04.04.1966
Efri deild: 60. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 953 í B-deild Alþingistíðinda. (909)

176. mál, Atvinnujöfnunarsjóður

Björn Jónsson:

Herra forseti. Í grg. með frv. hæstv. ríkisstj. um lagagildi fyrirhugaðs samnings hennar við svissneska auðhringinn Swiss

Aluminium um álbræðslu í Straumsvík, segir í upphafi hennar, að þegar ríkisstj. hafi uppgötvað, að aðstaða væri ekki að svo stöddu til þess að staðsetja alúminíumbræðslu við Eyjafjörð, pá hafi hún ákveðið að flytja þetta frv. um atvinnujöfnunarsjóð, — þetta frv. um atvinnujöfnunarsjóð til styrktar fjölþættara atvinnulífi úti um land, þar sem skilyrði séu til arðbærra framkvæmda. Hæstv. ríkisstj. vill sem sagt með þessu láta sem mest á því bera, að beint samband sé á milli þessara að hennar dómi rausnarlegu aðgerða til atvinnulegs byggðajafnvægis og alúminíumframkvæmdanna. Þetta frv. og þær aðgerðir í atvinnumálum, samgöngumálum og menningarmálum, sem á ákvæðum þess yrðu reistar, sé í rauninni bein afleiðing þeirrar blessunar, sem alúminíumbræðslan færir þjóðinni, og því er sem sagt stillt alveg saman þessum tveim hlutum þannig, að það er raunverulega sagt við fólkið úti á landsbyggðinni: Þið fáið ekkert nýtt í þessum efnum, nema alúminíumbræðslan við Straumsvík verði samþykkt. En allt er þetta svo sett fram í — ja, ég vil segja einstæðum skrumstíl í þeim tilgangi, að menn sjái þær aðgerðir, sem hér kunni að vera um að ræða í sambandi við þetta frv., í gegnum stækkunargler. En þó að það sé sjálfsagt að viðurkenna það, að einstök ákvæði frv. séu fremur til bóta en hitt, þá verður það að segjast, sem rétt er, að þetta frv. eitt út af fyrir sig er engan veginn þannig gert úr garði, að það tryggi á nokkurn hátt atvinnulegt, hvað þá menningarlegt jafnvægi á milli byggðarlaganna, eins og ástandið í þeim málum er nú, og þó enn síður eins og líkur eru til þess að það verði, eftir að þær erlendu stórframkvæmdir hæfust, sem nú er verið að stefna að. Sá peðringur fjárfestingarlána, sem frv. gerir mögulegan, þ.e.a.s. umfram eðlilegan hlut landsbyggðarinnar af öðrum stofnlánasjóðum landsmanna, verður að teljast, þegar það er athugað, grátbroslega smár með hliðsjón af þeim risavöxnu erlendu framkvæmdum, sem nú á að dengja ofan á þegar yfirspenntan vinnumarkað hér á Suðvesturlandi. Annars vegar eru fjárfestingarframkvæmdir upp á 4—5 þús. millj. kr., sem eiga að framkvæmast að mestu leyti á 2—3 árum, að sjálfsögðu auk allra óhjákvæmilegra venjulegra framkvæmda á þessu svæði, þar sem þegar er skortur á vinnuafli, en hins vegar verða þá milljónatugir, og raunar tæplega, að þær verði taldar í tugum, það sem nýtt er hér á ferðinni, til þeirra byggðarlaga, sem nú þegar skortir atvinnu og eru þannig settar, að stórhuga framkvæmdir í atvinnumálum, í samgöngumálum og menningarmálum gætu einar hindrað vaxandi fólksflótta eða jafnvel algjöra landauðn sums staðar, jafnvel þó að ekki væri um neinar alúminíumstórframkvæmdir erlendar hér að ræða.

