14.04.1967
Neðri deild: 68. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1556 í B-deild Alþingistíðinda. (1521)
172. mál, sala Þormóðsdals og Bringna
Frsm. (Sverrir Júlíusson) :
Herra forseti. Á þskj. 373 flytja fimm þm. Reykjaneskjördæmis frv. til laga um heimild fyrir ríkisstj. til að selja Mosfellshreppi jarðirnar Þormóðsdal og Bringur. Hv. landbn. þessarar virðulegu d. hefur haft þetta mál til athugunar. Mál þetta var einnig á ferðinni hér í hitteðfyrra og hlaut þá ekki afgreiðslu. þá var leitað álits landnámsstjóra, sem taldi varhugavert að selja jörðina, með tilliti til þarfa ríkisins á landrými hér í nágrenni höfuðborgarinnar og þá sérstaklega í sambandi við starfsemi ríkisins að Keldum. En það lágu fyrir meðmæli frá Búnaðarsambandi Kjalarnesþings, þar sem skorað var á Alþ. að samþykkja þetta frv. Einnig hefur Sveitarstjórnasamband Reykjaneskjördæmis einróma mælt með því, að þetta frv. yrði samþykkt, en viðvíkjandi því, sem ég sagði áðan, að landnámsstjóri og jafnvel fleiri myndu ekki vera því meðmæltir, að þessar jarðasölur færu fram, vil ég segja það, að hér er um heimild að ræða fyrir ríkisstj. og er þá sérstaklega um það að ræða, að hv. landbn. hefur veitt Keldum afnotarétt af beitarlandi á Bringum fyrir blóðhross, en hreppsnefnd Mosfellshrepps telur eðlilegt, að Keldur haldi þeim afnotarétti. Ég vil til viðbótar segja það, að ég var á haustinu 1965 heyrnarvottur að því, þegar þeir ræddu saman, forstöðumaður Keldna og oddviti Mosfellshrepps, og skildi ég forstöðumann Keldna þannig, að ekkert yrði því til fyrirstöðu, að fullt samkomulag gæti orðið um skipti á löndum í sambandi við þetta. Bringur liggja að heiðalandi Mosfellshrepps og hreppsnefndin leggur mikið kapp á að fá heimild til kaupa á þessu landi, og hefur hv. landbn. þessarar virðulegu d. orðið sammála um að leggja til, að ríkisstj. fái heimild til að selja Mosfellshreppi jarðirnar, enda er það í samræmi við það, sem yfirleitt hefur viðgengizt hér á landi, þegar um hreppsfélög hefur verið að ræða.
Að þessu mæltu tel ég ekki ástæðu til þess að hafa þessa framsögu lengri, en vitna til nál. á þskj. 501, þar sem landbn. leggur til, að heimild þessi verði veitt. Og ég legg til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr.