21.02.1966
Efri deild: 39. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 823 í B-deild Alþingistíðinda. (669)

118. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að eftir síðustu alþingiskosningar hefur flokkaskipun á Alþ. verið þannig, að allir þingflokkar fá ekki fulltrúa í 5 manna nefndir. Í framhaldi af þessu var 1964 gerð sú breyt. á lögum um þingsköp Alþ., að í þn. var fjölgað úr 5 í 7, beinlínis í því skyni, að allir þingflokkar gætu átt sæti í þn. Nú er svo alkunna, að Alþ. kýs ýmsar utanþingsnefndir til þess að fara með stjórn ýmissa opinberra stofnana. Ein þeirra nefnda er útvarpsráð, sem frá upphafi hefur verið skipað 5 mönnum. Útvarpsráð er kosið eftir hverjar alþingiskosningar, og var það gert eftir síðustu kosningar þannig, að aðeins þrír þingflokkanna eiga sæti í útvarpsráði.

Nú er það líka kunnara en frá þurf að segja, að fyrir dyrum stendur mikil aukning á starfsemi ríkisútvarpsins með tilkomu íslenzks sjónvarps. Með sérstakri hliðsjón af því ykir eðlilegt, að fjölgað verði í útvarpsráði í 7, þannig að allir þingflokkar eigi sæti í þessari yfirstjórn ríkisútvarpsins.

Efni þessa frv. er það eitt, að útvarpsráð skuli skipað 7 mönnum ásamt jafnmörgum varamönnum og útvarpsráð skuli, eins og hingað til, kosið á fyrsta þingi eftir hverjar alþingiskosningar. Þá skuli umboð núverandi útvarpsráðsmanna falla niður við samþykkt þessa frv. og þá þegar kjósa nýtt útvarpsráð 7 manna. Þetta er allt efni málsins, og sé ég ekki ástæðu til að skýra það nánar eða fara um það fleiri orðum og leyfi mér þess vegna, herra forseti, að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.