10.04.1967
Neðri deild: 62. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1341 í B-deild Alþingistíðinda. (1202)
181. mál, hafnalög
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hefði kosið, að fleiri hv. þm. hefðu verið viðstaddir á fundi, þegar hér er hafin umr. um setningu nýrra hafnal. og vildi beina því til hæstv. forseta, hvort ekki væri hægt að stuðla að því að svo væri, því að ég hygg, að það yrði gagnlegt í sambandi við afgr. þessa máls.
Hér er stórmál á ferð, en seint fram komið, svo seint, og þannig fram borið, að í rauninni má telja ólíklegt, að það geti hlotið afgr. á þessu þingi nema fyrir hendi sé fullur vilji til samstarfs af hálfu þeirra, sem að þessu frv. standa, og annarra og vilji fyrir því að setja l., sem verði til bóta frá þeirri löggjöf, sem nú gildir. Ég er fyrir mitt leyti hlynntur því, að þess sé freistað að koma á slíku samstarfi, ef tími leyfir og skilyrði til þess reynast fyrir hendi. Ég vil nú við 1. umr. leyfa mér að ræða þetta mál nokkuð, bæði aðdraganda þess og nokkur atriði frv., til athugunar fyrir þá hv. n., sem fær það til meðferðar. Ég mun þó reyna að takmarka mál mitt eftir því sem unnt er, þegar um slíkt mál er að ræða.
Ég vil þá fyrst með nokkrum orðum koma að aðdraganda málsins.
Hinn 26. marz 1958, þ.e.a.s. fyrir rúmlega 9 árum, var á Alþ. samþ. svohljóðandi þál.: „Alþ. ályktar að fela ríkisstjórninni að láta í, samráði við vitamálastjóra gera 10 ára áætlun um nauðsynlegustu hafnarframkvæmdir í landinu, og sé fyrst og fremst við það miðað, að framkvæmdirnar geti stuðlað að öruggri og aukinni útflutningsframleiðslu. Einnig verði endurskoðuð gildandi lagaákvæði um skiptingu kostnaðar við hafnargerðir milli ríkis og sveitarfélaga, svo og ákvæðin um landshafnir og önnur þau atriði l. um hafnargerðir, er ástæða þykir til að breyta, með hliðsjón af fenginni reynslu og til samræmis við aðrar niðurstöður athugunar þessarar. Jafnframt verði endurskoðuð l. um hafnabótasjóð og athugað, hvort ekki sé tiltækilegt að efla starfsemi hans, svo að hann geti m.a. veitt hagkvæm lán til langs tíma til nýrra hafnarframkvæmda.“
Hinn 12. sept. 1958 fól þáv. hæstv. samgmrh. atvinnutækjanefnd, sem þá starfaði, að gera eins og það er orðað í bréfinu, „í samráði við vita- og hafnamálastjóra áætlun þá, er þál. ræðir um, og framkvæma endurskoðun framangreindra l.“ Síðan segir, að áætlunin og till. n. óskist sent ráðuneytinu og að n. sé falið þetta verk í samráði við ríkisstj. í heild. Ég geri ráð fyrir, að sú ríkisstj., sem þá sat, hafi falið þetta verk atvinnutækjan., vegna þess að hún hafði þá undanfarið fengizt við skyld mál og m.a. gefið út skýrslur um atvinnumál o. fl. í kaupstöðum og kauptúnum landsins. Enn fremur var það þá kunnugt, að n. hafði sem slík heimsótt flesta þá staði á landinu, þar sem um er að ræða hafnargerðir og einn eða fleiri af nm. alla slíka staði, að ég ætla, þar sem um slíkt hefur verið að ræða. Það vildi svo til, að ég var form. þessarar n., og í n, með mér voru Birgir Finnsson, framkvæmdastjóri, nú alþingisforseti og Tryggvi Helgason, formaður sjómannafélagsins á Akureyri, báðir mjög áhugasamir menn, reyndir og vel að sér á þessu sviði.
