17.04.1967
Neðri deild: 71. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1252 í B-deild Alþingistíðinda. (1121)
189. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Í gildandi l. um tekju- og eignarskatt er svo ákveðið, að draga skuli frá tekjum sjómanna á íslenzkum fiskiskipum sem svari 500 kr. á mánuði vegna hlífðarfatakostnaðar. Það þykir sanngjarnt, að þessi réttur nái einnig til annarra sjómanna á íslenzkum skipum, og er með þessu frv. lagt til, að sami réttur verði veittur þeim. Frv. er einfalt í sniðum, og sé ég ekki ástæðu til þess að gera lengri grein fyrir því. Frv. var samþ. shlj. í hv. Ed., og vil ég leyfa mér að vænta þess, að hv. Nd. muni einnig taka málinu vel. Ég legg til, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. fjhn.