17.04.1967
Neðri deild: 71. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1453 í B-deild Alþingistíðinda. (1283)

159. mál, skólakostnaður

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Áður en ég vík að frv. því til skólakostnaðarlaga, sem hér liggur nú fyrir til 3. umr., vil ég lítið eitt víkja að þinghaldinu og ekki sízt að gefnu tilefni frá hæstv. dómsmrh. hér við útvarpsumr. fyrir nokkrum kvöldum. Hér er á ferðinni frv., sem snerta mun hvert einasta sveitarfélag á landinu, frv., sem raunverulega snertir hvert einasta heimili í þessu landi. Það er til 3. umr. í fyrri d. og það eru tveir dagar til þingslita. Ég verð að segja það, að þegar þannig er að málum staðið, treystir hæstv. ríkisstj, mikið á það, að hv. þm. séu geðlitlir og þægir til afgreiðslu mála, þegar svo stórt mál sem þetta er sett inn til afgreiðslu á þinginu síðustu daga þess.

Það kemur fram í grg. þessa frv., að n. sú, sem fékk málið til meðferðar, hafði það í eitt ár. Í n. voru menn, sem gerla þekktu til málsins og vissu því góð skil á því og áttu að kunna vel til verks. Þegar þeir afgreiddu málið frá sér samkv. ósk ráðh., létu þeir fylgja þá umsögn, að þeir hefðu ekki lokið við að vinna málið, þó að þeir hefðu verið í heilt ár með það. Síðari n., sem fékk málið til meðferðar, var upp undir ár með það einnig. En þm., sem eiga að fjalla um þetta mál, eiga að afgreiða það með atkv. sínu, þeir eiga að fá nokkra daga til þess. Þannig er að málum staðið. Ég minnist þess frá mínu fyrsta þingi hér fyrir 11 árum, að þá var stjórnarandstaðan svo hörð, að hæstv. núv. forsrh., formaður Sjálfstfl., smalaði sínu þingliði niður í forsal í Alþingishúsinu og lét það sitja þar til þess að reyna að gera óstarfhæfa fundi hér uppi í hv. d. Það var þó snemma á þingi. Hvað hefði þá hæstv. ráðh. gert nú í stjórnarandstöðu? Ef við í stjórnarandstöðunni hefðum smalað þingliðinu burt úr þingsölum síðustu dagana, hefði orðið lítið um afgreiðslur hér í þessum hv. d. Stjórnarsinnar hafa ekki setið svo á fundum þingsins, að þeir hefðu með sínum atkv. getað komið málum þar fram. Þeir hefðu þá a.m.k. orðið að breyta um. Og samt er hér verið að fjalla um stórmál eins og skólamálin og hafnarmálin, sem taka til allra landsmanna.

Nú ætla ég ekki að fara að hæla þeim vinnubrögðum, sem viðhöfð voru í stjórnarandstöðu hjá Sjálfstfl., að smala þingliðinu út úr deildunum, þegar það á að sitja þar að störfum. En það verður líka á það að líta, að þm. sé gefinn eðlilegur tími til þess að fjalla um önnur eins stórmál og það, sem hér er á ferðinni.

Um málið vil ég svo segja það, að ég tel mig fara með rétt mál, þegar ég held því fram, að það hafi aldrei verið afgreiddur lagabálkur í skólamálum hér á landi slíkur sem þessi, að staða sveitarfélaganna gagnvart ríkinu hafi ekki verið bætt. Öll þróunin hefur gengið í þá átt, að hlutur ríkissjóðs í fræðslumálunum í landinu hefur vaxið. Nú er gerð grein fyrir því hér í grg. frv. og af hæstv. menntmrh., að það sé ekki gert ráð fyrir því með þessu frv., að staða sveitarfélaganna batni gagnvart ríkinu, heldur eigi hún að vera svipuð og áður hefur verið. Hér er því um nokkurt nýmæli að ræða, því að það hefur alltaf verið reglan, að staða sveitarfélaganna gagnvart ríkinu hefur breytzt þeim í hag við lagasetningu hér á hv. Alþ. á borð við þessa.