Ég vil fara örfáum orðum um það, hvernig atvinnutækjan. á sínum tíma framkvæmdi þessi tvö verkefni, sem henni voru falin, í samráði við vitamálastjóra, eins og sagði í bréfi samgmrh., en vitamálastjóri tók mikinn þátt í þessum störfum, og till. hans urðu að sjálfsögðu mjög ráðandi í áætlunar- og tillögugerð n. um sérfræðileg efni. Eins og ég sagði áðan, hafði atvinnutækjan. í sambandi við önnur störf sín yfirleitt komið á þá staði, sem hér koma til greina í sambandi við hafnargerðaáætlun og gerð hafnalaga. Það hafði skeð að mestu leyti áður en henni var falið þetta verk. Unnið var að þessum málum 10 ára áætluninni, og endurskoðun hafnalaganna, eins og hæstv. ráðh. sagði, frá því seint á árinu 1958 og fram á árið 1961. Mér telst svo til, að atvinnutækjan. hafi haldið um þessi mál samtals á þessum tíma 115 fundi og þar af 52 fundi með vitamálastjóra, en bæði málin, 10 ára áætlunin og frv. til nýrra hafnalaga, voru afgr. á fundi n. hinn 16. sept. 1961 og nokkru síðar var áætlunin og frv. sent ríkisstj. Áætluninni var síðan útbýtt hér meðal hv. þm., ég ætla þegar á árinu 1958 eða 1959, en frv. var að sjálfsögðu, þar sem hér var um stjórnskipaða n. að ræða, afhent ríkisstj. einni og hefur ekki orðið opinbert fyrr en á það er minnzt nú í grg. þess frv., sem hér liggur fyrir. Í þessari 10 ára áætlun, sem ég nefndi, voru gerðar áætlanir, að vísu meira og minna lauslegar, um framkvæmdir í 78 höfnum, ef ég man rétt, og upphæð áætlunarinnar var rúmlega 700 millj. kr., sem að sjálfsögðu mundi vera miklu hærri upphæð nú eða sennilega nálægt 2 milljörðum. Kostnaðaráætlanir voru að sjálfsögðu gerðar af sérfróðum mönnum. Að áætluninni unnu með n., auk vitamálastjóra, nokkrir verkfræðingar á vitamálaskrifstofunni, sem lögðu í það mjög mikið verk að undirbúa uppköst að þessum áætlunum og leggja fyrir n, og sömuleiðis voru nokkrar rannsóknir gerðar á ýmsum stöðum í sambandi við þetta, sérstaklega eftir ósk n. Að þessu var unnið á þennan hátt á þessum tíma og jöfnum höndum að endurskoðun hafnal. og annarrar löggjafar um þessi mál.
Við gerð 10 ára áætlunarinnar, sem átti að taka yfir árin 1961–1970, og við endurskoðun hafnarlaganna, hygg ég, að n. hafi fyrst og fremst lagt áherzlu á þrennt:
Í fyrsta lagi að hafa í huga landið allt og þörfina fyrir hafnarframkvæmdir um landið allt.
Í öðru lagi að koma á framfæri með áætluninni rökstuddri bráðabirgðahugmynd um viðfangsefni í heild og á hverjum stað og gæta þess þá, að sú hugmynd væri ekki ýkt, þar sem það gæti skapað ótta við að taka verkefnið föstum tökum.
Í þriðja lagi að ný hafnal. gætu þegar gengið fram.
Um þetta segir í áliti n. frá 1961 á bls. 16, með leyfi hæstv. forseta:
„Eins og fyrr er að vikið, var það að vel athuguðu máli sameiginlegt álit n. og vitamálastjóra, að ekki væri á þessu stigi hægt að gera ítarlegri áætlun en þá, sem hér liggur fyrir. Til að gera ítarlega áætlun um alla þá staði, sem hér er gerð grein fyrir, hefði þurft fleiri sérfróða menn en völ er á, lengri tíma til rannsókna og meira fé en veitt hefur verið í þessu skyni. Og jafnvel þótt að því hefði verið horfið að gera áætlunina ítarlegri, má ætla, að sumt hefði verið þar fyrir gýg unnið. Margt getur breytzt á 10 árum, m.a. gerð hafnarmannvirkja og þörf fyrir þau. Hafnarstaðir, sem ekki eru nefndir í áætluninni, geta komið til greina. Á áætlunina í heild og þó alveg sérstaklega hinn ósundurliðaða hluta hennar (en það voru rúml. 20 hafnir, sem voru ósundurliðaðar í kostnaðaráætlun), ber að líta sem tilraun til að gera grein fyrir helztu verkefnum komandi ára, að svo miklu leyti sem unnt er, og leiðbeinandi yfirlit um þau, jafnframt því sem litið er yfir farinn veg og gerð grein fyrir því starfi, sem unnið hefur verið. Þessa áætlun þarf síðar að endurskoða með hliðsjón af þeim rannsóknum, sem fram fara, og nýjum eða breyttum tillögum, sem fram kunna að koma á næstu árum og kveða nánar á um mark, sem hér er aðeins lauslega áætlað, eða gerð grein fyrir til bráðabirgða. Má hugsa sér, að 10 ára áætluninni yrði síðar skipt í tveggja til þriggja ára áætlanir, sem þá yrði ákveðið að framkvæma á tilsettum tíma með það fyrir augum, að meginatriði þeirrar áætlunar, sem hér liggur fyrir, komist í framkvæmd með óhjákvæmilegum eða eðlilegum breytingum á einum áratug eða því sem næst.“
Í þessum orðum úr áliti n., sem ég hef nú lesið, kemur það fram, hvernig n. leit á þetta verk 10 ára áætlunarinnar. Varðandi endurskoðun hafnal., eins og ég sagði áðan, ætla ég það hafa vakað fyrir n. að stuðla að því, að sú endurskoðun gæti sem fyrst leitt til setningar nýrrar löggjafar. Að vísu ekki þannig, að við gerðum ráð fyrir, að allt yrði samþ. óbreytt, sem n. hafði þar á pappírinn fest, en að það gæti leitt til þess, að ný hafnalög yrðu sem fyrst sett. N. taldi, að hún hefði í frv. sínu stillt mjög í hóf till. um fjármál að því er ríkissjóð varðar og ekki farið þar lengra en algjörlega óhjákvæmilegt var að fara. Það var gert með sérstöku tilliti til þess, að ekki þyrfti að dragast, að endurskoðuninni yrði að fullu lokið hjá ríkisstj. og ný l. yrðu sett um þetta efni.
