15.04.1967
Neðri deild: 69. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)
121. mál, lífeyrissjóður togarasjómanna og undirmanna á farskipum
Frsm. (Sverrir Júlíusson):
Herra forseti. Á þskj. 222 bar hv. 7. þm. Reykv. fram frv. um breyt. á l. nr. 78 28, apríl 1962, um lífeyrissjóð togarasjómanna og undirmanna á farskipum. Sjútvn. þessarar virðulegu d. hefur haft mál þetta til athugunar og sendi það til stjórnár lífeyrissjóðs togarasjómanna og hefur fengið svar við því ásamt fskj., sem prentað er með í nál. á þskj. 505.
Stjórn lífeyrissjóðsins fellst á þá breyt., sem lögð er til í frv., þ.e.a.s. ef breyt. er færð í heimildarform fyrir sjóðstjórnina og hefur sjútvn. einmitt tekið tillit til þess og ber fram brtt. um þessi atriði á þskj. 506. Það, sem hér er um að ræða, er að leyfa sjómannafélögunum að tryggja starfsmenn sína í sjóðnum og einnig það, að útgerðarfélög farskipa, varðskipa og togara fái að tryggja skipverja sína, þótt þeir séu ekki lögskráðir, þegar þeir eru við störf í landi, svo sem viðgerðir, flokkunarviðgerðir o. s. frv. Þá er einnig um það að ræða að selja mönnum, sem hafa verið á skipunum, tryggingu, þótt þeir séu við nám, því að samkv. því, sem flm. og frsm. fyrir þessu frv. sagði á sínum tíma, mun það hafa þó nokkrum sinnum komið fyrir, að menn hafi einmitt frestað að fara í sjómannaskólann af þessum ástæðum, því að eins og allir vita, verða menn að vera búnir að ávinna sér vissan rétt, vera í sjóðnum ákveðinn tíma, svo að þeir njóti fullra réttinda, t.d. í sambandi við lántöku, sem er vissulega stór þáttur í starfsemi lífeyrissjóðanna yfirleitt.
Eins og ég sagði, hefur sjútvn. þessarar virðulegu d. fært þetta í það horf, sem stjórn sjóðsins leggur til. En vegna fsp., sem sjútvn. sendi stjórn sjóðsins, bendir stjórnin einmitt á það, að upp skuli tekin ný ákvæði varðandi sjómenn á togurum, ef þeir fará á aðrar veiðar. Það eru dæmi til þess, að einmitt vegna þessa ákvæðis, sem er bundið við togveiðar, muni samningar ekki hafa tekizt um slíkar veiðar á einum af stærstu togurunum, þ.e.a.s. þegar var verið að undirbúa það að gera þennan togara út á síldveiðar með hringnót. Þetta ákvæði, sem er síðasti málsl. brtt. á þskj. 506, fjallar um það og er í fullu samræmi við það, sem sjóðstjórnin leggur til.
Þá vil ég einnig víkja að því, að rétt væri að sjóðstjórnin athugaði, ef þetta frv. ásamt brtt. á þskj. 506 verður samþ., hvort þeir starfsmenn sjómannafélaganna, sem eru orðnir fullorðnir og búnir að starfa lengi, eigi ekki einnig að fá aðild að sjóðnum á sama hátt og gamlir sjómenn, sem voru komnir í land, þegar þessi lög voru samþ. á sínum tíma. En gangur málsins mun hafa verið sá, að fyrir þá, sem voru komnir að hámarksaldri eða yfir hámarksaldur, mun ríkið hafa keypt réttindi og greitt þeim þessi réttindi, en þetta er atriði, sem sjóðstjórnin þarf að taka til athugunar, þó að flest það sé ekki beint í sambandi við þessar breyt., sem hér liggja fyrir, en á þetta vil ég benda.
Þá minntist flm. í sinni framsögu á það, að af sérstöku tilefni hefðu sumir bent á, hvort það væri ekki eðlilegt vegna þeirra miklu breytinga, sem eru einmitt í þessum sjóði, að vinnuveitendur, þ.e.a.s. fyrst og fremst togaraeigendur, fengju endurgreiðslu á þeim hluta, sem þeir greiða fyrir þá aðila, sem hætta að vera sjóðsmeðlimir. En í þessum sjóði munu vera meiri hreyfingar en í öðrum lífeyrissjóðum, vegna þeirra breytinga, að menn skipta um atvinnu og fara þá kannske í aðra lífeyrissjóði eða hætta að vera sjóðsmeðlimir á annan hátt. Um þetta atriði segir einmitt tryggingafræðingur sjóðstjórnarinnar, að það sé ljóst, að úrganga hafi orðið sjóðnum stórum drýgri tekjulind en gert muni hafa verið ráð fyrir í upphafi. En jafnframt segir hann, að ekki hafi verið hægt að reikna með því, að aðeins 10% iðgjöld, þ.e. a.s. bæði frá atvinnurekendum og sjóðsmeðlimum, nægðu til þess að standa undir skyldum sjóðsins. Þess vegna leggur hann til, að athugað verði nánar tryggingafræðilegt uppgjör á sjóðnum, en fyrr en það hefur átt sér stað er ekki eðlilegt, að hægt verði að taka tillit til þessara óska og yrði það þá að sjálfsögðu að takast upp að nýju. En ég vil sem sagt benda á þetta atriði, bæði vegna þess að flm. minntist á það og af öðrum ástæðum. Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja þetta frekar. Ég legg til fyrir hönd sjútvn., að frv. á þskj. 222 verði samþ. ásamt breyt. á þskj. 503 og verði að lokinni þessari umr. Vísað til 3. umr.