Ég vil segja, og það er reyndar kannske fágætt, að skrumið í þessu frv. lýsi sér ekki bara í grg., heldur í sjálfum frv.-ákvæðunum. Þannig er t.d. stofnfé sjóðsins talið 364 millj. kr., en til þess að fá þessa tölu er beitt þeim aðferðum m.a. að telja framlag ríkissjóðs næstu 10 árin til stofnfjár. En þar er þó ekki um annað og meira að ræða en að gefið er fyrirheit um það, sem vitanlega væri þó hvenær sem væri hægt að breyta með lögum, að það framlag, sem nú er ákveðið í fjárl., haldist óbreytt að krónutölu næstu 10 árin. En eftir okkar reynslu af verðbólgunni á undanförnum árum og raunar áratugum er hér vitanlega um raunverulega síminnkandi framlag að ræða. Og allar götur getur ekki eyrir af þessu fjárlagaframlagi talizt til stofnfjár, heldur eru það árlegar tekjur, sem ekki koma í gagnið fyrr en jafnharðan og fjárl. eru afgreidd. En það má segja, að þá má vissulega öllu nafn gefa, — ef fjárlagaframlög, sem koma eftir allt að 10 ár, eru talin til stofnfjár þessa sjóðs, þá má öllu nafn gefa. En þegar þessu er svo sleppt, er stofnféð ekki annað en í fyrsta lagi eignir atvinnubótasjóðs, sem nú eru, þ.e.a.s. sami sjóðurinn og nú með nýju nafni og þar af leiðandi ekki neitt nýtt fé að hafa, og tæplega 100 millj. kr., sem framkvæmdasjóður ríkisins ella mundi hafa haft til ráðstöfunar og þá vitanlega alveg eins til stofnlána úti á landsbyggðinni eins og annars staðar. Hér er því ekki um neitt nýtt stofnfé að ræða til atvinnujöfnunar í landinu eða til sérstakra framkvæmda í strjálbýlínu. Allt tal um það er ekkert annað en skrumið. Það eina nýja í sambandi við þessa sjóðsmyndun er fyrirframráðstöfun ríkishlutans af skattpeningi Swiss Aluminium eða leppfyrirtækis þess, sem fyrirhugað er, að það reisi hér á landi.

Nú er það í fyrsta lagi svo, að þessi samningur hefur ekki verið samþykktur á Alþingi, og ég vil ekki hafa uppi fyrir fram um það neinar fullyrðingar, hvort það verður gert. Þó að hæstv. ríkisstj. virðist geta slegið því föstu nú, þegar málið er til 1. umr. í fyrri d., að svo verði, og sýni raunverulega Alþ. með því fullkomna óvirðingu, þá vil ég ekkert fullyrða um það. En svo mikið er víst, að ekkert af þessum skattpeningi hins erlenda fyrirtækis kemur fyrr en eftir 4 ár og er þá fyrstu árin í bezta falli, fyrir því er engin vissa, því að skattgreiðslan er mörgu háð, m.a. heimsmarkaðsverði á alúminíum, en ef fer skv. áætlunum um þetta, eru það 11.3 millj. fyrstu 3 árin og þar næstu 3 árin 17 millj., þ.e.a.s. að á næstu 10 árum yrði þessi skattpeningur í allra bezta falli 8.4 millj. á ári til jafnaðar. En skv. ákvæðum hins fyrirhugaða alúminíumsamnings getur hér verið um stórkostlega minni skattgreiðslu að ræða, t.d. ef verðfall yrði á alúminíum, en þar verða mjög snögg umskipti í skattgreiðslum, ef skráð heimsmarkaðsverð á alúminíum fellur. En sem sagt, hér er í bezta falli um það að ræða, að hér komi nýtt framlag, sem svari til milli þriðjungs og helmings af einum sæmilegum fiskibát, miðað við núverandi verðlag, og þetta kalla menn svo stórframkvæmdir til þess að koma á byggðajafnvægi í landinu og jafna aðstöðumuninn, sem nú þegar er fyrir hendi í landinu í atvinnulegum efnum, í menningarlegum efnum og í samgöngulegum efnum.