Mér er sérstök ánægja að taka það fram hér, þó að langt sé um liðið, sem ég hef ekki fengið tækifæri til að segja fyrr á þessum stað, að samstarfið í atvinnutækjan. um þessi mál var mjög gott. Ég minnist þess jafnan með ánægju. Ég minnist þess ekki, að það kæmi nokkru sinni fyrir, að atkvgr. færi fram í n. um einstök efni, þó að skoðanir kynnu að vera skiptar í fyrstu, heldur gaf n. sér tíma til þess að rannsaka málefnin og ræða, þangað til niðurstaða var fengin. Þannig var að þessu unnið. Samstarf okkar við hinn unga vitamálastjóra, sem þá var nýtekinn við starfi, var sömuleiðis á þá leið, að ég minnist þess með mikilli ánægju, samstarfsins við hann þá, og hans menn.
Um 10 ára áætlunina, sem atvinnutækjan. gerði, og hver árangur hafi orðið af henni ætla ég ekki að ræða hér, enda er það mjög óljóst. Ég geri ráð fyrir, að hún hafi verið höfð til hliðsjónar í ýmiss konar starfi í sambandi við hafnargerðir. Bæði þessi plögg, 10 ára áætlunin og till. í sambandi við hafnal., voru, eins og ég sagði, afgr. frá nefndinni 16. sept. 1961 og afhent ríkisstj. með bréfi litlu síðar.
Í frv. atvinnutækjan, um hafnir og hafnabótasjóð, eins og það nefndist, voru ýmis nýmæli auk þess sem öll hin eldri löggjöf var endurskoðuð og nokkuð breytt, bæði í formi og efni, og að öllu því var unnið í nánu samráði við vitamálastjóra. Í þessu frv. voru einkum tvö nýmæli, sem ég vil leyfa mér að nefna hér, enda koma þau fram í því frv., sem hér liggur fyrir, í nokkuð breyttri mynd bæði.
Annað nýmælið, sem ég ætla að nefna, var það, að við gerðum ráð fyrir, að ríkisframlag til hafnagerða yrði hækkað til muna og að það yrði gert á þann hátt, að mjög yrði aukið framlagið til þess, sem n. kallaði undirstöðuframkvæmdir á hverri höfn. Ég kem nánar að því síðar, þegar ég fer að ræða frv., sem hér liggur fyrir, hverjar þessar undirstöðuframkvæmdir voru.
