31.03.1966
Efri deild: 58. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í B-deild Alþingistíðinda. (656)
8. mál, Stýrimannaskólinn í Reykjavík
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Enda þótt ég hafi skrifað undir nál. og sé sammála öðrum nm. menntmn. þessarar hv. d. um að mæla með þessu frv., þykir mér ástæðu til að taka það fram, að ég hefði kosið, að sú endurskoðun í sambandi við stýrimannakennslu, sem gerð hefur verið og felst í þessu frv., hefði verið fyllri og ýtarlegri en þar er. Hins vegar er um að ræða ýmsar breytingar í þessu frv. til bóta og lagfæringar, sem ég tel þó, að ekki muni nægja nema til bráðabirgða.
Það hafa á undanförnum áratugum orðið mjög verulegar breytingar á stýrimannakennslu. og það er eðlilegt, því að svo miklar breytingar hafa orðið bæði að því er varðar siglingatæki og skip svo og að því er varðar veiðarfæri, fiskleitartæki og annað, sem komið hefur til sögunnar nú á síðari tímum. Það er miklu meiri fjölbreytni í þessu öllu nú en var fyrir nokkrum tíma, bæði fjölbreyttari skipakostur, fjölbreyttari veiðiaðferðir og veiðitæki. Þetta hefur eðlilega haft sín áhrif á kennsluna í stýrimannaskólanum, og hún hefur breytzt að nokkru í samræmi við það. En þó tel ég, að enn sem komið er hafi hún engan veginn fylgzt nægilega með tímanum.
Með því frv., sem hér liggur fyrir, er leitazt við að kippa ýmsum atriðum í réttara og betra horf, og því ber vissulega að fagna, að í þessu frv. er um að ræða tilteknar umbætur. En ég vil leggja á það áherzlu, að ég lít svo á, að hér sé aðeins um bráðabirgðalausn að ræða, það þurfi að gera miklu meira í þessu efni. Ég vil aðeins á það benda, að eins og lagt er til í þessu frv., þá er að vísu gert ráð fyrir lítils háttar lengri námstíma, til þess að menn fái réttindi til að stjórna fiskiskipi af hvaða stærð sem er, en það er þó ekki nema tveggja vetra nám, sem hér er um að ræða, og þegar tillit er tekið til þess, að ekki þarf neinn sérstakan undirbúning til að komast inn í stýrimannaskólann, menn geta komizt þangað inn, jafnvel þó að þeir hafi ekki annað en venjulegt skyldunám að baki sér, þá sér hver maður, að þetta er býsna skammur tími til þess að fá full réttindi til þess að stjórna stórum og dýrum fiskiskipum, skipum, sem e.t.v. kosta með útbúnaði öllum 20—30 millj. kr., skipum, sem eiga að stunda margvíslegar veiðar og sumar þess eðlis, að á öllu veltur, hversu menn eru hæfir til þess að hagnýta þá nútímatækni, sem um er að ræða í sambandi við fiskveiðar og fiskiskip. Mér hefur alltaf fundizt það nokkuð hlálegt, að til þess að öðlast full réttindi til að stjórna slíkum tækjum þurfi menn ekki að sitja nema tvo vetur í skóla, sem meira að segja skortir að ýmsu leyti, a.m.k. fram að þessu og raunar enn, mörg þau tæki, sem þeir koma svo til með að nota, þegar þeir taka við stjórn skipanna, — en aftur á móti menn, sem læra t.d. að sóla skó eða klippa hár, þeir skuli vera 4 ár í slíku námi, svo að eitthvað sé tekið til samanburðar.
Það þarf ekki að fara um það mörgum orðum, hversu mikilvægt það er, hversu miklu máli það skiptir, að skipstjórnarlærðir menn á nútímaskipum geti hagnýtt þau tæki og þá tækni, sem nútíminn hefur fært mönnum upp í hendur. Ég vil aðeins í því sambandi benda á síldveiðarnar, þar hefur það sýnt sig hvað greinilegast, að þeir skipstjórnarmenn einir, sem hafa náð góðum tökum á tækni nútímans, koma með mikinn afla að landi, en hinir verða þar út undan. Þetta er vitanlega svo stórvægilegt atriði, að það er mjög fjarri allri skynsemi að spara það, sem til þarf til að kenna þeim mönnum, sem eiga að taka við slíkum dýrum og mikilvægum atvinnutækjum og stjórna þeim.
En mér er ljóst, að til þess að koma kennslu stýrimanna í það horf, sem vissulega æri æskilegast, skortir okkur þrennt. Í fyrst lagi þarf að stefna að því og búa í haginn fyrir það, að hægt sé að lengja skólatímann í stýrimannaskólanum. Í öðru lagi skortir mjög auknar fjárveitingar til handa stýrimannaskólanum til véla- og tækjakaupa, svo að hægt sé að kenna stýrimannaefnum undirstöðuna í sambandi við notkun slíkra tækja í skólanum sjálfum. En í þriðja lagi, og á það vil ég leggja sérstaka áherzlu, ber öllum kunnugum mönnum saman um, að mjög bráðlega þurfi skólinn að fá sérstakt skólaskip eða aðgang að skipi, sem hægt sé að nota að hluta til sem skólaskip, það muni ekki vera kleift að koma þessari kennslu, þessari bráðnauðsynlegu kennslu, í æskilegt horf, miðað við nútímaþarfir, með öðru móti en þessu. Á þessu ríkir mikill áhugi meðal sjómannastéttarinnar. Um þetta hafa verið gerðar samþykktir af stýrimanna- og skipstjórafélögum og Farmanna- og fiskimannsambandi Íslands. Mér er einnig um það kunnugt, að kennarar stýrimannaskólans telja ekki aðeins, að þetta sé æskilegt, heldur og nauðsynlegt, og sömuleiðis skólastjóri skólans, sem kom á fund menntmn. til þess að ræða um þetta frv., viðurkenndi það fyllilega, að á þessu æri orðin hin brýnasta þörf. Sumir þeir, sem gera ákveðnastar kröfur í þessu efni, telja, að sjálfsagt sé, að sérstakt skip verði keypt eða smíðað og útbúið sem skólaskip til notkunar fyrir skólann. Aðrir telja, að fyrst um sinn sé nægilegt og a.m.k. stórfelld úrbót frá því, sem nú er, ef skólinn gæti haft aðgang að góðu skipi svo sem 3—4 mánuði á ári, og hafa bent á í því sambandi, að líklegt sé, að hægt væri að sameina síldarleitarskip og skólaskip þannig, að stýrimannaskólinn gæti haft slíkt skip til afnota til að mynda 3—4 mánuði á ári, mánuðina jan.-apríl, en skipið yrði síðan notað sem síldarleitarskip aðra tíma árs, eftir því sem þurfa þætti.
Ég vil vekja athygli á þessu máli og undirstrika, að ég tel, að þetta sé hið sta nauðsynjamál og að sá kostnaður, sem vitanlega yrði talsverður, sem af þessu leiddi fyri hið opinbera, að koma upp slíkri verkleg í kennslu stýrimannaefna á skólaskipi, verðu áreiðanlega margfaldlega endurgoldinn og það á skömmum tíma.
Ég vil svo endurtaka það, sem ég sagði í upphafi, að ég fylgi þessu frv., það sem það nær, og tel, að það sé til bóta frá því; sem verið hefur, en að betur þurfi að gera í þessu efni, það þurfi að stefna að því að koma hér upp fullkominni nútímakennslu á þau tæki og á þá tækni, sem um er að ræða um borð í skipum, og að slíkt muni margfaldlega borga sig fyrir þjóðarheildina.