr. yrði svo hljóðandi, eins og ég hef gert brtt. um. Í grg., sem frá búnaðarþingi fylgdi út af aths., er gerð grein fyrir því, að víða er það svo, að sveitarfélög eða hluti af sveitarfélögum notar afréttarlönd og hafa notað um aldaraðir, án þess að nú séu til fyrir þeim kaupbréf eða sönnunargögn fyrir eign þeirra Það er enginn vafi á því, að það er mjög hæpið og meira en hæpið að ætlast til þess, að hverjum einum sé heimilt að vaða um afréttarlönd þeirra undir því yfirskini, að þeir séu þar að veiða fugl. Nú er á það bent, að þetta ákvæði sé í gildandi lögum. En það er enn þá verra, að það standi í lögum þeim, sem hér verða afgreidd, vegna þess að það er orðin um það umr. og það hefur verið túlkað svo, að öllum væri heimilt þarna um að vaða. Ekki er vafi á því, að þó að ekki séu til nú sönnunargögn eins og kaupbréf fyrir afrétti eins og Þverárafrétti, er þetta afréttur með tilgreindum landamerkjum, og hefur verið ótvíræður afnotaréttur þeirra, er yfir Þverárafrétti eiga að ráða. Það er því eðlilegt, að þeir hafi rétt til þess að leyfa eða banna umferð um þennan afrétt sinn einnig á fuglaveiðum. Ég held, að hv. Alþ. eigi að gjalda varúð við að hafa þetta svo opið eins og gert er ráð fyrir í þessu frv.
Þá vil ég í framhaldi af þessu leyfa mér að spyrja frsm. n., hv. 5. þm. Vesturl., um það, hvort nokkur tilmæli hafi komið fram í n. eða umr. um það að breyta rjúpnaveiðitímanum, þannig að hann hefjist ekki fyrr en 1. nóvember. en stæði þá eitthvað fram í janúar. Þetta hef ég heyrt ýmsa menn ræða um. og hafa þeir beðið mig um að athuga þennan þátt, m.a. vegna þess, að rjúpan væri tæplega orðin verzlunarvara um miðjan október, þegar leyfi er veitt til þess að fars að drepa hana. Þetta vildi ég biðja hv. n. að athuga og vita, hvort hún vildi gera að sinni till.
Út af því, sem hér hefur verið rætt um svartbakinn og l., sem sett voru hér í fyrravor í sambandi við eyðingu svartbaks, vil ég taka undir það með hv. 5. þm. Vesturl., að það eru mikil brögð að því á hv. Alþ. og hefur farið árvaxandi, að hér er hrúgað inn málum síðustu daga þingsins og þeim er rubbað af. Og við stjórnarandstæðingar verðum oft varir við það, að því er haldið fram, að stjórnarandstaðan sé með óþarfa málþóf, ef hún vill, að mál séu sæmilega rædd. Þess vegna má vel vera, að afgreiðsla þessa máls hér á síðasta hv. Alþ. hafi ekki verið svo sem skyldi. En það, sem ég mundi fyrst og fremst vilja segja í sambandi við þetta frv., er það, að hér er Alþ. að afhenda öðrum valdið til þess að framkvæma þetta ákvæði. Það er eðlilegt, eins og hv. 5. þm. Vesturl. tók fram, að ákvæði um eyðingu svartbaks sé þáttur í þessari löggjöf. Það finnst mér eðlilegt. En það er ekki eðlilegt, að einhverri n. eða hv. rn. sé falið að framkvæma það eftir sínu höfði, en Alþ. segi þar ekkert frekar um heldur en gert er í þessu lagafrv., því að hér er í raun og veru ekkert sagt og það er á valdi þeirra, sem eiga að framkvæma, hvernig með málið er farið. Alþ. leggur þeim engar reglur um það, hvernig meðferð þessa máls skuli hagað.
Ég verð líka að segja í sambandi við grg. frv. og það álit fuglafræðingsins, sem lesið var upp hér af hv. frsm. í upphafi þessarar umr., að það fannst mér helzt til ódýr áróður. Mér fannst, að það væru ekki nægjanleg rök til þess að sannfæra þá, sem nokkuð hafa með þessum málum fylgzt, og það væri meiri keimur af ódýrum áróðri. Mér finnst ég líka kenna þess í þessari grg., að það er lagt tiltölulega lítið upp úr æðarvarpi. Það vil ég ekki ganga inn á, að sé gert. Æðarvarpið er einhver skemmtilegustu hlunnindi, sem hægt er að hugsa sér fyrir þá, sem það þekkja, auk þess sem það er mjög verðmæt hlunnindi. Það er líka á fleiri sviðum, sem svartbakurinn hefur gert mikinn usla, heldur en í æðarvarpi, og það var rétt, sem hv. 2. þm. Norðurl. v. tók fram hér í ræðu sinni áðan, að hættan er ekki um æðarfuglinn, meðan eggin eru í hreiðrunum, heldur fyrst og fremst þegar ungarnir eru komnir á sjóinn. Þá kemur svartbakurinn og sporðrennir ungunum hverjum á fætur öðrum. Það hef ég horft á, og það verður ekki varið fyrir þessum fugli þar, þó að það takist að verja hreiðrin.
Nú má vel vera, og ég ætla ekki að gera lítið úr því. að vísindamenn okkar kunni ráð, sem dugi við eyðingu svartbaks. En hví má þá ekki setja þær reglur ljósar upp í frv.? Hví á það að vera á valdi þeirra einna?
Ég vil líka geta þess, að það var mjög sótt á okkur þm. Vesturl. í fyrra að standa að löggjöf um eyðingu svartbaks, ekki fyrst og fremst frá hlunnindabændunum, heldur frá þeim, sem áttu að njóta neyzluvatnsins á Akranesi, vegna þess að svartbakurinn er svo mikið í kringum þá veiðistöð. að það var talið óframkvæmanlegt, eins og þá stóð á, að verja neyzluvatnið fyrir ágengni þessa fugls. Við vorum því mjög hvattir til þess að standa að þessu máli, sem afgreitt var hér í fyrra. Nú er það vitanlegt, að þó að ekki sé hægt að eyða svartbaki með skotum nema að takmörkuðu leyti, er mjög hægt að fæla hann frá, eins og líka kemur fram í grg., með skotum, og það var einmitt sú hugsun, sem lá á bak við þær aðgerðir, sem var stefnt að hér í fyrravor. Ég vil því enda mál mitt með því að segja, að ég ætla ekki að fara að deila við fuglafræðingana um, að það sé seinleg aðferð að eyða svartbaki með skotum, það er mér ljóst. Hitt álít ég, að Alþ. eigi ekki að gera, að afhenda það vald, sem það hefur, á svo ódýran hátt eins og það gerir hér. Og það væri eðlilegt að fella inn í frv. sérstakan kafla um eyðingu svartbaks, en ekki eina heimildargrein, eins og þarna er gert. Það eru vinnubrögð, sem Alþ. á ekki að viðhafa, og ég vildi treysta hv. n. til þess að athuga það mál betur, áður en frv. verður afgreitt hér úr hv. d., um leið og ég treysti henni til að athuga þá brtt., sem ég hef flutt, og þau tilmæli, sem ég beindi til frsm, áðan.