17.04.1967
Neðri deild: 72. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1196 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)
173. mál, Skipaútgerð ríkisins
Frsm. minni hl. (Sigurvin Einarsson) :
Herra forseti. Efni þessa frv. er ósköp einfalt. Það er að setja stjórn fyrir Skipaútgerð ríkisins. Önnur ákvæði í þessu frv. eru eingöngu þau að staðfesta með l. það verksvið þessa fyrirtækis, sem verið hefur um marga áratugi, og breytir það engu. En hitt er breyting. Nú skal setja stjórn fyrir fyrirtækið. Á s.l. ári setti hæstv. ríkisstj. stjórn fyrir þetta fyrirtæki, án þess að nokkur l. mæltu svo fyrir. Það er raunar óviðkomandi þessu frv., hvað ríkisstj. ræður af starfsmönnum til eins eða annars til bráðabirgða og kemur í raun og veru ekkert því máli við, hvort nú á að fara að lögskipa stjórn fyrir Skipaútgerð ríkisins. En nú á að setja 3 manna stjórn, þ. e. bæta við þremur nýjum embættismönnum í þetta fyrirtæki. En það á að gera meira, það á að tryggja það um leið, að ríkisstj. ráði öllum þessum mönnum. Hún á að skipa þá. Og meira en það, hún á að skipa forstjórann líka. Stjórnin á ekki að ráða forstjóra, eins og þykir viðeigandi, þar sem stjórnir á annað borð eru fyrir fyrirtæki. Nei, nei. Það á hún ekki að gera. Ráðh. á líka að skipa hann. Já, hæstv. ríkisstj. hefur þarna tögl og hagldir og á að hafa það, þrír nýir embættismenn, allir valdir af ráðh., og forstjóri líka. Það er nokkurn veginn séð um það, að Alþ. komi ekki nálægt þessum málum. Það hefur þótt viðeigandi hingað til, að Alþ. kysi stjórn í fyrirtæki, ef á annað borð á að hafa stjórn fyrir þeim. Nei, hér má Alþ. ekki koma til sögunnar. Það er vandlega um það búið í þessu frv. Ég veit ekki til, að þetta fyrirkomulag eigi sér stað hjá nokkru einasta fyrirtæki ríkisins. Ég hef ekki heyrt þess getið. Og mér þætti vænt um, að það kæmi fram í þessum umr., hvort nokkurt fordæmi er fyrir þessu, að ríkisstj. skipi alla stjórnarnefndarmenn hjá fyrirtæki og forstjórann í ofanálag. Það eru til mörg fyrirtæki, sem hafa enga stjórn, enga aðra en forstjórann, sem heyrir undir ráðh., og þannig var það með Skipaútgerðina, og þannig er það enn með Skipaútgerðina, því að það eru ekki nein lagafyrirmæli um þá stjórn, sem hefur verið látin starfa nú í 1 ár eða því sem næst.
En fyrst hæstv. ríkisstj. þykir nú þörf á að knýja slíkt frv. fram á síðustu klukkutímum þingsins, verða a.m.k. að koma einhver frambærileg rök fyrir því, að þörfin sé mikil á þessu. Hv. 1. þm. Austf. gerði þetta mál að umtalsefni við 1. umr. og lét orð falla á þá leið, að þjónusta þessa fyrirtækis við landsmenn hefði dregizt saman eða minnkað, en hæstv. sjútvmrh. svaraði honum fullum hálsi og sagði, að hann hefði, eins og satt var, lýst því yfir á síðasta þingi, að þrátt fyrir það að til stæði að selja sum skip útgerðarinnar, yrði þjónustan ekki minnkuð. Hins vegar var hv. 1. þm. Austf. þeirrar skoðunar, að þjónustan hefði nú minnkað við landsmenn af hálfu þessa fyrirtækis. Ráðh. taldi þetta algerlega rangt, og hv. frsm. meiri hl. samgmn. hefur nú enn ítrekað það, að þetta séu algerlega rangar ásakanir, að þjónusta þessa fyrirtækis hafi minnkað eða dregizt saman. Ég hafði hugsað mér, um það leyti, sem þetta mál kom til samgmn., að leita mér upplýsinga um viðkomur skipa útgerðarinnar á hinar einstöku hafnir í landinu, annars vegar núna t.d. á þessum vetri, hins vegar einhvern tíma áður, en þetta fórst nú fyrir hjá mér, af því að annríkið var svo mikið, ekki sízt hjá mér í skólakostnaðarmálinu, og ég sé ekki eftir því annríki, því að það vannst þó nokkur árangur í því máli á síðustu stundu, svo að ég tel, að það hafi verið unnið þarft verk að athuga það mál rækilega.
