17.04.1967
Efri deild: 71. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1480 í B-deild Alþingistíðinda. (1297)
159. mál, skólakostnaður
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason): Herra forseti. Þetta frv. er komið frá hv. Nd. og var samþ. þar síðdegis í dag með 30:3 atkv. Nokkur ágreiningur reyndist bæði í n. og í d., fyrst og fremst um eitt atriði frv., þ.e.a.s. þann þátt þess, að framvegis skuli ríkið ekki greiða allan stofn- og rekstrarkostnað svonefndra héraðsskóla, heldur skuli sveitarfélög taka þátt í rekstrarkostnaði og framhaldsstofnkostnaði þeirra eftir sömu reglum og gildir almennt um unglinga- og gagnfræðaskóla, þó þannig, að kostnaðarhlutfall sveitarsjóða sé greitt af heimasveit nemenda, sem í héraðsskólanum stunda nám. Jafnframt var það dregið í efa af hálfu hv. þm. Austf., að ákvæði frv. um það, að þessar reglur, sem ég nú var að lýsa, skyldu einnig gilda um Eiðaskóla, gætu staðizt vegna samnings, sem 1917 var gerður milli Múlasýslna og ríkisins og síðan var staðfestur með l. Vegna þessa ágreinings þótti ríkisstj. ekki rétt að halda í frv, og láta koma til atkv. ákvæðið um Eiðaskóla, heldur skyldi það mál skoðast frá lögfræðilegu sjónarmiði í sumar og koma þá aftur til kasta þingsins á næsta hausti og jafnframt þótti ríkisstj. þá ekki heldur rétt að leggja til, að lögfest yrði sú breyting á aðstöðu héraðsskólanna, sem ég gat um áðan, enda er Eiðaskóli í raun og veru eign þeirra, og flutti ég því þá brtt. við frv., að öll ákvæði frv., sem breyta stöðu héraðsskólanna, skyldu tekin úr því. Í frv. var einnig samkv. sérstakri ósk stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga ákvæði um, að ef í gagnfræða eða unglingaskóla væri nemandi úr öðru sveitarfélagi en því, sem annast rekstur skólans, væri rekstrarsveitarfélagi skólans heimilt að innheimta gjald fyrir hann hjá heimasveit nemandans, og þetta ákvæði var líka fellt úr frv., vegna þess að það var sett í samræmi við þær reglur, sem ráðgert var, að teknar yrðu upp varðandi héraðsskólana. Ég vona, að eftir að þessi ákvæði frv., sem voru helzti ásteytingarsteinn hv. stjórnarandstöðu í Nd., eru horfin úr frv., eigi það greiðari gang gegnum þessa hv. d.
Að svo mæltu skal ég í fáeinum orðum gera grein fyrir meginefni frv., en um það held ég, að geti ekki verið neinn ágreiningur, að mörg ákvæði frv. eru til stórmikilla bóta frá því, sem verið hefur varðandi greiðslu og skiptingu kostnaðar við stofnun og rekstur skóla milli ríkis og sveitarfélaga. Það vil ég taka fram í upphafi, að það er ekki tilgangur þessa frv. að breyta hlutföllunum í skiptingu kostnaðarins við stofnun og rekstur skóla á milli ríkis og sveitarfélaga. Það var ekki meiningin og ekkert slíkt verður afleiðing af samþykkt þessa frv. Nýmælin í frv. eru hins vegar á öðru sviði en þessu, að kostnaðarhlutfallinu sé raskað frá því, sem verið hefur. Og ég skal nú geta í fáum orðum þeirra helztu.
Í frv. eru settar miklu einfaldari reglur um fjárhagssamskipti ríkis og sveitarfélaga í sambandi við stofnun og rekstur skóla en er í gildandi skólakostnaðarl. frá árinu 1965. Reglurnar, sem þá voru settar, eru óþarflega flóknar og reynslan hefur leitt í ljós á þeim margvíslega annmarka. Þær reglur, sem hér eru settar, eru samdar að mjög yfirveguðu ráði af þeim embættismönnum, sem mesta þekkingu og mesta reynslu hafa á þessu sviði og í nánu samráði við fulltrúa frá Sambandi ísl. sveitarfélaga og stærsta sveitarfélagi landsins, Reykjavíkurborg. Þá er það og mjög mikilsvert nýmæli í frv., og um það er ég viss um, að allir þm. eru sammála, að kveðið er á um, að ríkið skuli greiða sitt framlag á 2–3 árum, en ekki 5 árum, eins og gildandi lög segja til um, og ætti þetta að geta orðið til þess að stuðla mjög að auknum byggingarhraða skólamannvirkja.
