21.10.1965
Neðri deild: 5. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (961)

20. mál, verðtrygging fjárskuldbindinga

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Mér þykir rétt að fara um þetta frv., sem er um verðtryggingu fjárskuldbindinga, nokkrum orðum hér við 1. umr. þess. Eins og fram kom af máli hæstv. viðskmrh., var frv. fyrst borið fram í fyrra, en þá svo nálægt þinglokum, að umr. um það urðu því sem næst engar, málið drukknaði í hinum árvissu vorönnum hér á hv. Alþ. Þó er hér hreyft þýðingarmiklu máli, sem getur haft heillavænleg áhrif fyrir íslenzkt efnahagslíf, ef vel tekst til um framkvæmdina, en jafnframt hættulegt fyrirtæki að öðrum kosti, ef illa tekst til. Varðar því miklu að vanda lagasetninguna vel, því að lengi býr að fyrstu gerð, en hér er fjallað um málefni, sem ekki hefur áður verið skipað með heildarlöggjöf hér á landi. Frv. er ætlað að vera almenn löggjöf um hvers konar verðtryggingu í viðskiptum, eins og í aths. segir.

Það er ein tegund verðtryggingar sérstaklega og sem ég tel mjög brýna nauðsyn að koma á, og það er verðtrygging sparifjárins. Að hinu leytinu er svo að athuga það, að spariféð er ekki hægt að tryggja fyrir verðsveiflum, án þess að útlán peningastofnana séu bundin verðlaginu á sama hátt, því að í landinu er enginn aðili til, sem það hlutverk gæti tekið að sér að bera uppi þann mismun, sem hlýtur að verða á vísitölubundnum og óvísitölubundnum fjárskuldbindingum á verðbólgutímum, ekki sízt þeim gífurlegu verðbólgutímum, sem nú eru hér. Það er ljóst, að þetta tvennt eru greinar á sama meiðnum, og verður því að skoða það hvort tveggja í senn, eins og raunar gert er í frv. En ég hefði betur fellt mig við það, að meiri áherzla hefði í frv. verið lögð á þann þáttinn, sem snýr að verðtryggingu sparifjárins, því að þar sýnist mér fyrst og fremst, að skórinn hafi kreppt á undanförnum árum eða áratugum.

Þm. Framsfl. hafa mjög oft á undanförnum árum hreyft því hér á hv. Alþ., hver nauðsyn væri á verðtryggingu sparifjár. Síðast var þetta gert í fyrra, á þinginu 1964. Þá fluttu 5 þm. flokksins þáltill. um málið snemma á þinginu. Ég held, að þskj. hafi verið nr. 40, en till. fékk þó ekki þinglega afgreiðslu, kom aldrei úr athugun frá þeirri n., sem henni var vísað til. Engu að síður þykir mér ekki ólíklegt, að tillöguflutningurinn hafi haft nokkur áhrif, því að eins og ég áðan sagði, kom á s.l. þingi um vorið fram frv. samhljóða því, sem hér um ræðir. Í grg. umræddrar þáltill. eru raktar ástæðurnar fyrir flutningi hennar, og segir þar m.a., að íslenzkt fjármálalíf hafi allt frá síðustu heimsstyrjöld einkennzt öðru fremur af sífelldu verðfalli peninga. Hygg ég, að þarna sé ekki ofmælt, enda auðvelt að sanna tölulega, að innlánsvextir af sparifé hafa þetta tímabil engan veginn nægt til þess að vega á móti því verðfalli peninga, sem átt hefur sér stað, og það enda þótt vextir hafi hér um skeið a.m.k. verið og séu jafnvel enn einir þeir hæstu, sem um getur á byggðu bóli, þannig að sú fyrirætlun, sem eflaust hefur verið með hinum háu vöxtum öðrum þræði a.m.k., að verðtryggja spariféð, hefur ekki borið tilætlaðan árangur, enda var því yfirlýst af hæstv. bankamálaráðh. hér áðan, að svo hefði ekki verið og þess vegna þurfi að grípa til annarra ráðstafana.

