13.12.1965
Sameinað þing: 20. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í B-deild Alþingistíðinda. (69)
1. mál, fjárlög 1966
Frsm. 1. minni hl. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Eins og hv. frsm. meiri hl. fjvn. tók fram í ræðu sinni hér áðan, gerðum við fulltrúar Framsfl. grein fyrir afstöðu okkar til þeirra till., sem bornar eru fram í umboði n. við þessa umr., og vísuðum þá til fyrirvara þess, sem við höfðum við 2. umr. þessa máls á hv. Alþ., en hann var svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Fulltrúar Framsfl. og Alþb. vilja taka fram, að brtt. þær, sem fluttar eru í nafni n., njóta ekki allar stuðnings þeirra. Áskilja þeir sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma við þær eða einstaka liði frv.“
Þetta er hinn almenni fyrirvari, sem við höfum í sambandi við till. þær, sem fluttar eru af n. í heild á þskj. 153 og fleiri þskj. En til viðbótar þessu létum við bóka sérstakan fyrirvara um afgreiðslu okkar á till. vegna framkvæmda í skólum, og er sá fyrirvari svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Í sambandi við till. fjvn. í heild vísum við til fyrirvara okkar við 2. umr. málsins, en varðandi skólamálin viljum við taka fram, að við erum samþykkir hækkun frá því, sem ákveðið var í frv., svo langt sem hún nær. En að öðru leyti stöndum við ekki að afgreiðslu þeirra.“
Þetta vildi ég undirstrika, þó að það kæmi fram í framsöguræðu hv. formanns fjvn. Um till. vil ég svo segja það, að hér eru að vísu litlar breytingar frá því, sem var við 2. umr. frv., en þó þokaði nokkrum málum áleiðis, sem við bentum sérstaklega á við 2. umr. fjárlagafrv., að hart væru leikin. Vil ég í því sambandi vekja athygli á því, að hækkuð var fjárveiting til íþróttakennaraskólans að Laugarvatni. Að vísu er það of lág fjárveiting, en þó kom það fram í ræðu frsm. meiri hl. fjvn., að gert er ráð fyrir, að skólinn verði aðstoðaður við að gera hús sitt fokhelt á næsta ári. Það var það takmark, sem skólastjóri og forráðamenn skólans, skólanefnd, stefndu að, og fjárbeiðni þeirra var við það miðuð, að það mætti takast. Það er að vísu ljóst, að það tekst ekki með þessari fjárveitingu, en það verður að vona, að þeir verði aðstoðaðir með annarri fyrirgreiðslu til þess að ná því nauðsynlega takmarki að koma byggingu áleiðis, því að verðmæti liggja undir skemmdum þar eystra vegna þess aðgerðaleysis, sem átt hefur sér stað í þessum málum, og er vel, að hv. meiri hl. sér sig þó um hönd og réttir þessu máli a. m. k. litla fingurinn.
Sama er að segja um jarðhitasjóðinn. Við bentum á það hér við 2, umr. málsins, að sú stofnun væri lítt starfhæf á næsta ári, ef ekki yrði aukin fjárhagsleg aðstoð við sjóðinn. Það er nú gert með till. n., þar sem útvega á sjóðnum fé að láni, til þess að hann geti sinnt borunum að einhverju leyti á árinu 1966, sem hann hefði ekki getað með þeirri afgreiðslu, sem útlit var fyrir við 2. umr. málsins hér.
Í þriðja lagi er nú tekin upp sú till. um fjárveitingu til rannsókna á félagslegum högum stúdenta. Við bentum einnig á það hér við 2. umr., að háskólarektor hefði á fundi í fjvn. sýnt fram á það með rökum, að hér væri á ferðinni nauðsynjamál. sem fjárveitingu þyrfti til. N. hefur séð ástæðu til að sinna þessu máli, þótt í litlu væri, og er það vel, þegar svo er gert.
Við 2. umr. fjárlfrv. gerðum við fulltrúar Framsfl. í fjvn. grein fyrir afstöðu flokksins í nál. okkar, og við umr. málsins var gerð ýtarleg grein fyrir afstöðu flokksins og sýnt fram á það, hvernig fjármálum ríkissjóðs er nú komið. Það, sem hefur gerzt síðan, er í raun og veru ekki annað en að staðfesta það, sem við þá sýndum fram á.
