07.04.1967
Neðri deild: 60. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1555 í B-deild Alþingistíðinda. (1517)
172. mál, sala Þormóðsdals og Bringna
Flm. (Axel Jónsson):
Herra forseti. Samkv. beiðni hreppsn. Mosfellshrepps höfum við endurflutt þetta frv. Það náði ekki fram að ganga á síðasta þingi, en það felur í sér heimild fyrir ríkisstj. til að selja Mosfellshreppi jarðirnar Þormóðsdal og Bringur.
Eins og segir hér í grg., var þetta frv. flutt á síðasta þingi og þá getið um það, að þessar jarðir væru báðar í byggð. Síðan hefur sú breyting á orðið, að jörðin Bringur er komin í eyði og ekki horfur á, að þar verði byggt upp, eins og sakir standa. Það er hins vegar nokkurt áhugamál yfirvalda Mosfellshrepps, að hreppurinn fái öll yfirráð þessarar jarðar, og eins og fram er tekið hér í grg., er hreppsn. reiðubúin að semja um afnot þar, eða annars staðar þar sem hentugra þætti, fyrir tilraunastöðina á Keldum vegna hagagöngu þeirra hrossa, sem nú ganga til beitar einmitt á landspildu úr landi jarðarinnar Bringna.
Ég vona, herra forseti, að þó að þetta sé flutt hér á seinni dögum þingsins, megi takast að koma þessu máli fram. Ég legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.