04.04.1966
Efri deild: 60. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (911)
176. mál, Atvinnujöfnunarsjóður
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Það er nú mjög liðið á fundartímann, þangað til kvöldmatartíminn hefst, og ég hef enga löngun til þess að tefja fyrir því, að þetta mál komist til n., svo að ég skal mjög takmarka mál mitt að þessu sinni. Það eru aðeins örfá orð, sem ég vildi leyfa mér að segja, áður en málið fer til nefndar.
Hæstv. fjmrh. talaði hér, eftir að ég hafði flutt ræðu um þetta mál. og sagði, að ég hefði viljað gera lítið úr þessu frv. Þetta tel ég ekki rétt skilið hjá hæstv. ráðh. Hið sanna er, að ég lýsti ákvæðum þessa frv. og vil ekki gera minna úr því en efni standa til, en ef efnið leyfir ekki að álykta annað en frv. nái heldur skammt, þá verður því ekki breytt.
Einstök atriði, sem fram komu í síðari ræðu hæstv. ráðh., eru þess eðlis, að ég tel ástæðulaust, að við séum að lengja umræður með því að endurtaka þau eða hafa um þau málalengingar. Það stendur óhaggað allt, sem ég sagði í minni fyrri ræðu, bæði um ýmiss konar samanburð talnalegan og um niðurskurð á fjárframlögum samkv. fjárl., lántökuheimildir og því um líkt. Það eru því í raun og veru aðeins tvo efnisatriði, sem ég vildi gera lítils háttar athugasemd við nú í þessari ræðu.
Annað er sú fullyrðing hæstv. fjmrh., að frv. Framsfl. um sérstakar ráðstafanir í byggð landsins sé óraunhæft og að það sé út í hött að tala um þær till., sem framkvæmanlegar eða till. til lausnar því vandamáli, sem hér er um að ræða. Þetta tel ég algerlega rangt og fráleitt að halda slíku fram. Till. framsóknarmanna í nefndu frv. eru vissulega samrýmanlegar því fjármálakerfi, sem við búum nú við, og þær tölur, sem þar eru fram settar, eru alls ekki hærri en svo, að þær gætu rúmazt innan ramma fjármálakerfisins, eins og það er nú, ef stefnan væri sú að láta þá fjármuni, sem gert er ráð fyrir að verja í þessu ákveðna augnamiði, sitja í fyrirrúmi fyrir ýmsu öðru. Aðalatriðið er, hvernig verkefnunum er raðað niður og hvað stjórnarvöldin, sem valdið hafa í þessu efni, vilja láta sitja í fyrirrúmi og hvað þau vilja láta sitja á hakanum.
Hitt atriðið, sem ég vildi minnast á og er nú raunar kannske aðalatriðið í þessu máli, er, að það kom fram hjá hæstv. ráðh. nú í seinni ræðu hans, að það væri ekki hægt, held ég, að hann hafi sagt, eða a.m.k. má segja, að hann álíti, að það sé ekki réttmætt að taka tillit til stórframkvæmdanna, sem í ráði er að gerðar verði á næstu missirum, og að sníða ákvæði þessa frv. með tilliti til þess. Ég er algerlega ósammála hæstv. ráðh. um þetta atriði og ég held, að það sé einmitt aðalatriðið eða eitt af hinum veigamestu atriðum í þessu máli, að það sé höfð við lausn þess heildaryfirsýn yfir landið allt og yfirsýn yfir þau verkefni, sem á að vinna að nú á næstu missirum og hafa svo ríkuleg áhrif á þjóðarbúskapinn í heild. Þess vegna tel ég það ekki aðeins réttmætt, heldur sjálfsagt, að þegar þetta frv. er skoðað, þá sé það skoðað með tilliti til þeirra stórframkvæmda, sem ákveðið er að koma upp, og þeirrar fjárfestingar, sem þar á að gera. Enda sló nú dálitið út í fyrir hæstv. ráðh., honum varð dálítið hált á brautinni, þegar hann var að ræða um þetta, því að annars staðar í ræðunni sagði hæstv. ráðh., að þetta hefði eiginlega alltaf verið hugsað f samhengi hvort við annað, og frá fyrstu tíð hefur verið um það talað, að tekjurnar af álbræðslunni rynnu til þess að lyfta undir með framkvæmdum úti á landsbyggðinni, svo að ef svo hefur verið, er það fleirum en mér, sem hefur sýnzt það vera ekki aðeins réttmætt, heldur eðlilegt og sjálfsagt að skoða þessi mál í samhengi og hafa heildaryfirsýn yfir landið allt og þær framkvæmdir, sem gera á á næstu missirum, þegar þetta er metið.
Ég skal svo ekki eyða lengri tíma, nema sérstakt tilefni gefist í þessum umr.