Það mun vera sagt, að auk þessa séu svo lántökuheimildir, sem bæti það upp, að þetta er ekki stórkostlegra en raun ber vitni. En það er greinilegt, m.a. af grg. og raunar af ákvæðum 6. gr. frv., að það er til þess ætlazt, að lántökuheimildirnar verði eingöngu hugsaðar til þess, að hægt sé að eyða fyrir fram því framlagi, sem hér er um að ræða, og þeim tekjum, sem sjóðurinn hefur, því að það segir t.d. í 2. mgr. grg., að verði á næstu árum þörf sérstakra átaka af hálfu atvinnujöfnunarsjóðs í sambandi við framkvæmdaáætlanir fyrir einstaka landshluta eða héruð, sem eigið ráðstöfunarfé sjóðsins hrekkur ekki til að mæta, á að vera auðvelt að grípa til lántökuheimildar með hliðsjón af hinum öruggu framtíðartekjum sjóðsins. Það er sem sagt meiningin a.m.k., ef þeir halda á málum, sem að þessu standa, að verði lántökuheimildirnar notaðar, þá verði tekjurnar um leið veðsettar fyrir þeim lánum, og get ég þá ekki séð, að lántökuheimildirnar séu fallnar til þess, að á þeim verði byggð mikil stórvirki.

Það er verið að gylla það, að ráðstöfunarfé þessa fyrirhugaða sjóðs fari stöðugt vaxandi og eftir svo sem áratug sé hér orðið um álitlega fúlgu að ræða eða jafnvel yfir 500 millj. kr. Það mætti nú spyrja, af því að ég teldi það raunar vera sjálfsögðustu ráðstöfunina í sambandi við atvinnulegt og fjárhagslegt jafnvægi í landinu, að sparifjárfrystingin væri ekki látin ná nema til þenslusvæðisins hér: Hvað mundi á þessum tíma, miðað við reynsluna, líklegt, að næmi miklu fé, sem fryst er inni í Seðlabankanum frá þeim landssvæðum, sem þegar skortir fjármagn til allra nauðsynlegustu framkvæmda? Ætli það gæti ekki verið drjúgum meira en sú sjóðsstofnun, sem hér er um að ræða, sem hefði verið hirt af sparifé manna úti á landsbyggðinni. En mér sýnist þó, eftir því sem þetta er útlistað í grg., að þá geti ráðstöfunarféð ekki vaxið meira en það svari svona til líklegrar verðbólguaukningar, miðað við okkar reynslu, sem hefur verið um 10% á ári, þ.e.a.s. að ráðstöfunarféð standi nokkurn veginn í stað, það tvöfaldist að krónutölu á 10 árum, en það svarar einmitt til þeirrar verðbólguþróunar, sem við höfum haft á undanförnum árum, og framkvæmdageta þessa fjár mundi þess vegna ekki vaxa, heldur standa í stað, miðað við núverandi verðlag í 40—50 millj. kr. Og þegar það er svo hugmyndin, að þessu fjármagni, 40—50 millj. kr. á ári, miðað við núverandi verðgildi peninga, eigi að skipta milli framkvæmda í atvinnumálum, samgöngumálum og menningarmálum á stórum landssvæðum, hygg ég, að hverjum manni hljóti að vera ljóst, að heldur muni nú verða smátt skammtað til hverra framkvæmdanna. Ég nefni bara sem dæmi um þetta framkvæmdir eins og í heilbrigðismálum á einum stað, þar sem ég þekki vel til. Þar þarf að gera nokkra viðbót við sjúkrahús. Sú framkvæmd kostar 70 millj. kr. eða nærri því tvöfalt allt það framlag, sem ætlað er ekki aðeins til heilbrigðismála, heldur til menningarmála, samgöngumála og atvinnumála í 2 eða 3 landsfjórðungum, þ.e.a.s. að sjálfsögðu umfram það, sem lög mæla fyrir um, að ríkið styrki slíkar framkvæmdir hverju sinni.

