14.04.1966
Neðri deild: 69. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í B-deild Alþingistíðinda. (979)
20. mál, verðtrygging fjárskuldbindinga
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það er ekkert undarlegt, þó að þessar umr. nú við 3. umr. verði allýtarlegar. Það eru ekki sérstaklega miklar umr., sem fram hafa farið fram að þessu við umr. um þetta lagafrv. hæstv. ríkisstj. Við 1. umr. talar hæstv. viðskmrh. og forustumenn stjórnarandstöðunnar eða tveir menn frá stjórnarandstöðunni Við 2. umr. töluðu frsm. meiri hl. og minni hl. og tveir menn frá stjórnarandstöðunni. Og það er fyrst núna við 3. umr., sem hæstv. menntmrh. hóf með sérstakri almennri ræðu, að verulega ýtarlegar umr. hafa orðið um þetta mál. þannig að það er ekki neitt undarlegt, þó að við þm. viljum gjarnan fá að heyra sérstaklega frá hæstv. menntmrh. ýmsar upplýsingar í sambandi við þetta mál. Það hefur sem sé orðið gleggra og gleggra, því meira sem menn hafa getað kynnt sér málið, að eitt aðalatriðið í afleiðingum þessa frv., ef það yrði samþ., er að stöðva íbúðabyggingar unga fólksins, og það er alveg nauðsynlegt, að allir þeir þm., sem um þetta greiða atkv., geri sér alveg ljóst, hvaða ábyrgð þeir taka á sig í þessu sambandi. Annaðhvort verður þetta til þess að stöðva alveg íbúðabyggingar hjá unga fólkinu eða þá að það er verið að fleka unga fólkið út í efnahagslegt glapræði í krafti þess, að það geri sér ekki ljóst, hvernig þeir skilmálar eru, sem ríkisvaldið lætur það skrifa undir. Við vitum, að unga fólkið á ekki marga kosti, það er bókstaflega neyðarástand hjá ungu fólki, sem núna er að reyna að fá sér íbúð. Hvert hafa menn að venda? Eru leiguíbúðir til núna? Það var þó venjulega svo á því gamla, fátæka Íslandi fyrir 30—40 árum, að það var hægt að fá leigt. Meira að segja var það svo hér í Reykjavík, að manni stóð til boða að komast inn í leiguíbúðir. Núna aftur á móti stendur slíkt ekki til boða. Hér í Reykjavík t.d. er ástandið þannig, að fjölskyldur verða að flytja burt úr Reykjavík, ef þær ráðast sjálfar í að reyna að byggja yfir sig. Það er ekki mögulegt að fá leiguíbúðir yfirleitt, þannig að það er sama sem að reka menn burt frá þeim störfum, sem menn hafa hér, og þess eru þó nokkur dæmi. Það er því verið að notfæra sér þarna neyð unga fólksins, annaðhvort verði það að skrifa undir þessa okurskilmála, sem í því mundu felast að verða að taka þessi vísitölulán, eða þá að flýja burt.
Við höfum haft, fulltrúar Alþb. hér, alveg opin augun fyrir þessu. Við höfum lagt fram snemma á þinginu frv. um, að ríkisstj. láti byggja leiguíbúðir, og við gerðum það á síðasta þingi líka. Þeim frv. hefur ekki verið sinnt. Það hafa engar ráðstafanir verið gerðar í því efni. Hins vegar knúði verkalýðshreyfingin fram í síðustu samningum nokkuð í sambandi við þetta, sem kemur ekki að gagni í ár. Það verður ekki flutt inn í þær íbúðir í ár, sem var þar samið um í fyrra.
