18.04.1967
Neðri deild: 72. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1242 í B-deild Alþingistíðinda. (1098)
129. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Mál það, sem hér er til umr., er komið frá Ed., þar sem það hlaut greiða afgreiðslu. Þetta er stjfrv. flutt skv. fyrirheiti sjútvmrh. á s.l. vetri og forsrh. í þingbyrjun á s.l. hausti. Það er flutt vegna eindreginna óska samtaka sjómanna og auk þess hafa verið sett inn í frv. ákvæði til bráðabirgða varðandi útflutningsgjald af loðnumjöli og loðnulýsi, en samkomulag mun hafa orðið um það í verðlagsráði sjávarafurða að óska eftir því við ríkisstj., að ákvæði þess efnis yrðu flutt í sambandi við þetta mál. Ed. breytti þessum ákvæðum á þann veg, að inn voru tekin sams konar ákvæði varðandi grásleppuhrogn. Frv. var samþ. þar samhljóða og var n. sammála um að mæla með því í Ed. Eins er hér hjá okkur í Nd. Sjútvn. d. mælir með því, að frv. verði samþ., eins og það kemur frá Ed., en 2 nm. skrifa undir nál. með fyrirvara.