Ýmislegt hefur skýrzt, eins og það, að skattur sá, sem gert var ráð fyrir að á yrði lagður, farmiðaskatturinn, sem við bentum á að væri orðinn feimnismál hjá hæstv. ríkisstj., á nú að falla niður, áður en hann sér dagsins ljós. Nú er fjvn. búin að leggja það til, að sá liður verði felldur niður á fjárlagafrv., en upp verði tekinn annar liður, sem er ½% skattur á seldan gjaldeyri. Það má segja um þetta mál, að hæstv. ríkisstj. hefði átt að taka þá ráðleggingu, sem hv. 11. þm. Reykv. gaf henni hér við umr. um gjaldeyrisskattinn, að leita eftir því að draga úr útgjöldum ríkissjóðs, svo að það hefði verið óþarft að leggja á þennan 35 millj. kr. skatt. Það hefði verið vel, ef hæstv. ríkisstj. hefði tekið þá leiðbeiningu eins og hún tók leiðbeiningunni um það, að farmiðaskatturinn væri lítt framkvæmanlegur og í alla staði óhæfur á að leggja. Ég vildi enn vona, að hæstv. ríkisstj. sæi að sér og félli einnig frá till. sinni um gjaldeyrisskattinn og reyndi að leita eftir sparnaði í ríkisrekstrinum, sem næmi 35 millj. kr., og væri það sízt til of mikils mælzt af þeim, sem búnir eru að stilla upp sparnaðarfyrirheitum upp á nokkra tugi, eins og stjórnarsinnar gerðu hér á árunum eftir 1960. Þau fyrirheit munu hafa verið eitthvað 50–60 talsins. Það hefði mátt með framkvæmd á þeim finna þessar 35 millj. kr., sem gjaldeyrisskattinum er ætlað að gefa. Hins vegar má segja, að hér sé verið að byrja á gengisfalli eða nýju yfirfærslugjaldi, sem verður sennilega sú leið, sem hæstv. ríkisstj. fer næst í fjárhagsvandræðum sínum.
Í sambandi við það, sem fram kom í ræðu hv. frsm. meiri hl. fjvn., formanns n., hv. 4. þm. Vesturl., þegar hann ræddi hér um skólamálin, vil ég minna á það, sem ég skýrði frá við 2. umr. fjárlagafrv. hér á hv. Alþ. um hlutfallið milli verklegra framkvæmda á fjárl. 1958 og fjárlfrv. því, sem við nú fjöllum um. Ég sýndi fram á það, að á fjárlfrv. 1958 var varið til uppbyggingar í skólum, sjúkrahúsum, höfnum, flugmálum, raforkumálum og til samgangna á sjó og landi 18.5% af heildarútgjöldum fjárl., en á því fjárl. frv., sem við erum að afgreiða nú, ræða hér við 3. umr., er varið 5.5–6%. Þetta sýnir þá þróun, sem hefur orðið í fjármálum ríkisins til uppbyggingar eða til verklegra framkvæmda í landinu, og er það gott sýnishorn af stefnu hæstv. ríkisstj. í fjármálum ríkisins og hvernig þróunin hefur verið, þar sem rekstrarkostnaðurinn og dýrtíðin hafa gleypt aukin útgjöld ríkissjóðs.