Það, sem hæstv. menntmrh. taldi höfuðkosti þessa frv. — og fram er tekið einnig í grg. frv., — var, að málið væri nú gert einfaldara og betra í meðferð og auðveldara í framkvæmd. Hvernig er svo frv. sjálft viðvíkjandi þessu atriði? Hvernig er 20. gr. frv.? Höfuðmenn í þessum málum, Torfa Ásgeirsson í Efnahagsstofnuninni og Aðalstein Eiríksson, sem staðið hefur fyrir skólaeftirlitinu um tugi ára, greindi svo á, að þeir urðu að taka sér tíma í það tveir einir að reikna út 20. gr. og sannfæra sig um, hvernig hún mundi koma út í skiptum ríkis og sveitarfélaga, þessir tveir höfuðspekingar, sem eru þó skýrleiksmenn hinir mestu. 20. gr., sem er þó mergur málsins í samskiptum ríkis og sveitarfélaga, er sem sé ekki auðveldari í framkvæmd en það í lagafrv., sem á að gera málið einfaldara en það er nú í gildandi l., að þessa höfuðspekinga greinir á. Enda hygg ég, að ef t.d. ætti að fá þá hv. alþm., sem sátu í menntmn. Ed. og hafa unnið mikið í þessum málum, til þess að sýna glögga útreikninga um framkvæmd á þessari grein, mundu þeir ekki geta það. Hún er ekki auðveldari eða einfaldari en þetta. Þess vegna verð ég að segja það, að ef það er mergur málsins í lagafrv. að gera það einfaldara, en höfuðgreinin er svona flókin, þá er nú erfitt að skilja, hvað átt er við með því einfalda.

Nú kemur það fram í grg. þessa frv., að þróunin hefur orðið sú á síðari árum, að það hefur meira og meira verið gengið á hlut sveitarfélaganna. Ríkisþátttakan í kostnaðinum hefur á síðustu árum orðið hlutfallslega minni en áður hefur verið. Af hverju er þetta? Það er vegna þess, að ríkið sjálft hefur haft þessa framkvæmd til meðferðar, og það hefur í sínum útreikningum og úrskurðum séð til þess, að niðurstaðan hefur orðið því í vil. Hvernig verður svo þetta atriði í framkvæmd, þegar þeir eiga um að fjalla, sem mestra hagsmuna eiga að gæta, sem er ríkið, þegar það hefur dómsorðin í þessu, en hinn aðilinn, sveitarfélagið, hefur miklu verri aðstöðu til þess að fylgjast með, að ekki sé á þeirra hlut gengið, eins og sýnt hefur sig síðustu árin? Til þess að gera þessi mál einföld, þurfti ekki að setja upp flókna reglu, heldur gera einfaldlega grein fyrir því, að ríkið greiddi þeim kennurum, sem samþykktir voru af fræðslumálastjórninni sem fastir kennarar, eða þá stundakennslu, sem skólarnir fengju að hafa. Þannig verður þetta að vera í framkvæmdinni, ef það á að verða raunveruleikanum samkv., að ríkið greiði kennslukostnaðinn eins og um er talað.