Verðfall sparifjárins hefur haft mjög óheppilegar afleiðingar á mörgum sviðum og er ein aðalorsök verðbólguaukningarinnar, sem einkennt hefur tímabilið og þó síðustu árin öðru fremur. Innlendur sparnaður er ein mikilvægasta forsenda þróttmikillar og heilbrigðrar efnahagsstarfsemi, en afleiðingin af verðfalli peninganna hér undanfarna áratugi er vitanlega ónógur sparnaður, því að enda þótt tölur um sparifjármyndun hafi margfaldazt, verður að hafa í huga, hversu krónan hefur raunverulega minnkað og hversu allur tilkostnaður við rekstur hefur stórkostlega aukizt, þannig að fyrirtæki þau og atvinnuvegir, sem byggja verða að miklu leyti á lánsfé, þurfa sífellt meira og meira til að halda rekstri sínum í óbreyttu horfi. Þetta hefur leitt til gífurlegs lánsfjárskorts til hvers konar framkvæmda og rekstrar atvinnufyrirtækja, eins og hv. þm. öllum er mætavel kunnugt og oft hefur áður verið rætt hér á þessum stað. Lánastarfsemin hefur í sívaxandi mæli einkennzt af stuttum og óhagkvæmum lánum úr bankakerfinu og að því er fullyrða má — og síðast var það gert af hæstv. viðskmrh. hér áðan — einnig af vaxandi lánastarfsemi utan bankanna, sem ekki er síður alvarlegt mál. Þetta ástand hefur vitaskuld skapað miklum hluta efnahagsstarfseminnar í landinu veruleg vandkvæði, og það þarf því ekki að lýsa því, hversu mikið hagræði það væri atvinnuvegunum, að þeim væri auðveldaður aðgangur að hagkvæmum lánum, bæði til fjárfestingar og rekstrar.

Þessi stöðuga verðrýrnun peninganna hefur aukið verðbólguna, eins og ég áðan sagði, en verðbólgan tröllríður þjóðfélagsbyggingunni sennilega meir og skaðlegar en flest, ef ekki álit annað, sem nú er hér við að glíma. Gróðinn, sem stöðugt verðfall peninganna skapar, orsakar æðisgengið kapphlaup um hið takmarkaða lánsfé, og verðbólgufjárfestingin magnast. Slík endurskipting eigna þjóðfélagsins, þar sem lántakendur hagnast sífellt á kostnað lánveitenda, er hvorki sanngjörn né verðskulduð, auk þess sem ómögulegt verður að hafa hemil á efnahagslífinu eða beina því í eðlilegan farveg, meðan svo hagar til sem nú. Það er því brýn nauðsyn að rétta hlut sparifjáreigenda og draga úr yfirstandandi dýrtíðarspennu, og til þess verður að ætla, að verðtrygging, geti haft mikil áhrif.

Verðbólga hefur víðar verið vandamál en hér, og aðrar þjóðir hafa átt við hana að stríða. Sparifé hefur verið verðtryggt í ýmsum löndum að meira eða minna leyti, t.d. í Finnlandi, Frakklandi, Ísrael og Svíþjóð og ef til vill viðar, þó að ég viti það ekki, og væri vissulega girnilegt til fróðleiks að kynnast því, hver reynsla þessara þjóða hefur orðið af verðbindingunni nú, þegar við Íslendingar ætlum að fara að ráðast í þessa miklu breytingu. Það má auðvitað vel vera, að reynsla þessara landa hafi verið kunn og við hana stuðzt við samningu þessa frv., þó að ég viti ekki til þess og þess sé ekki getið í aths.

Augljóst er, að talsverðir framkvæmdaerfiðleikar eru á þessu máli, og því var í þeirri þáltill. frá fimm þm. Framsfl., sem ég áðan vitnaði til, gert ráð fyrir því, að kosin yrði fimm manna mþn, til athugunar á því, með hverjum hætti verði komið við verðtryggingu sparifjár að öllu eða einhverju leyti, eins og þar segir.