Í sambandi við framkvæmd á till. um skólamál að þessu sinni er nú tekinn upp nokkuð nýr háttur. Með l. frá 1955 var ákveðið að greiða skólakostnað á 5 árum, þar með talið fjárlagaárið, sem Alþ. samþykkti fyrstu fjárveitingu, og þá gert ráð fyrir því, að skólaframkvæmdin hefðist á því ári. Það hefur svo komið í ljós, síðan farið var að framkvæma þessi lög, að þær áætlanir, sem við var miðað í upphafi, reyndust ekki eins góðar og að var stefnt og vonazt var eftir. Þess vegna hefur kostnaðurinn farið fram úr áætlun. Þessu hefur verið mætt með því að taka inn leiðréttar áætlanir, þegar það hefur sýnt sig, að byggingin hefur verið miklu dýrari en upphaflega var reiknað með, meðfram vegna þess, að undirbúningi var ekki svo vel fyrir komið sem til var ætlazt, og svo vegna verðhækkana. Það hefur verið keppt að því á hinum síðari árum að halda þessari reglu nokkuð vel og leiðrétta á hverju ári nokkrar tilteknar skólaframkvæmdir, þær sem talið var, að harðast væru leiknar vegna rangrar áætlunar. Með þessu móti hefur tekizt að halda framkvæmdunum áfram og koma verkum áleiðis, jafnvel þótt upphafleg áætlun þeirra hefði ekki verið svo vel undirbúin sem skyldi. Með reglugerð, sem sett var 1954, var í fyrsta sinn tekinn upp sá háttur að stöðva framkvæmdir, sem Alþ. hafði samþykkt. Var þá sett inn í þá reglugerð, að ekki mætti hefja framkvæmd fyrr en hún hefði fengið fjárveitingu, sem næmi 115 af kostnaði. Þetta varð til þess, að nokkrar framkvæmdir, sem samþ. höfðu verið við fjárlagaafgreiðslu fyrir það ár, voru þá stöðvaðar, og framhaldið var svo það, að á árinu 1965 voru gefin út brbl., sem voru raunverulega um nýja skipan á þessum málum, enda hafði þá ríkisstj. skorið niður 20% af fjárveitingum til skólanna. Við fjárlagaafgreiðslu 1965 var keppt að því nokkuð verulega, að skólar fengju 20% af þeirri áætlun, sem við var miðað, en með því að skera aftur niður 20% af þeirri fjárveitingu, var kominn möguleiki til þess að stöðva allar nýjar skólabyggingar á árinu 1965, eins og gert var.
Þegar fjárlagafrv. fyrir árið 1966 var lagt hér fyrir, kom það í ljós, að gert var ráð fyrir því að halda þessum niðurskurði eins og hann var gerður á yfirstandandi ári. Það þýddi, að reglan um 20% framlag árlega var þar með brotin. Nú hefur það orðið niðurstaða meiri hl. fjvn. og hæstv. ríkisstj. að afgreiða þetta mál á þann veg að láta þá skóla, sem voru á framkvæmdaáætlun, eins og það er orðað, 1965, halda 20% framlagi á næsta ári. Jafnframt hefur því verið yfirlýst af hæstv. menntmrh., að þeir skólar, sem fengu að láni þau 20%, sem átti að skera niður árið 1965, þurfi ekki að endurgreiða þau á árinu 1966. Þar með munu þeir halda sínu framlagi á árunum 1965 og 1966. Hins vegar er nú engin leiðrétting gerð til þeirra skóla, sem eru byggðir samkv. mjög rangri áætlun og allt of lágri. Með þessu fjárlfrv. er engin slík leiðrétting gerð, eins og gert hefur verið undanfarin ár, svo að þeir verða nú að búa við þá skertu fjárveitingu, sem þeir hafa raunverulega vegna rangrar áætlunar, þó að úr hinu sé bætt, eins og ég hef þegar tekið fram. En þetta er gert með því gagnvart öðrum skólum, sem nú er búið að taka inn á fjárveitingar, að í staðinn fyrir að leiðrétta þeirra áætlun á næsta ári á eftir, eins og fylgt hefur verið fram til þessa, er nú fjárveiting til þeirra víða lækkuð og það jafnframt tekið fram, að ekki sé gert ráð fyrir því, að þeir hefji framkvæmdir á næsta ári, enda er það nú tekið fram á fjárl., að það sé háð ákvörðun menntmrh. um byrjunarframkvæmdir og þeim skilyrðum, sem það ráðuneyti setur um það, að framkvæmdir megi hefjast. Á þennan hátt var hægt að halda 1/5 hluta til þeirra skólabygginga, sem voru í framkvæmd á yfirstandandi ári, og nokkurra annarra skóla, sem telja verður líklegt að hefji framkvæmdir á þessu ári. En með því móti eru jafnhliða lækkaðar fjárveitingar til annarra skóla eða haldið sömu fjárveitingum, þó að vitað væri, að þær væru allt of lágar, og það þýðir, að um 20 skólaframkvæmdir af þeim, sem Alþ. hefur afgreitt undanfarin ár, munu ekki hefjast á næsta ári.
