20.03.1967
Efri deild: 55. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í B-deild Alþingistíðinda. (1399)
155. mál, leigubifreiðar
Frsm. (Jón Þorsteinsson):
Herra forseti: Í l. um leigubifreiðar nr. 1 frá árinu 1966 er fjallað um allar tegundir leigubifreiða, þ.e.a.s. fólksbifreiðar, vöruflutningabifreiðar og sendiferðabifreiðar, en í frv. því, sem hér liggur fyrir á þskj. 304, er lagt til, að gerð verði breyt. á l. um leigubifreiðar. Þessi breyt., sem felst í frv., snertir einvörðungu fólksbifreiðar, en efnislega er hún á þá leið, að heimilt sé að takmarka fjölda fólksbifreiða í kauptúnum, sem ásamt aðliggjandi hreppum hafa 700 íbúa eða fleiri. En í núgildandi l. er takmörkunarheimildin bundin við kauptún eða kaupstaði með 700 íbúa eða fleiri. Þarna eru aðliggjandi hreppar teknir með, og sýnist vera full ástæða til að gera þessa breyt., því að það getur verið, að kauptún, sem hefur undir 700 íbúa, sé í raun og veru meiri samgöngumiðstöð en annað, sem er fjölmennara, og fer þetta auðvitað eftir staðháttum í héraðinu í kring og íbúafjölda þess og samgönguaðstæðum, en vissulega geta þessi kauptún, sem hafa undir 700 íbúa, verið þannig í sveit sett, að eðlilegt sé, að í þeim ásamt aðliggjandi hreppum sé heimilt að takmarka fjölda leigubifreiða. Þá er einnig í þessu frv. gert ráð fyrir heimild til þess, að hreppsnefndir ákveði, að allar leigubifreiðar til fólksflutninga hafi afgreiðslu á bifreiðastöð, sem rekin sé af stéttarfélagi fólksbifreiðarstjóra. Þessu frv. var vísað til samgmn., og n. hefur athugað þetta frv. og mælir einróma með, að það verði samþ., eins og nál. á þskj. 341 ber með sér.