Hitt nýmælið var að gera hafnabótasjóð, eða Hafnabótasjóð Íslands, eins og hann nefndist í frv. n., að því viðbættu sem hann hefur verið styrktarsjóður, einnig að almennri lánsstofnun fyrir hafnargerðirnar í landinu. Þetta eru þau tvö nýmæli úr frv. atvinnutækjan. um hafnir og hafnabótasjóð frá 1961, sem ég vil leyfa mér að nefna núna. Frv. um hafnir og hafnabótasjóð var, eins og ég sagði áðan, afhent ríkisstj. seint á árinu 1961. Síðan er liðið nokkuð mikið á sjötta ár og frá hæstv. ríkisstj. hefur ekkert frv. komið til Alþ. um þessi efni fyrr en nú, að þetta mál er lagt hér fyrir. Ég veit ekki hvað þessu hefur valdið, að málið hefur legið svo lengi í stjórnarráðinu, en ég verð að segja það, að mér hefur sárnað það nokkuð, að hæstv. ríkisstj. skyldi ekki sjá ástæðu til þess að nota á næstunni þá miklu vinnu, sem búið er að leggja í þetta mál, bæði af atvinnutækjan., vitamálastjóra og mörgum sérfræðingum á þessu sviði. Mér er ókunnugt um það, hvað þessum mikla drætti hefur valdið, þessum drætti, sem nú er kominn nokkuð mikið á sjötta ár. Þegar tvö ár voru liðin, þannig að ekkert hafnalagafrv. kom frá hæstv. ríkisstj., tókum við okkur til, nokkrir þm, úr Framsfl., og fluttum frv. til laga um hækkun ríkisframlags til hafnargerða. Þetta frv. var hugsað til bráðabirgða, meðan hafnal. í heild væru ekki endurnýjuð og var upp í frv. tekið svipað atriði og gengið hafði verið frá í atvinnutækjan., þ.e.a.s. ákvæði um hækkuð framlög, úr 40% í 65%, til undirstöðumannvirkja í hafnargerð. Þetta frv. okkar til bráðabirgða um ríkisframlag til hafnarframkvæmda hlaut þó ekki afgr. hér á Alþ, og komu fram viðbárur frá ýmsum stöðum, sem ég ætla ekki að rekja hér. Okkur þótti líklegt, þ. á m. mér, að það gæti verið, að ráðherrar og aðrir hefðu nokkurn beyg af því að taka upp svo mikið nýmæli, sem atvinnutækjan. hafði gert ráð fyrir, að greiða misjafnt ríkisframlag eftir tegund hafnarmannvirkjanna. Okkur kom það til hugar. Þó virðist það ekki vera, eftir því frv. að dæma, sem hér liggur fyrir, því þar er einmitt farið inn á þessa leið. Þetta nýmæli virðist ekki hafa tafið frv. í öll þessi ár. Til þess að reyna aðra leið, fleiri leiðir til þess að fá fram umbætur á fjárhag hafnanna, lögðum við hinir sömu þm. fram á þingi síðar annað frv. um hækkun ríkisframlags til hafnargerða, m.a. í fyrra og raunar aftur í vetur, þar sem lagt var til í stað þess sem áður hafði verið, að höfnunum væri skipt í 3 flokka eftir nánar tilteknum reglum og að framlögin væru mismunandi eftir flokkum og færu allt upp í 70%. Jafnframt var í þessu frv. okkar, sem ég þarf ekki að lýsa hér nánar, þar sem það hefur verið rætt hér í hv. d. í vetur, ákvæði um það, að gerðar yrðu ráðstafanir til að ríkissjóður greiddi skuldahala sinn á þessu sviði, þ.e.a.s. skuldir sínar við hafnarsjóðina og að eftirleiðis yrðu gerðar tveggja ára áætlanir um hafnarframkvæmdir á svipaðan hátt og vegáætlanir. Þetta voru till. okkar framsóknarmanna um þetta efni í fyrra og aftur á þingi í vetur um hækkun ríkisframlags til hafnargerðar, en bæði þá eins og fyrr þegar málið var flutt á annan hátt, var það tilgangurinn, ef þetta frv. okkar yrði samþykkt, að þá gilti það til bráðabirgða, þangað til endanlegri endurskoðun hafnalaganna í heild væri lokið og sett hefðu verið ný hafnalög. En við töldum þetta svo aðkallandi, að bæta fjárhag hafnanna, að þetta atriði yrði að sitja fyrir öðru, það yrði að ganga fyrir, ef ekki væri hægt að koma fram öllu í einu. En báðar þessar tilraunir reyndust árangurslausar.
Ég hef rakið þetta, af því að mér finnst það vera til nokkurrar upplýsingar í sambandi við sögu þessa máls og þá málsmeðferð, sem nú verður. Ég sagði í upphafi ræðu minnar áðan, að ég væri því hlynntur, þótt orðið sé áliðið þings og frv. seint fram komið; að það væri hægt að stofna til samstarfs um afgreiðslu þessa máls, ef vilji væri fyrir hendi hjá þeim, sem að frv, standa, og tími reyndist til. Og ef það yrði þá í því samstarfi tryggt, að væntanleg hafnalög, sem afgreidd yrðu frá þessu þingi, yrðu ótvírætt til bóta frá þeim hafnalögum, sem nú gilda. Ég er ekki sérstaklega að bera þetta frv. eða það, sem hér kann að verða lagt fram annað, saman við frv. atvinnutækjanefndar frá 1961, það liggur hér ekki fyrir, heldur bera það saman við þau hafnalög, sem nú gilda, lögin nr. 29 frá 23. apríl 1946 um hafnargerðir og lendingarbætur með síðari breytingum og lögin um hafnabótasjóð frá 16. des. 1943.