Ég hef hins vegar litið á opinber gögn, annars vegar um smálestátölu þeirra skipa, sem Skipaútgerð ríkisins hafði, áður en farið var að selja þaðan skip, og hins vegar um smálestatölu þessara skipa nú. Ég held, að ég muni það rétt, að hæstv. ráðh. minntist eitthvað á það, að þó að skipin væru færri, væri það engin sönnun fyrir því, að það væri dregið úr þjónustunni, því að það færi eftir smálestatölunni. Ég held, að þessi röksemdafærsla sé heldur en ekki hæpin. Eða ætli það skipti ákaflega miklu máli fyrir einhverra höfn, einhvern viðkomustað úti á landi, hvort skipið, sem kemur þangað, er t.d. 500 tonna eða 1000 tonna? Ætli það sé nóg fyrir slíkan stað að fá helmingi færri viðkomur skipsins, ef það er 1000 tonna en ef það væri 500 tonna? Eftir þessu að dæma ætti útgerðin að komast af með eitt skip, bara ef það væri nógu mörg tonn að stærð. Ég er hræddur um, að tonnatalan sé eitthvað vafasamur mælikvarði að þessu leyti.
Áður en farið var að selja skip útgerðarinnar, var brúttó smálestatala þeirra þessi: Hekla 1456 tonn, Esja 1347 tonn, Herðubreið 366 tonn, Skjaldbreið 366 tonn, Herjólfur 516 tonn og Þyrill 809 tonn. Samt. var smálestatala skipanna hjá útgerðinni 4860 tonn, áður en farið var að selja nein skipin. Síðan er búið að selja þrjú, Heklu, Skjaldbreið og Þyril, en um leið, eða í fyrra, er fengið eitt leiguskip frá Færeyjum, mig minnir að það væri ekki leigt nema til takmarkaðs tíma, og mér þykir líklegt, að sá leigutími sé brátt á enda. Þá verður smálestatala þessara skipa núna, sem Skipaútgerðin á, Esja 1347 tonn, Herðubreið 366 tonn, Herjólfur 516 tonn og Blikur, þ. e. leiguskipið, 499 tonn, eða samt. er þá smálestafjöldi skipanna 2728 tonn. En við þetta er það að athuga, að færeyska skipið Blikur hefur í raun og veru tvenns konar smálestatölu, eftir því hvort hann er skráður með lokuðum lestum eða opnum lestum, eins og það er kallað, en það er tækniútbúnaður, sem ég get ekki útskýrt fyrir hv. þm. Nú er hann skráður hér í siglingum við land með opnum lestum, og þá er smálestatala hans þessi, sem ég sagði, 499 tonn, en ef hann væri talinn á annan veg, er hann 394 tonnum stærri. Þá verður útkoman sú, að smálestatala allra skipanna var, áður en farið var að selja skipin, 4860 tonn, eins og ég nefndi, en núna 2725 tonn, með því að telja Blikur 499, en með því að telja hann með lokuðum lestum yrði þetta 3122 tonn. Hvernig sem dæmið er reiknað, hefur skipakosturinn minnkað hvað snertir smálestatölu um 43%, miðað við Blikur eins og hann er skráður hér í siglingum — 43%. Þetta er