Við skulum þess vegna gera okkur ljóst, að ein höfuðbaráttan í sambandi við þetta frv. er, hvort það eigi að vera stefna meiri hl. Alþ. að gera ungu fólki ókleift að fá þak yfir höfuðið, og það er nauðsynlegt, þegar menn greiða atkvæði um þetta, að menn hafi áttað sig á því til fulls, að það er um það, sem verið er að berjast. Og ég vildi ákaflega gjarnan heyra svo að segja með fullu umboði, sérstaklega frá hálfu Alþfl., hvort hæstv. viðskmrh. er á þeirri skoðun og vill lýsa henni hér yfir nú, að hann geri sér ljósar afleiðingarnar af þessu frv. og viljí taka á sinn flokk ábyrgðina af því að útiloka þannig unga fólkið, sem er fullt áhuga á að reyna að koma sér upp þaki yfir höfuðið, — taka á sig ábyrgðina af því að gera því það ókleift, því að þetta er að gera því það ókleift. Það er að vísu hægt að véla menn út í að taka að sér einhverjar og einhverjar skuldbindingar, sem menn jafnvel hafa ekki hugmynd um, rétt eins og menn eru hraktir í hrammana á okrurunum í Reykjavík. En það er bara í þessu tilfelli ríkisvaldið sjálft, sem fer að haga sér eins og okrari.
Nú hafa komið fram svo að segja nýjar upplýsingar í sambandi við þessi mál, en hins vegar hefur okkur skort að fá þær upplýsingar, sem við höfum beðið um. Það hafa ekki komið fram upplýsingar frá hæstv. viðskmrh. um, hvernig ástatt sé í Finnlandi í sambandi við þessi mál. Við hér ýmsir í stjórnarandstöðunni höfum spurt um reynsluna af þessu þar. Við höfum ekki fengið svör. Það er bent á tvö ríki á jörðinni, sem hafi innleitt þetta kerfi, og við þykjumst vita, að í Finnlandi hafi þetta ekki gengið vel, síður en svo, og sé mikil óánægja með það, en þegar einu sinni er búið að koma þessu kerfi á, þá er ekki svo gott að losna við það. Ég þekki ekki, hvernig þetta hefur gengið í Ísrael. En því getum við ekki fengíð hér yfirlýsingar um það, hvernig þetta hefur verið? Þurfum við endilega að flækja okkur út í sömu vitleysuna, lenda í sama foraðið og fenið og þessi ríki e.t.v. hafa lent í, án þess að geta fengið upplýsingar um það fyrir fram, hver reynslan hefur verið þar?
Hv. 5. þm. Austf. lýsti því hér yfir núna og rakti í sinni ræðu einmitt í sambandi við þá skýrslu, sem er nýbúið að útbýta til okkar frá Seðlabanka Íslands, hvernig einn aðalhöfundurinn að þessu frv., sjálfur aðalbankastjóri Seðlabanka Íslands, er farinn að efast um allar sínar kenningar í þessu sambandi. Það var undirstrikað í ræðu hv. 5, þm. Austf., hvernig sjálfur aðalseðlabankastjórinn væri að byrja að átta sig á því, að þessar ráðstafanir, sem hann hefur haldið að væru svo einhlítar í peningamálum og fjármálum, væru ekki einhlítar hérna á Íslandi, og hann talaði um, hve lokaður mikill hluti íslenzka hagkerfisins er í því sambandi. M.ö.o.: það, sem víð ýmsir höfum verið að segja hérna, að þessir menn, sem koma með sinn skólalærdóm, með kerfi og aðferðir, sem eiga við í stórum þjóðfélögum, og fara að gera þessa tilraunastarfsemi hér á okkur, þeir eru sem sé sjálfir að byrja að átta sig á því, að hér á Íslandi á þetta ekki við, rétt eins og maður skapar ekki sams konar öldur í vatnsglasi eins og eru á úthafinu. Menn verða að gá að, hver munurinn er í þessum efnum.
Eftir að þessar upplýsingar komu fram, hefur hæstv. viðskmrh. ekkert sagt um þetta viðhorf seðlabankastjórans. Ég veit, að hæstv. viðskmrh. hefur haft mjög mikla trú á þeim bankastjóra og má það vafalaust að mörgu leyti, það er margt gott um þann mann. En hitt aftur á móti, að það sé farið út í það að gera tilraunir með atvinnulíf og efnahagslíf Íslendinga til þess að prófa, hvort þessi tilraun kunni að lukkast eða hvort hin tilraunin kunni að lukkast, það er ekki heppilegt, og það er hlutur, sem hæstv. viðskmrh. og hæstv. ríkisstj. á ekki að taka þátt í. Þess vegna held ég, að það sé alveg sérstaklega tími til kominn, að það sé staldrað við og þetta mál rætt miklu betur.
