19.10.1965
Efri deild: 4. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í B-deild Alþingistíðinda. (653)
8. mál, Stýrimannaskólinn í Reykjavík
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að miklar breytingar hafa orðið á siglingatækjum og veiðitækjum á árunum eftir síðari heimsstyrjöld. Ný tæki hafa komið fram, bæði við siglingar og fiskveiðar. Nauðsynlegt er, að nemendur stýrimannaskólans hljóti kennslu í gerð, meðferð og notkun þeirra siglingatækja, sem algengust eru nú um borð í skipum og þeir eiga að nota í starfi sínu eftir námið. Þess vegna var það, að skólaárið 1960—1961 var námstími í farmannadeild stýrimannaskólans lengdur um tvo mánuði í því skyni að auka kennslu í rafmagnsfræði og jafnframt tækjakennslu. Var að þessu veruleg bót. En einnig er þörf á að auka verulega tækjakennslu í fiskimannadeildinni og þess vegna óhjákvæmilegt að lengja einnig námstímann í þeirri deild.
Námstími fyrir fiskimannapróf er nú sá sami og var, áður en hin nýju tæki komu til sögunnar. Þótt bætt hafi verið við kennslustundum í meðferð og notkun siglingatækja, hafa þær enn verið of fáar, til þess að hægt hafi verið að gera þeirri kennslu skil sem æskilegt væri. Enn fremur hefur verið nauðsynlegt að samræma kennsluna fyrir hið minna fiskimannapróf og fiskimannaprófið. Af þessum sökum skipaði menntmrn. hinn 17. jan. 1964 5 manna nefnd til að endurskoða gildandi lög um Stýrimannaskólann í Reykjavík. Í nefndina voru skipaðir Jónas Sigurðsson, skólastjóri stýrimannaskólans, sem var skipaður formaður nefndarinnar, Guðmundur H. Oddsson skipstjóri, Jón Pálsson tómstundaráðunautur Æskulýðsráðs Reykjavikur, Jón Sigurðsson formaður Sjómannasambands Íslands og Sverrir Júlíusson alþm. Samdi n. frv. það, sem hér er nú flutt, og var sammála um efni þess.
Helztu breytingar, sem samþykkt þessa frv. mundi hafa í för með sér að viðbættum reglugerðarbreytingum, sem í kjölfar þess mundu sigla, eru þessar:
1) Námstími fyrir fiskimannapróf verður lengdur um 2 mánuði, þannig að fyrsti bekkur mun starfa til marzloka í stað til janúarloka, eins og nú er. Hér verður um reglugerðarbreyt. að ræða, þar sem lengd námstíma til fiskimannaprófs hefur ekki verið tiltekin í lögum fyrir stýrimannaskóla öðruvísi en þannig, að tveggja ára deild skuli starfa fyrir fiskimannaprófið.
2) Eins árs deild frá 1. okt. til 1. marz starfi fyrir fiskimannapróf 1. stigs. Jafnframt starfi sams konar deild á tveim stöðum utan Reykjavíkur. Próf frá þessari deild veitir réttindi til skipstjórnar í innanlandssiglingum á íslenzku skipi álit að 120 rúmlestum brúttó. Er þannig gert ráð fyrir því, að sú samræming verði gerð á kennslunni fyrir hið minna fiskimannapróf og fiskimannaprófið, að þeir, sem standast próf upp úr 1. bekk fiskimannadeildar, öðlist sams konar réttindi og hið minna fiskimannapróf veitir nú.
3) Eins árs framhaldsdeild frá 1. okt. til maí starfi fyrir fiskimannapróf annars stigs. Inngönguskilyrði í hana séu fiskimannapróf 1. stigs eða sambærileg menntun. Próf frá þessari deild veitir réttindi til skipstjórnar á íslenzku fiskiskipi af hvaða stærð sem er og hvar sem er.
4) Eins árs deild frá 1. okt. til 1. marz starfi fyrir fiskimannapróf 1. stigs. Próf frá þessari deild veitir sömu réttindi og fiskimannapróf 1. stigs.
5) Eins árs framhaldsdeild frá 1. okt. til 31. marz starfi fyrir farmannapróf 1. stigs. Próf frá þessari deild veitir sömu réttindi og fiskimannapróf 1. stigs.
6) Eins árs framhaldsdeild frá 1. okt. til 31. marz starfi fyrir farmannapróf 2. stigs. Inngönguskilyrði í þá deild séu farmannapróf 1. stigs eða sambærileg menntun. Próf frá þessari deild veitir réttindi til þess að starfa sem undirmenn á íslenzku verzlunar- eða varðskipi.
7) Eins árs framhaldsdeild frá 1. okt. til maí starfi fyrir farmannapróf. Inngönguskilyrði í þá deild sé farmannapróf 2. stigs eða sambærileg menntun. Próf frá þeirri deild veitir réttindi til skipstjórnar á íslenzku verzlunar- eða varðskipi af hvaða stærð sem er.
8) Komið á fót deild fyrir skipstjórapróf á varðskipum ríkisins. Þessi deild starfi eð sama fyrirkomulagi og verið hefur, en vikulegur kennslustundafjöldi verði aukinn allverulega. Gera má ráð fyrir, að væntanlegir siglingafræðingar stýrimannaskólans sæki þessa deild.
Þessar eru breytingarnar, sem af samþykkt þessa frv. mundi leiða. Tel ég óhætt að fullyrða, að þær mundu hafa í för með sér verulega bætta menntun íslenzkra skipstjórnarmanna.
Að svo mæltu leyfi ég mér að leggja til, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr og hv. menntmn.