09.03.1967
Efri deild: 49. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1530 í B-deild Alþingistíðinda. (1397)
155. mál, leigubifreiðar
Flm. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Skv. gildandi l. um leigubifreiðar er bæjarstjórnum heimilt, að fengnum till. hlutaðeigandi stéttarfélaga bifreiðarstjóra, að ákveða, að allar leigubifreiðar í kaupstöðum, hvort heldur eru fólks-, vöru- eða sendiferðabifreiðar, skuli hafa afgreiðslu á bifreiðastöð, sem fengið hefur viðurkenningu bæjarstjórnar. Samgmrn. er enn fremur heimilt, að fengnum till. hlutaðeigandi stéttarfélags og meðmælum bæjarstjórnar eða hreppsnefndar, að takmarka fjölda leigubifreiða í kaupstöðum og þeim kauptúnum, þar sem íbúar eru 700 eða fleiri, hvort heldur er fólks- eða vörubifreiða, annað hvort eða hvort tveggja.
Það hefur komið í ljós á ýmsum stöðum, að ástæða þykir til að rýmka þessi lagaákvæði, svo að þau geti náð til fleiri staða heldur en nú er mælt fyrir um. Ég hef sérstaklega í huga aðstöðu í Egilsstaðakauptúni á Austurlandi. Egilsstaðakauptún er mjög vaxandi að mannfjölda, og þar er samgöngumiðstöð fyrir Fljótsdalshérað og að nokkru leyti fyrir kauptúnin og kaupstaðina á Austfjörðum, þar sem á Egilsstöðum er aðalflugvöllur landsfjórðungsins, og hann er nú orðinn annar eða þriðji flugvöllur landsins að umferðarþunga.
Vegna þessara miklu samgangna á þessum stað er mikil þörf á því, að þarna sé starfrækt leigubifreiðastöð, bæði vegna flutninga að og frá flugvelli inn í kauptúnið og einnig vegna aksturs víða um héraðið. Hreppsnefnd Egilsstaðahrepps hefur haft það til athugunar að koma upp leigubifreiðastöð og veita henni viðurkenningu, svo sem heimilt er, að bæjarstjórnir geri í kaupstöðum, en við athugun á því máli kemur í ljós, að Egilsstaðakauptún er ekki innan ramma þeirra ákvæða, sem ég gerði grein fyrir, að nú eru í gildi um þetta efni. Út af þessu hefur bifreiðastjórafélag Egilsstaða snúið sér til okkar, þm. Austurl., og sent okkur erindi, sem ég vil leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa. Það er svo hljóðandi:
„Hv. alþm. Skv. l. nr. 40 1957 um takmörkun leigubifreiða til mannflutninga, þurfa íbúar að vera 700, til þess að starfrækja megi bifreiðastöð. Hér í Egilsstaðakauptúni eru rúmlega 500 íbúar og vantar því um 200 til að ná tilskildri tölu. Hreppsnefndir Valla- og Fellahrepps hafa fallizt á fyrir sitt leyti, að óskað verði staðfestingar samgmrh. á reglugerð um takmörkun leigubifreiða til mannflutninga, á félagssvæði bifreiðastjórafélags Egilsstaða, sem ætlað er, að nái yfir þessa þrjá. hreppa. Skv. áðurgreindum l. er ekki heimilt að taka aðliggjandi hreppa í slíkan félagsskap. Vér viljum því fara þess á leit við yður, að þér beitið yður fyrir breyt. á l., sem heimili okkur starfrækslu bifreiðastöðvar á áðurgreindum grundvelli. Bifreiðastöð er okkur nauðsynleg, þar eð hingað koma leigubifreiðarstjórar frá öðrum landshlutum og rýra þannig atvinnu okkar. Vér viljum leggja áherzlu á, að þetta gæti náð fram að ganga á yfirstandandi Alþingi.“
Við þm. Austurl. höfum rætt þetta erindi okkar á milli og erum allir á einu máli um að gera það, sem í okkar valdi stendur, til þess að koma fram lagabreytingu í þessu efni. Það hefur orðið að samkomulagi okkar á milli, að þetta. frv. yrði lagt fram hér í hv. Ed., en það er gert í samráði við samþingmenn mína, og stöndum við allir fimm þm. Austurl. raunverulega að flutningi þessa máls. En breyt. sú, sem þetta frv. felur í sér frá gildandi l. er um það, að þar sem í l. segir, að samgmrn. sé heimilt að takmarka fjölda leigubifreiða í kaupstöðum og þeim kauptúnum, þar sem íbúar eru 700 eða fleiri, komi svo hljóðandi ákvæði til viðbótar: „Sama gildir um fólksbifreiðar í þeim kauptúnum, sem ásamt aðliggjandi hreppum hafa 700 íbúa eða fleiri, enda komi til meðmæli hreppsnefnda í þeim sveitarfélögum, sem félagssvæðið nær til. Heimilt er hreppsnefndum að ákveða, að allar leigubifreiðar til fólksflutninga hafi afgreiðslu á bifreiðastöð, sem rekin er af stéttarfélagi fólksbifreiðarstjóra.“
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál: Ég vænti þess, að það fái skjóta og góða afgreiðslu hér í hv. d., og legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. samgmn.