Annað atriði, sem hæstv. ráðh. taldi frv. til gildis og einnig kemur fram í grg. þess, er það, að byggingartími skólabygginga sé styttur og fjárveitingar til stofnkostnaðar séu veittar á styttri tíma en áður hefur verið. Ákvæði gildandi l. þar að lútandi eru um 5 ára tímabil. Nú hefur það verið svo í framkvæmdinni, að kostnaður við þessar skólabyggingar, sem hafa verið í framkvæmd síðustu árin, hefur yfirleitt farið langt fram úr áætlun. Sumt af þessu hefur stafað af því, að verðlag í landinu hefur mjög hækkað og í öðru lagi hefur þetta stafað af því, að áætlunin hefur ekki verið svo raunhæf sem skyldi. Nú hefur verið gripið til þess ráðs á Alþ. að leiðrétta áætlanir á byggingartímabilinu, er augljóst hefur verið orðið, að fyrri áætlun fengi ekki staðizt, og einnig hefur verið gert í því að reyna að taka tillit til verðhækkana. Þetta var í tvö ár, sem gert var verulegt átak í þessu að leiðrétta á byggingartímabilinu og taka tillit til verðhækkana. En við afgreiðslu tveggja síðustu fjárl. hefur þetta ekki fengizt, vegna þess að hæstv. ríkisstj. hefur neitað um fé, sem til þess arna þurfti. Það hefur þýtt það, að ekki hefur verið farið að leiðrétta eða taka tillit til verðhækkana fyrr en 5 ára tímabilið hefur verið liðið. Og þannig hefur fjárveitingatímabilið orðið 8 ár í staðinn fyrir 5. Það sýndi sig hins vegar á fjárl. fyrir árin 1964–1965, að það var hægt með gildandi l. að leiðrétta þetta, ef fjárveiting fékkst til. Nú er það vel, ef byggingartíminn verður styttur og fjárveitingatíminn verður styttur, en þá verður að vera til fé til þess að veita á fjárl., til þess að þetta sé framkvæmanlegt. Síðustu árin hefur það ekki verið talið framkvæmanlegt af fjárskorti. Ég gleðst yfir því, ef þarna verður á breyt., og ég tel, að þetta ákvæði frv. sé mjög til bóta, ef það verður framkvæmt með þeim hætti, sem gert er ráð fyrir í frv. og talað er um í grg. En ég segi einnig, það var hægt eftir gildandi l. að framkvæma þetta betur en nú á fjárl. 1966 og 1967, og það var gert á árunum 1964–1965.

Þriðja nýmælið í frv. er að stofna sérstaka byggingadeild til þess að undirbúa eða hafa eftirlit með áætlunargerð og með framkvæmd verksins. Á þessi byggingadeild að vera í menntmrn., sem á að framkvæma þetta. Í sambandi við þetta atriði er líka tekið upp það nýmæli, að þessi byggingadeild á að ákveða, hvað kosti að byggja barnaskóla fyrir svo og svo marga nemendur í heimangönguskólum eða í heimavistarskólum, og fjárveitingin á svo við það að miðast, og við á svo að bæta á byggingartímabilinu þeim verðhækkunum, sem verða, en hins vegar á ekki að breyta því, þó að áætlunin reynist óraunhæf. Ef menn byggja stærra og finna eins og talað er um í grg. frv., kosta þeir það sjálfir, en sem sagt, breytingar verða ekki á kostnað ríkisins, hvorki að áætlun eða að formi til.

Um þetta atriði vil ég segja það, að ég hef nokkra reynslu af stofnkostnaði skóla í framkvæmd og áætlunargerð við undirbúning þeirra. Ég minnist sérstaklega eins skóla, Laugagerðisskóla, sem í upphaflegri áætlun átti að kosta 4–6 millj. kr. Þegar svo komið var að því að byggja skólann og gengið var í að gera nýja áætlun, hækkaði sú áætlun upp í 12–14 millj. kr. Það var mikið áhyggjuefni hv. þm., sem um þetta mál fjölluðu, að þar var raunverulega komið til nýtt mál og allt miklu veigameira en áður hafði verið.

Ég sat þá ásamt öðrum þm. Vesturlandskjördæmis og þeim, sem fjölluðu um skólamál í fjvn., sérstakan fund með forráðamönnum skólamála, arkitektinum og fleiri aðilum, sem að undirbúningi Kolviðarnesskólabyggingarinnar höfðu unnið. Ég minnist þess, að ég spurði um það þá sérstaklega, hver væri ástæðan fyrir þessari gífurlegu breytingu, hvort skólahúsinu sjálfu hefði verið breytt, svo að hér væri komið nýtt mál eða hvað það væri, sem leitt hefði til þessarar hækkunar. Arkitektinn svaraði því þá til, að það, sem fyrst og fremst væri hér á ferðinni, væri það, að þessi teikning væri fullunnin. Hann var með mikla og myndarlega og vel gerða bók, þar sem hann lýsti verkinu og atriðum þess hverju fyrir sig.

Og hann sagði við okkur: Nú getið þið treyst þessari áætlun, sem þið eruð með í höndunum, en áætlunin, sem þið byggðuð upphaflega á, var bara búin til með því að taka blýant og margfalda rúmmetrafjöldann og var því óraunhæf.

