04.04.1966
Efri deild: 60. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (908)
176. mál, Atvinnujöfnunarsjóður
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Frv. þetta kemur hv. þm. ekki á óvart, því að í tilkynningu, sem hæstv. forsrh. flutti 13. okt. s.l. haust, fáum dögum eftir að Alþingi kom saman, segir, að fyrirhugað sé af hálfu hæstv. ríkisstj., að stofnaður verði framkvæmdasjóður strjálbýlisins.
Hitt hefur ýmsum þm. þótt nokkurri furðu gegna, hvað þetta frv. er síðbúið, því að nú líður óðum að því, að þetta þing ljúki störfum. En við að lesa þetta frv. fæst skýringin. Þetta mál er gert að eins konar fylgifiski með hinn stóra. umdeilda álmáli, sem var lagt fyrir hv. Nd. fyrir fáum dögum, — fylgifiski vegna þess, að aðaltekjur þess sjóðs, sem á að stofna skv. þessu frv., eru bundnar við samþykkt álmálsins, því að varla mun vera ætlunin að lögfesta þetta frv. og þann tekjustofn, sem sjóðnum er ætlaður, áður en séð er fyrir um afgreiðslu þingsins á því máli.
Þessi málsmeðferð, að tengja það nauðsynjamál, sem þetta er í sjálfu sér, við hið umdeilda stórmál, er ámælisverð að mínum dómi og mjög óviðkunnanlegt og miður farið, að slík málsmeðferð skuli viðhöfð. En í sjálfu sér er þó ástæða til að fagna þessu frv., fagna þeirri stefnu, sem í því felst, og þeirri stefnubreytingu, sem virðist þó votta fyrir með flutningi þessa frv. hjá hæstv. ríkistj. frá því, sem verið hefur á undanförnum árum. Hins vegar eru einstök atriði frv. þannig, að þau þurfa mikillar athugunar við og breytinga, ef vel á að fara um lagasetninguna.
Framsfl. hefur beitt sér fyrir því um langt skeið, að öflugar ráðstafanir væru gerðar af hálfu ríkisvaldsins til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Framsfl. átti hlut að því, ásamt öðrum að vísu, að tekin var upp sá háttur að veita í fjárlögum hið svonefnda atvinnuaukningarfé. Það var fyrst tekið upp, eins og hæstv. fjmrh. nefndi, eftir 1950 að veita sérstakt framlag í þessu skyni. Fyrst var það heimildarákvæði í fjárlögum, en í fjárlögum fyrir 1955 var þetta gert að sérstakri fjárveitingu á 20. gr. fjárlaga, og svo hefur staðið alla stund síðan. A stjórnartíma vinstri stjórnarinnar var þessi sérstaka fjárveiting 15 millj. kr. árlega, t.d. í fjárlögum ársins 1957, en þá var heildarupphæð fjárlaga um 800 millj. kr., svo að þessi sérstaki líður til atvinnubóta nam þá 1.8% af heildarupphæð fjárlaga.
Eftir að núv. ríkisstj. settist að völdum, „Viðreisnarstjórnin“, var þessi sérstaka fjárveiting lækkuð niður í 10 millj. kr. árlega, á sama tíma og bylting varð í því, hvað fjárlög hækkuðu. Þetta hefur að vísu verið leiðrétt á fjárlögum þessa árs að því leyti, að nú á þessu ári er fjárveiting 15 millj. kr., en miðað við heildarupphæð fjárlaga þessa árs nemur þessi fjárveiting nú ekki nema 04% af heildarupphæð fjárlaga. Af þessu má sjá, hvert stefnt hefur verið að þessu leyti af hálfu núv. hæstv. ríkisstj.
Á þinginu 1961—1962 voru sett lög um atvinnubótasjóð. Framkvæmd þeirra laga virðist vera sú, að meiri hluti úthlutunarfjárins sé lánaður til fiskiskipakauna um land allt út á síðari veðrétt. Þótt það sé gagnleg starfsemi út af fyrir sig, þá felst ekki í því nein ný eða fullnægjandi lausn í sambandi við jafnvægi í byggð landsins. En með þessum lögum var lögfest aðferð til þess að úthluta atvinnuaukningarfénu, sem veitt er í fjárl. hverju sinni, og upphæð þess ákveðin 10 ár fram í tímann að þeim lögum óbreyttum.