Hv. 5. þm. Austf. kom hér inn á það áðan, hvort menn væru á því, að iðnaðarlánin, sjávarútvegslánin, landbúnaðarlánin, hvort það væru þau, sem ætti að draga úr. Hann minntist í því sambandi á lánin til verzlunarinnar. Hæstv. viðskmrh. gæti kannske gefið okkur dálítið nánari upplýsingar þar. Við vitum, að lánin til verzlunarinnar hafa verið eins mikil á undanförnum árum stundum og öll lán til iðnaðar og sjávarútvegs til samans, að það er verzlunarauðvaldið hérna í Reykjavík, sem alveg sérstaklega hefur hrifsað til sín útlánaaukninguna í bönkunum, og við vitum, að ákaflega mikið af þessum lánum er víxillán, m.ö.o.: það eru lán, sem eru ekki til þriggja ára, heldur til sex mánaða eða svo í senn, þriggja mánaða kannske stundum og annað slíkt. M.ö.o.: lánin til verzlunarinnar, sem hafa verið svona stór hluti af öllum útlánum og sérstaklega útlánaaukningunni, eru lán, sem eiga að sleppa við alla vísitölu. Heildsalarnir hér í Reykjavík og þeir menn, sem geta byggt sér hallirnar inn við Suðurlandsbraut og festa eins og vitleysingar fé Íslendinga í slíku, eiga að sleppa, á sama tíma sem unga fólkið á að verða að borga húsnæðislánin sín með vísitölu og sjávarútvegurinn á að fara að blæða líka með vísitölu. Er það svona einræði verzlunarauðvaldsins yfir ríkisstjórnarflokkunum, að þeir eigi að njóta þarna alveg sérstakra hlunninda kaupsýslumennirnir, þegar atvinnurekendur og almenningur eiga hins vegar að verða fyrir barðinu á þessari tilraunastarfsemi með vísitölukerfið?
Það er ekki nema eðlilegt, að við viljum fá þetta upplýst og við viljum fá nokkru um það að ráða hér á Alþingi, hvernig þetta verði ákveðið. Okkur þykir það nokkuð mikið vald að gefa í hendur seðlabankastjórum, að þeir eigi að ákveða svo að segja alla hluti í sambandi við þetta, hvaða aðilum almennt skuli skylt að taka vísitölulán og hverjum ekki, og síðan skuli bankastjórar viðskiptabankanna raunverulega verða meir og meir að fara í einhvers konar manngreinarálit um, hvaða einstaklingar af þeim, sem koma til þeirra, fá víxil og hverjir verða hins vegar að skuldbinda sig til þriggja ára lána með vísitölubindingu og annað slíkt. Það er óskaplegt gerræði, sem hægt er að framkvæma í sambandi við svona hluti, og þó að ég ætli ekki að drótta því að neinum að ætla að gera slíkt, þá er svo erfitt að eiga að framkvæma það svona, án þess að það verði óréttlæti úr því, að það á ekki að leggja þetta á herðar manna. Það á að ákveða með lögum almennt, hvaða aðilar það eru, sem þessa hluti eiga að borga svona.
Það er greinilegt, að ef þetta yrði samþ. og ef þetta yrði framkvæmt, þá kemur verðbólguhjólið til með að snúast hraðar en áður. Hv. 5. þm. Austf. upplýsti það hér áðan, að nú bara eftir 1 1/2 ár hafa menn orðið að borga 12% álag á lánin, sem þeir hafa tekið hjá húsnæðismálastjórn. Er þetta stefnan, sem hæstv. ríkisstj. er að berjast fyrir í þessum efnum? Er þetta hennar framlag til undirbúnings á lausn á kaupdeilunum í vor? Það er gefið mál, að þegar ungt fólk horfir framan í svona kröfur, ef verkamenn horfa framan í svona kröfur, að heimtað sé af þeim annað eins álag, og sjá fram á, að þannig verði það áfram, þá hljóta þeir að gera því meiri kröfur til atvinnurekendanna, og þegar þar að auki er svo verið að íþyngja þessum atvinnurekendum með vísitölulánum, þá er svo sem alveg gefið, hvar þær kröfur allar saman enda. Og í þessu frv. er gengið út frá, að nú eigi ekki aðeins húsnæðismálastjórnarlánin þegar að koma inn undir þetta, heldur eigi líka lífeyrissjóðslánin að koma þarna inn undir.