En í tilefni af því, að ég er hlynntur því, að slíkt samstarf verði reynt, vil ég áður en málið fer nú til n., nefna nokkur atriði í frv., sem fyrir liggur, sem mér finnst, að n. þyrfti sérstaklega að gefa gaum að og þeir, sem ynnu að samstarfi um afgreiðslu þessa máls. Þessi atriði eru misjafnlega þýðingarmikil að mínum dómi, en öll, sem ég nefni, skipta þó miklu máli. Ég vil fyrst minnast á 3. gr. frv. í kaflanum um yfirstjórn hafnarmála. Þar segir svo:
„Hafnamálastofnun ríkisins annast allar hafnarframkvæmdir, sem styrktar eru af ríkisfé skv. lögum þessum. Hafnamálastofnunin skal hafa umráð yfir vélum þeim og tækjum, sem nauðsynleg eru til að annast þau verkefni, sem henni eru falin, svo og hafa í þjónustu sinni sérþjálfað starfslið. Heimilt er hafnamálastjóra með samþykki ráðherra að veita bæjar- eða sveitarfélagi leyfi til að hafa á hendi eigin hafnarframkvæmdir undir tækni- og fjárhagslegu eftirliti hafnamálastjóra.“
Það, sem í þessari grein felst, eru mjög eindregin ákvæði um vald og ráð hafnamálastjóra í sambandi við hafnargerðir. Ég veit, að það er á mörgum stöðum nauðsynlegt, að hafnamálastjóri hafi þessi mál, þ.e.a.s. framkvæmdina, verkstjórnina, í sínum höndum, en ég efa, að þetta eigi alls staðar við, og þetta er eitt af þeim atriðum, sem ég álít, að þurfi að koma til athugunar.
Þá vil ég fara nokkrum orðum um 4, gr. frv. Þar er m.a. talið upp, hvað teljist hafnargerðir skv. þessum lögum, hafnargarðar, bryggjur og viðlegukantar, dýpkanir og uppfyllingar til hafnarbóta, siglingamerki, dráttarbrautir og hafnsögubátar. Ég vil aðeins geta þess til fróðleiks, að atvinnutækjan. gerði ráð fyrir, að til hafnarframkvæmda teldust einnig uppskipunarkranar í eigu hafnar og land undir hafnarmannvirki, sömuleiðis þurr- eða flotkvíar, en gerði hins vegar ráð fyrir því, að lægra ríkisframlag eða aðeins um 20% væri veitt til þeirra hluta. En það, sem ég vildi sérstaklega vekja athygli á í 4. gr., er 2. málsgr. um ríkisábyrgðina. Þar segir svo, að ríkisstj. sé heimilt að ganga fyrir hönd ríkissjóðs í ábyrgð fyrir lánum, er hafnarsjóður tekur til hafnargerðar, eftir því sem nánar er ákveðið í lögum þessum.
Ég ætla, að skv. lögum um ríkisábyrgðasjóð gildi sú regla, að ef ekki er annað ákveðið í lögum, þá sé ríkisábyrgðin einföld ábyrgð. Það ákvæði mun samt ekki hafa komið til framkvæmda, að því er hafnir varðar, hingað til, en ef ég man rétt, þá var frestur til að láta það koma til framkvæmda bundinn við setningu nýrra hafnalaga. Mér virðist því, a.m.k. í fljótu bragði, að þetta þýði það, þessi málsgr. 4. gr., að um sjálfskuldarábyrgð ríkisins fyrir hafnasjóð sé ekki lengur að ræða, ef frv. verður að lögum. Ég vildi beina því til hv. n. að taka þetta atriði til athugunar.