nú rýrnunin á þessu sviði. Ef tekið er farþegarýmið og miðað aðeins við það farþegarými, sem „kojur“ eru fyrir, því að hitt er erfitt að reikna, hvað er hægt að taka marga menn í hvert skip, sem ekki hafa svefnpláss, er útkoman sú, að farþegarými skipanna til samans, áður en farið var að selja af skipastólnum, var 351, en er nú 193. Þarna er rýrnunin á farþegarýminu hjá skipunum 45%. Loks kemur þriðji mælikvarðinn, sem mætti nota, og það er hversu oft skipin koma á hafnirnar í kring um landið. Eins og ég sagði áðan, hef ég ekkí haft tíma eða tækifæri í þessu annríki að rannsaka þetta. En eitt er held ég víst, að sú fækkun er ekki minni en hvað smálestunum hefur fækkað eða farþegarýmið heitur dregizt saman. Ég fullyrði, að það er a.m.k. nálægt 40%, sem viðkomunum hefur fækkað á höfnum landsins við það að selja 3 skipin á brott, þó að þetta eina leiguskip hafi verið tekið í staðinn. Af þessu verð ég að segja það, að hv. 1. þm. Austf. hefur ekki ofmælt, þegar hann sagði, að það hefði dregið úr þjónustu þessa ríkisfyrirtækis við landsmenn. (Forseti: Má ég spyrja hv. 3. þm. Vestf., hvort hann treysti sér til að ljúka máli sínu á örfáum mínútum?) Hve mörgum? (Forseti: Gert er ráð fyrir, að fundur í Sþ. byrji kl. 5.) Ég skal fresta mínu máli. Ég á ekki mikið eftir, en þó mikið meira en þessum örfáu mínútum nemur. (Forseti: Þá vildi ég biðja hv. þm. að gera hlé á ræðu sinni.) Já, já, alveg sjálfsagt. — [Fundarhlé.]
Herra forseti. Það fer nú að verða dálítið örðugt að taka til máls í þessari hv. d., ég mun ekki hafa verið búinn að tala í margar mínútur, þegar slitin var í sundur ræðan hjá mér af hæstv. forseta og hæstv. sjútvmrh. var ekki viðstaddur þá og er óðar kominn út úr dyrunum núna. Mætti ég nú ekki mælast til þess við hæstv. forseta, að hann hlutist til um, að hæstv. sjútvmrh. verði hér viðstaddur, því að hann getur varla verið kominn út úr húsinu á þessum tíma. Eru einhver sjávarútvegsmál til umr. í Ed.?
Ég var þar kominn, þegar fundi var frestað, að ég hafði sýnt fram á, hvað væri aðalefnið í þessu frv., en það er, að ríkisstj. fái nú aðstöðu til þess að skipa þrjá nýja embættismenn við Skipaútgerð ríkisins. Það er eina efnið í frv., því að um hitt efnisatriði frv., hvert sé verkefni Skipaútgerðarinnár, þarf ekki frekar löggjöf nú en þurft hefur í þau 38 ár, sem útgerðin er búin að starfa, og yrði engin breyt. á því, þó að þetta plagg færi ekki í gegnum þingið. Ég lýsi ánægju minni yfir, að hæstv. ráðh. er kominn í d., svo að ég geti rætt við hann um þetta frv., sem hér er til umr.