Ég vil segja það, að þegar þetta er skoðað, hljóta allir skynibornir menn að komast að þeirri niðurstöðu, kveða upp þann dóm, að þessi skattpeningur, sem hér er seilzt til og ekki er farinn að sýna sig enn þá og getur aldrei orðið handbær fyrr en eftir nokkur ár, hann veldur ekki miklum af þeim verkefnum, sem við blasa í þessum efnum, sem hér um ræðir. Það þurfa vitanlega að koma til stórfelldar áætlanir um atvinnulega uppbyggingu og framkvæmdir í samgöngumálum, í skólamálum og heilbrigðismálum. En þó að þetta frv. hafi komið hér fram, þá liggja engar slíkar áætlanir fyrir enn í dag, ekkert af þeim hefur séð dagsins ljós, enda mundi það þá líka sannast enn betur, ef slíkar áætlanir lægju fyrir, hversu haldlítið þetta frv. væri til þess að tryggja slíkum raunhæfum áætlunum framgang. Þar þyrfti vissulega annað og meira að koma til en hinn rýri skattpeningur hins erlenda stóriðjufyrirtækis, og ég tel þess vegna með öllu ótímabært að lýsa yfir nokkrum sérstökum fögnuði yfir þessu frv. jafnsmátt og smásálarlegt sem það er í sniðum. En ég vil þó segja það, að hér veldur að sjálfsögðu nokkru um, hvernig á er haldið, og eins og ég sagði áður, hvaða aðrar ráðstafanir, fyrst og fremst hvaða aðrar ráðstafanir eru gerðar til stöðvunar þeirri viðvarandi þróun, að stærri og stærri hluti þjóðarinnar hnappist saman í höfuðborgina og næsta nágrenni hennar. En það fer svo ekki á milli mála, að staður og stund eru valin hér til þess að flytja þetta frv. í þeim eina tilgangi, vil ég segja, að gylla alúminíumævintýrið fyrir þeim, sem nú bera skarðastan hlut í atvinnulegum efnum, og milda, ef unnt væri, þá sterku og ég vil segja allt að því einróma andstöðu, sem hefur skapazt gegn því úti um landsbyggðina og þá ekki sízt í kjördæmi hæstv. fjmrh., þar sem líkur benda til, að um 80—90% kjósenda séu algjörlega andvígir þessu máli.

En ég hygg, að fleirum muni fara svo heldur en mér, að þeim þyki það harla ógeðfellt, að ekki sé meira sagt, að taka til við ráðstöfunaraðgerðir á skatti alúminíumfyrirtækisins, áður en Alþ. hefur samþykkt samninginn. Það er eins og maður, sem er það gráðugur, að hann verði að borða kökuna, áður en farið er að baka hana.

Þessi frv:-ákvæði hér um skattpening hins svissneska alúminíumfyrirtækis sýna, að hæstv. ríkisstj. telur, að hér sé um afgerða hluti að ræða, áður en fjallað hefur verið um alúminíummálið á eðlilegan og þingræðislegan hátt. Og ég verð að endurtaka það, að slíkur hraði á ráðstöfun á fé, sem ekki verður handbært fyrr en eftir í fyrsta lagi 4 ár, hann sýnir fyrst og fremst tvennt. Hann sýnir annars vegar, að ríkisstj. vill auglýsa, að hún hafi þegar handjárnað lið sitt í alúminíummálinu og eigi í fullu tré við stjórnarandstöðuna um að knýja það mál fram, örugglega gegn vilja meiri hl. þjóðarinnar, og í öðru lagi sýnir það svo veikleika hennar, hún telur sjálfa sig standa höllum fæti í málinu og álítur nauðsyn bera til að hraða eða a.m.k. sýna lit á einhverjum friðþægingaraðgerðum gagnvart dreifbýlinu, og það tel ég sízt vera undur, eins og á málum hefur verið haldið.