Ég vil nefna það einnig, að í 8. gr. er nýmæli. Síðan hafnalögin frá 1946 tóku gildi og jafnvel fyrr, hefur það verið svo, að ríkissjóði hefur verið heimilt að taka ábyrgð á hafnarláni fyrir þeim hluta kostnaðarins, sem hlutaðeigandi hafnarsjóður á að greiða að fullu. Þetta ákvæði var að sjálfsögðu sett með tilliti til þess, að sum sveitarfélög, sem stóðu að hafnargerðum, sem þó voru bráðnauðsynlegar, voru og eru þannig sett, að þau geta ekki lagt á aukaútsvör — hækkað útsvörin til þess að greiða upp í kostnað við hafnargerðir. Þau eiga fullt í fangi með að greiða vexti og afborganir af lánum, þó þau þurfi ekki í upphafi að leggja beinlínis út fé úr hreppssjóði. Nú er þessu breytt þannig í 8. gr., að ríkisábyrgðina má veita, eins og segir í gr., að því marki, að kostnaðarhlutur ríkissjóðs og upphæð ábyrgðar nemi samtals 90% af styrkhæfum kostnaði þess framkvæmdaáfanga, sem lánið er tekið til. Hér er stigið spor aftur á bak, — það er ekki hægt að dylja sig þess, til áranna fyrir 1930 eða þar um bil, þegar þetta var á þennan hátt og má vera, að fyrir því þyki full rök, en þetta atriði álít ég samt, að n. þurfi að athuga. 7. gr. frv. tel ég einnig þurfa að athuga nánar, þar sem er rætt, hvað skuli teljast styrkhæfur hafnargerðarkostnaður og hvað ekki. Hafnargerðarkostn. er þarna greindur í tvennt: Styrkhæfan framkvæmdakostnað og framkvæmdakostnað ekki styrkhæfan. Það er hér alveg skýrt fram tekið, að til styrkhæfs kostnaðar teljist ekki vextir á byggingartíma, lántökukostnaður eða annar fjármögnunarkostnaður. Ekki heldur kostnaður vegna lóða- eða landkaupa fyrir höfn, gengistap á erlendum lánum eða kostnaður vegna hækkunar verðtryggðra lána.
Í gildandi hafnalögum eru ekki glögg ákvæði um þetta efni, að ég ætla. En ég vek athygli á því, sem er hér ekki talinn styrkhæfur hafnargerðarkostnaður, og ég minni á það í því sambandi, sem ég sagði áðan, að í frv. atvinnutækjan. var gert ráð fyrir, að nauðsynleg og óhjákvæmileg landkaup vegna hafnargerðar væru styrkhæf, en að veittur væri lágur styrkur. Ég nefni þetta. Hitt er svo miklu meira mál, og kem ég að því næst, sem felst í 6. gr. frv., og efni þeirrar greinar vil ég biðja hv. n. og aðra að athuga gaumgæfilega. Að athuga gaumgæfilega, hvað í þessari grein raunverulega felst. Bæði hæstv. ráðh. og hv. 2. þm. Vestf., sem átti sæti í n., sem skipuð var 2. ágúst s.l. til þess að framkvæma nýja endurskoðun, ræddu um þetta eins og verið væri að hækka framlög til hafnargerða. En mér er spurn, hvort þeir, sem að þessari endurskoðun unnu, hafi ekki haft of skamman tíma til þess að vinna þetta verk. Það tók atvinnutækjan. með aðstoð vitamálastjóra mjög langan tíma að gera sér grein fyrir þessum lagabálki og öllum hans atriðum. Og mér er spurn, hvort hv. n., sem skipuð var 2. ágúst s.l., muni ekki hafa haft of skamman tíma til þess að athuga málið. Og hvort sá önnum kafni embættismaður, þ.e.a.s. vitamálastjórinn, sem var í n., muni hafa haft nægileg tækifæri til þess að gera sér fyllilega grein fyrir þessu verki. Slíkt getur alltaf hent, að menn lendi í nokkru tímahraki. En ég dreg það nú m.a. af þessari gr. Það er lítið atriði, en í 1. tölul. gr. hefur sýnilega verið breytt og strikað út úr hliðstæðri grein í frv. frá 1961, en ekki strikað nógu mikið út, þannig að það sést, að þarna hefur verið eitthvað meira. Ég á hér við orðin í lok tölul.: „þó ekki að bryggjum annarra en hafnarsjóðs“. Í gr. er að öðru leyti ekkert talað um bryggjur og þarf því ekki að gera neinar undantekningar, en í frv. atvinnutækjan. var talað um bryggjur. Þar var gert ráð fyrir, að hærra framlag yrði greitt út á hafnarbryggjur á hverjum stað, allt að 150 m legukanti. Og þar stóðu svo þessi orð sem undantekning: „þó ekki bryggjum annarra en hafnarsjóðs“ af því að n, vildi ekki, að 65% styrkur væri greiddur út á einkabryggjur. Þessi lína hefur orðið eftir. Þetta er nú lítið atriði og eins og hver önnur vangá. En hvað felst í þessari grein? Hvað felst í þessari 6. gr. frv.?