Þetta hefur Framsfl. talið alls kostar ófullnægjandi ráðstöfun til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Þess vegna hefur af hálfu Framsfl. á allmörgum undanförnum þingum verið flutt frv. um sérstakar ráðstafanir til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Meginefni þess frv. er það, að komið skuli á fót sérstakri stofnun, Jafnvægisstofnun, sem hafi það hlutverk með höndum að gera áætlanir um nauðsynlega uppbyggingu í þeim byggðarlögum þar sem fólksfækkun á sér stað eða atvinnutæki skortir, og að hafa heildarsýn yfir allt þetta mál um gjörvallt landið. Jafnframt skuli stofnaður sjóður, sérstakur jafnvægissjóður, sem verji fé með hagkvæmum kjörum til framkvæmda í þessu skyni.
En þetta frv. Framsfl., sem borið hefur verið fram þing eftir þing í hv. Nd., hefur mætt fullkomnum skilningsskorti af hálfu hæstv. ríkisstj. og þess þingmeirihl., sem nú situr. Fyrir þremur árum. þ.e. í marz 1963, var þessu frv. t.d. vísað frá. í hv. Nd., og aðalröksemdin fyrir frávísuninni var sú, að atvinnubótasjóður væri nægileg ráðstöfun í þessu efni og að þetta frv.. þ.e. frv. Framsfl., gerði ráð fyrir framkvæmdum, sem miðuðu í sömu átt og atvinnubótasjóður á að styðja, þess vegna væri flutningur þessa frv. með öllu óþarfur, og taki því deildin fyrir næsta mál á dagskrá.
Síðan leið eitt ár, og fyrir réttum tveimur árum. þ.e. í marzmánuði 1964, kom sams konar frv. Framsfl. til afgreiðslu í hv. Nd.. og þá er skv. till þingmeirihl. og með hæstv. ríkisstj. í fararbroddi málið afgreitt með svo hljótandi rökstuddri dagskrá, með leyfi hæstv. forseta :
„Þar sem þegar hafa verið sett lög um atvinnubótasjóð, en þetta frv. fer að meginstefnu til í sömu átt og þau lög, og tilgangur þeirrar löggjafar er fyrst og fremst að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, telur deildin ekki þörf nýrrar lagasetningar í þessu efni og samþykkt frv. því óþarfa og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“
Það er því rétt, sem ég áðan sagði, að með frv. vottar þó fyrir stefnubreytingu af hálfu hæstv. ríkisstj. í þessu efni, og það vottar fyrir auknum skilningi á því mikla vandamáli sem þróun búsetunnar í landinu er orðin, og út af fyrir sig höfum við Framsfl.-menn ástæðu til að fagna þessu, svo langt sem það nær.
En stefna hæstv. ríkisstj. í þessum málum hefur þó ekki einskorðazt við meðferð þess frv. Framsfl.. sem ég hef verið að lýsa. Eins og ég áðan gat um, var það eitt af hinum fyrstu verkum „viðreisnarstjórnarinnar“ í sambandi við fjárlagaafgreiðslu að lækka beinlínis að krónutölu þann fjárlagalið, sem kallaður hefur verið atvinnuaukningar- eða atvinnubótafé, niður í 10 millj., og nú hin síðari ár hefur stefna ríkisstj. í sambandi við framkvæmdir úti um landsbyggðina m.a. komið fram í niðurskurði verklegra framkvæmda skv. fjárlögum. t.d. árið 1965, og nam sú niðurskurðarheimild 20%.
En hér er í raun og sannleika um stórt þjóðmál að tefla, þ.e. þróun búsetunnar í landinu. Skv. síðasta manntali er íbúafjöldi landsins 193 þús. Þar af munu um 100 þús. manns búa á því svæði, sem sumir nefna nú orðið Stór-Reykjavík, en 93 þús. manns í öllum öðrum landshlutum. Ef þróun þessara mála er athuguð með því að líta nokkuð til baka, þá kemur svipað í ljós. Ef litið er til baka um aldarfjórðungsskeið og borinn saman íbúafjöldinn í landinu og fólksfjöldi í einstökum landshlutum, annars vegar 1940 og hins vegar 1964, þá kemur í ljós, að á þessu tímabili hefur þjóðinni í heild fjölgað um 56.6%. En þessi fjölgun skiptist svo misjafnlega á hina einstöku landshluta, að á þessu tímabili hefur fjölgað hér á svæðinu við Faxaflóa um 127 6%. Á Vesturlandi, þ.e.a.s. á svæðinu milli Gilsfjarðar og Hvalfjarðar, er fjölgunin 28.8%. Á Suðurlandi, austan fjalls og allt að Skeiðarársandi, að Vestmannaeyjum meðtöldum, er fjölgunin 23.7%. Á Norðurlandi er fjölgunin 13.9%. Á Austurlandi er fjölgunin 6.8%. En á Vestfjörðum er bein fólksfækkun á þessu tímabili, sem nemur 18.7%.
