18.04.1967
Neðri deild: 72. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (1100)
129. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. sjútvn. með fyrirvara. Það stafar m. a. af því, að ég tel, að sú braut, sem lagt er inn á með meginefni þessa frv., sé mjög hæpin, vægast sagt mjög hæpin, en vegna þess að hér er um samkomulag að ræða, sem hæstv. ráðh. hefur gert við fjölmenn stéttarsamtök, þá mun ég ekki greiða atkv. gegn þessu, út af fyrir sig, en ég tel hins vegar, að það sé þörf á því að gera aðra breytingu á þessu frv., breytingu, sem varðar efni bráðabirgðaákvæða frv. Þar er í rauninni fjallað um allt annað mál en í 1. gr. frv., sem er meginefni þess, því að í bráðabirgðaákvæði við frv. er gert ráð fyrir því, að útflutningsgjald af loðnumjöli og loðnulýsi — og svo hefur Ed. bætt þar við grásleppuhrognum — skuli ekki innheimt á árinu af framleiðslu ársins 1967. Ég tel, að mjög brýn þörf sé á því að gera einnig breytingar á útflutningsgjaldi af bræðslusíldarafurðum, eins og nú er komið. Það er vitað, að sá háttur hefur verið hafður á, að innheimta miklu hærra útflutningsgjald af bræðslusíldarafurðum en öðrum sjávarafurðum, og þannig hefur síldarútvegurinn verið skattlagður til þess að standa undir ýmsum öðrum greinum framleiðslunnar. Samkv. gildandi lögum er útflutningsgjald af bræðslusíldarafurðum nú 8% af fob.-verðinu. Það vita allir, sem nokkuð þekkja til þessara mála, að það hlýtur að koma til þess, að um stórfellda verðbreytingu verði að ræða á þessu ári á síldarafurðum, og talað er um að það muni þurfa að stórlækka síldina til bátanna og til sjómanna, frá því sem var á s.l. ári, enda hefur sú orðið verðbreytingin á útflutningsvörunni.
Þegar svona stendur á, tel ég að það komi auðvitað ekki til mála að halda, uppi svona óeðlilega háu útflutningsgjaldi af bræðslusíldarafurðum eins og gert er og vil því leggja hér fram skriflega brtt. við bráðabirgðaákvæði frv., og með leyfi hæstv. forseta vildi ég lesa þessa brtt., en hún er þannig, að við ákvæði til bráðabirgða bætist: „Útflutningsgjald af síldarlýsi, síldarmjöli og síldarsoðkjarna skal af framleiðslu ársins 1967 vera 4% af fob.-verði, eða lækka um helming.“
Mér þykir mjög sennilegt, að þetta 8% útflutningsgjald, sem nú er í gildi, muni nema af bræðslusíldarafurðunum a.m.k. 160 millj. kr., eins og búast má við framleiðslunni nú. Með þessu gjaldi er því verið að taka af framleiðslunni ekki litla fjárhæð, og þegar litið er á það, að sjómennirnir á síldarskipunum munu hafa svona í kringum helminginn af andvirði aflans, þá sjá menn, að hér er vitanlega einnig um þungan skatt á sjómenn að ræða. Ég tel því, að þegar svona stendur á, að líkur eru til þess, að það verði talið óhjákvæmilegt að lækka verðið á síldinni til síldveiðiskipanna og síldveiðisjómanna, að þá eigi að lækka þennan sérstaka skatt, sem hefur verið lagður á bræðslusíldarafurðir, og skapa þannig möguleika til þess að halda uppi eins háu síldarverði og tök eru á. Það hefði að mínum dómi verið réttmætt að leggja til, eins og nú standa sakir að afnema þetta útflutningsgjald af bræðslusíldarafurðum með öllu í ár, með sérstöku tilliti til þess aukaskatts, sem lagður hefur verið á bræðslusíldarafurðir fram til þessa, en mín tillaga miðar aðeins að því að lækka þetta gjald um helming, færa það niður í 4%, og myndi þá útflutningsgjaldið af bræðslusíldarafurðum liggja nærri meðaltali þess útflutningsgjalds, sem greitt er af öðrum sjávarafurðum.
Ég vil að þessi afstaða mín komi hér skýrt fram, með sérstöku tilliti til þess, sem ég tel alveg fullvíst að eigi eftir að koma upp innan skamms í þessum málum. Ég tel þessa skattlagningu ekki lengur réttlætanlega á nokkurn hátt, hvorki — gagnvart síldveiðiflotanum né gagnvart síldveiðisjómönnum, og má satt að segja mikið vera, ef hægt verður á næsta sumri að komast af með að lækka þó ekki þetta útflutningsgjald meira en gert er í minni till., en í von um það, að hún gæti fengið samþ., þá hef ég miðað þetta við það að lækka gjaldið um helming. Ég vil svo óska eftir því, að hæstv. forseti leiti afbrigða fyrir þessari till., sem ég hef flutt hér skriflega, svo að hún geti komið hér til afgreiðslu.