Í gildandi hafnalögum frá 1946 segir í 2. gr.: „Ríkissjóður greiðir 2/5 af kostnaði við hafnargerð eftirtalinna staða,“ og þar eru taldir upp allmargir staðir, sem hafa þá hið lægra ríkisframlag. Síðan segir í b-lið: „Ríkissjóður greiðir helming kostnaðar við að gera lendingarbætur á eftirtöldum stöðum o.s.frv.“ En hvað stendur hér í 6. gr. þessa frv.? Það held ég, að menn þurfi að athuga nánar. Þar stendur: „Hluti ríkissjóðs af stofnkostnaði hafnargerðar á hverjum stað skal vera sem hér segir: Allt að 75% stofnkostnaðar hafnargarða (öldubrjóta) o.s.frv.“ og „allt að 40% stofnkostnaðar annarra styrkhæfra hafnarmannvirkja.“ Mér sýnist, að hér sé um nokkuð mikið nýmæli að ræða. Í núgildandi lögum var fastákveðið, lögbundið, hvað ríkissjóður ætti að greiða mikinn hluta kostnaðarins. Hér í þessu frv. er aðeins lögbundið hámark. Ríkissjóður má ekki greiða hærra en 75% til hafnargarða o.s.frv., ekki hærra en 40% til hinna framkvæmdanna. Hann má greiða lægra. Hér er breytt réttarstöðu hafnargerðanna gagnvart ríkissjóði. Og þetta vil ég biðja menn að taka mjög alvarlega til athugunar í n., sem fær þetta mál til meðferðar, og einnig aðra, sem fjalla um þetta mál, að þarna er eiginlega um miklu stærri breytingu að ræða og auðvitað öðruvísi en menn mundu ætla, sem heyrðu hæstv. ráðh. og hv. þm. ræða um þetta frv. hér áðan.
Ég vil segja það, að fáist ekki þessu ákvæði breytt, sem á þennan hátt breytir réttarstöðu hafnanna gagnvart ríkissjóði, þá get ég ekki greitt því atkvæði, því að þetta er, ef það yrði samþykkt óbreytt, alvarlegt spor aftur á bak.
Ég vil aðeins minnast hér á ákvæði 10. gr., sem rætt var um, áðan bæði af hæstv. ráðh. og hv. 2. þm. Vestf. um áætlunargerðina. Þeir vildu telja, að þetta væri mikið nýmæli og víst er það nýmæli að gera áætlanir fram í tímann um hafnargerðir, tryggja það, að farið sé eftir þeirri áætlun og að fé sé til staðar. En mér finnst þetta vera nokkuð óljós ákvæði og ég tel, að þau þyrftu að vera skýrari en þau eru í frv. Ég vil lesa hér sýnishorn. Það er búið að gera ráð fyrir því, að hafnamálastjóri geri í samráði við hafnarstjórnir till. að áætlunum um hafnargerðir til 4 ára í senn. Þar segir: „Skulu slíkar till. miðaðar við skiptingu þess fjár, sem ætlað er til hafnargerða í almennri framkvæmdaáætlun ríkisins.“ Eftir þessu á fyrst að koma almenn framkvæmdaáætlun ríkisins, og hafnaáætlun er þá eftir þessu, ef ég skil það rétt, bara áætlun um skiptingu á upphæð, sem búið er að ákveða í framkvæmdaáætlun ríkisins, ef slík áætlun, þ.e.a.s. slík framkvæmdaáætlun ríkisins, er gerð. En að öðrum kosti skal miða við það heildarfjármagn, sem líklegt er talið, að til ráðstöfunar verði. Þetta er víst ágizkunarstefnan, sem hæstv. fjmrh. var að tala um um daginn. Ég segi þetta nú í gamni sem ágizkun. En ég hefði haldið, að það yrði að miða slíka framkvæmdaáætlun eitthvað við framkvæmdaþörfina. Svo segir:
„Ráðherra skal leggja árlega fyrir Alþ. skýrslu um framkvæmd áætlunarinnar, áður en fjárveitingar eru ákveðnar.“ Ég held að þetta þurfi ef gagn á að verða að þessari hafnarmálaáætlun að vera eitthvað ákveðnara en það er hér, en hugmyndin er góð.
Í grg. frv. segir, að þessi áætlunargerð sé eitt meginnýmæli frv. Það held ég, að sé ofmælt, þau eru miklu meiri nýmæli í frv. heldur en þetta, sum til bóta, sum til hins lakara.