Þessar tölur tala skýru máli, þannig, að á svæðinu, sem nú er farið að kalla Stór-Reykjavík, búa orðið yfir 50% af íslenzku þjóðinni. Ég hef ekki getað fundið neins staðar sambærilegar tölur erlendis frá. Það er mjög oft vitnað til Noregs, bæði í sambandi við þær aðgerðir, sem þeir hafa gert í jafnvægismálum þar í landi, og enn fremur eru frændur okkar Norðmenn mjög á dagskrá nú í sambandi við stóriðjumálið, en það mun vera svo, að í höfuðborg Noregs búi ekki meira en 17% af norsku þjóðinni, og sjáum við þá, hve langt bil er á milli þess þar í landi og þess, sem orðið er hér í landi. En þrátt fyrir þetta bil, þó að þeir standi betur að vígi í þessu efni en við, hafa þeir fyrir mörgum árum komið auga á nauðsyn þess að framkvæma öflugar ráðstafanir til jafnvægis í byggð landsins, og það er á þeim tíma, sem slíkar ráðstafanir hafa verið framkvæmdar í Noregi, og á þeim tíma, sem þróunin í byggðamálum okkar Íslendinga hefur verið með þeim hætti, að meira en 50% þjóðarinnar eru hér á litlum bletti, að hæstv. ríkisstj. og þingmeirihlutinn hefur vísað frá frv. um ráðstafanir í þessum málum með þeim rökum aðallega, að ný lagasetning væri algerlega óþörf.
En vissulega er mikið í húfi, hvernig íslenzku þjóðinni tekst um lausn þessa máls, hvort þróunin verður enn óðfluga í sömu stefnu og verið hefur eða hvort það tekst að spyrna við fæti og snúa þróuninni að einhverju leyti við. Það, sem um er að tefla í þessu efni, eru ekki efnahagsmál eingöngu eða kannske ekki fyrst og fremst. Landið er eign íslenzku þjóðarinnar, vegna þess að þjóðin hefur helgað sér það og réttinn til landhelginnar með búsetu í öllum héruðum landsins. Saga þjóðarinnar, sem er grundvöllur að sjálfstæði hennar, er bundin við búsetu fólksins úti um gervallt land. Tungan hefur líka átt sínar sterkustu rætur með þjóðinni úti um hinar dreifðu byggðir. A.m.k. reyndist það svo á nítjándu öldinni, þegar danskan sótti harðast á, og sjálf stjórnskipun þjóðarinnar er grundvölluð á hæfilegri búsetuskiptingu í landshlutunum. Hér er því í raun og veru um að ræða sjálfstæðismál, kannske stærsta sjálfstæðismál íslenzku þjóðarinnar á líðandi stundu.
En ef litið er á þetta mál frá þrengra sjónarmiði, frá efnahagslegu sjónarmiði fyrst og fremst, þá er þessi þróun þannig skoðað einnig mjög varhugaverð, ekki aðeins fyrir þá landshluta, sem eiga við beina eða hlutfallslega fólksfækkun að stríða, heldur einnig fyrir höfuðborgina og nágrenni hennar. En þar verður erfitt að valda sumum þeim verkefnum, sem á þau sveitarfélög hlaðast vegna of mikils vaxtarhraða, og getur af þeim sökum orðið erfitt að byggja þar upp nægilega traust atvinnulíf.