Þá er nú í fyrsta sinn tekin upp sú regla, að þeir nýju skólar, sem fá fjárveitingu á þessu fjárlagafrv., fá aðeins viðurkenningu á því að vera nefndir á blaði, en fjárveitingin er við það miðuð, að þeir geti ekki hafið framkvæmdir. enda þurfa þeir samþykki rn. fyrir því, og í öðru lagi, að þeir komast ekki með þessari samþykkt undir l. nr. 41 frá 1955 um 5 ára regluna. Það þýðir, að með afgreiðslunni 1966 er 5 ára tímabilið ekki hafið í sögu þessara skóla, heldur eru nöfn þeirra nefnd hér á fjárl. næsta árs, án þess að það segi annað en þeir megi vinna að undirbúningi og eigi frekar von en aðrir skólar á fjárveitingu til framkvæmda. En þó er það að athuga, að um 20 skólabyggingar munu vera á undan þeim í þessari röð.
Þetta er afgreiðslan á skólamálunum hjá hæstv. ríkisstj. núna, og við 2. umr. gerði ég grein fyrir þessum málum, svo að ég þarf litlu við að bæta, en tel, að það sé ekki ástæða til að lýsa sérstakri ánægju sinni yfir þessari afgreiðslu, þegar fjárveiting til nýbygginga skóla verður minni á árinu 1966 heldur en hún átti að vera á árinu 1965, á sama tíma sem verðlag hækkar allt í landinu, fólkinu fjölgar ár frá ári og kröfur um fleiri skóla, betri skóla verða síháværari. Þetta hélt ég, að hæstv. ríkisstj. mundi ekki telja sér sérstaklega til ágætis, og ég veit, að hún gerir það ekki, þó að hér sé reynt að bera í bætifláka um þessa framkvæmd, sem ég hef hér verið að lýsa.
Ég vil svo, áður en ég lýk máli mínu, undirstrika það, sem ég tók fram við 2. umr. fjárlfrv., að við fluttum þá ekki nema eina brtt., sem var um það, að staðið yrði við þau fyrirheit, sem ríkisstj. var búin að semja um við stjórnarandstæðinga sína, að á fjárl. íslenzka ríkisins yrði aldrei lægri tala til vegamála en 47 millj. kr. Það hefur nú skeð gegn von minni, að hæstv. stjórnarflokkar hafa fellt við atkvgr. hér á hv. Alþ. þessa till. okkar. Þessi afgreiðsla hv. stjórnarsinna hlýtur að verða til þess, að samkomulag á milli ríkisstj. annars vegar og stjórnarandstöðunnar hins vegar verður síður gert hér eftir en hingað til. Við stjórnarandstæðingar lögðum þessu vegamáli mikið lið í þeirri góðu trú, að við værum að afgreiða gott mál og mundum með því geta komið vegamálunum, samgöngumálunum á landi í betra horf en áður hefur verið. Nú hefur hins vegar verið svo að farið, að það er búið að fella fjárveitinguna algerlega niður af fjárl. íslenzka ríkisins, og er nú til þess að bæta það upp verið að nota þá möguleika, sem bæði stjórnarandstæðingar og stjórnarsinnar vissu að voru til að auka fé til vegagerðar í landinu. Nú er verið að nota hækkun á sköttunum til þess að bæta það upp, að ríkissjóður hefur fellt þessa fjárveitingu algerlega niður.