Þetta var um miðjan vetur. En um vorið var verkið boðið út og það var boðinn út 1. áfanginn, sem var að gera húsið fokhelt. Það var auðveldasti áfanginn í byggingu og raunverulega ódýrasti og sá, sem bezt er að áætla. Lægsta tilboðið, sem kom í þetta verk, var verulega hærra en áætlunin gerði ráð fyrir. Og embætti húsameistara ríkisins mælti með því, að tilboðinu væri tekið, en vildi ekki fallast á, að verkið yrði unnið í tímavinnu. Þó fór þessi fyrsti áfangi verulega fram úr áætlun þeirri, sem var búið að útskýra, að væri vel unnin og sýndi, hvað mundi verða. Skólinn fór svo sjálfur einar 6 millj. fram úr áætluninni.

Hvernig hefði farið fyrir hreppunum á sunnanverðu Snæfellsnesi, sem hefðu byggt þennan skóla eftir áætlun? Ég fullyrði, að það var embætti húsameistara ríkisins og arkitektinn, sem teiknaði verkið og sá um framkvæmdina, sem réði mestu um framkvæmdina. Verkið er myndarlega og vel af hendi leyst og honum á margan hátt til mikils sóma, því að þetta er glæsileg bygging, en hefði þetta verk verið reiknað út eftir því normi, sem hér er talað um, og verið gerð sú áætlun, að Laugagerðisskóli skyldi byggður fyrir 14 millj. kr., stæðu hrepparnir nú uppi með einar 6 millj. kr., sem þeir ættu að greiða að sínum hlut, vegna þess hvað áætlunin var fjarri raunveruleikanum. Þess vegna skulum við gera okkur grein fyrir því, að hér er á ferðinni mál, sem getur valdið okkur höfuðverk síðar meir. Þetta mál er ekki svo auðvelt og einfalt og ljóst, að við getum ekki fengið verulegan fjárhagsskell fyrir heimabyggðirnar einmitt í sambandi við þessa framkvæmd. Og hér kemur það fram, sem einkennir þetta frv., að ríkisvaldið tryggir sinn rétt í öllum tilfellum. Hins vegar skal ég taka undir það, að ríkisvaldið verður auðvitað að tryggja sinn rétt og sjá um, að ekki sé farið út í óhóf og vitleysu. En ég minni á, að ríkisvaldið og embætti húsameistara, sem hefur verið hinn tæknilegi aðili í þessu, og eftirlitsmennirnir hafa í fleiri tilfellum ráðið miklu meira en heimamenn. Ég vil líka minna á, að það er ekki sama, hvar skóli er byggður. Mér er sagt, að í skólanum á Hallormsstað muni fæðiskostnaður og ferðakostnaður smiða vera orðinn um 1 millj. kr., því að þegar skóli er byggður eins og Laugagerðisskóli, Leirárskóli eða Hallormsstaðarskóli, á stöðum, þar sem alla þá menn, sem vinna verkið, verður að fá að, þá eiga þeir rétt á að fá fríar ferðir og frítt fæði og greidd ferðalög heim til sín eftir þar að lútandi samningum. Af þessu leiðir, að þessir skólar verða auðvitað margfalt dýrari vegna þess arna. Ef á svo að fara að segja, að heimavistarskóli eða skóli af þessari gerð með þetta marga nemendur, kosti normalt þetta eða þetta, þá er ekki rétt að staðið, ef ekki er tekið tillit til, hvernig aðstæðurnar eru. Þess vegna hefur þetta atriði vafalaust sína kosti, en það hefur verulega áhættu í för með sér.

Þá er það nýmæli í frv., að íþróttabyggingar, s. s. íþróttahús og sundlaugar, skulu styrktar eins og skólabyggingar væru, að því leyti sem þær henta skólum. Á seinustu árum hefur meira og meira verið gengið inn á þá reglu í sambandi við fjárveitingar, að styrkja bæði íþróttahús og sundlaugar sem skólamannvirki. Hefur þetta m. a. stafað af því, að fjárhagur íþróttasjóðs hefur verið svo þröngur, að hann hefur ekki getað sinnt þessu verkefni. Er það því til bóta.