Manntalsskýrslur og hagskýrslur, sem við höfum með höndum, geyma margvíslegan fróðleik. Við vitum það t.d. eftir manntalsskýrslum, að 1920 var íbúatala landsins 94 690 menn. Við sjáum eftir síðasta manntalinu, að síðan þá hefur íbúatalan meir en tvöfaldazt. Við vitum enn fremur, að 1930 var fólksfjöldinn hér á landi 108 861 íbúi, og við sjáum af því, að síðan 1930 hefur þjóðinni fjölgað um 85 þúsund manns. Þetta eru staðreyndir. En ýmsir töluglöggir menn hafa lagt stund á það að reikna út eftir þessum tölum og ýmsu fleiru, sem í skýrslum stendur, hvernig viðhorfið að þessu leyti muni verða t.d. um næstu aldamót, og þeir hafa komizt að ákveðnum niðurstöðum. Þær niðurstöður eru að sönnu ekki staðreyndir á sama hátt og um þann tíma, sem liðinn er, en það eru rökréttar ályktanir, dregnar af ótvíræðum forsendum, sem fyrir liggja, og niðurstöðurnar eru þær, a$ um næstu aldamót muni íslenzka þjóðin verða a.m.k. 360—380 þús. manns. Og ég minni á það, að í sambandi við stóriðjumálið, sem er hér á dagskrá einmitt um þessar mundir, þá er þessum niðurstöðum eða áætlunum um aukningu á vinnuafli og fólksfjölda í landinu mjög haldið á loft og þær skoðaðar eins og fullkomnar staðreyndir. En af þessu má reikna mörg fleiri dæmi á annan veg, og mér er kunnugt um, að töluglöggir menn hafa einnig lagt nokkra stund á að gera það, og ég hef átt þess kost að kynna mér ýmsar niðurstöður.
Ef gengið er út frá því sem staðreynd, an þjóðinni fjölgi til næstu aldamóta um ca. 180 þús. manns, þá má einnig reikna út eftir gefnum forsendum, hvernig búsetuþróunin verði orðin um næstu aldamót eða hvernig skipting íbúafjöldans verði um næstu aldamót, miðað við þá þróun, sem verið hefur í þessum málum undanfarin ár, og þær niðurstöður eru þannig: Haldi búsetuþróunin áfram til aldamóta óhindrað eins og hún hefur verið núna s.l. ár, og sé gengið út frá, að þjóðinni í heild fjölgi um 180 þús. manns á þessu tímabili, þá munu 140—150 þús. manns af þessari þjóðarfjölgun bætast við á Faxaflóasvæðinu, en aðeins 35—40 þús. manns af heildarþjóðarfjölguninni í öllum öðrum landshlutum, bæði til sjávar og sveita, og ég tek fram, að þegar ég segi Faxaflóasvæði, þá er það ekki sama og það, sem sumir nefna Stór-Reykjavík, heldur er það stærra, það er allt svæðið hér við Faxaflóa, tek það fram til skýringar. En þetta stefnir þá að því marki, að af þeirri þjóðarfjölgun, sem hér verður á síðustu áratugum þessarar aldar, muni 8 af hverjum 10 börnum, er fæðast og ná þroska með þjóð vorri á þessum áratugum, sem eftir eru til aldamótanna, ávaxta pund sitt á Faxaflóasvæðinu, en aðeins 2 börn af hverjum 10 staðfestast í öllum öðrum landshlutum samtals, bæði til sjávar og sveita. Ég held, að það sé fullkomlega tímabært, að alþm. og þá ekki sízt hæstv. ráðherrar geri sér grein fyrir, hvað þessi þróun boðar.
Framsfl. hefur fyrir alllöngu, eins og ég áðan gat um, gert sér grein fyrir þessu stóra vandamáli, og af hans hálfu hefur verið leitazt við að mæta þessum vanda með þeim till. í frv: formi, sem ég hef gert hér nokkuð að umtalsefni. En hingað til hafa þær till. mætt tregðu og skilningsskorti hjá þingmeirihlutanum. Í því frv. Framsfl., sem nú liggur fyrir um sérstakar ráðstafanir í byggð landsins, er gert ráð fyrir því, að 2% af tekjum ríkissjóðs, eins og þær verða skv. ríkisreikningi ár hvert hér eftir, skuli leggjast í jafnvægissjóð og til þess að mæta þeim verkefnum, sem gert er ráð fyrir, að sá sjóður styðji. Eins og fjárl. eru nú orðin, mundi þessi tekjustofn verða 60—80 millj. kr. árlega. Enn fremur er í frv. lánsheimild, 200 millj. á 5 ára tímabili, sem heimilt væri að verja til stuðnings þessum málum. Þess ber þó sérstaklega að gæta, að frv. Framsfl. er miðað við það, að atvinnubótasjóðurinn standi áfram óbreyttur. Þetta yrði nýr sjóður, ný stofnun, en atvinnubótasjóðurinn, sem aðallega hefur nú síðustu árin veitt lán til fiskiskipakaupa, annist þá starfsemi eftir sem áður. En í frv. því, sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir að fella saman atvinnubótasjóðinn og þá nýju tekjuöflun. sem hér er stofnað til. Enn fremur ber þess að gæta, þegar samanburður er gerður, að frv. Framsfl. hefur á engan hátt verið miðað við þær stóriðjuframkvæmdir, sem nú eru á döfinni. Það hefur verið miðað við vandamálið, eins og það hefur verið að þróast á undanförnum árum með þjóð vorri, án þess að nýjar stóriðjuframkvæmdir og milljarðafjárfesting hér á þéttbýlissvæði landsins komi til. En þetta frv., sem er eins konar fylgifiskur álmálsins, er vitanlega öðrum þræði miðað við þau auknu áhrif til samdráttar í fjármagni og framkvæmdum og mannafla, sem hinar fyrirhuguðu stóriðjuframkvæmdir hljóta að hafa í för með sér.
