26.04.1966
Neðri deild: 79. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (830)

160. mál, tollskrá o.fl.

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég vil fyrst nota tækifærið til að þakka hv. þdm., að þeir hafa farið að þeirri ósk minni að blanda ekki inn í þetta frv. ýmsum öðrum áhugamálum sinum um tollalækkanir, sem vitanlega margir bera fyrir brjósti, og þær till., sem hér liggja fyrir til breytinga, eru takmarkaðar við byggingarvörur. Ég verð hins vegar að taka það skýrt fram, sem ég þykist raunar vita, að hv. flm. komi ekki á óvart, að ég tel með öllu óaðgengilegt og útilokað, að það sé hægt að fallast á þær tollalækkanir, sem hér um ræðir. Byggingarefni er mjög mikill tekjuliður í sambandi við aðflutningsgjöld ríkissjóðs, og ef svo væri ekki, er það engum efa bundið, að það hefði á undanförnum árum verið gert meira í þá átt að lækka tolla á byggingarvörum, því að vissulega er það rétt hjá hv. 11. þm. Reykv., að lækkun tolla á byggingarvörum mun að sjálfsögðu stuðla að lækkun byggingarkostnaðar, og þannig má auðvitað segja um ótalmargt annað í okkar þjóðfélagi, að lækkun aðflutningsgjalda á margvíslegum vörum, sem hefur orðið að tolla til þessa, fyrst og fremst til tekjuöflunar og sumt af öðrum ástæðum, allt mundi það hafa áhrif í þá átt að gera ódýrari þá þjónustu, sem þar um ræðir. En það er að sjálfsögðu ekki nema önnur hlið málsins, því að þá verður á einhvern annan hátt að afla þess fjár, sem af ríkissjóði er tekinn með þeim hætti. Það er að sjálfsögðu ekki hugsunin með þeirri breytingu, sem gerð er á tollskránni varðandi lækkun tolla á innfluttum, tilbúnum húsum og húshlutum, að orka neitt í þá átt að brjóta niður innlendan byggingariðnað, það auðvitað kemur engum til hugar, vegna þess að hann á fullan rétt á sér. Hitt er annað mál, sem ég býst við, að við getum allir verið sammála um, að einmitt á þessum vettvangi er langmest þensla í okkar þjóðfélagi og það er útilokað, að það sé hægt að leysa allt það, sem við er að fást á sviði byggingariðnaðarins, og nú er fram undan, eins og hv. þm. vita, með samkomulagi verkalýðsfélaga og ríkisstj. mjög stórt átak í sambandi við byggingar íbúðarhúsa í stórum stíl, sem einmitt þessi löggjöf ekki hvað sízt á að greiða fyrir, þannig að þótt nú verði að því stuðlað og ávinnist eitthvað í þá átt, að inn verði flutt tilbúin hús og þar með að sjálfsögðu flutt inn erlend vinna, held ég, að það þurfi enginn að óttast, að það valdi neinum erfiðleikum varðandi það, að ekki verði nóg að vinna fyrir íslenzka byggingarmenn, enda er sem sagt meira gagnrýnt, að þar sé þenslan of mikil, heldur en hitt, að þar sé hætta á nokkru atvinnuleysi. Það er þess vegna samhliða því að stuðla með þessum hætti að lækkun byggingarkostnaðar, eins og ég tók fram í framsöguræðu um málið, ekki síður atriði að létta á þessu álagi og þessari miklu þenslu og á vissan hátt að opna þarna möguleikann fyrir því, að erlend vinna sé flutt inn, meðan landsmenn hafa nóg við annað að gera, hagnýt störf.

Ég get tekið undir það með hv. 11. þm. Reykv., að það ber að sjálfsögðu að leggja á það alla áherzlu, að sinnt verði því verkefni að leita tæknilegra úrræða til þess að lækka byggingarkostnað og húsnæðismálastjórn sinni því verkefni svo sem við verður komið. Með því er ég ekki að segja, að hún hafi ekki lagt sig fram um að gera þetta, ég þekki það ekki nægilega vel. En það er áreiðanlega áhugamál allra, að það verði að því unnið með öllum tiltækum ráðum að lækka byggingarkostnaðinn.

Ég vék að því í framsöguræðu minni, að nú hefði verið ákveðið af ríkisstj. að endurskoða allt tollakerfið á þessu sumri og rannsaka til hlítar, hvernig að því mætti stuðla að lækka þá háu aðflutningstolla, sem hér gilda. Að hve miklu leyti það kemur til með að snerta byggingarefni, skal ég ekki um segja. Það er of snemmt að segja um það. En ég held, að það væri algerlega ótímabært, einnig af þessari ástæðu, að fara að gera jafnvíðtækar breytingar og hér er gert ráð fyrir, og það hlýtur þá að vera nægur tími til þess að koma að þeim breytingum, þegar að því kemur að gera grein fyrir þeim till., sem fram koma eftir þessa heildarathugun, sem stefnir í þá átt að gera verulegar lækkanir á tollum og jafnhliða að sjá farborða íslenzkum iðnaði.

Ég sé ekki, herra forseti, ástæðu bil þess að fara um þetta fleiri orðum, en endurtek það aðeins að lokum, sem ég vona, að hv. þdm. geti fallizt á, að ekki sé með nokkru móti auðið að framkvæma þá stórfelldu lækkun, sem hér er gert ráð fyrir á byggingarvörum, með hliðsjón af því, hvað þar er um að ræða mikla skerðingu á tekjum ríkissjóðs, svo sem gert er ráð fyrir í þeim fjárl., sem gilda fyrir yfirstandandi ár.