Þá er það nýmæli í þessu frv., að upp skuli tekin listskreyting í skólum að hæfilegu marki. Það tel ég til bóta og tel, að það muni verða til þess að gera þessi skólaheimili ánægjulegri og vekja áhuga nemenda og kennara fyrir fögrum listum, sem er hin mesta nauðsyn. Þá kem ég að því atriðinu, sem ég tel nú allra fráleitast, en það er, hvernig búa á að héraðsskólunum samkv. þessu frv. Staða þeirra í skólakerfinu er í raun og veru alveg óbreytt frá því, sem hún var, þegar sú breyt. var gerð, að þeir voru gerðir að ríkisskólum og ríkið tók þá að sér sem sína eign kvaðalaust, eins og það er orðað.

Hæstv. ráðh. hefur talað um það, að staða héraðsskólanna verði í raun og veru áfram sú sama og verið hefur, þannig að þeir verði ríkisskólar áfram eins og þeir hafa verið nú síðustu árin, og mun ég koma betur að því síðar, en hann taldi, að sú breyt., sem gerð væri á héraðsskólunum núna með þessu frv. frá gildandi l., væri gerð til þess að menn sætu við sama borð gagnvart gagnfræðaskólum, hvort sem það væru héraðsskólar eða heimangönguskólar. Það mætti ekki veita þeim, sem að héraðsskólunum stæðu, forréttindi fram yfir annað fólk í landinu. Þeir yrðu að sitja við sama borð og þess vegna væri breytingin gerð.

Í þessu sambandi vil ég víkja að því, hvaða fólk það er, sem stendur að héraðsskólunum. Það er fólkið í hinum dreifðu byggðum. Það er fólkið, sem verður að senda börnin sín á heimavistarbarnaskóla, þegar þau fara í skólann. Það er fólkið, sem verður að hafa margfaldan kostnað af barnafræðslunni, vegna þess að barnið fer í heimavistarskóla, en gengur ekki heiman frá heimili sínu í skólann. Það ætti að vera öllum ljóst, hver sá reginmunur er á því fyrir þá, sem í þéttbýli búa og geta látið barn sitt ganga heiman frá sér að morgni og koma heim eftir hverja kennslustund, þegar henni er lokið í skólanum, njóta heimilisins og njóta fæðis, húsnæðis og umhyggju á heimilinu eða senda það burt frá sér og borga með því í heimavistarbarnaskólann. Það er þetta fólk, sem stendur að héraðsskólunum. Það er þetta sama fólk, sem verður að senda börn sín í gagnfræðaskóla, einnig í heimavistarskóla eða í bæina og kosta þau þar. Þetta fólk hefur frá því, að barnið fer að sinna barnalærdómi og þangað til það hefur lokið sínu námi svo margfaldan kostnað og margfalt verri aðstöðu til skólagöngunnar í landinu en þéttbýlisfólkið, að það þolir engan samanburð: Þetta er fólkið, sem verður að sætta sig við það, að börn þess fái 4–5 mánaða kennslu árlega, þegar við, sem í þéttbýlinu búum, látum börn okkar njóta þar 8–9 mánaða kennslu. Það er þetta fólk, sem hæstv. menntmrh. taldi forréttindafólkið, fólkið, sem verður að búa við það að fá helmingi minni kennslu fyrir barn sitt á barnafræðslustiginu fyrir margfalt meiri kostnað en hinir, sem búa við heimangönguskólana. Þannig er þetta í raunveruleikanum. Þetta er fólkið, sem hefur staðið að héraðsskólunum. Þetta er fólkið, sem hér á hv. Alþ. er kallað forréttindafólkið. Það er fólkið, sem fær hálfa kennslu fyrir börn sín miðað við hina.

Hér er of langt gengið og hér er hlutunum raunverulega snúið við. Það er ekki óeðlilegt, þegar þetta er haft í huga, þó að héraðsskólarnir séu kostaðir af ríkinu og þetta fólk þurfi ekki að greiða þar sérstök gjöld vegna veru barna sinna þar í gagnfræðaskóla.

En hvernig verður svo staða héraðsskólanna eftir þessa breytingu? Hæstv. ráðh. segir: Þeir verða ríkisskólar eftir sem áður, ríkið á þá. En þetta verða ríkisskólar, sem í raun og veru enginn vill sinna, eiga eða hugsa um. Þannig verður staðan. Meðan héruðin áttu skólana, voru þó tengsl á milli þeirra og skólanna. Með því að afhenda ríkinu skólana og láta svo ríkið setja þá á vonarvöl eins og gert er með þessu lagafrv., verður þetta eins og fátækraframfæri.

