18.04.1967
Efri deild: 73. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1384 í B-deild Alþingistíðinda. (1231)

181. mál, hafnalög

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Þetta er eitt þeirra meiri háttar mála, sem fara heldur hraðförum í gegnum hv. Alþ. nú hina síðustu daga þess. Þetta mál hafa hv. alþm. yfirleitt verið sammála um, að felur í sér allveigamiklar breyt. til bóta og þar af leiðandi hefur náðst samkomulag um afgreiðslu málsins í meginatriðum, þrátt fyrir það þótt margir hafi til þess fundið, að það hefur á engan hátt gefizt það tóm til þess að fjalla um þetta mikilvæga mál sem skyldi og skortir þar verulega á. En af hálfu hæstv. ríkisstj. hefur verið lagt á það allmikið kapp að koma þessu máli í höfn og ekki talið gerlegt að bíða með að afgreiða það þangað til á haustþingi, en þá virðist manni, að það skjóti nokkuð skökku við, þegar það á ekki að taka gildi fyrr en í byrjun næsta árs. Nú hefur verið reynt á það einu sinni við 2. umr., að það lá fyrir brtt. um það, að þessi lög öðluðust þegar gildi. Sú brtt. hefur verið felld. Nú vil ég prófa það, hversu mikil alvara er í rauninni með þetta mál, hvort það er bara ofurkapp svona fyrir kosningar að koma þessu máli fremur í höfn núna heldur en á haustþingi. Ég vil prófa það með því að leggja hér fram eina litla brtt. við 28. gr. frv., að gr. orðist svo:

„Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1967“.

Og mér virðist, að það sé nokkur prófsteinn á það, hvort í rauninni sé einhver nauðsyn á því, að þetta mál nái endilega fram að ganga á þessu þingi eða ekki, hvort meiri hl. hv. þm. getur fallizt á þessa litlu till. eða ekki. Þessi till. mín er skrifleg og ég vil biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir henni.