Ég benti á það hér við 2. umr., að öðruvísi var að farið í des. s.l. ár, þegar deilur komu upp á milli forustumanna Alþýðusambands Íslands og hæstv. forsrh. út af minnisatriði í sambandi við heimild ríkisins til að ná í nýjan tekjustofn vegna greiðslu á verðlagsvísitölu á árinu 1964. Hæstv. forsrh. vildi, fyrst menn voru ekki á eitt sáttir með þann skilning á því samkomulagi, heldur leggja það til, að samkomulagið væri haldið út í æsar, þótt það kostaði ríkissjóð 60–70 millj., eins og það kostaði að lækka söluskattinn. Það lagði hann til og fékk samþykkt, til þess að menn gætu ekki haldið því fram, að svik væru í tafli. Hins vegar hefur í sambandi við vegamálin, þó að það sé búið að margsanna það hér á hv. Alþ., að hæstv. samgmrh. lagði á það ríka áherzlu, að þetta yrði aldrei fellt niður, og hefur verið margvitnað í ræðu hans þar um, þá hafa hv. stjórnarsinnar ekki séð ástæðu til að halda það samkomulag, og mun það eiga eftir að segja til sín síðar. Ég harma það mjög, að svo skyldi fara, og harma það mjög, að þegar þannig er að málum unnið hér á hv. Alþ., að ríkisstj. og stjórnarandstaðan sameinast um mál í góðri trú, skuli stjórnarandstöðunni vera svarað að nokkrum tíma liðnum á þann hátt, sem hér hefur verið gert. Þetta tel ég eitt mesta slys við þessa fjárlagaafgreiðslu og vonast til þess, að hér á hv. Alþ. eigi ekki slíkt eftir að endurtaka sig, að hæstv. ríkisstj. virði ekki það, sem hún gerir samkomulag um við stjórnarandstöðuna og ráðh. sá, sem fyrir málinu talar, marglýsir yfir, eins og hæstv. samgmrh. gerði hér í des. 1963. Það verður ekki til þess, að stjórnarandstaðan vilji standa að því, þó að um góð mál sé, að fela þessari ríkisstj. framkvæmd þeirra. Það hefur sýnt sig, hvernig hún tekst.
Ég vil svo enn undirstrika það, að við munum ekki við þessa umr. fjárl. frekar en við 2. umr. flytja hér brtt. nema þessa einu, sem við þá töldum svo sjálfsagða, að við gerðum ráð fyrir að samþykkt yrði.
Ég endurtek, að ástæðan fyrir þessari afstöðu okkar er ekki sú, að til nauðsynlegra framkvæmda sé varið fullnægjandi fé á fjárlfrv. þessu, nema síður sé. Ég vil líka leggja áherzlu á það, að í þessu fjárlfrv. er ekki gerð ein einasta tilraun til sparnaðar eða að draga úr rekstrarútgjöldum ríkissjóðs. Það, sem ræður ferðinni við þessa fjárlagaafgreiðslu, er verðbólgan og aukinn rekstrarkostnaður. Þess vegna er svo komið, að með verðbólgustefnu hæstv. ríkisstj. er ekki orðið rúm fyrir nauðsynlegustu og sjálfsögðustu framfaramál. Fjárlfrv. verður ekki breytt með einstökum brtt., eins og við tókum réttilega fram við 2. umr., og þess vegna reynum við ekki að þoka þar um með þeim. Það er aðeins stefnubreyting, stefnubreyting ein, sem getur ráðið um fjárlagaafgreiðsluna, breytt henni frá því, sem nú er, — stefnubreyting, þar sem horfið er frá þeirri ofsköttun, sem hæstv. ríkisstj. heldur uppi með háum aðflutningsgjöldum, háum eignarskatti, tekjuskatti og svo að segja með skatti í hverju máli, sem hún ber hér fram, — stefnubreyting, sem fólgin er í því að stjórna fjárfestingunni, en láta ekki þá, sem fjármagninu ráða, stjórna í landinu, eins og nú á sér stað. Okkur er það ljóst, að þessi stefnubreyting kemst ekki í framkvæmd, nema ný ríkisstjórn komi að völdum hér á landi.
Einkenni á afgreiðslu þessa fjárlfrv., sem hér er til 3. umr., er, að það er ekki tekið á vandanum, verkefnin eru látin bíða lausnar framtíðarinnar. Framtíðin á að leysa verkefnin, sem nútíminn getur ekki leyst, þrátt fyrir það að góðæri sé meira í landinu en verið hefur nokkru sinni fyrr. Það er af því, að í landinu ríkir stjórnleysi, en ríkisstj. hefur ekki vald á málunum.