Í 14. gr. frv. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Ríkissjóður greiðir allan stofnkostnað vegna þeirra framkvæmda, sem að áliti rn. eru nauðsynlegar við eftirtalda heimavistarskóla gagnfræðastigs, enda sé miðað við núverandi stærð og nemendafjölda.“

Og svo eru taldir upp skólarnir. Af því, sem segir í grg. frv. um þetta atriði, sjáum við, hvað rn. telur nauðsynlegt í sambandi við þessa skóla, og vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa það upp orðrétt:

„Samkv. heimild í l. nr. 34 1962 hefur ríkissjóður tekizt á hendur að greiða einn stofn- og rekstrarkostnað þeirra héraðsskóla, sem þess hafa óskað. Í frv. er gert ráð fyrir, að ríkissjóður ljúki á sinn kostnað öllum þeim byggingum við héraðsskólana, sem eru í smíðum, en síðari viðbætur eða nýir skólar lúti sömu greiðslureglum og aðrir gagnfræðastigsskólar.“

Í þessu sambandi vil ég spyrja hæstv. menntmrh.: Hvað er átt við hér með orðunum „er í smíðum“? Ég vil taka eitt dæmi. Héraðsskólinn í Reykholti hefur fengið fjárveitingu til íþróttahúss á undanförnum þingum. Fjárveiting þessi hefur verið það lítil, að ekki hefur verið hægt að hefja verkið. Það er óhafið enn og eftir venjulegri skýringu á orðunum „í smíðum“ mundum við segja, að íþróttahúsið í Reykholtsskóla væri ekki í smíðum, því að verkið er ekki hafið. Þýðir þá þessi útskýring á greininni, að þetta verk kosti ríkissjóður? Í 14. gr. segir: „að áliti rn.“ og er ekki ástæða til að ætla, að í grg. komi fram túlkun rn. á því, hvað það er, sem það raunverulega telur sig eiga að leysa af hendi? Og eftir þeim skýringum, sem koma hér fram í grg. frv., er það það, sem hafið er og nú er í smíðum, en ekki frekari byggingar.

Svo kemur annað atriði í sambandi við þetta mál, og það er það, hver á að vera hlutur mótaðilans í sambandi við framtíðarbyggingar við þessar stofnanir. Eftir orðanna hljóðan og eins og ég skil frv. tel ég, að reglan um 85% og 100% hlutdeild ríkisins í heimavistalrými barnaskóla og unglingaskóla eigi aðeins við skyldustigið. Sé hins vegar um gagnfræðaskóla að ræða, sé það 50% ákvæðið, sem á að gilda. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðh.: Er þetta þannig, að þær byggingar, sem ekki teldust að dómi rn. tilheyra ákvæði 14. gr., eigi að koma undir 50% ákvæði stofnkostnaðar? Þetta treysti ég nú hæstv. ráðh. til þess að upplýsa mig um á eftir, því að hér er um veigamikið atriði að ræða. Mér sýnist, að með þeirri aðferð, sem hér er viðhöfð, sé verið að setja þessar stofnanir á fátækraframfæri, eins og ég tók fram áðan, og þeim sé raunverulega ætlað að veslast upp.

Sýslufélögin, sem stóðu að þessum stofnunum áður, eiga ekki að taka við þeim, eftir orðanna hljóðan, og munu ekki gera það. Heimasveitirnar, smásveitir, við getum hugsað okkur Reykholtshrepp, geta ekki staðið að stofnun eins og Reykholtsskóla. Mýrahreppur getur ekki staðið að stofnun eins og Núpsskóla. Þess vegna er það ákvæði gagnfræðaskólalaganna óhugsandi, að sveitin, sveitarfélagið eða bæjarfélagið, sem þessi stofnun er í, sé mótaðili í þessu tilfelli, enda á engan hátt réttmætt, og ég hef sýnt fram á það með rökum, að aðstaða þess fólks til menntunar, sem hefur notað héraðsskólana mest, er svo miklu verri en annarra í þessu landi, að það er ekki ástæða til að gera hlut þeirra verri en áður var.

