14.04.1966
Neðri deild: 69. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1120 í B-deild Alþingistíðinda. (980)

20. mál, verðtrygging fjárskuldbindinga

Menntmrh (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Það er sjálfsagt að verða við ósk hv. þm., sem talað hafa, um það að láta í ljós skoðun á einstökum atriðum, sem þeir hafa óskað eftir skoðunum mínum eða ríkisstj. á. En ég skal reyna að gera það í sem allra fæstum orðum, vegna þess að þingtíma í dag er að ljúka, og reyna að gera það með þeim hætti, að ekki gefi tilefni til frekari umr., a.m.k. ekki frekari deilna.

Hv. 5. þm. Austf. ræddi um, að það virtist vera megintilgangur þessa frv. að draga úr fjárfestingarlánum, og spurði þess vegna, úr hvaða lánum eða úr lánum til hvaða atvinnugreina væri hægt að draga. Ég vil í tilefni af þessu taka skýrt fram, að það er ekki tilgangur þessa frv. að draga úr lánum til fjárfestingar. Það er ekki megintilgangur þess. Megintilgangur þess er, eins og raunar komið hefur skýrt fram áður, annars vegar að efla sparifjársöfnun og þar með stuðla að auknum raunverulegum lánum, raunverulegu umráðafé til atvinnuveganna, á hinn bóginn er tilgangurinn sá að sinna miklu félagslegu réttlætismáli, sem er að tryggja sparifjáreigendur gagnvart tjóni af verðbólguþróun, og hins vegar að koma í veg fyrir mikið félagslegt ranglæti, sem er gróðamyndun vegna verðbólgunnar hjá þeim, sem fá lánsfé þjóðarinnar til umráða. Ef svo verður, að sá tilgangur frv. að draga úr þjóðfélagslega ranglátri gróðamyndun, myndun verðbólgugróðans, verður til þess, að menn sækjast minna eftir lánsfé en ella, er það út af fyrir sig eðlilegt og gott. En sú fjárfesting, sem fyrir þær sakir minnkar, er einvörðungu fjárfesting, þar sem lánsfénu er þjóðfélagslega séð illa eða óhagkvæmt varið. Ég hygg því, að ómögulegt sé að segja, að áhrif þessa frv. mundu verða minnkuð fjárfesting, nema því aðeins að hægt sé að leiða rök að því, að sú fjárfesting væri þjóðhagslega séð óhagkvæm, því að hún ætti rót sína að rekja til löngunar, til ásóknar í óeðlilegan verðbólgugróða.

Hv. 5. þm. Austf. sagði einnig og gagnrýndi, að ein afleiðing þessa frv. yrði sú, að rekstrarlán yrðu einnig verðtryggð, en það væri óeðlilegt. Ég er honum sammála um, að það er óeðlilegt, að raunveruleg rekstrarlán séu verðtryggð, því að þau eru í eðli sínu til skamms tíma og eiga að vera til skamms tíma. Þau lán, sem bankakerfið hefur veitt og veitir í dag sem rekstrarlán, eru hins vegar að hluta raunveruleg stofnlán, raunveruleg fjárfestingarlán, og það er að sjálfsögðu ekki meining Seðlabankans eða ríkisstj. og mun ekki verða framkvæmt þannig, að nein lán, sem eru raunveruleg rekstrarlán, verði verðtryggð, heldur eingöngu þau lán, sem eru raunveruleg stofnlán, sem eru raunveruleg fjárfestingarlán, þótt þau hingað til hafi verið veitt í formi rekstrarlána.

Hv. ræðumenn Framsfl., 5. þm. Reykv. og 3. þm. Vestf., spurðu um það, hvernig hliðstæð ákvæði hefðu gefizt í Finnlandi og Ísrael. Það er að sjálfsögðu ekki tími til þess við þetta tækifæri að gera það að neinu ýtarlegu umræðuefni. Þó get ég sagt almennt séð, að ég tel, að það sé ríkjandi skoðun, þó auðvitað ekki ágreiningslaus um jafnflókið atriði og hér er um að ræða, en að það sé ríkjandi skoðun í báðum þessum löndum, að verðtrygging þar hafi gefizt vel. ekki aðeins orðið til að bæta úr því félagslega misrétti, sem sparifjáreigendur hefðu ella orðið fyrir vegna mikillar verðbólguþróunar í löndunum báðum, ekki aðeins til þess að koma í veg fyrir það félagslega ranglæti, sem verðbólgugróði er, heldur hafi þessar ráðstafanir einnig stuðlað að því að draga úr verðbólguvextinum. Hér er að vísu um að ræða staðhæfingu, sem ekki verður sönnuð né heldur afsönnuð, því að ómögulegt er að vita, hver verðbólguþróunin hefði orðið í þessum löndum, ef ekki hefði verið um þessar ráðstafanir að ræða. En ég endurtek, að það mun vera ríkjandi skoðun, að í báðum þessum efnum hafi þessar ráðstafanir reynzt vel, orðið til góðs, þótt að sjálfsögðu hafi þær ekki þar né heldur geti þær orðið hér einhlítar til þess að vinna bug á verðbólgunni. Það sagði ég i framsöguræðu minni, það sagði ég i ræðu minni hér við þessa umr., að auðvitað eru slíkar ráðstafanir ekki nægilegar einar til þess að vinna bug á verðbólgunni, en geta hins vegar orðið mjög gagnlegar, ef þær eru liður í samfelldri áætlun, í samfelldum aðgerðum til þess að stemma stigu við verðbólguþróuninni.

