20.10.1966
Neðri deild: 5. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1519 í B-deild Alþingistíðinda. (1336)

26. mál, sala Lækjarbæjar

Flm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Hér liggur fyrir á þskj. 26 frv. um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja Fremri-Torfustaðahreppi eyðijörðina Lækjarbæ. Flm. erum við 4 þm. Norðurl. v., sem sæti eigum í þessari hv. d.

Jörðin Lækjarbær er ekki gamalt býli. Þess er ekki getið í jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Hins vegar ber sóknarmannatal Staðarbakkaprestakalls það með sér, að árið 1860 var farið að búa í Lækjarbæ. Ég hygg, að þar hafi ekki fyrr verið búið, þó vil ég nú ekki fullyrða um slíkt, en mér er a.m.k. ekki kunnugt um, að þar hafi áður verið búið. Þá var jörðin í byggð til aldamótanna síðustu, féll þá úr ábúð á árunum 1901–1908, síðan var búið þar 1909–1913, þá var jörðin enn í eyði í 2 ár, 1915 kom bóndi þangað, og þar var búið til ársins 1924, en þá fór jörðin í eyði, og síðan hefur ekki verið búið þar og enginn falazt eftir ábúð á jörðinni, og ég tel ekki líkur benda til þess, að svo verði hér eftir. Þarna er ekkert tún, engin mannvirki, þangað er enginn vegur og langt þaðan til næstu bæja. En þarna er allstórt og kjarngott beitiland.

Nú gerðist það á þessu ári, að innsta jörðin í Núpsdal í Vestur-Húnavatnssýslu fór í eyði, og þá keypti Fremri-Torfustaðahreppur þá jörð í því skyni að nota land hennar til beitar fyrir búpening hreppsbúa. Kom þá jafnframt upp áhugi fyrir því hjá hreppsbúum að fá Lækjarbæjarland einnig keypt, því að þessar tvær jarðir eru samliggjandi, og er það ætlun þeirra, ef svo verður, að nota það land einnig sem afrétt, og því höfum við, eftir beiðni þeirra, flutt þetta frv.

Hér er sem fskj. með grg. útdráttur úr fundargerð almenns hreppsfundar í Fremri-Torfustaðahreppi, sem haldinn var 17. maí s.l. vor, og er þar birt ályktun, sem þar var samþykkt, þar sem beðið er um það, að hreppsnefnd leiti eftir því að fá Lækjarbæjarland keypt af ríkissjóði, og þá fylgir einnig hér með bréf frá oddvita hreppsnefndar, dags. 12. sept. s.l., þar sem hreppsnefndin fer fram á það, að Alþ. heimili sölu á þessu landi til Fremri-Torfustaðahrepps.

Ég vænti þess, að þessu máli okkar verði vel tekið hér í d. Það er till. mín, herra forseti, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og hv. landbn.