Hæstv. ríkisstj. hefur ekki séð ástæðu til að fara þannig að, heldur leggur fram frv. samið í Seðlabankanum, væntanlega á grundvelli athugana sérfræðinga sinna þar. Frv. stekkur alskapað úr höfði seðlabankastjórnarinnar, án þess að aðrir hafi nokkra möguleika fengið á því að athuga þann undirbúning, sem þar hefur átt sér stað.

Augljósustu vandkvæði þess að taka upp verðtryggingu sparifjár og það, sem fyrst af öllu stingur í augun, er það, að allar innlánsstofnanir hafa verulegan, ég vil segja meginhluta af ráðstöfunarfé sínu hundinn í útlánum til misjafnlega langs tíma, jafnvel til nokkurra ára, og það er óheimilt og ómögulegt að koma verðtryggingarákvæðum inn í áður gerða lánasamninga. Ef allt sparifé yrði verðtryggt í einu lagi, mundi þarna skapast mismunur, sem yrði algjörlega ofviða bönkum, sparisjóðum og öðrum peningastofnunum að bera uppi.

Hvernig þessu vandamáli skuli mætt skv. frv., liggur að mínum dómi engan veginn ljóst fyrir. Um þetta er ekkert fjallað í aths., sem fylgja því, um þetta var ekkert rætt í framsöguræðu hæstv. viðskmrh. og mér vitanlega hefur hvergi verið á þetta vandamál minnzt í sambandi við það frv., sem hér er til umr. En þetta er þó ein þýðingarmesta forsenda þess að ráða fram úr þessu vandamáli, ein þýðingarmesta forsenda þess, að yfirleitt þýði nokkuð að tala um verðtryggingu sparifjár, svo að nokkru nemi.

Að öðru leyti vakna líka ýmsar spurningar aðrar en þessi, sem ég tel, að nauðsynlegt sé, að svarað verði, annaðhvort nú eða á síðara stigi meðferðar málsins hér á hv. Alþ., en alla vega áður en frv. verður að lögum. Hér er um frumsmíð að ræða, svo að það er alls ekki óeðlilegt, þótt einhverju þurfi að breyta til betri vegar, enda sagði hæstv. viðskmrh. það hér áðan, að hann ætlaðist ekki til þess, að frv. yrði í einu og öllu samþykkt eins og það lægi hér fyrir, heldur fengi það rækilega athugun. Því vil ég fagna út af fyrir sig, að ekki er lögð meiri áherzla á samþykkt frv. óbreytts en þar var gert. En málið er svo örlagaríkt, að brýn þörf er að athuga vel allar hliðar þess og að rasa hvergi um ráð fram.

Þar sem ég geri ráð fyrir, að frv. verði vísað til hv. fjhn. og það fái þar vandlega athugun, get ég að þessu sinni látið nægja að fara fljótt yfir sögu, en ég vil þó leyfa mér að nefna nokkur atriði, sem ég tel, að til álita komi við frumathugun málsins nú.

Í fyrsta lagi vil ég nefna þá breytingu, sem mér fyndist eðlilegt að gera á uppsetningu frv., eins og ég minntist lauslega á í upphafsorðum mínum, en það er að undirstrika það betur en gert er í frv. sjálfu, að það sé verðtrygging sparifjárins, sem er aðalatriðið, að aðalatriðið sé að koma í veg fyrir það eignatjón, þann eignamissi, sem sparifjáreigendur hafa sífellt orðið fyrir á undanförnum árum, en verðtrygging lánsskuldbindinga sé afleiðing, nauðsynleg afleiðing af þessu réttlætismáli.

Ég veit það, að e.t.v. skiptir þessi breyting ekki höfuðmáli um framkvæmd eða tilgang hinna væntanlegu laga. En mér finnst viðkunnanlegri blær á því að byggja lögin upp á jákvæðan hátt, leggja áherzluna á heimild til verðtryggingar sparifjárins, en verðtrygging skuldbindinganna komi þar sem afleiðing í öðru sæti. Og mér dettur í hug, hvort lögin mundu ekki geta heitið: Verðtrygging sparifjár og annarra fjárskuldbindinga t.d., og byggi ég þessa nafngift á því, að skuldbinding innlánsstofnana við sparifjáreigendur sé vitanlega ein tegund fjárskuldbindinga.

