28.02.1967
Efri deild: 45. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (1345)
26. mál, sala Lækjarbæjar
Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Þetta mál er flutt í Nd. af fjórum þm. Norðurl. v. og fjallar um sölu eyðijarðar, sem nefnist Lækjarbær, í Húnavatnssýslu. Málið var afgreitt frá Nd. með lítils háttar breyt., sem landbn. telur fremur til bóta og þar sem þannig stendur á, að hér er um eitt eyðikot að ræða, sem er á mörkum þess að vera í byggð eða í afrétt, húsalaust, veglaust og mannvirkjalaust, er eðlilegt að líta svo á, að einboðið sé að leyfa ríkinu að selja jörðina viðkomandi sveitarfélagi, sem hefur farið fram á það. Málið fékk þá meðferð í Nd., sem venjuleg er um slík mál, að það var borið undir jarðeignadeild ríkisins og landnámið, sem mæltu með sölunni, og landbn. Ed. hefur orðið sammála um að mæla einnig með sölu á þessari jörð, en geta skal þess, að tveir nm. voru fjarverandi, þegar málið var afgreitt, eins og nál. ber með sér.