15.04.1967
Neðri deild: 70. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1378 í B-deild Alþingistíðinda. (1219)
181. mál, hafnalög
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Í tilefni af þeirri skrifl. brtt., sem hv. síðasti ræðumaður bar hér fram, vil ég aðeins minna á það, svo sem ég gat um í minni framsöguræðu og hélt, að hefði verið nægjanlega undirstrikað þar, að ástæðan til að frv. þetta er lagt fram nú, þó að seint sé á þinginu og áherzla á það lögð, að það verði afgreitt nú, er fyrst og fremst til komin af því ákvæði, sem nú er eitt eftir af tekjuliðum frv., eins og það er nú orðið, þ.e.a.s. ríkisframlagi, að eðlilegast væri, að það lægi fyrir þegar við samningu fjári. næsta sumar hver fjárþörf í því efni er. Þetta undirstrikaði ég mjög í minni framsöguræðu og tel, að það sé nægjanlegt svar við þeirri fsp., sem óbeint kom fram í framsögu hv. þm. fyrir þessari brtt., hvers vegna frv. væri þá lagt fram nú og áherzla lögð á afgreiðslu þess. Það er einmitt vegna þess, að fjárlög eru samin að sumri til og eðlilegt, að sá hluti, sem ríkið á að standa ábyrgt fyrir í hafnarmálum sem öðru, liggi þá fyrir. Þetta er ástæðan til þess, að frv. var lagt fram, auk þess, sem því var yfir lýst að ósk þessa hv. þm. á síðasta þingi, að nýtt hafnalagafrv. mundi verða lagt fyrir þetta þing. Þessar skýringar vona ég, að nægi til þess að skýra það, að það er eðlilegt, að jafnstór fjárhagsleg aðstoð, sem hugsað er, að ríkið veiti í þessum efnum, liggi fyrir þegar við upphaf samningar nýrra fjárlaga.