Þá vil ég í öðru lagi nefna ákvæði 4. gr. c.

Þar segir, að fjárskuldbindingin skuli eigi vera gerð til skemmri tíma en þriggja ára, og sé þá miðað við, að fjárskuldbindingin greiðist upp í einu lagi. En í 5. gr., þar sem fjallað er um verðtryggingu sparifjárins, er þó tekið fram, að ákvæði c-liðar 4. gr. sé ekki bindandi um það atriði. Seðlabankanum er þar veitt heimild til þess að veita innlánsstofnunum rétt til að taka við sparifé, sem bundið sé til skemmri tíma en 3 ára. Aths. við 5. gr. segja, að fyrirsjáanlegt sé, að binding innlána verði að öðru jöfnu til styttri tíma en útlánin, og þess vegna sé veitt sú undanþága, sem ég áðan minntist á.

Ég hefði talið mjög nauðsynlegt í þessu sambandi að fá nánari vitneskju um það, hvernig fyrirhugað er að koma fyrir þessum spariinnlögum með verðtryggingu. Er það t.d. hugmynd frv.-höfundanna, að allt sparifé, sem bundið er til 6 mánaða, fáist verðtryggt eða aðeins sparifé, sem bundið er til eins árs, eða á að binda sparifé til lengri tíma, til þess að verðtryggingarhagræðisins verði notið? Hvernig á að mæta því tilviki í framhaldi af þessu, sem upp getur komið, að mikill, jafnvel yfirgnæfandi meiri hluti þess sparifjár, sem nú er í bönkum og sparisjóðum, leiti í þennan farveg? Hvað eiga bankarnir að fá rúma heimild til þess að taka við sparifé með verðtryggingarskilmálum? Gömlu útlán bankanna, öll þau útlán, sem veitt hafa verið skv. gildandi lögum fram að þessum tíma, eru án verðtryggingarákvæða að sjálfsögðu. Þarna skapast, ef ekki er mjög vandlega að gætt, veruleg hætta fyrir viðskiptabankana, ekki sízt þá, sem lítið eiga af eigin fé. Þessir bankar geta hæglega lent í þeirri aðstöðu að hafa tekið við miklu verðtryggðu sparifé, en sitja uppi með verulegan hluta af útlánum sínum í föstum skorðum, í lánum, sem ekki er heimilt að taka vísitöluhækkun á, að vísu eflaust með eitthvað hærri vöxtum en menn þurfa að greiða af sparifénu, en engu að síður alveg óvíst, hvort þeir eru nægileg trygging fyrir verðbólgunni, þegar hún er orðin kvöð á sparifénu, kvöð bankanna til að greiða uppbót á spariféð á slíkum verðbólgutímum sem hér hafa verið og hugsanlega halda áfram að vera.

Ég hefði talið mjög æskilegt, að hæstv. viðskmrh. treysti sér til að upplýsa meira um þetta atriði nú en hann hefur gert, eða í síðasta lagi á fundum hv. fjhn., þegar málið kemur þangað til athugunar. Hér er um mjög örlagaríkt atriði að ræða, sem getur alveg ráðið úrslitum um möguleika þess að framkvæma þá — ég vil segja góðu hugsun, sem í þessu frv. felst.

Í þriðja lagi vil ég leyfa mér að nefna eitt atriði í frv. Það er í 4. gr. a. Þar segir, eins og hér hefur verið rakið, að verðtrygging skuli yfirleitt miðuð við vísitölu framfærslukostnaðar, eins og hún er reiknuð á hverjum tíma.

