04.04.1966
Efri deild: 60. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (912)
176. mál, Atvinnujöfnunarsjóður
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég skal mjög fara eftir því, eins og hv. síðasti ræðumaður, að lengja ekki þessar umr., enda var það aðeins 1/2 mínúta eða svo.
Hann er með gleggstu reikningsmönnum hér, hygg ég, í þessari hv. þd., og kannske þó að víðar sé leitað, og aðeins í tilefni af því, sem hann sagði hér áðan, að það væri nú ekkert ofboð 80 milljónir og að það rúmaðist ákaflega vel innan ramma okkar fjárlagakerfis, langar mig aðeins til, af því að ég sé, að hann hefur þar gleggri skilning sennilega á þessu og gleggra auga en ég, að biðja hann, þó að það væri nú í kyrrþey, hann kannske hefur það ekki alveg á reiðum höndum núna, að gefa mér það upp, þegar hann var að tala um að raða framkvæmdunum, hvað af því, sem var sett í fjárlög fyrir árið 1966, mætti fella út til þess að bæta inn þessum 80 milljónum.