14.04.1967
Efri deild: 65. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1536 í B-deild Alþingistíðinda. (1427)

153. mál, sala níu jarða og grasbýla í Neshreppi utan Ennis og Lækjardals í Öxarfjarðarhreppi

Bjartmar Guðmundsson:

Herra forseti. Þetta mál er komið frá Nd., og fékk það alla venjulega athugun, sem slík mál sem þetta þurfa við og einróma meðmæli landbn. þar. Þess ber að geta, að við upphaflega frv. var bætt heimild til að selja eina jörð í Öxarfjarðarhreppi og var það samþ. eftir venjulega athugun á því máli. Landbn. kynnti sér lítillega þau skjöl, sem fylgdu frv. í Nd., og telur ekkert að athuga við að heimila sölu þessara jarða og mælir með, að frv. verði samþ.