Ég hygg, að það verði talið nokkuð eðlilegt, að sá háttur verði á hafður, að miðað verði við vísitölu framfærslukostnaðar. Að vísu hefur sú verðtrygging, sem þegar hefur verið tekin upp, verið miðuð við aðra vísitölu. Lán húsnæðismálastjórnar eru, eins og kunnugt er, miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar, og enn fremur skuldabréfalán ríkissjóðs, sem tekið var í fyrra, það er háð þeirri vísitölu. En allt um það tel ég ekki, að það sé neitt rangt í því að miða við vísitölu framfærslukostnaðar. Hún er alþekktur mælikvarði. Hún er m.a. mælikvarðinn á kaupgjaldið, og kaupgjaldið hlýtur náttúrlega alltaf að vera í nánu sambandi við möguleika manna á því að standa undir fjárskuldbindingum, og ekki sízt af þeirri ástæðu tel ég, að þessi vísitala sé eðlileg. Það er ekki þetta, sem ég hef við þetta ákvæði að athuga, heldur hitt, að gert er ráð fyrir því í áðurnefndri grein, að Seðlabankanum skuli heimilt að leyfa, að verðtrygging sé miðuð við aðra vísitölu eða við breytingar tiltekins vöruverðs eftir nánari fyrirmælum þar og þeim, sem síðar kunna að verða sett. Hér sýnist mér, að opnuð sé leið til þess, að í einstökum tilvikum sé um að ræða aðra viðmiðun en vísitölu framfærslukostnaðar, og þá þar með, að margs konar verðtryggingargrundvöllur verði gildandi í þjóðfélaginu á sama tíma. Seðlabankinn á samkv. frv. að hafa heimild til þess að skammta mönnum misjöfn kjör í þessu efni eftir vild. Í aths. frv. segir aðeins um þessa grein, að ætla megi, að meginreglan verði sú, að vísitala framfærslukostnaðar verði notuð sem verðmælikvarði í samningum og skuldbindingum, og tekið fram, eins og ég áðan gerði, að hún sé algengasti verðlagsmælirinn. Samt telja höfundar frv. ástæðu til þess eða þörf á því að hafa undanþáguheimild, þ.e. að hægt sé að taka upp aðra viðmiðun við tiltekið vöruverð, og það er jafnvel gert ráð fyrir því, að setja þurfi sérstakar reglur um nýjan verðtryggingargrundvöll. Hvað er það svo, sem Seðlabankinn samkv. frv. á að hafa að leiðarljósi, þegar hann beitir þessu valdi sínu? Það er það samkv. grg., að viðmiðunin, sem hann ákveði, sé betri mælikvarði á greiðslugetu þess aðila, sem tekst skuldbindinguna á hendur. Með fyllstu viðurkenningu á réttsýni og glöggskyggni Seðlabankans og þeirra manna, sem þar stjórna, held ég, að þarna sé opnuð leið og honum fengið hlutverk, sem verði mjög erfitt að rækja. A.m.k. tel ég ástæðu til þess að tiltaka nú þegar miklu nánar en hér er gert, við hvað er átt með þessu ákvæði og hvernig hugsað er, að frekari úrvinnsla þessa undanþáguákvæðis verði framkvæmd. Ég á von á því, að frekari skýring fáist á umræddu ákvæði við meðferð málsins á hv. Alþ., og þá er það vel, en ég vek athygli á þessu nú í upphafi, vegna þess að mér sýnist, að ef ekki verður mjög varlega í sakirnar farið, séu skapaðir möguleikar til þess, að fólk búi hér við margs konar lánakjör og margs konar tilvik skapist, auk þess sem öll slík fjölgun á viðmiðunargrundvellinum gerir framkvæmdina miklu erfiðari en annars þyrfti að vera.

