31.03.1966
Efri deild: 58. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (815)

160. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft frv. það, sem hér liggur fyrir, til meðferðar á nokkrum fundum. Kvaddi hún m.a. á sinn fund Björn Hermannsson deildarstjóra í fjmrn., sem gaf n. ýmsar upplýsingar varðandi hina tæknilegu hlið þessa máls. Eins og nál. á þskj. 411 ber með sér, leggur n. til, að frv. verði samþ., en einstakir nm. áskilja sér þó rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., og tveir hv. nm. hafa skrifað undir nál. með fyrirvara og lagt fram brtt. á sérstöku þskj.

N. hefur komið sér saman um að flytja sameiginlega á þskj. 419 tvær brtt. Önnur fjallar um það að setja bleiur, óháð því, úr hvaða efni þær eru, í einn tollflokk. Er talið af tollyfirvöldum, að það muni auðvelda framkvæmd þess að tolla þá vöru, sem hér er um að ræða. Nú eru bleiurnar í 70—90% tollflokki eftir því, úr hvaða efnum þær eru, en verða nú settar í einn tollflokk með 70%.

Síðari brtt. er flutt að ósk fjmrn. Sú ósk barst að vísu ekki fyrr en n. hafði afgreitt málið, en ég bar þetta undir nm., sem ég náði til, og féllust þeir á það, að n. flytti þessa brtt. Einn nm. náði ég að vísu ekki í, en ég vænti þess tæpast, að ágreiningur verði um, að rétt sé að koma til móts við þessa ósk. Að öðru leyti skýrir brtt. þessi sig sjálf.

N. hafa borizt nokkur erindi, og hefur hún ekki getað fjallað um þau öll enn þá, en mun afgreiða þau áður en 3. umr. um málið fer fram.

Meginefni þessa frv. er að öðru leyti, eins og fram kom í framsöguræðu hæstv. fjmrh. við 1. umr. málsins, lækkun á hlutum í tilbúin hús og lækkun tolls á sementi, og er þetta gert í samræmi við samkomulag við verkalýðsfélögin á s.l. sumri í þeim tilgangi að lækka byggingarkostnað og auka byggingarframkvæmdir. Önnur ákvæði frv. eru yfirleitt minni háttar leiðréttingar, sem tollskrárnefnd hefur lagt til, að gerðar yrðu, og sé ég ekki ástæðu til að ræða þær frekar, enda yfirleitt um mjög tæknileg atriði að ræða.

Það er eðlilegt, þegar frv. um breytingu á tollskránni er lagt fyrir hv. Alþingi, enda þótt slíkt frv. sé ekki á breiðara grundvelli en það. sem hér liggur fyrir, að tollamálin almennt beri á góma í því sambandi, og tel ég því rétt, m.a. með tilliti til brtt., sem þegar hafa fram komið. að fara nokkrum orðum um þá hlið málsins, án þess þó að það sé tilgangur minn með slíku að stofna til ýtarlegra umræðna um það efni. N. hefur þó ekki fjallað um þessa hlið málsins, svo að það, sem ég segi um það, stendur þannig fyrir eigin reikning.

Skömmu eftir að ríkisstj., studd af núv. stjórnarflokkum, kom til valda haustið 1959, var undir forustu þáv. fjmrh., Gunnars Thoroddsens. hafizt handa um gagngera endurskoðun tollakerfisins, og svo sem fram kom hjá hæstv. fjmrh. við 1. umr., stendur sú endurskoðun raunar yfir enn, þótt mikilvægar breytingar hafi verið gerðar á þeim tollaákvæðum, sem þá giltu, frá því að endurskoðunin hófst, en sú mikilvægasta var gerð með samþykkt nýrrar tollskrár árið 1963. Það er því ekki óeðlilegt, að sú spurning vakni í fyrsta lagi, að hverju sé stefnt í þessum efnum og hvers vegna nauðsynlegar umbætur þurfi að taka svo langan tíma. En stefnan í tollamálum verður auðvitað að vera í samræmi við stefnuna í efnahagsmálum almennt, ef vel á að fara. Að því hefur verið stefnt, síðan núverandi stjórnarsamvinna hófst, að samræma verðlag hér á landi því, sem er í mikilvægustu viðskiptalöndum okkar, þannig að viðskipti okkar við aðrar þjóðir geti orðið sem frjálsust á grundvelli þess verðlags, sem á heimsmarkaðinum ríkir hverju sinni, þannig að mælikvarðinn á það. hvaða vörur við flytjum inn og hvaða vörur við flytjum út, sé sá, hvað sé hagkvæmt miðað við verð á alþjóðlegum markaði. En áður hafði innlenda verðlagið verið í litlum tengslum við hið erlenda og því enginn grundvöllur fyrir frelsi í gjaldeyris- eða innflutningsmálum. en allar ákvarðanir um innflutning, hvaða vöru skyldi flytja inn, hve mikið og af hverjum voru teknar af þar til skipuðum innflutningsnefndum, sem settu sér þá um þetta reglur af brjóstviti sinu hverju sinni, en þá hlið málsins sé ég ekki ástæðu til að ræða frekar í því sambandi.

