14.12.1966
Sameinað þing: 16. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (124)
1. mál, fjárlög 1967
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það var kannske ekki með öllu óeðlilegt, að hv. 3. þm. Austf., Jónas Pétursson, viki hér að þessu máli, sem ég hafði gert hér að umtalsefni áður. Hann vissi nefnilega um nokkurn hlut, sem hann hafði átt að því máli, sem ég hafði gert hér að umtalsefni, og óttast það kannske, að hann sé ekki með öllu sloppinn frá því. Og það held ég, að ég geti sannfært hann um, að hann er ekki sloppinn frá því.
Hv. þm. reyndi hér að koma því á framfæri, að beiðni okkar um heimavist við gagnfræðaskólann í Neskaupstað væri alveg sérstæð, hún ætti sér ekki fordæmi. Þetta er mesti misskilningur. Þegar ákveðið var að fara þessa leið, að byggja við gagnfræðaskólann í Neskaupstað heimavist, þar sem ekki var aðeins um að ræða heimavist í þrengstu merkingu, heldur einnig mikið viðbótarhúsnæði fyrir skólann, var það samkv. till. fræðslumálastjóra, þar sem hann benti alveg sérstaklega á, að þessi sama leið hefði einmitt verið farin og gefizt með fádæmum vel í Stykkishólmi. Ég minnist þess alveg sérstaklega, að hann nefndi þann stað, þar sem þessi leið hefði verið farin, og hann lagði eindregið til, að þessa leið færum við, vegna þess m.a., að það lá fyrir, eins og hv. þm. sagði hér, að það væri ónógt skólahúsnæði á Austurlandi fyrir unglinga á gagnfræðaskólastiginu. En þannig er sem sagt ástatt á Austurlandi, að þar er aðeins um 2 skóla að ræða, Eiðaskóla og gagnfræðaskólann í Neskaupstað, sem hafa kennslu á þessu skólastigi, og nemendur annars staðar að af Austurlandi verða að leita í þessa skóla og svo í aðra landsfjórðunga. Eiðaskóli hefur verið fullur um langan tíma og ekki getað tekið við nemendum frá mörgum byggðarlögum, og af því hafa þeir m.a. leitað til Neskaupstaðar margir. Nú á þessum vetri eru t.d. um 20 nemendur af öðrum fjörðum, sem auðvitað eru dreifðir í heimahús víða í bænum, en mörgum varð að synja um skólavist. Þetta vissu fræðsluyfirvöldin um, að það var hægt að leysa þennan vanda á þennan hátt, og af því ráðlögðu þau þetta.
En hitt lá svo einnig fyrir, að það var gert ráð fyrir því, að í Neskaupstað einmitt yrði iðnskóli fyrir allt Austurland. En það er eini iðnskólinn á Austurlandi, sem hefur verið rekinn samfellt nú í 23 ár. Í þann skóla verða auðvitað að koma nemendur úr öðrum byggðarlögum á Austurlandi og hafa gert, en það verður einhvers staðar að koma þeim fyrir. Kennslan í iðnskólanum á Austurlandi hefur einmitt farið fram í gagnfræðaskólanum og að verulegu leyti framkvæmd af kennaraliði gagnfræðaskólans. Þessir skólar hafa sem sagt verið reknir saman á þessum stað. Því var beinlínis gert ráð fyrir því í þeirri beiðni, sem lögð var fyrir fjvn., að þessi heimavistarbygging, sem hér um ræðir, yrði einnig fyrir iðnskólastarfsemi í Neskaupstað. En nú er ætlunin að búa þannig um hnútana, að þar skuli vera iðnskóli fyrir allt Austurland, en engin aðstaða má vera á staðnum til þess að taka við aðkomunemendum.
Ég held því enn fram, að hér sé farið á allt annan hátt að með skólamál Neskaupstaðar í þessum efnum en skólamál annarra byggðarlaga. Hér hefur af okkar hálfu verið farið nákvæmlega eftir till. fræðsluyfirvaldanna um fyrirkomulag allt, en það, sem gerir og við höfum svo sem fengið skýringuna á alls staðar, þar sem við höfum þreifað fyrir okkur nú í seinni tíð, er það, að einn þm. býr til þann draug, að hann þykist sjá í því, að ef byggt verði þetta heimavistarhúsnæði í Neskaupstað, geti svo farið, að það verði meiri rök fyrir því, að menntaskóli, sem einhvern tíma síðar meir verði ákveðinn staður á Austurlandi, geti hlotið stað í Neskaupstað. Og þá verða menn að grípa til þess ráðs að reyna að stöðva skólabyggingar í Neskaupstað af þessum ótta. Auðvitað er það hin mesta fjarstæða, að heimavistarbyggingin við gagnfræðaskólann í Neskaupstað ráði nokkrum úrslitum um það, hvar verði ákveðinn staður að lokum fyrir menntaskóla á Austurlandi. Ef það verður vilji stjórnarvalda og Austfirðinga, að hann verði byggður á öðrum stað, er vitanlega öll aðstaða til þess, vegna þess að í þessu tilfelli er aðeins verið að byggja það, sem er nauðsynlegt fyrir gagnfræðaskólann, bæði viðvíkjandi kennslurými hans og aðstöðu fyrir nemendur og aðstöðu fyrir nemendur iðnskólans. Hér er ekki verið að fara fram á neitt annað. En það er sem sagt, að einn maður í fjvn., og svo vill nú til, að það er þm. frá Austurlandi, sem átti hér einnig að vera fulltrúi fyrir Neskaupstað, finnur það út, að ef verður haldið öllu lengra áfram í byggingum yfir skólann í Neskaupstað, geti það orðið hættulegt í sambandi við ákvörðun á stað fyrir annan skóla, sem eflaust er langt í land að ákveða stað fyrir.