Þá vil ég í fjórða lagi leyfa mér að fara örfáum orðum um vaxtakjörin. Frv. gerir eðlilega ráð fyrir því, að vextir verði mismunandi eftir því, hvort um bundin eða óbundin lán verði að ræða. Það er talað um, að vaxtakjörin verði ákveðin síðar, það verði haldið áfram á þeirri braut, sem farin hefur verið um skeið, að Seðlabankinn einn ákveði vaxtakjörin í landinu án íhlutunar Alþ. Ég ætla ekki að ræða það atriði hér sérstaklega, en ég vildi óska þess engu að síður, að frekari upplýsingar gætu legið fyrir um vaxtakjörin en hér er nú. Eiga t.d. vaxtakjörin að vera þau sömu og á lánum frá húsnæðismálastjórn, 4% í útlánum þaðan og vísitala byggingarkostnaðar? Eða er hugsað að hafa vaxtakjörin þau sömu og ríkissjóður tók á sig með útboði innlends framkvæmdaláns, 5% fyrstu 4 árin og hækkandi prósenta úr því og vísitala byggingarkostnaðar? Eða er kannske hugsað, að útlán beri 5—6%, en spariféð fái 4%, því að í frv. er eðlilega gert ráð fyrir vaxtamismun, sem gangi til bankanna? Hver á hann að verða? Og hvernig er hugsað að koma þessum vaxtakjörum fyrir? Það er atriði, sem skiptir verulegu máli, þegar menn eru að hugleiða ráð til þess að taka hér upp verðtryggingu sparifjár, en atriði, sem mér finnst ekki svarað fullnægjandi í því, sem fram hefur komið viðvíkjandi þessu frv.

Þá vil ég nefna í fimmta lagi það atriði, sem hefur valdið mér nokkrum heilabrotum, hvernig hugsað er að ráða fram úr, en það er þetta, að þegar nokkur hluti útlánastarfsemi banka og annarra innlánsstofnana á að verða verðtryggður, en annar ekki, skapast þá ekki mikil hætta á mismunun þjóðfélagsþegnanna eða viðskiptamanna bankanna og innlánsstofnananna? Verður það þá ekki háð tilviljunum, skulum við segja, eða einhverju öðru, hver það verður, sem fær lán með vísitölubundnum kjörum, og hverjir það verða, sem áfram geta búið við verðbólgulánin, þ.e.a.s. lánin, sem ekki breytast, hvernig sem verðlagið í landinu breytist? Þetta er atriði, sem mjög þarf að gera sér grein fyrir. Ef slíkur möguleiki er fyrir hendi, er hætta á því, að einstakir aðilar búi við mismunandi lánakjör, jafnvel þótt þeir starfi báðir í sömu atvinnugrein eða taki lán til hliðstæðra eða sams konar framkvæmda. Það mætti e.t.v. fyrirbyggja þetta með nánari útfærslu á heimildinni í 4. gr. c, og ég tel. að það sé full ástæða til þess að skoða, hvort ekki sé hægt að gera það, því að þessi hætta er að mínum dómi vissulega til staðar, ef ekki er sett undir þann leka alveg örugglega í upphafi.

Í sjötta lagi vil ég aðeins nefna ákvæði 5. gr., þar sem segir, að Seðlabankinn geti heimilað bönkum og öðrum innlánsstofnunum að taka á móti innstæðum gegn verðtryggingu og lána út samsvarandi fé auk jafnvirðis eigin fjár með verðtryggingu. Spurning mín í þessu sambandi er sú, hvað er átt við með orðunum „öðrum innlánsstofnunum“. Er átt þar aðeins við sparisjóðina, eða er líka átt við innlánsdeildir, t.d. innlánsdeildir kaupfélaganna? Ég tel raunar alveg víst, að svo sé, að þessa heimild eigi að vera hægt að veita innlánsdeildum kaupfélaganna líka. Innlánsdeildirnar eru látnar fylgja öðrum peningastofnunum, þegar um óþægilega hluti er að tefla. Þegar innheimtur er hluti af sparifjármyndun peningastofnana og fluttur í Seðlabankann, fara innlánsdeildirnar ekki varhluta af þeim ákvæðum, þeim er gert að binda jafnháan hluta af sínum innstæðum í

Seðlabankanum eins og öllum öðrum peningastofnunum, svo að ég tel raunar alveg öruggt mál, að þeim verði fengin réttindi til að taka við verðtryggðu sparifé á sama hátt og öðrum peningastofnunum og um þetta sé kannske óþarfi að fjölyrða. En engu að síður er þetta þó atriði, sem ekki er svarað berum orðum frv. eða aths. og má þess vegna vel minnast á. En öll sanngirni mælir að sjálfsögðu með því, að innlánsdeildirnar verði látnar fylgja öðrum peningastofnunum, þegar um þessi ákvæði að ræða, því að hætt er við og augljóst raunar, að samkeppnisaðstaða þeirra um spariféð mundi verða óhæg og jafnvel ómöguleg, ef þessi réttur yrði ekki veittur þeim.