Þá vildu hv. ræðumenn Framsfl. fá að vita afstöðu mína til brtt. þeirra á þskj. 447, en aðalatriði hennar er það, að meðan ekki hafi verið komið á verðtryggingu innlánsfjár í bönkum og öðrum lánsstofnunum, skuli lögin ekki taka til tiltekinna sviða, ekki ná til lífeyrissjóða einstakra stétta nema að fengnu samþykki þeirra og ekki taka til fjárfestingarsjóðanna, og þá skuli falla niður vísitöluhækkanir á lánum Húsnæðismálastofnunar ríkisins.

Um þetta meginefni þessarar brtt. get ég sagt það, að það er að sjálfsögðu meiningin að láta verðtryggingu innlánsfjár í bönkum og sparisjóðum koma til framkvæmda svo fljótt sem fært þykir, eftir að lög þessi hafa náð samþykki, og það hefur aldrei verið meiningin að láta verðtryggingarákvæði um lífeyrissjóði eða fjárfestingasjóði koma til framkvæmda á undan verðtryggingu innlánsfjár í bönkum og öðrum lánastofnunum. Að þessu leyti tel ég till. í raun og veru alveg óþarfar. Það hefur aldrei verið tilætlunin að láta ákvæðin á útlánum koma til framkvæmda á undan ákvæðunum um spariféð, um innlánin, heldur hlýtur þetta hvort tveggja að koma til framkvæmda samtímis. Einmitt að þessu vék ég einnig í ræðu minni áður við þessa 3. umr., þar sem ég benti á, að af hálfu stjórnarandstæðinga væri fullur skilningur og raunverulega fullt fylgi við verðtryggingu sparifjárins, en hins vegar andstaða við verðtryggingu útlánanna. En ég undirstrikaði það, að þetta heyrði saman, það væri ekki hægt að ná því markmiði að tryggja sparifjáreigendurna, nema því aðeins að einhver greiddi þær bætur, sem sparifjáreigendurnir eiga að fá, og það er ekki réttlátt, að neinn greiði þær annar en sá, sem fær fé sparifjáreigandans til umráða.

Að því er snertir ræðu hv. 3. þm. Reykv. vildi ég að síðustu segja þetta: Hann lagði áherzlu á, að þetta frv. hefði það í för með sér, að íbúðarbyggingar ungs fólks mundu stöðvast. Ég hef á þessu gerólíka skoðun þeirri, sem hv. þm. hefur. Að því er snertir íbúðabyggingar almennt er höfuðtilgangur frv. að tryggja verðgildi húsnæðislánasjóðsins. Ef þróunin héldi áfram svo sem hér hefur undanfarið átt sér stað, verðbólguþróunin yrði jafnör og átt hefur sér stað undanfarin ár, þá yrði ein af mörgum mjög alvarlegum afleiðingum þess, að það stórátak, sem hefur verið gert, að koma upp húsnæðismálasjóði, sem gæti veitt m.a. ungu fólki húsnæðislán, það yrði gert að litlu á skömmum tíma, vegna þess að verðbólgan brenndi upp húsnæðismálasjóðinn og þá tryggingu, þá félagslegu tryggingu, sem í tilvist hans felst, m. a. fyrir ungt fólk í landinu. Það er einn megintilgangur frv. að verðtryggja húsnæðismálasjóðinn, að tryggja það, að hann geti framvegis, eins og hann hefur gert hingað til, orðið m. a. ungu fólki til traustrar aðstoðar í viðleitni þess til þess að eignast eigið húsnæði. Og ég tel ekki, að ungu fólki né neinum húsbyggjendum séu lagðar óeðlilegar byrðar á herðar, þó að þeim sé gert að greiða vísitölutryggingu á þau lán, sem þeir fá, af því að því aðeins er um slíka vísitölutryggingu að ræða, að kaupgjald fólksins, sem íbúðirnar á, hafi hækkað, og það fer þó aldrei nema nokkur hluti af kaupgjaldinu til þess að greiða afborganir og vexti af húsnæðislánunum, og það er tryggt, að vísitölubæturnar og lánin verða aldrei meiri en kauphækkunin hjá því fólki, sem lánið hefur fengið og húsnæðið á. Þess vegna fer því víðs fjarri, að það sé efnahagslegt glapræði fyrir ungt fólk að taka verðtryggð húsnæðislán til þess að koma sér upp íbúð. Hitt mætti segja, að væri þjóðfélagslegt glapræði f efnahagsmálum að horfa upp á það aðgerðarlaus, að jafnmikilvægir sjóðir, eins og t.d. húsnæðismálasjóðurinn, yrðu smám saman að engu eða litlu í verðbólgueldinum.

Þá gerði hv. 3, þm. Reykv. nokkuð mikið úr þeim ummælum hv. 5. þm. Reykv., að verkalýðshreyfingin hefði samið hrapallega af sér í samningunum 1964, þegar hún féllst á, að húsnæðislánin yrðu verðtryggð. Með tilvísun til þess, sem ég sagði núna um nauðsyn þess að verðtryggja húsnæðismálasjóðinn, án þess þó að íþyngja með ósanngjörnum hætti nokkrum húsbyggjanda, þá tel ég, að því fari víðs fjarri, að verkalýðshreyfingin hafi samið af sér, heldur þvert á móti, að hún hafi þarna stuðlað að mjög skynsamlegri löggjafarráðstöfun til verndar húsnæðismálasjóðnum og til verndar öllum húsbyggjendum, meðan stuðnings húsnæðismálasjóðsins nýtur við.