10.10.1966
Sameinað þing: 0. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Forseti Íslands setur þingið

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):

Hæstvirt ríkisstjórn. Háttvirtir alþingismenn. Hinn 21. sept. 1966 var gefið út svo hljóðandi bréf:

„Handhafar valds forseta Íslands samkv. 8. gr. stjórnarskrárinnar: forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti hæstaréttar, gjöra kunnugt:

Vér höfum ákveðið samkv. till. forsætisráðherra, að reglulegt Alþingi 1966 skuli koma saman til fundar mánudaginn 10. okt. 1966.

Um leið og vér birtum þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi settað lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, er hefst kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 21. sept. 1966.

Bjarni Benediktsson.

Birgir Finnsson.

Gizur Bergsteinsson.

Bjarni Benediktsson.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um, að reglulegt Alþingi 1966 skuli koma saman til funda mánudaginn 10. okt. 1966.“

Samkv. bréfi því, sem ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett.

Ég árna Alþingi allra heilla í störfum, að þau megi verða landi og þjóð til trausts og halds, gæfu og gengis.

Að svo mæltu bið ég alþingismenn að minnast ættjarðarinnar með því að rísa úr sætum. [Þingheimur stóð upp, og forsrh., Bjarni

Benediktsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna þingfundi, þar til kosning forseta sameinaðs þings hefur farið fram, og bið ég aldursforseta, Karl Kristjánsson, 1. þm. Norðurl. e., að ganga til forsetastóls.

Aldursforseti gekk til forsetastóls og tók við fundarstjórn.