Þá er í sjöunda lagi sagt í 6. gr., að opinberar fjárfestingarlánastofnanir, sem séu stofnaðar með lögum, hafi heimild til að veita verðtryggð lán af eigin fé og endurlána verðtryggt fé. Í þessu sambandi dettur mér í hug, hvort framlög t.d. ríkisins eða tekjuöflun samkv. sérstökum lögum sé í þessu sambandi talin eigið fé sjóðanna, þannig að þeir megi sjálfkrafa framlána það fé með vísitölukjörum, eða hvort hér sé aðeins rætt um það fé, sem sjóðirnir hafa eignazt gegnum starfsemi sína, og þeir megi þá ekki endurlána fé sitt með vísitölukjörum, nema að svo miklu leyti sem það er lagt þeim í hendur með þeim kjörum. Þetta tel ég skipta talsverðu máli og væri æskilegt að fá upplýst.

Þá er sagt í 4. gr. e, að verðtryggðar kröfur og skuldbindingar skuli ætið skráðar á nafn. Það tel ég alveg sjálfsagðan hlut og mikla framför fólgna í þessu ákvæði frá því, sem lögleitt var hér, þegar skuldabréfalán ríkissjóðs var hér til meðferðar, þegar ómögulegt reyndist þrátt fyrir ítrekaða eftirgangsmuni að fá hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar til þess að taka upp nafnskráningu á þeim bréfum, jafnsjálfsagðan hlut eins og þar var um að ræða, ekki sízt í þeirri viðleitni, sem sýnd hefur verið upp á síðkastið til þess að fletta ofan af skattsvíkum og svindli hér á landi. Í aths. um þetta ákvæði segir, að ákvæðið sé sett til þess, að unnt sé að koma við nauðsynlegu eftirliti með verðtryggðum kröfum og tryggja framkvæmd laganna. Þetta er vitanlega alveg hárrétt og á ekkert síður við um það lán, sem ég var áðan aðeins að minnast á, en hér, og kannske á það enn þá frekar við um skuldabréfalán ríkissjóðs, vegna þess að í frv. er þó um að ræða lán eða skuldbindingar, sem skráðar eru af öðrum ástæðum, þar sem yfirleitt er gert ráð fyrir því sem undantekningarlítilli aðalreglu, að verðtryggð lán sé veitt gegn veði í fasteignum, en þau eru vitanlega skráð í veðmálabækur, þótt engin ákvæði kæmu til í þessu frv. eða þessum lögum, svo að sú breyting, sem orðið hefur á viðhorfi til þessara hluta, er vissulega góðra gjalda verð.