Ég gladdist yfir þeirri yfirlýsingu hæstv. viðskmrh., sem hann gaf hér við umr., að svo fremi sem þessi löggjöf ekki yrði samþ., yrði að fella burt löggjöfina um vísitölu viðvíkjandi húsnæðismálalánunum. Og ég álít, að með því hafi hann einmitt gefið Alþingi það fyrirheit, sem Alþ. eigi að fylgja eftir á þann hátt að láta þetta frv. ekki ganga fram.
Hæstv. viðskmrh. hefur haldið því fram, að það væri vegna áhugans á því að berjast gegn verðbólgunni, að þetta frv. væri flutt. Nú höfum við nokkrir þm. Alþb. þegar flutt frv. um verðlagsmál, sem er á dagskránni í dag, þar sem við beinlínis bjóðum ríkisstj. raunverulegt samstarf um að gera veigamestu ráðstöfunina, sem hægt er að gera til þess að stöðva verðbólguna. Okkur er alveg ljóst, að það er ekkert sérstaklega vinsælt mál, sem við erum þar með, verðlagsákvarðanir á vörum. En við álitum það ábyrgðarhlut að láta það ganga áfram eins og hefur verið gert með verðbólguna, og við viljum af okkar hálfu sýna, að við erum reiðubúnir til að taka að okkar leyti ábyrgð á því að reyna að stöðva hana, og ég álít, að áður en við göngum lengra í að ræða þetta mál um verðskuldbindingarnar, þá ættum við að fá að heyra, hvernig hæstv. ríkisstj. tekur undir það mál, hvort hún er reiðubúin til þess að hafa samstarf við alþm. úr stjórnarandstöðunni um það að reyna að stöðva verðbólguna, stemma á að ósi svo að segja, að hindra þessar sjálfkrafa verðlagshækkanir, sem sífellt dynja hér yfir. Ég held þess vegna, að áður en þetta mál kemur til úrslita hér í d., þá eigum við að fá tækifæri til þess að heyra, hvaða afstöðu ríkisstj. hefur í þessu sambandi.
Ég veit, að það hefur vafalaust ekki farið fram hjá hæstv. viðskmrh., hvað hv. 5. þm. Reykv. og hv. 3. þm. Vestf. sögðu hér áðan í sambandi við verkalýðshreyfinguna. Hv. 5. þm. Reykv. sagði hér áðan, að verkalýðshreyfingin hefði samið stórkostlega af sér, þegar hún gerði samningana um vísitöluna í húsnæðislánin, og hv. 3. þm. Vestf. var ofurlítið að reyna að bera f bætifláka fyrir verkalýðshreyfinguna og sýna um leið fram á, að bændasamtökin hefðu verið það vitrari, að þau hefðu neitað þeim kostum að taka á móti lánum með lækkuðum vöxtum, ef það væri bundið því, að það yrði að vera vísitala á því. Gerir hæstv. viðskmrh. sér ljóst, hvað þetta þýðir? Verkalýðshreyfingin gerir samning við ríkisstj. 1964, og hann veit ósköp vel, að hún gerir þann samning í trausti þess, að verðbólgan verði stöðvuð og stjórn Alþýðusambands Íslands var áður búin að samþ. yfirlýsingu, þar sem ríkisstj. var boðið samstarf um að stöðva verðbólguna, og verkalýðshreyfingin gengur svona langt í sínum samningum og sýnir sig að treysta ríkisstj., leggja fram að sínum hluta mjög mikið traust til ríkisstj. í þessu sambandi. Og hvað er það svo, sem þarna gerist? Ríkisstj. bregzt þessu trausti. Hverjar hljóta afleiðingarnar af slíku að verða? Hv. 5. þm. Reykv. sagði hér áðan, að það væri skylda verkalýðshreyfingarinnar að fá þessu breytt í samningunum í vor. M.