Það er því mjög augljóst, þegar þessi mál eru skoðuð, að þetta frv. ríkisstj. gengur miklum mun skemmra en þær till., sem Framsfl. hefur beitt sér fyrir. Hér á að stofna skv. þessu frv. atvinnujöfnunarsjóð og hann á að taka við eignum atvinnubótasjóðsins skv. l. nr. 40 1962. Þessar eignir atvinnubótasjóðsins aukast ekki eða vaxa að verðgildi, þó að skipt sé um nafn á sjóðnum. Framlag úr ríkissjóði er ákveðið 15 millj. kr. árlega næstu 10 ár, og er það 1/3 hærra en kveðið er á um í l. um atvinnubótasjóðinn, en jafnhátt þeirri fjárveitingu, sem ákveðin er í fjárl. þessa árs. Enn fremur er gert ráð fyrir nokkrum framlögum skv. c- og d-liðum 2. gr. frv. Það er að sönnu ekki nýtt fé, það fé hygg ég, að hefði runnið til Framkvæmdabankans áður og verið varið til að styðja framkvæmdir í landinu, þótt þessi lagasetning hefði ekki komið til. En út af fyrir sig er það góðra gjalda vert að fá þessa tekjustofna inn í þennan sjóð með tilliti til þess, að fyrirhugað er að leggja Framkvæmdabankann niður. En þá kemur aðaltekjustofn frv. og það eru tekjur af skattgjaldi álbræðslunnar í Straumsvík. Í grg. þessa frv. er tekið fram það, sem hæstv. ráðh. áréttaði í ræðu sinni, að þessar tekjur muni á árunum 1970—72 nema rúmum 11 millj. á ári, en á tímabilinu 1973—1975 rúmum 17 millj. kr. á ári og fari síðan hækkandi og verði á tímabilinu 1976—1978 36 millj. rúmlega á ári o.s.frv.
Við sjáum af þessu, að hér er um að ræða fyrstu árin 11—17 millj. kr. tekjur, sem atvinnujöfnunarsjóðurinn á að fá skv. a-lið 3. gr. þessa frv. Eftir 1975 hækkar þetta verulega. eða upp í 36 millj. kr. Við fyrstu sýn virðist sú þróun vera allálitleg. En þegar betur er að gætt, þá er það augljóst, að 1975 eða 1976, eftir 10 ár. þá verða skv. frv.. eins og það liggur fyrir, niður fallnir tekjuliðirnir, sem ákveðnir eru í 2. er. frv. Ríkissjóðsframlagið er aðeins ákveðið 10 ár fram í tímann, framlagið skv. c-lið 2. gr. á að greiðast að fullu á árunum 1966—1969, og framlagið skv. d-lið sömu gr. á að greiðast að fullu á 4 næstu árum, þannig að eftir 10 ár, eins og þetta frv. er úr garði gert, þá verða tekjur sjóðsins skattgjaldstekjurnar frá álverksmiðjunni í Straumsvík, sem áætlaðar eru þá, eftir 1.0 ár, 36 millj. kr., og að öðru leyti aðeins það fé, sem sjóðurinn hefur þá orðið í veltunni, þ.e.a.s. afborganir veittra lána og vaxtatekjurnar. En þeim mun hagstæðari sem lánin verða, sem þessi sjóður veitir, þ.e.a.s. þeim mun lengri sem lánstíminn er og þeim mun lægri vextir, þeim mun minna verður þetta fé, sem skilar sér árlega inn til sjóðsins, og þeim mun meira sem veitt verður sem óafturkræft framlag af þessum stuðningi, þeim mun minna kemur aftur inn til sjóðsins til nýrrar ráðstöfunar, þannig að því hagstæðari lán sem sjóðurinn veitir, þeim mun minna ráðstöfunarfé hefur hann eftir 10 fyrstu árin, eins og þetta frv. er úr garði gert.