Nú er það einnig svo, að það eru ekki aðeins fræðsluyfirvöldin, sem hafa lagt til, að þessi leið yrði farin í sambandi við uppbyggingu þessara skólamála í Neskaupstað. Á Austurlandi eru til samtök með öllum starfandi kennurum þar, Kennarasamband Austurlands. Það hefur gert ýtarlega samþykkt um það og skorað á stjórnarvöld að samþykkja það, að byggð verði þessi heimavistarbygging við gagnfræðaskólann í Neskaupstað. Það voru m.a. kennarar frá Fáskrúðsfirði, sem lögðu fram þessa till., og hún var síðan samþ. þar einum rómi. Og sveitarstjórnarmenn bæði á Eskifirði og Reyðarfirði og í fleiri byggðarlögum fyrir austan hafa gert kröfu um það, að þessi heimavist yrði byggð, af því að þeir leita einmitt til Neskaupstaðar með það að koma börnum sínum þar í skóla.
Svo var að heyra á þessum hv. þm., að hann hefði nokkrar áhyggjur af því, að við stæðum nú í ýmsu öðru þarna í Neskaupstað í sambandi við okkar skólamál, þar væri verið að byggja íþróttahús og þar væri einnig sköpuð heimild til þess, að það mætti gera nokkra viðbyggingu við barnaskólann þar, og veitt er nú til þess hvorki meira né minna en 370 þús. kr. á þessu fjárlagafrv. En mér er óhætt að fullyrða það, enda hefur það komið alveg greinilega fram frá hálfu yfirvalda í Neskaupstað, að þessi þm. þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af fjármálum okkar þar um, að við getum drifið áfram okkar skólabyggingar, ef við bara fáum leyfi til þess að byggja þær. Við höfum einmitt lýst því yfir, að við vildum gjarnan ráðast í þessa byggingu, ef við gætum fengið heimild menntmrh. til þess, þó að ekki væri um að ræða neina fjárveitingu frá ríkinu. En það hefur verið verk þessa hv. þm. að koma í veg fyrir það, að við gætum fengið þessa heimild. Ég hef því ekki hallað réttu máli hér í sambandi við þetta mál, og tilburðir þessa hv. þm. til þess að reyna að leiða athyglina að einhverju öðru þessu óviðkomandi varðandi skólamál á Austurlandi breyta hér litlu um, upptalning á því, að nú hafi komizt inn í fjárlagatill. upphæðir eins og til barnaskólabyggingar á Eskifirði, þar eigi að byggja nýtt skólahús sem að vísu er ekki farið að teikna enn þá, því miður, og það eru ætlaðar í fjárlagafrv. 250 þús. kr. til þess mannvirkis, — það er vitanlega sjálfsagt að telja það fram, þegar hv. þm. reynir að gera sig góðan í þessum efnum, — og til byggingar á nýju barnaskólahúsi á Seyðisfirði í staðinn fyrir 50 ára gamalt barnaskólahús, sem þar er, þar er líka varið 250 þús. til þess, og til viðbyggingar við barnaskólann á Eiðum 250 þús. Það er nú annað hvort, að menn telji þetta fram. Þetta eru minnstu fjárhæðir, sem veittar eru í nokkru tilfelli til framkvæmda, enda vitað, að það stendur þannig á í öllum tilfellum, að það er ekki hægt að hreyfa sig þar. Undirbúningur hefur ekki farið fram. En þar sem allur undirbúningur hafði farið fram og menn voru tilbúnir til þess að fara í framkvæmdir og leysa nokkuð af aðkallandi málum varðandi skólamálin á Austurlandi, þar þurfti að setja löppina fyrir.
En það hefur víst ekki mikið upp á sig að ræða þetta mál miklu meira hér. Það verður eflaust rætt annars staðar og kannske ekki minna af flokksmönnum þessa hv. þm. á réttum stað heldur en af mér.