Í 5. kafla frv. eru ákvæði um hafnabótasjóð, ég tel það ótvírætt til bóta, að gert skuli ráð fyrir því, að komið verði upp sérstakri lánsstofnun fyrir hafnir. Þó verð ég að segja það um leið, að þegar verið er að koma upp stofnun, sem á að fá 20 millj. kr. tekjur á ári og hafa 350 millj. kr. lánsheimild, þá kann ég nú ekki vel við það, að hún sé undir stjórn ráðh. Það var annað með hafnabótasjóðinn gamla, sem ekki var stór stofnun, þó hann hafi verið undir stjórn ráðh., og tel ég það þó alltaf hafa orkað tvímælis, að hann hafi átt að vera það. Ég hefði álitið, að það hefði verið betra að setja sérstaka stjórn yfir þennan sjóð, þegar hann er orðinn svona stór, en ég fagna því að fram er komin till. um hafnabótasjóðinn sem lánastofnun fyrir hafnirnar. Þetta er till., sem atvinnutækjan. gerði fyrir um það bil 5 árum, en að vísu breytt. Hér segir í 3. lið, að hafnabótasjóðnum sé heimilt að styrkja hafnarsjóði, sem eiga við sérstakra fjárhagsörðugleika að stríða, vegna erfiðrar aðstöðu og dýrrar mannvirkjagerðar. Um þetta ákvæði hefur verið rætt nokkuð hér í umr., bæði af hæstv. ráðh. og hv. 2. þm. Vestf., og víðar hef ég orðið þess var, að af þeim, sem samið hafa frv., er þetta ákvæði talið mjög mikils virði, að það sé hægt að styrkja þá hafnarsjóði, sem eigi í sérstökum erfiðleikum, sem sagt fátæku hafnirnar, tekjurýrari hafnirnar, hafnirnar, sem þurfa á sérstaklega dýrum undirstöðumannvirkjum að halda. Og það er alveg rétt, að hér er ákvæði um það, að þessar hafnargerðir megi styrkja úr hafnabótar sjóði. En ekki sízt með tilliti til þess, að þarna verður um að ræða að úthluta fé, fyndist mér það mjög eðlilegt, að sérstök stjórn væri yfir þessum sjóði og að því stefnt, að það væri nokkurn veginn samkomulag um, hvernig ætti að úthluta því til hafnargerða, sem eiga við sérstaka fjárhagsörðugleika að stríða.
Í 21. gr. er ákvæði um það, að ef hafnabótasjóður tæki lán með gengistryggingu eða með vísitölukjörum, sé heimilt að binda greiðslur vaxta og afborgana af endurláni slíks lánsfjár vísitölu eða gengi á annan hátt. Þetta er hliðstætt því, sem nú er farið að tíðkast hjá sumum öðrum lánsstofnunum, enda verður sjóðurinn einhvern veginn að fá það uppi borið, ef hann verður fyrir slíkum áföllum og getur ekki greitt áföllin af tekjum sínum. Um tekjur hafnabótasjóðsins eru ákvæði í 20. gr. Það er gert ráð fyrir því, að tekjurnar séu tvenns konar, aðallega árlegt framlag ríkissjóðs, ekki minna en 8 millj. kr. Ég man, að við lögðum til í atvinnutækjanefnd árið 1961, að það væri 5 millj. kr. og með tilliti til verðlagsbreytinga ætti það að vera nokkru hærra nú. En hér er gert ráð fyrir öðrum tekjulið. Það er hafnabótasjóðsgjald, er lagt skal á íslenzk skip, 5 rúmlestir brúttó eða stærri, og innheimt einu sinni á ári, kr. 12 á hverja nettórúmlest, svo og öll skip, sem koma frá öðrum löndum til íslenzkra hafna, kr. 12 á hverja nettórúmlest. Skemmtiferðaskip, er aðeins flytja farþega, greiða kr. 3 á hverja nettórúmlest.“ Í grg. frv. segir um 20. gr., að gert sé ráð fyrir því, að tekjur af þessu gjaldi, þessu hafnabótasjóðsgjaldi á skip, nemi 12 millj. kr. árlega, þannig að aðaltekjur sjóðsins verða skv. þessu 8 millj. úr ríkissjóði og 12 millj. hafnabótasjóðsgjald, samtals 20 millj. Þetta gjald eða skattur, sem á að leggja á skip, verður að sjálfsögðu athugaður í n., en ég geri ráð fyrir því, að þeir, sem að því standa, líti svo á, að þetta sé eitthvað hliðstætt benzínskattinum, sem nú er varið til vegagerðar hér á landi. Ég ætla ekki að ræða þetta atriði frekar.
Ég hef þá með þessum orðum gert grein fyrir nokkrum atriðum í frv., sem ég vil beina til hv. n. og þeirra, sem um þetta mál kunna að fjalla í samstarfi, að athuga sérstaklega. Að sjálfsögðu væri það fleira, sem ástæða gæti verið til að minnast á, en ég geri það nú ekki, og ég sleppi sömuleiðis að ræða nánar um sögu þessa máls og meðferð á undanförnum árum. Það mun ég ekki gera, nema tilefni gefist til, en nú sýnist mér mestu skipta, að reynt verði, ef unnt er, að ná samstarfi um þetta mál sem fyrst, ef á annað borð er nokkur tími til slíks samstarfs og tími til að láta frv. ganga fram.