Þá er í frv. gerð sú grundvallarbreyting á því, hvað ríkið greiðir í stofnkostnað skóla, að gert er ráð fyrir því, að sérstök deild, sem koma á á hjá menntmrn., byggingadeild menntmrn., semji í samráði við sveitarfélögin áætlun, norm, um það, hver sé eðlilegur byggingarkostnaður á ýmsum stöðum á landinu og á ýmsum tegundum skólabygginga og síðan greiði ríkið lögbundinn hluta sinn af kostnaðinum samkv. þessum áætlunum. Ef sveitarfélagi síðan tekst að byggja fyrir minna en sem svarar til þessa væntanlega meðalkostnaðar, sem samkomulag hefur orðið um, er það hagnaður sveitarfélagsins. Þessum reglum er ætlað að stuðla að því, að sem mests sparnaðar sé gætt við byggingarframkvæmdirnar. Þessum reglum er beinlínis ætlað að hvetja sveitarfélög til þess að byggja sem hagkvæmast. Enginn mun hins vegar geta talið það ósanngjarnt, ef sveitarfélag heldur það illa á byggingarmálum, að byggingarkostnaðurinn fer fram úr þessu áætlaða meðaltali, sem samkomulag hefur orðið um, að sveitarfélagið beri sjálft kostnaðinn af því. Sú regla, sem gilt hefur allar götur til þessa, er sú, að ríkið greiðir lögboðinn hundraðshluta af kostnaðinum, hver svo sem hann verður, og því er ekki að leyna, að við í menntmrn. og fjármálaeftirliti skóla höfum fundið mörg dæmi um það, að talsvert hefur skort á hagsýni og gætni í meðferð fjármála við skólabyggingar eins og aðrar byggingar, m. a. vegna þess, að það er vitað, að ríkið hefur greitt allt að 75% af byggingarkostnaðinum, hver svo sem hann hefur raunverulega orðið.
Þá er í frv. lagður traustur grundvöllur að áætlunargerð um skólabyggingar. 5.1. 3 ár hefur verið unnið eftir áætlun, sem hefur haft það í för með sér, að byggingartími skólabygginga hefur stytzt að mun. Það hefur verið hægt að láta þær byggingar sitja fyrir, sem mest þörf var á að ljúka, og hefur verið, held ég að mér sé óhætt að segja, almenn ánægja með þá skipun, sem upp hefur verið tekin smám saman, en hefur þó ekki haft traustan lagagrundvöll að standa á. En hér í frv. er gert ráð fyrir því, að beinlínis verði unnið eftir föstum framkvæmdaáætlunum að skólabyggingum á hverju ári. Þá er gert ráð fyrir því að koma upp sérstakri deild, byggingadeild í menntmrn. til þess að tryggja það, að undirbúningur að skólabyggingum verði sem beztur og nákvæmastur og til þess að unnt sé að fylgjast með því, að farið sé eftir teikningum og kostnaðaráætlunum fylgt. Reynsla er þegar búin að sýna það, að með slíku eftirliti má koma mörgu góðu til leiðar og stuðla að margs konar hagkvæmni og sparnaði.
Í frv. er enn fremur ákvæði um það, og er það í fyrsta skipti, sem slíkt er lögtekið, að verja megi allt að 2% af byggingarkostnaði til þess að listskreyta skólabyggingarnar, en þó ekki meira en ½ millj. í hvern skóla. Vona ég, að þetta verði upphaf þess, að í lagaákvæði um aðrar opinberar byggingar verði teknar sams konar heimildir.
Að síðustu vildi ég svo geta þess, að gert er ráð fyrir því að koma upp samstarfsnefnd menntmrn. og sveitarfélaganna um framkvæmd frv., ef að lögum verður, og setningu reglugerðar samkv. því. Hér er um að ræða mjög mikilvæg og mikil skipti milli ríkisins og sveitarfélaganna og þess vegna nauðsynlegt að tryggja sem allra bezt, að um gott samstarf sé að ræða á þessu sviði, og samstarfsnefndinni er ætlað að tryggja, að svo geti orðið. En ákvæði, sem í frv. voru upphaflega um héraðsskólana, eru sem sagt ekki í því lengur, og þangað til Alþ. ákveður öðruvísi, verður því allur stofn- og rekstrarkostnaður þeirra allra, að Eiðaskóla meðtöldum, greiddur úr ríkissjóði. En mál Eiðaskóla og héraðsskólanna allra mun verða athugað enn rækilegar í sumar í samráði við hlutaðeigandi sveitarfélög og væntanlega einhverjar till. gerðar í málinu fyrir næsta þing.
Að svo mæltu leyfi ég mér að óska þess, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.