Ég vil líka minna á það, að héraðsskólarnir hafa verið mikil lyftistöng í menningarlífi íslenzku þjóðarinnar. Þeir standa margir á frægum sögustöðum, stöðum, sem hafa lyft þessari þjóð raunverulega í æðra veldi. Ég minni á stað eins og Reykholt í Borgarfirði. Hver er ástæðan fyrir hinni miklu tryggð og vináttu, sem Norðmenn hafa sýnt okkur? Það er fyrst og fremst minningin um Snorra Sturluson. Norðmenn hafa sýnt okkur æ ofan í æ margvíslegan sóma, en Reykholt hefur lítils af þessu notið nema þess, sem þeir hafa ráðið sjálfir. Þegar Ólafur Noregskonungur kom hér og færði Íslendingum þjóðargjöf í tilefni af komu sinni, gekk ég fyrir einn æðsta mann í þessu landi og leitaði eftir því, að Reykholt nyti nú einhvers af, af því að þeim manni var jafn ljóst og mér, að það var einmitt Reykholt, staðurinn, sem tengdi okkur við Norðmenn. Nafn Snorra Sturlusonar er það, sem Norðmenn muna umfram annað. Ég gerði mér vonir um það eftir þá ferð, að eitthvað yrði gert af hálfu stjórnarvalda, sem Reykholt mundi njóta og sæist í Reykholti síðar meir. Ég hef orðið fyrir vonbrigðunum einum. Það var ekki einu sinni hægt, þegar skógræktin í landinu fékk þessa gjöf Norðmanna óskipta, — þá var ekki einu sinni hægt að láta skógræktina í landinu sjá um Snorragarð í Reykholti, heldur var verið að mylgra í hann 10 þús. kr. á ári, með eftirtölum þó. Þannig er reisnin, þannig er myndarskapurinn yfir hæstv. ríkisstj. og ráðamönnum í landinu gagnvart stað eins og Reykholti í Borgarfirði.

Fyrir nokkrum árum var sett hér, samkv. þál. frá mér og hv. 5. þm. Vesturl. nú, Benedikt Gröndal, sérstök Reykholtsnefnd, sem hv. 5. þm. Vesturl. á setu í. Hvað gerir hún nú til varnar héraðsskólanum í Reykholti? Hv. form. menntmn. Nd. stendur að áliti meiri hl. um að koma þessu máli í gegn. Það fer þó svo, að eftir þessa breyt. verður Reykholt komið á nokkurs konar fátækraframfæri, sem enginn á og enginn virðir. Svo kemur hæstv. ráðh. og segir hér: Það á að bjarga þessu öllu með því að senda reikninga til heimasveita nemendanna. Geðslegt verður það.

Hæstv. ráðh. telur sig hafa fyrir því orð sveitarstjórnarmanna, að þeir öfundist yfir því, að héraðsskólarnir skuli njóta forréttinda, fólkið í þeim byggðum, sem verður að sætta sig við það, að börn þess fái hálfa kennslu á við börn þéttbýlisins í barnaskóla, eins og nú er, það nýtur forréttindanna. Og þess vegna fagni sveitarstjórnarmenn þessum breytingum. Nú hefur það verið svo á öllum þeim ráðstefnum sveitarfélaga, sem ég hef tekið þátt í, að sveitarstjórnarmenn hafa alltaf keppt að því að gera samskipti sveitarfélaganna eins einföld og ágreiningslítil og hægt væri. Hvernig halda hv. alþm., að þetta muni svo verka og hafið þið, hv. stjórnarsinnar, gert ykkur grein fyrir, hve þetta mál er stórt? Vitið þið, að fjárhæðin, sem þið eruð að reyna að koma af ríkinu, er svona 4–5 millj. kr.? Það munar um það á 5 milljarða fjárl. Mér sýnist, að tilhneigingin með þessu frv. sé að reyna að koma yfir á þá, sem standa að héraðsskólunum, því, sem hugsanlegt er, að ríkið verði að greiða meira. Þess vegna einkennist þetta frv. af því, að sjónarmið ríkisins er eitt ráðandi og hvernig á þetta svo að vera í framkvæmd? Það á að senda reikninga heim í sveitarfélögin, þaðan sem krakkarnir koma. Hvernig verkar þetta?

