15.04.1966
Neðri deild: 70. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (990)
20. mál, verðtrygging fjárskuldbindinga
Björn Pálsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Í fyrsta lagi furðar mig á því, að þetta frv. skuli ekki vera betur undirbúið. Það er ekki rætt við viðskiptabankana, og þegar þeim er sent frv. til umsagnar, leggja þeir frekar á móti samþykkt þess og telja ýmis tormerki á því. Hér er um stórmál að ræða og mjög vandasamt í framkvæmd, og það hefði ekki mátt minna vera en aðalbankar landsins hefðu rætt þetta sín í milli og gert sér grein fyrir, á hvern hátt þeir vildu framkvæma það og hvort það væri yfirleitt framkvæmanlegt. Þetta virðist ekki hafa verið gert.
Auk þess virðist mér hér ekki vera um annað að ræða en afhenda Seðlabankanum eða ríkisstj., því að það er stutt þar á milli húsa, svo að segja einræðisvald í þessum málum. Þetta eru heimildir, sem þessir aðilar geta framkvæmt eftir sínum hugdettum. Öll ákvæði í frv. um verðtryggingar eru óákveðin, flókin og virðast eiga að framkvæmast eftir því, sem þessum aðilum þóknast, þ.e. stjórn Seðlabankans og sennilega þá í samráði við ríkisstj.
Ég er sammála hv. 3. landsk. þm. um það, að ég held, að þarna getum við lent í hálfgerðri frumskógaflækju. Það er ekki hægt að neita því, að lækkandi kaupmáttur krónunnar örvar til framkvæmda. Menn flýta sér að festa fé sitt í einhverju, sem missir ekki verðgildi, og þeir geta á þann hátt hagnazt á vaxandi verðbólgu eða minnkandi verðmæti krónunnar. Hinu ber ekki að neita, að sparifjáreigendur hafa verið illa leiknir með því að geta ekki verðtryggt fé sitt og ýmsir sjóðir í landinu. Þetta er þess vegna mjög vandasamt mál. Ef þetta yrði gert, virðist mér, að það yrði að rannsaka málið rækilega, og það væri sannarlega ekki úr vegi að kynna sér framkvæmd þessara mála í þeim löndum, sem þetta hafa reynt, og við þurfum ekki að efast um það, að ef það væri gert, væri hægt að læra ýmislegt af reynslu þeirra. Þetta hefði átt að gera, áður en frv. var hespað í gegn.
Ég held, að ef í þetta verður farið, verði að taka þetta á breiðum grundvelli, þannig að það gangi jafnt yfir alla aðila, en ekki aðeins eftir því sem seðlabankastjórunum dettur í hug að framkvæma það. — Viðskmrh. lýsti yfir raunar, að þetta væri óframkvæmanlegt nema í samráði við viðskiptabankana. En því í ósköpunum er ekki talað við þá, áður en frv. er lagt fram og hespað í gegnum þingið? Ég held, að það verði að gera þetta á breiðum grundvelli, t.d. að öll lán til lengri tíma en 6 mánaða yrðu verðtryggð, og þá yrði einnig að verðtryggja sparifé, sem yrði lagt inn í bækur — við skulum segja lengur en til 6 mánaða. En þetta þarf allt að rannsaka, hvort það er framkvæmanlegt. Ef þetta er ekki gert, ef horfið væri t.d. að því að lána út á vísitölutryggingu, öll rekstrarlán einnig, yrði það ákaflega erfitt og flókið í framkvæmd og skapaði mikla aukavinnu. Og það yrði þá einnig að taka allt sparifé, sem lagt er inn, hvort sem það er til skemmri eða lengri tíma. Þetta yrðu bankarnir að gera sér ljóst í byrjun og vera búnir að rannsaka þetta mál, gera sér ljóst, hvaða leið væri auðveldast að fara í þessu efni, ef á annað borð er lagt í þetta. En það getum við gert okkur alveg ljóst, að verðtrygging sparifjár dregur stórkostlega úr framkvæmdum, en jafnframt eykur hún áhuga á því að safna peningum. Það eru mestar líkur til, að sparifé mundi aukast í landinu, en framkvæmdir mundu minnka. Og þá getur verið, að mætti létta eitthvað af þeim sköttum, sem nú eru settir á ýmsa aðila í þjóðfélaginu, til þess að skylda þá til þess að spara fé, til að geta látið lánastofnunum í té eitthvert lánsfé. Það er nú gert með þvingunarráðstöfunum eða löggjafarvaldi. Mætti vera, að hægt væri að létta því af, ef ríkisstj. hefði á annað borð áhuga á því. Ég er ekki að fordæma þessa hugmynd, það er fjarri því. En ég álit, að það þurfi að undirbúa þetta mál betur og kynna sér betur reynslu þeirra þjóða, sem þetta hafa reynt.
