13.03.1967
Efri deild: 52. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1529 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)

102. mál, læknaskipunarlög

Alfreð Gíslason:

Herra forseti. Ég vil nú fyrst láta í ljós óánægju mína með, að þetta frv. skyldi hafa verið afgr. úr n., án þess að ég fengi tækifæri til að vera á þeim fundi, en mér hafði ekki borizt nein tilkynning um, að þennan fund ætti að halda, svo þess vegna mætti ég ekki.

Ég er ekki á neinn hátt andvígur frv., sem hér liggur fyrir um breyt. á læknaskipunarlögum. Hér er um heimild að ræða og þörfu máli vissulega hreyft. Hitt hefði ég talið æskilegt, að Alþ. hefði athugað nokkuð betur möguleika á framkvæmd þess ákvæðis, sem heimila skal. Mér skilst, að hvorki hv. flm. né þær n., sem um þetta hafa fjallað, hafi á nokkurn hátt gert sér grein fyrir, hvernig ætti að framkvæma það nauðsynjamál, sem hér um ræðir. Og ég vil láta það koma fram hér, að á meðan ekki eru eygðir neinir möguleikar til að framkvæma þetta, tel ég ákvæðið harla lítils virði. Hér er um heimild að ræða. Hæstv. ríkisstj. er í lófa lagið, hvort hún vill framkvæma hana eða ekki, og í öðru lagi er allsendis óvíst, þótt hún vildi framkvæma ákvæðið, að henni væri það þá mögulegt. Það er ekki æskilegt, að Alþ. samþ. lög, sem ekkert er hugsað um, hvort framkvæmanleg séu eða ekki. Þessa litlu aths. vildi ég láta koma fram við atgreiðslu þessa máls, en ég mun að sjálfsögðu greiða frv. atkv.