Þess ber að geta, að í þessu frv. eru einnig lánsheimildir. Ég held, að ég hafi skilið það rétt, bæði við lestur frv. og eins við að heyra ræðu hæstv. ráðh., að þau sérstöku erlendu lán, sem sjóðnum er heimilað að taka, séu í heild bundin við 300 millj. kr., í heild, en ekki árlega. Hins vegar mun sú lánsheimild, sem sjóðnum er veitt skv. frv. hjá framkvæmdasjóði ríkisins, vera ótiltekin eða óbundin, það er óbundin fjárhæð að mér virðist. En þegar ákvæði frv. eru lesin, þá virðist mér einnig þessi heimild vera að vissu leyti bundin, þó að ekki sé um ákveðnar tölur að ræða, sem settar eru fram í frv., því að í 6. gr. frv. segir, að lánsfé má sjóðsstjórn eingöngu verja til framkvæmda, er örugglega tryggja endurgreiðslu fjárins. Af þessu, sem hér segir, vil ég draga þá ályktun, að það kunni að geta orðið í reynd takmarkað, hvað hægt er að verja af þessu lánsfé, sem taka á skv. þeim heimildum, sem hér eru gefnar, beinlínis í því skyni að stuðla að jafnvægi í byggð landsins eða létta undir með þeim byggðarlögum, sem sárast sverfur að í því efni. Hitt er mér vel ljóst, að það getur með þessum hætti verið hægt að styðja að framkvæmd ýmissa áætlana annars eðlis, sem Efnahagsstofnunin gerir, og ná kannske til heilla landshluta eða mjög stórra svæða í heild.
Hér er einnig minnt á atvinnuleysistryggingasjóðinn og þann stuðning, sem frá honum megi vænta í þessu skyni. Út af því vil ég aðeins segja, að það er bara sérstakt mál út af fyrir sig, sem ekki snertir þetta frv. Atvinnuleysistryggingasjóðurinn er ekkert ný stofnun, og fjárráð hans breytast ekki í sjálfu sér í sambandi við þetta frv., og það, sem honum er ætlað að leggja fram, hefði verið hægt að gera, hvað sem þessu sérstaka máli líður.
Þegar allt þetta er athugað, verður það augljóst, jafnvel enn augljósara en virðist þó við fyrstu sýn, hvað þetta frv. nær skammt til þess að mæta þeim stóra vanda, sem við er að etja á þessu sviði í þjóðfélagi okkar. Ég tel það enn fremur athugavert, jafnvel varhugavert, að Efnahagsstofnunin eigi að standa fyrir þessum sérstöku framkvæmdum til jafnvægis í byggð landsins, ekki vegna þess, að ég út af fyrir sig ámæli þeim mönnum, sem þar starfa, heldur vegna þess, að aðalstarf þeirrar stofnunar er á allt öðru sviði. Það er verið að setja hér upp öfluga stofnun, að mér virðist skv. lagafrv.. sem hér liggur fyrir, sem á að vinna margvísleg verkefni, sem eru alls ekki í neinum tengslum við þetta sérstaka mál, og þá er mikil hætta á því, að þetta mál verði ekki aðalatriði hjá slíkri stofnun, heldur verði kannske annað látið fremur sitja í fyrirrúmi. Þess vegna er sú till., sem gerð er í frv. Framsfl. um framkvæmd þessara mála, að mínum dómi miklu sterkari. Og svo að enn og aftur sé vitnað til frænda okkar Norðmanna, þá hafa þeir ekki haft þann hátt á um framkvæmd hliðstæðra mála þar í landi, að fela þetta hinni almennu efnahagsmálastjórn ríkisins, heldur hafa þeir einmitt sett upp stofnun til þess að annast með miklum myndarbrag þetta sérstaka viðfangsefni, að viðhalda jafnvægi í byggð landsins.