ö.o.: það eru hér í þinginu þegar uppi raddir, sem ögra svo að segja verkalýðshreyfingunni til þess að herða nú á í samningunum í vor og setja enn þá meira af ákvæðum inn í kaupgjaldssamningana um lausn löggjafarmála. Er það þetta, sem hæstv. ríkisstj. óskar eftir? Á að ganga fram hjá öllum skynsamlegum till., sem hér eru lagðar fram á Alþ., til þess að einbeita á einn punkt allri viðureign við þjóðfélagsvandamálin og það á þann punkt, þegar verkalýðurinn á að semja um kaupgjald, — á þá að stöðva hér hvað eftir annað allt atvinnulíf til þess að semja um löggjöf? Er það stefnan, sem hæstv. ríkisstj. er inni á, — stefna, sem er raunverulega bönnuð í vinnulöggjöfinni? En látum það nú vera, hún getur verið nógu góð fyrir það, þegar eitthvað hefst fram með henni. En ég vil vekja athygli hæstv. viðskmrh. á, hve óviðfelldið er að taka ekkert tillit til þess, sem kemur fram á þinginu, vilja engum þingræðislegum aðferðum beita við meðferð mála hér.
Við höfum lagt fram frv. hér um breytingu á lögum um húsnæðismálastofnunina, þar sem m.a. varaforseti Alþýðusambandsins og formaður Dagsbrúnar er einn af flm., og við erum orðnir því vanir um þessi mál, sem við flytjum hérna, að það er ekki rætt um þau við 1. umr., þau fara í nefnd, svæfð, sjáum þau ekki meir. Það er ekkert þingræði, sem er að verða með þessu móti. Ef hæstv. viðskmrh. og hæstv. ríkisstj. ætlast til þess, að þessu landi verði stjórnað með verkföllum, þá eigum við einskis annars kost en að reyna að sjá um að gera það. Við megum þá ekki láta okkar eftir liggja. En það er hæstv. ríkisstj., sem með því að svæfa málin á Alþ. segir: Farið út fyrir þingveggina með þetta, sama ríkisstj. sem sagði, þegar hún tók við völdum: Héðan af verða málin útkljáð innan þingveggjanna. — Ég vil benda hæstv. ríkisstj. á og hæstv. viðskmrh., sem er sá eini af hæstv. ráðh., sem sýnir þinginu þann sóma að sitja hér yfirleitt og hlýða á mál manna, — vafalaust vilja hinir ráðherrarnir láta ábyrgðina skella á honum af þessu, — en ég vil alveg sérstaklega og ekki sízt vegna þess, að hann sýnir þó þinginu þann sóma, leggja áherzlu á það við hann: Svona á ekki að afgreiða mál á Alþingi Íslendinga. Það á að gefa okkur tækifæri til þess að ræða þessi mál hér, fá upplýsingarnar um þessi mál hér, ræða okkar till. um lausnina í sambandi við þessi mál og láta ekki allt saman eiga að loga síðan í maí og júní.
Það geta aðrir betur en ég svarað fyrir hönd verkalýðshreyfingarinnar því, sem hér hefur verið á hana deilt og til hennar beint, en ég mundi að lokum vilja leggja fram rökst, dagskrá um afgreiðslu þessa máls, að þetta mál væri afgreitt með svo hljóðandi rökstuddri dagskrá:
„Með tilliti til þeirra þungu kvaða, sem lagðar yrðu á atvinnulífið, ef frv. þetta yrði samþ., svo og sérstaklega vegna þess, hve erfitt almenningi og einkum ungu fólki yrði gert að eignast íbúðir, ef stefna þessa frv. næði fram að ganga, ákveður deildin að taka fyrir næsta mál á dagskrá.“