26.04.1966
Neðri deild: 78. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (854)
119. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. (Axel Jónsson):
Herra forseti. Frv. það,
sem hér um ræðir, er flutt í fullu samráði við Samband íslenzkra sveitarfélaga, og meginbreytingarnar, sem þar um ræðir frá gildandi lögum, eru í fyrsta lagi að heimila að leggja aðstöðugjöld á þær stofnanir, sem nánar eru tilgreindar í 17. gr. b-lið, þ.e. Síldarverksmiðjur ríkisins, Viðtækjaverzlun ríkisins, Landsmiðjuna og Ríkisprentsmiðjuna Gutenberg, og í öðru lagi að greiða 0.5% af árlegum tekjum jöfnunarsjóðs til Sambands íslenzkra sveitarfélaga vegna starfsemi sambandsins, og er þetta gert vegna eindreginna óska Sambands íslenzkra sveitarfélaga. Í þriðja lagi er síðan breyting á ákvæðum um ákvörðun landsútsvars, eins og um getur í 3. og 4. gr. á þskj. 544.
Að öðru leyti vitna ég svo til grg. frv. og framsöguræðu hæstv. fjmrh., er hann fylgdi málinu úr hlaði í þessari hv. þd. Eins og fram kemur á þskj. 573, mælir heilbr.- og félmn. þessarar hv. d. einróma með samþykkt frv.