Valfrelsi, sagði hæstv. forsrh. í ræðunni austur undir Eyjafjöllum, valfrelsið kýs þjóðin, valfrelsið vill þjóðin hafa. Valfrelsi unglinganna til að velja á milli skóla. Við erum með gagnfræðaskóla í Borgarnesi. Við höfum af honum kostnað og stöndum undir því. Haldið þið, að það verði ánægja hjá okkur, þegar við förum að fá reikninga frá Reykholti, Reykjum í Hrútafirði eða austan af Eiðum eða hvaðan sem er vegna nemendanna, sem fóru þangað, og svo vantaði okkur nokkur sæti í gagnfræðaskólanum. Við skulum bara hugsa okkur hlutina alveg eins og þeir eru. Við erum það mannlegir, að við lítum bara á hlutina, eins og þeir liggja fyrir, við kærum okkur ekki um að borga skólagjöld á þessum stöðum, ef við hefðum rými fyrir þessi börn í okkar gagnfræðaskóla. Hæstv. ráðh. segir: Þetta er ósköp einfalt og þægilegt í meðförum. Það á bara að taka þetta af fjárveitingunni eða fræðslumálastjórnin dregur þetta frá, þegar hún greiðir Pétri það, sem hann átti að borga til Páls. Þannig á þetta að vera.

Ég vil benda á það, að nú fara nemendur úr Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, úr Hvammssveit í Dalasýslu, úr Leirársveit í Borgarfirði, svo að ég taki þau dæmi, sem ég þekki bezt, í gagnfræðaskólann í Reykholti eða Reykjum í Hrútafirði eða hvað sem er. Nú koma þessar kröfur til fræðslumálaskrifstofunnar um það, að þessar sveitir eigi að greiða vegna barna í þessum skólum þessa fjárhæð. Og þá á fræðslumálaskrifstofan að taka þetta af fjárveitingu til viðkomandi staða. En nú er staðreyndin þessi, að fræðslumálaskrifstofan greiðir ekki Hvammssveit í Dalasýslu, ekki Leirársveit í Borgarfirði eða Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi kostnað vegna skálahalds, vegna þess að þessir skólar eru í samfélagi með skólunum að Sælingsdalslaug í Dölum, að Laugagerði í Eyjahreppi og að Leirá í Leirársveit. Þetta skólahérað, Laugagerðisskólahérað, fær greiðsluna, og það hefur enginn rétt til þess að taka af greiðslu til Laugagerðisskóla, þá greiðslu, sem Miklaholtshreppur á að greiða. Þess vegna er málið heldur ekki einfalt í framkvæmd, vegna þess að það liggur ekki beint fyrir: Og haldið þið, að skólastjórarnir á þessum stöðum, sem flestir eru reikningshaldarar, fari að innheimta skólagjöld til annarra. staða gegnum sín fjárlög? Haldið þið, að það sé of auðvelt hjá þeim eins og það er, þótt þessu sé ekki á bætt? Auk þess er svo þess að geta, að það er sett upp sérstök regla um það í frv., hvað megi innheimta hátt skólagjald af nemendunum og það á t.d. úr Borgarnesi að miðast við það, sem væri meðalkostnaður á nemanda í gagnfræðaskólanum þar. Hvernig fer um mismuninn, sem er á milli hins raunverulega kostnaðar og þessa kostnaðar? Hver á að greiða þann mismun, sem er á hinum raunverulega kostnaði og þessum áætlaða kostnaði? Það er ekkert ákvæði í frv. um það og það er enginn aðili, sem er skyldur til að gera það. Þess vegna segi ég, að með þessari aðgerð er verið að koma héraðsskólunum á fátækraframfæri. Það er frelsið, sem sé valfrelsi nútímans, að það verður í raun og veru í framkvæmdinni þannig, að héruðin fari að gera í því að banna börnum að sækja aðra skóla en heima hjá sér. (Forseti: Ég vil spyrja hv. þm., hvort hann vilji ljúka ræðu sinni eða fresta henni, þar sem fundartíma er lokið.) Ætli það sé ekki eðlilegt að taka matinn fyrst, ég á það mikið eftir.