Þótt frv. nái skammt og sé að ýmsu leyti ófullkomið, þá er sú viðleitni, sem hér er sýnd til þess að mæta miklu vandamáli, ánægjuleg, en jafnframt verður þó að segja, að ríkisstj. hefur ekki tekizt að sýna þessa viðleitni, án þess að það komi fram mínusar í dæminu. Ber þá að minna enn á það, sem ég áðan gat um, að á sama tíma sem þetta mál er hugsað og undirbúið, þá hefur ríkisstj. gert sérstakar ráðstafanir til þess að draga úr verklegum framkvæmdum skv. fjárl., og í grg. með stjfrv., sem lá fyrir síðasta þingi, kemur glöggt fram, hver ætlun hennar og vilji var í því efni, því að þar er það skýrt, að til þess að mæta ráðstöfunum vegna sjávarútvegsins og launahækkunum, þá þurfi að koma til gjaldalækkun skv. fjárl., er nemi 120 millj. kr., en framlög til verklegra framkvæmda á fjárl. ársins 1965 nema samtals 600 millj. kr. Er því nauðsynlegt að lækka þessi framlög um 20%, til þess að hægt sé að mæta þeirri 120 millj. kr. útgjaldahækkun, sem að framan getur. Ég vil nú ekki fullyrða, hvort hafi í reynd alveg tekizt að ná þessari fjárhæð á þennan hátt, en vilji hæstv. ríkisstj. í þessu efni er ótvíræður, og þetta fer í gagnstæða átt við það að styðja jafnvægi í byggð landsins, því að mikið af þeim framkvæmdum, sem þetta tekur til, er úti um landsbyggðina, þar sem fremur þarf að örva framkvæmdir heldur en draga úr þeim.
Ég verð einnig að segja, að ég tel það stóran skugga á þessu máli, hvernig það er tengt hinu umdeilda álmáli, sem nú er verið að ræða í hv. Nd. Aðaltekjuöflunin er skv. 3. gr., eins og rakið hefur verið, og sú tekjuöflunaraðferð er að mínum dómi vægast sagt óviðkunnanleg og fremur ógeðfelld, þegar um er að ræða það mál. sem hér á að finna lausn á. Gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins er ákaflega mikilvægur líður í allri efnahagsstarfsemi þjóðarinnar og afkomu þjóðarbúsins, en ég hef áður drepið á. hvernig búseta fólksins í landinu skiptist. En það má einnig lesa margt um þessi efni, um gjaldeyrisöflunina og framleiðsluna, hvernig hún skiptist, í hagskýrslum, og ef litið er á verzlunarskýrslur árið 1963, þá kemur í Ijós, að útflutningur sjávarafurða og landbúnaðarafurða það ár nam samtals 3968 millj. kr., en það eru 98.1% af öllum útflutningi þjóðarinnar það ár, en hitt, sem á vantar, eru aðeins mjög smáir líðir. Langsamlega stærsti liðurinn í þessu er sjávaraflinn, en fiskaflinn, sem tekinn var til hagnýtingar á höfnum landsins þetta ár, skiptist þannig, að af heildaraflamagninu var lagt á land til verkunar í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi 34.3%, en 65.7% af aflamagninu kemur á land og er verkað sem framleiðsluvara í öðrum landshlutum. Meðaltalsaflinn á hvert mannsbarn í landinu var árið 1963 rúm 4 tonn, en ef íbúafjöldi Reykjavíkur út af fyrir sig er skoðaður annars vegar og það aflamagn, sem þar er verkað sem útflutningsvara. hins vegar, þá er meðaltalsaflinn á hvern íbúa Reykjavíkur það ár aðeins 1.2 tonn, en ef Reykjavík og Reykjaneskjördæmi er skoðað sem ein heild í þessu dæmi, þá verður meðaltalið 2.3 tonn. En séu aðrir landshlutar skoðaðir aftur á móti sem ein heild, aðrir landshlutar utan við mesta þéttbýlissvæðið, þá er heildaraflamagnið þar 5.8 tonn á. hvern íbúa. Þetta sama ár var sauðfjáreign íbúa í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi 3%, en nautgripaeign á sama svæði rúm 4% af bústofni landsmanna.
Ég nefni þessar tölur til þess að sanna það, að aðalframleiðsla til notkunar innanlands, landbúnaðarframleiðslan, og langsamlega meiri hluti af gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins fer fram utan hins mesta þéttbýlissvæðis landsins. En gjaldeyrisöflunin er undirstaða að innflutningi til landsins, undirstaða verzlunarinnar og þess fjármagns, sem þar er í veltu, og þess auðs, sem þar er dreginn saman, undirstaða iðnaðarins, sem grundvallast á innfluttum hráefnum, og undirstaðan að tolltekjum ríkisins og söluskattinum að mestu leyti, en það eru aðaltekjustofnar ríkissjóðs.