Ég benti jafnframt á, að það væri sérkennilegt við þetta frv. og þessa stjórn, að hún á að vera öll skipuð af ráðh., allir stjórnarnefndarmennirnir þrír og forstjórinn í ofanálag. Nú vil ég spyrja hæstv. ráðh.: Er eitthvert ríkisfyrirtæki til, þar sem svona háttar til, að ráðh. skipi alla stjórnina og forstjórann líka? Ég man ekki eftir því, og væri óskandi, að ég fengi einhverja vitneskju um þetta. Nei, það er tryggilega gengið frá því, eins og ég sagði, að ríkisstj. hafi hérna töglin og hagldirnar, eins og þær leggja sig, og Alþ. eigi ekki að hafa nein afskipti af þessu ríkisfyrirtæki, og á það þó að starfa í þágu allrar þjóðarinnar. Ég held ég muni það rétt, að hæstv. ráðh. hafi látið þess getið, er hann var að svara hv. 1. þm. Austf. um daginn, að þjónusta þessa fyrirtækis við þjóðina hafi alls ekkert minnkað nú að undanförnu, en hv. þm. hafði látið orð falla um það, að það hefði dregið úr þessari þjónustu og vitnaði í fyrirheit hæstv. ráðh. um, að það skyldi ekki verða úr henni dregið, þó að skip væri selt. Ég man ekki betur, það getur verið að mér hafi misheyrzt, en samt man ég ekki betur en að hæstv. ráðh. hefði einhver orð um það, að smálestatala skipanna í heild, sem útgerðin hefur í þjónustu sinni, hafi minnkað. Ég vona, að hann leiðrétti mig, ef þetta er ekki rétt eftir honum haft. Í fyrri hluta ræðu minnar las ég hér skrá yfir smálestatölu skipanna eins og þau voru, áður en farið var að selja nein, svo og farþegarúm og bar það saman við smálestatölu skipanna, sem nú eru í þjónustu útgerðarinnar, og farþegarúmið þar. Og niðurstaðan er þessi, að smálestatalan hefur minnkað um 43%, og farþegarýmið hefur minnkað um 45%.
En þriðja atriðið, sem ég hefði gjarnan viljað hafa til samanburðar, er viðkomufjöldi á höfnum víðs vegar kringum landið, það hef ég ekki, af því að ég hef verið í annríki eins og fleiri undanfarna daga og hef ekki getað fengið yfirlit um það. Ég fullyrði það, að rýrnun á viðkomu skipanna á höfnum kringum landið er ekki minni en rýrnunin á smálestatölunni eða farþegarýminu. Það er því engum blöðum um það að fletta, að hér er um verulegan samdrátt að ræða. Og jafnvel þó að svo hefði nú verið, að smálestatala skipanna hefði staðið í stað eða þó að skipin gætu fullnægt vöruflutningunum með þeirri smálestatölu, sem þau hafa nú, er það ekki nóg, því að fólkið, sem býr á hinum ýmsu stöðum um landið, þarf að fá skipaviðkomur það oft, að það hafi þeirra full not, — að það hafi viðunandi samgöngur sjóleiðina, þegar landleiðirnar eru lokaðar. Þó að 1000 tonna skip komi á einhverja höfn í staðinn fyrir að 500 tonna skip hefur áður komið þar kannske tvisvar, þá er þetta ekki til að fullnægja þörfinni. Fólkið þarf að fá sitt af hverju með skipunum með ekki allt of löngu millibili, og smálestatalan ein getur ekki bætt þetta upp. Það er því um ótvíræðan samdrátt að ræða í þjónustustörfum þessa fyrirtækis við það, að 3 skip hafa verið seld, Hekla, Skjaldbreið og Þyrill.
