18.04.1967
Neðri deild: 72. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1517 í B-deild Alþingistíðinda. (1330)

170. mál, stjórnarskipunarlög

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Sú breyting á stjórnarskipunarlögum, sem hér liggur fyrir, er flutt af hálfu hæstv. ríkisstj. á grundvelli álitsgerðar, sem gefin var af mþn. Ég átti sæti í þessari mþn. og lét þá skoðun þar í ljós, að rétt væri, að kosningaaldurstakmarkið yrði fært niður í 18 ár. Um það varð þó ekki samkomulag, og vildu ýmsir nm. ekki ganga lengra en svo að lækka kosningaaldurstakmarkið um 1 ár. Þar sem ljóst var, að því almennara sem það samkomulag væri, er tekizt gæti um niðurstöður n., þeim mun meiri líkur væru til þess, að einhver lækkun yrði þó gerð á kosningaaldri, taldi ég sjálfsagt að gera ekki frekari ágreining í mþn., og hún skilaði samhljóða áliti.

Þegar frv. kom til hv. allshn., kom strax fram að sumir nm. og þar á meðal ég vildu, að kosningaaldur yrði lækkaður nú þegar niður í 18 ára aldur, ef samkomulag gæti tekizt um það í þinginu. Meiri hl. n. var þó andvígur því á þessu stigi málsins að gera breytingu á frv. Þetta frv. er seint á ferðinni og skammt til þingloka. Landsþing Sjálfstfl. vofir yfir höfðum okkar, og störf Alþ. hljóta að víkja fyrir svo örlagaríkri og hátíðlegri samkomu. Þar sem frv. til stjórnarskipunarlaga hefur þegar verið afgr. frá Ed. og hún hefur fellt till. um lækkun kosningaaldurs í 18 ár og þar sem alger óvissa er um örlög frv. vegna tímaskorts, ef því yrði breytt hér í hv. Nd., hef ég ekki talið ástæðu til að flytja hér brtt. við frv.

En ég vil láta þess getið, að ég tel, að skynsamlegra hefði verið að miða aldurstakmarkið, þegar þessi breyting var gerð, við fæðingarár, en ekki fæðingardag, eins og hingað til hefur verið gert og er einnig lagt til í þessu frv. Ef miðað væri við fæðingarár, en ekki fæðingardag, mundu allir þeir fá kosningarrétt, sem orðnir væru 20 ára í byrjun kosningaársins, eftir að þessi breyting hefði náð fram að ganga. Nú þarf, eins og allir vita, að leggja mikla vinnu í að athuga, hverjir af öllum tvítugum kjósendum eigi afmæli fyrir kosningadaginn og háfi því náð lágmarksaldri. Eins og kunnugt er, eru kosningadagar á mjög mismunandi tíma, og það veit enginn, þegar kjörskrá er samin, hvort tvítugir borgarar muni hafa öðlazt kosningarrétt fyrir kjördag eða ekki. Þetta er að sjálfsögðu mjög óhentugt og óeðlilegt skipulag á allan máta, og er miklu eðlilegra að miða kosningarréttinn við fæðingarárið, eins og gert er um þá, sem skóla stunda, því að næstum allir nemendur í sama árgangi mundu þá sem sagt fá kosningarrétt á sama tíma. Ég vil að lokum geta þess, að þetta skipulag hefur verið tekið upp víða erlendis. Mþn. benti einnig á, að það mætti breyta. þessu tæknilega atriði til frekara hágræðis, en því miður hefur ríkisstj. ekki séð ástæðu til þess að íhuga þessa ábendingu eða taka hana til greina. Ég tel rétt að vekja athygli Alþ. á þessu átriði. En eins og ég hef áður sagt, mun ég ekki flytja brtt., þar sem hætt er við, að frv. fengi ekki afgreiðslu nú fyrir þinglok og yrði að fresta því í 4 ár, ef taka ætti til meðferðar nýjar brtt. og senda þær síðan til Ed.