15.04.1967
Efri deild: 66. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1549 í B-deild Alþingistíðinda. (1477)

138. mál, heimild að selja Kópavogskaupstað nýbýlalönd og hluta jarðarinnar Kópavogs

Fram. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Fjhn. d. hefur fjallað um frv. til l. um heimild handa ríkisstj. til þess að selja Kópavogskaupstað nýbýlalönd og hluta jarðarinnar Kópavogs og um eignarnámsheimild á ábúðarréttindum, sem borið var fram í Nd. á þskj. 266. Álit fjhn. er á þskj. 507, og leggur hún til einróma, að frv. verði samþ.

Efni frv. er í megindráttum það, að ríkisstj. er heimilt að selja Kópavogskaupstað 7 nýbýlalönd, Ástún, Birkihlíð, Grænuhlíð, Lund, Meltungu, Snæland og Sæból, er stofnuð voru samkv. nýbyggðal. frá 1936 og Efstaland, sem stofnað var samkv. lögum um nýbyggð og endurbyggingar í sveitum frá 1947, svo og þann hluta jarðarinnar Kópavogs, sem heilbrmrn. hefur til umráða austan Hafnarfjarðarvegar. Í öðru lagi er bæjarstjórn Kópavogskaupstaðar heimilt að taka eignarnámi ábúðarréttindi í eignarlandi kaupstaðarins, ef nauðsyn krefur vegna skipulags.

Rétt er að taka fram, að heilbr.- og félmn. Nd., sem fjallaði um málið, leitaði umsagnar nokkurra aðila, sem ætla mætti að vildu tjá sig um efni þess, og frá einum þeirra bárust mótmæli. Umsagna hefur verið leitað hjá fjórum aðilum, dómsmrn., Landnámi ríkisins og landbrn., og þessir aðilar telja eðlilegt, að Kópavogskaupstaður fái þetta land til umráða og eignar. Hins vegar hefur stjórnarnefnd ríkisspítalanna mótmælt efni frv. og þykir mér rétt að gera hv. d. grein fyrir samþykkt, sem stjórnarn. hefur sent, og er frá fundi hennar 3. apríl.

„Stjórnarnefndin telur ekki koma til greina, að látið sé af hendi land ríkisspítalanna í Kópavogi, meðan skipulag landspítalalóðar hefur ekki verið ákveðið og geðveikrasjúkrahúsi ríkisins hefur ekki verið ákveðinn framtíðarstaður.“

Landlæknir hefur látið þeirri n. Nd., sem fjallaði um málið, í té þessa samþykkt. Hins vegar hefur umrædd n. í Nd., ekki talin ástæðu til að taka þessi mótmæli til greina og mun þá, að ég ætla, hafa í hyggju niðurlagsmálsgr. í 1. gr. frv., þar sem segir á þessa leið:

„Þarfnist ríkið eða ríkisstofnanir byggingarlóða á landinu undir opinberar byggingar, skal því heimilt að kaupa þær og þá með sama verði hlutfallslega og Kópavogskaupstað var gert að greiða fyrir landið.“

Ég ætla, að með þessu ákvæði hafi Nd. þótt nægilega fyrir því séð, að ríkisspítalarnir eða heilbrigðisstofnanir aðrar gætu fengið þetta land, ef talið væri æskilegt að það yrði tekið undir slík mannvirki. Ég vildi, að d. væri kunnugt um þetta, en síðan vil ég að lokum árétta að n., sem er fjhn, þessarar d., mælir einróma með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Að lokinni þessari umr. er lagt til, að málinu verði vísað til 3. umr.