Það er alveg eins og hæstv. ríkisstj. finnist nú, að hún geti bætt upp þrjú horfin skip með því bara að ráða þrjá nýja embættismenn í staðinn. Þarna geti það mætzt, maður á móti skipi. Það er einkennileg tilviljun, að um leið og hæstv. ríkisstj. hefur selt þrjú skipin, þá skuli hún koma með frv. um þrjá embættismenn. Ég er þeirrar skoðunar, að hv. Alþ. verði að spyrna fótum við þessari fjölgun embættismanna, sem nú er með meira móti, jafnvel enn þá örari þessa síðustu þingdaga fyrir næstu kosningar heldur en nokkru sinni áður, og hefur þó verið nóg um hana stundum. Ef ég hef fylgzt réttilega með, held ég, að nú í kvöld eða nótt eigi að afgreiða þrjú frv. hér frá Alþ., þ. e. frv. um orkumál, frv. um skólakostnað og frv. um Skipaútgerð ríkisins. Hvað ætli það sé m. a., sem felst í þessum þremur frv.? Það er fjölgun á embættismönnum. Í frv. um orkumál sýnist mér, að eigi að fjölga um sex nýja embættismenn, þ. e. tækninefnd Orkustofnunarinnar, þar eiga að koma sex nýir. Í skólakostnaðarfrv. á að koma á fót nýrri byggingardeild, og eiga að bætast við tveir tæknifróðir menn, byggingameistarar og byggingaeftirlitsmenn, sem enginn veit, hvað verða margir, færri en tveir geta þeir þó aldrei orðið, fyrst þar stendur „eftirlitsmenn“. Þeir geta þá aldrei orðið færri en fjórir, sem eiga að koma þar nýir, getur vel verið, að þeir eigi að vera átta, þó að ég viti það ekki. Og þriðja frv. er svo Skipaútgerðin, þar eiga að koma þrír. Það er því lágmarkið, að skv. þessum þremur frv., sem öll á að afgreiða sem lög í kvöld eða nótt, eigi að koma þrettán ný embætti. Þetta er góður afli á ekki lengri vertíð að fá svona þrettán á skip. Ég veit, að hæstv. ráðh. finnst þetta ekki ýkjamikið, og þeir mundu sennilega segja eins og sjómennirnir stundum, þegar þeir afla vel og þeir segja „það var reytingur“, og það getur vel verið, að þeir kalli þetta bara reyting. En þetta er meira en reytingur, ekki sízt þegar annað hliðstætt þessu er á undan gengið.
Ég get minnt á það svona í leiðinni, að Vestfirðingar hafa gert mjög eindregnar kröfur um það að fá Vestfjarðaskip, og ég held, að það séu 8 ár síðan flutt voru frv. um Vestfjarðaskip hér á Alþ., flest árin a.m.k., ef ekki öll, en alltaf hafa frv. verið svæfð, ár eftir ár, þing eftir þing. Það hefur verið minni áhugi á að bæta samgöngurnar á sjó við Vestfirði, þennan landshluta, sem er innilokaður frá öðrum héruðum þessa lands alla vetur, heldur en að fjölga embættismönnum. Ég held, að hv. frsm. meiri hluta samgmn. hafi eitthvað haft orð á því þarna áðan, að það væri farið að draga úr rekstrarhalla Skipaútgerðarinnar, hann væri eitthvað svolítið minni heldur en hann hafi verið fyrir einu eða tveimur árum. Það er ekki þrekvirki að draga úr rekstrarhalla Skipaútgerðarinnar með þessu móti, með því að selja 3 skip af 6 og leigja bara 1 um tíma í staðinn. Það er meira kraftaverkið! Ég gæti bezt trúað, að það mætti þurrka út allan rekstrarhalla með því bara að selja þau öll. Ég verð því að mótmæla harðlega þessari megintill. þessa frv., að nú skuli eiga að stofna þrjú ný embætti við Skipaútgerðina um leið og mjög hefur dregið úr störfum þar og öllu annríki, um leið og skipin eru orðin svona fá, utanlandssiglingarnar úr sögunni og öll skilyrði til að komast af með færri eða minni mannafla en nokkru sinni áður. En fari svo, að hæstv. ríkisstj. haldi fast við þessa útungunarstarfsemi sína, þá teldi ég eðlilegra, að hv. Alþ. kjósi þessa stjórn, láti ekki bjóða sér þetta, að samþykkja fyrst að óþörfu þessa starfsmannafjölgun og síðan vald ráðh. til að skipa, alla mennina. Ég vil ljúka þessu máli mínu með því að benda á það, að ég held, að fyrirsögn frv. sé ekki nákvæm. Þetta ætti að heita „Frv. til laga um fjölgun og úthlutun embætta“.