Það er auðvitað fjarri mér að halda því fram, að enn hafi tekizt að fullu að koma þessum stefnumálum í kring, og hafa tollamálin þrátt fyrir þær aðgerðir til bóta í þeim efnum, sem þegar hafa verið framkvæmdar, verið einna erfiðasti þröskuldurinn að stíga yfir. Þess má geta, að skv. ríkisreikningi fyrir s.l. ár, árið 1964, námu aðflutningsgjöld nær 50% af heildartekjum ríkissjóðs, en til samanburðar má geta þess t.d., að samsvarandi tala fyrir Danmörku s.l. ár hefur verið um 3%, þannig að aðflutningsgjöldin þar nema um 3% af heildartekjum ríkisins. Hin háu aðflutningsgjöld eru þrándur í götu þess, að aðlaga megi verðlag okkar því, sem er í viðskiptalöndum okkar, og fá þannig hagkvæman mælikvarða á það, hve víðtæk utanríkisverzlun okkar eigi að vera. Og rétt er að taka það fram, að þó að hv. stjórnarandstaða hafi í mörgu reynzt ríkisstj. erfið og torveldað framkvæmd stefnu hennar, þá verður ekki sagt, að nauðsynlegar tollalækkanir til framkvæmdar áðurnefndri stefnu hafi strandað á hennar andatöðu, heldur þvert á móti hefur hún viljað hraða þeirri ferð, eins og m.a. framlagðar till. hennar nú bera með sér, og ganga þessar till. þó skemmra en oft hefur verið við hliðstæð tækifæri.

En ástæðurnar fyrir því, að ekki hefur þótt fært að hraða ferðinni í þessum efnum meira en raun er á, eru aðallega tvær. Í fyrsta lagi tillitið til þarfa ríkissjóðsins að sjá honum fyrir öðrum tekjustofnum, ef þessi langmikilvægasti tekjustofn ríkissjóðs, eins og nú er, er skertur. Nú er það að vísu þannig, að lækkun tolla þarf ekki alltaf að þýða minni tekjuöflun fyrir ríkissjóð. Sé um nevzluvöru að ræða, lækkar tollurinn að vísu á einingu, en innflutningurinn vex að öðru óbreyttu, þannig að einingarnar. sem tollurinn er innheimtur af, verða fleiri. enda mun sú oft hafa orðið raunin á, þegar tollar hafa verið lækkaðir, að tekjur ríkissjóðs hafa sízt minnkað vegna þess, heldur þvert móti aukizt. Í öðru lagi má á það benda, að þegar fólk sparar vegna lækkaðra tolla, þá vex geta þess til þess að greiða aðra skatta. Hve mikið gildi þessi sjónarmið hafa, er þó komið undir því, hvers konar vörur er um að ræða, og hvað snertir framlagðar tillögur frá heim tveim hv. þm. Framsfl., sem sæti eiga í n. og ganga aðallega út á það að lækka verulega tolla á hinu algengasta timbri, þá má á það benda, að það má telja litlar líkur á því, að innflutningur á þessum vörum mundi aukazt, þó að tollarnir væru lækkaðir, og stafar það af því, að litlar líkur eru á því, að byggingarframkvæmdir mundu í sjálfu sér aukast, þó að tollar á byggingarefni væru lækkaðir, vegna þess að það er vinnuaflsskorturinn, sem fyrst og fremst hindrar það, að byggt sé meira en raun er á. Í sambandi við þessar till. má því gera ráð fyrir því, að ef samþykktar yrðu, yrði ríkissjóður fyrir allmiklu tekjutapi. þannig að meiri hl. n. hefur ekki treyst sér til þess að styðja þessar till., þar sem ekki er um það að ræða, að séð yrði fyrir nýrri tekjuöflun á annan hátt.

Annað atriði, sem er þó e.t.v. kannske öllu meira vandamál í sambandi við tollalækkun heldur en sú hliðin, sem að ríkissjóði snýr, er aðstaða innlenda iðnaðarins. Það hafa margar iðngreinar verið byggðar upp í skjóli haftabúskaparins, hvað sem um hann má segja að öðru leyti. Sú uppbygging hefur í mörgum tilvikum verið óhagkvæm. En fyrir hinu má ekki loka augunum, að fjöldi fólks hefur þar vinnu, og menn hafa í góðri trú, oft fyrir hvatningu stjórnarvaldanna, lagt fjármuni sína í slíkan atvinnurekstur. Því verður að fara hægt í allar aðgerðir, sem raska aðstöðu þeirra atvinnugreina, sem hér eiga hlut að máli, í verulegum mæli.

Nú vænti ég þess ekki, að um þetta atriði sé í sjálfu sér ágreiningur, enda snertir þessi hlið málsins ekki svo mjög frv. það og aðrar till.. sem hér liggja fyrir, en í þessu er að mínu áliti öðru fremur fólgin skýringin á því, að framvinda þessara mála hefur ekkí verið með meiri hraða en raun er á.