18.04.1967
Efri deild: 72. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1564 í B-deild Alþingistíðinda. (1548)

121. mál, lífeyrissjóður togarasjómanna og undirmanna á farskipum

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Frv. þetta felur það í sér, að auknar eru heimildir lífeyrissjóðs togarasjómanna til þess að taka að sér auknar tryggingar fyrir sjómannafélögin, útgerðarmenn og útgerðarfélög ýmissa skipa, þegar svo stendur á t.d. að skipverjar eru ekki lögskráðir undir þeim kringumstæðum, að skip eru í viðgerðum eða flokkunarviðgerðum eða öðru því um líku. Þá eru það nýmæli í frv., að stjórn sjóðsins er heimilt að leyfa sjómönnum, sem stunda nám í sjómannafræðum eða slasast eða veikjast, að kaupa sér réttindi í sjóðnum fyrir þann tíma, sem af þessum ástæðum fellur niður.

Eins og fram kemur í nál. sjútvn., mælir hún einróma með samþykkt till. Ég vil leyfa mér fyrir hönd hennar að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og það liggur hér fyrir og því síðan vísað til 3. umr.