Hv. 5. þm. Austf. gat um það og ræddi ýtarlega um það, að þeir, sem byggðu hús, gætu ekki grætt á verðbólgu. Ég er ekki að öllu leyti sammála þessu. Bóndi, sem tók lán fyrir 10—20 árum, byggði sér íbúðarhús og hann ræktaði land. Hann getur borgað með verðminni krónum án þess að selja sína jörð. Hann hefur því grætt á því að gera framkvæmdir og greiða þær með verðminni krónum. Launþegi í bæ byggir sér íbúðarhús, hefur byggt það við skulum segja fyrir 5—6 árum. Við skulum segja, að hann hafi byggt það 1961, og þótt gengið sé skráð eins og 1961, þá er verðmætið ekki það sama. Ef hann er að borga með krónum, sem hann vinnur sér nú fyrir, nú eru laun hærri, verðmæti krónunnar minna, og ef hann er að borga skuldina af húsinu með því, sem hann vinnur sér inn nú, græðir hann óbeint á verðþenslunni án þess að selja húsið. Þannig hafa margir bændur grætt á því að hafa gert framkvæmdirnar fyrir nokkrum árum. Og þeir gera sér vonir um, að þeir sem eru að gera framkvæmdir í dag, muni græða á því að gera þær nú, í staðinn fyrir að draga það, því að verðmæti krónunnar muni minnka. Þannig er hægt að hagnast, þótt það sé ekki gert með braski. Það er hægt að hagnast á því að gera framkvæmdina, — við skulum segja byggja íbúðarhús, þótt húsið sé ekki selt. En við getum sagt, að það sé ekki í stórum stíl, en það getur þó munað nokkru. En þetta er mjög vandasamt mál og athyglisvert og ekki vafi á því, að verðbinding sparifjár, sé hún framkvæmd skynsamlega, dregur úr þessari svo að segja takmarkalitlu fjárfestingu, sem nú er, því að það virðist eins og allir, sem eiga eitthvert fjármagn, keppist við að breyta því í einhver verðmæti.
Það eru ekki ríku mennirnir, sem eiga féð í bönkunum, það eru þeir, sem eru tiltölulega litlir auðmenn, sem eiga ekki það mikið fjármagn, að þeir geti lagt það í neinar stærri framkvæmdir, sem þeir geti hagnazt á. Það eru þeir, sem eiga aðallega spariféð. Þetta viðurkenna og vita bankamennirnir. Ríku mennirnir, sem eiga milljónir, geyma peningana sína ekki til lengdar í bönkum. Þess vegna er þetta athyglisvert mál og þarf vandlegan undirbúning. En eins og þetta frv. er nú og með jafnlitlum undirbúningi og með jafnlitlu samráði sem haft hefur verið við viðskiptabankana og aðra aðila í þjóðfélaginu, — í raun og veru þyrfti að ræða þetta mál á víðtækum grundvelli við atvinnurekendur og launþega, áður en ráðizt er f framkvæmdir, — þá get ég ekki greitt því mitt atkv.