Það er því augljóst, að fólkið úti á landsbyggðinni þarf ekki að biðja neinnar afsökunar á starfi sínu eða búsetu með þessari þjóð og að það þarf ekki að verða og á ekki að verða neinn ölmusulýður hjá erlendum auðhring, sem kemur sér upp fyrirtæki hér í Straumsvík við Faxaflóa. En það er einmitt einkennið á ráðstöfunum hæstv. ríkisstj., „viðreisnarstjórnarinnar“, að þegar kemur til þess að leita að tekjum eða tekjustofnum til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, þá eru það hennar ráð. hæstv. ríkisstj., að setja þá tekjuöflun og það fólk, sem hennar nýtur, sér á bekk, en ekki taka þær tekjur af sameiginlegu fé þjóðarbúsins.
Ég hef að undanförnu hlýtt á ýmsar umr. hér á hv. Alþ. um Vestfjarðaáætlun. Ég efast ekki um, að þeir, sem að því máli standa, gera það í góðum tilgangi. En það hefur samt farið svo að þegar þurfti að gera þar sérstakar framkvæmdir skv. þessari áætlun, þá þurfti að setja Vestfirðinga sér á bekk, sækja fé til útlanda, sumir kalla það viðreisnarsjóð og viðreisnarfé, aðrir kalla það flóttamannasjóð og flóttamannafé, sem þaðan kemur. Og nú, þegar hæstv. ríkisstj. kemur að því, loksins vil ég segja, að sýna þó nokkra viðleitni til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins með sérstökuna ráðstöfunum, þá, einmitt þá þarf að seilast eftir alveg sérstökum, óvenjulegum og að margra dómi ógeðfelldum tekjustofni til þess að standa straum af því.
Það hafa heyrzt raddir utan af landsbyggðinni nú að undanförnu um, að það muni ekki allir vera ánægðir með þá ráðstöfun, sem virðist eiga að gera, þá stóriðju, sem koma á upp. En þá fjárhagsaðstoð, sem á að veita skv. þessu frv., hana á að veita með skilyrðum. Þessi skilyrði jafngilda því, að það sé sagt við fólkið úti á landsbyggðinni þetta: Ef atvinnujöfnunarsjóðurinn á að hafa sæmileg fjárráð, þá verður þú að þola það, að erlendum auðhring sé veitt leyfi til stóriðjurekstrar hér á landi. — Þetta vil ég átelja, að þetta mál skuli bundið slíkum skilyrðum.
Ég hef áður minnzt á það, að frv. Framsfl., sem flutt hefur verið að undanförnu og enn liggur fyrir á þessu þingi, það er miðað við að mæta þessu mikla vandamáli, sem hér er til umr., án tillits til stóriðjuframkvæmdanna, og þetta frv. hefði vissulega verið alveg lágmark þess, sem gera þurfti til þess að mæta þessum vanda, þó að engin stóriðja hefði komið til greina. Samanburður á tölum eins og þeim, að á undanförnum 15 árum hafi verið veittar samtals 160 millj. kr. sem atvinnuaukningarfé, en á næstu 10 árum verði þessi sjóður orðinn svo hár sem tilgreint hefur verið, sannar litið, því að gildi krónunnar er ekki hið sama nú og það var 1950—60. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það. En dæmið stendur þá þannig, að á sama tíma sem hæstv. ríkisstj. beitir sér fyrir stóriðjuframkvæmdum, stórvirkjun, álbræðslu, hafnargerð og e.t.v. framkvæmdum í Hvalfirði, sem samtals munu vera fjárfestingar, er nema milljörðum króna, tiltek það ekki nánar, en milljörðum nemur það, það á að koma annars vegar á þéttbýlu svæðin, hins vegar ráðstafanir skv. þessu frv., ef að lögum verður, 44 millj. eigin fé sjóðsins 1966, 50 millj. 1967, og 1975 á þessi fjárhæð að vera komin upp í 112 millj. Við sjáum, þegar málið er skoðað í þessu ljósi, hvað þetta frv. gengur skammt. En þrátt fyrir þetta, þrátt fyrir þá galla, sem á frv. eru og hve það gengur skammt, endurtek ég það, sem ég sagði í upphafi máls míns, að út af fyrir sig fagna ég þeirri stefnu, sem fram kemur í frv., og þeim aukna skilningi, sem nú virðist vera að verða vart hjá hæstv. ríkisstj. og þingmeirihl. á þessu máli, og höfum við Framsfl.-menn ástæðu til að fagna þessu, en frv. sjálft og einstök ákvæði þess þarf vitanlega að athuga gaumgæfilega í þeirri nefnd, sem málið fær til athugunar.