Þá er hér lítil fsp. varðandi heimild fyrir lífeyrissjóðina til þess að lána með verðtryggingarákvæðum. Það er fjallað um það atriði í 7. gr. frv. og segir þar, að viðurkenndum lífeyrissjóðum skuli heimilt að ávaxta sjóði sína í verðtryggðum lánum tryggðum með veði í íbúðarhúsum og með sömu kjörum og íbúðarlán Húsnæðismálastofnunar ríkisins við veðdeild Landsbankans eru á hverjum tíma. Í þessu sambandi dettur mér í hug að bera fram þá fsp., hvort með orðunum „sömu kjörum“ og íbúðarlánin sé einnig átt, að óheimilt sé lífeyrissjóðunum að lána verðtryggð lán út á annað en 1. veðrétt. Húsnæðismálastofnunin lánar einungis út á 1. veðrétt, eins og kunnugt er, en lifeyrissjóðir hafa leyfi til þess að lána út á allt að 50% af brunabótamati. Sú regla hefur nýlega verið tekin upp. Áður voru það 30%, nú eru það 50%. Sú rýmkun hefur efalaust verið gerð til þess, að þeir, sem aðild eiga að lífeyrissjóðum, hefðu möguleika á því að taka lífeyrissjóðslán samhliða húsnæðismálastjórnarláni. Ef orðin „með sömu kjörum“ í umræddri gr., 7. gr. þessa frv., þýða það, að lífeyrissjóðirnir megi ekki lána verðtryggðar skuldbindingar öðruvísi en með 1. veðrétti, er þessi heimild, þetta hagræði, sem meðlimir lífeyrissjóðanna hafa haft samkv. gildandi l., niður fallið, því að ég tel ekki nokkurn vafa á því, að forstöðumenn allra lífeyrissjóða taki upp verðtryggingu í útlánum sínum. Lífeyrissjóðirnir lána yfirleitt meðlimum lán til byggingar íbúðarhúsa til langs tíma, og hver einasti forsvarsmaður lífeyrissjóðs telur sig eflaust skyldugan til þess að nota sér þá heimild, sem þarna er fengin, til þess að lána með verðtryggingu, enda hefur sá sparnaður, sem fram fer í lífeyrissjóðunum, verið ofurseldur verðbólgueldinum alveg á sama hátt og almenn sparifjársöfnun einstaklinga, og þess vegna er nauðsynlegt fyrir þá að fá þessa heimild, og hún verður vafalaust notuð, þannig að bann við lánum út á annað en 1. veðrétt þýðir, að loku er skotið fyrir það, að menn geti fengið viðbótarlán úr lífeyrissjóðum, ef þeir hafa notið láns úr húsnæðismálastofnuninni.

Ég skal nú ljúka þessum fáu aths., sem ég hef við þetta frv. að gera nú við 1. umr. Eins og ég sagði í upphafl, tel ég, að mál það, sem frv. fjallar um, verðtrygging sparifjár og annarra fjárskuldbindinga, sé mjög mikillar athygli vert og góðra gjalda vert og það sé hin mesta nauðsyn að finna færar leiðir til að hrinda því réttlætismáli í framkvæmd að tryggja hlut sparifjáreigenda til jafns við aðra þegna þjóðfélagsins, því að hinn frjálsi sparnaður er undirstaða þess, sem hægt er að gera með skynsamlegu móti til uppbyggingar í þjóðfélaginu. En vegna þess, hve málið er mikilvægt og afdrifaríkt, ekki síður til ills heldur en til góðs, ef óheppilega tekst til, hef ég leyft mér nú við 1. umr. að drepa á nokkur atriði, sem ég tel, að frekari athugunar þurfi. Hér er farið inn á nýja braut, og það er eðlilegt, að sumt geti orkað tvímælis, og því hefði að mínum dómi verið réttara, að hæstv. ríkisstj. hefði leitað samráðs við alla flokka hér á hv. Alþ., eins og gert var ráð fyrir í þeirri þáltill. frá 5 þm. Framsfl., sem ég minntist á í upphafi máls míns. Slíkur háttur hefur oft verið við hafður hér á hv. Alþ., bæði núna í seinni tíð og áður, og jafnan, að ég held, gefizt vel, þannig að engin ástæða ætti að vera til þess fyrir hæstv. ríkisstj. að neita sér um að fara þá leið. Ég hygg, að afgreiðsla t.d. vegalagabreytingarinnar á síðasta þingi hafi sýnt það, að stjórnarandstaðan skýtur sér ekki undan því að taka sinn hluta af þeirri vinnu á sig, sem nauðsynleg er til þess að koma á þýðingarmiklum umbreytingum í þjóðfélaginu, en hér er einmitt um eina slíka að ræða, og þess vegna vil ég harma það, að þessi málsmeðferð var ekki viðhöfð, um leið og ég undirstrika, að enda þótt svo hafi ekki verið gert, viljum við þm. Framsfl. taka þátt í afgreiðslu þessa máls og freista þess að leiða það inn á þær heppilegustu brautir, sem um er að tefla í þessu þýðingarmikla máli, því að hér er engan veginn um flokkspólitískt mál að ræða.