11.04.1967
Sameinað þing: 33. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1575 í B-deild Alþingistíðinda. (1557)

Almennar stjórnmálaumræður

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti, góðir hlustendur. Þegar ég heyri hið digurbarkalega tal hv. stjórnarandstæðinga eins og síðasta ræðumanns, kemur mér stundum í hug sagan af karlinum, sem horft hafði á skipsstrand og ekki hafzt neitt að. Nokkru síðar hitti hann forystumann björgunarmanna og sagði: „Ég mundi nú hafa hjálpað ykkur, ef veðrið hefði ekki verið svona anzi vont“.

Mikillæti hv. Alþb.-manna og framsóknarmanna eftir frammistöðu þeirra, þegar vinstri stjórnin strandaði, minnir óneitanlega á þennan karl. En öllum yfirsést okkur einhvern tíma, og auðvitað ber að fagna því, ef menn í raun og veru hafa tekið sinnaskiptum, svo að þeir séu aðrir og betri en áður, eins og ætla mætti af því ástfóstri, sem báðir hv. stjórnarandstöðuflokkar segjast nú hafa tekið við atvinnurekendur. Öðruvísi mér áður brá, að heyra Lúðvík Jósefsson tala fyrir nokkrum árum eða biðilssöng hans nú til atvinnurekenda. Í kenningakerfi kommúnista er stéttabaráttan eitt aðalatriðið og atvinnurekendur fyrirbæri, sem útrýma ber með öllu. Og hver kann að telja upp öll þau ónefni, sem Tíminn á sinni hálfrar aldar ævi hefur valið ísl. atvinnurekendum? Strax koma þó upp í huganum nöfn eins og „braskarar“, „Grimsbylýður“, „afætur“, svo fátt eitt sé nefnt. Hin síðustu misseri og nú síðast fyrir fáeinum mínútum — er það hins vegar talið höfuðásökunarefni á ríkisstj., að hún hafi ekki nægan skilning á erfiðleikum atvinnurekenda, enda hafi ýmsir þeirra gagnrýnt gerðir hennar.

Fyrir rúmum tveim árum var eins og oftar rætt um hag útvegsins hér á Alþ. Aðaltalsmenn hv. stjórnarandstæðinga vitnuðu þá í tvo mikilsvirta útgerðarmenn og eigendur fiskiðjuvera. Eftir öðrum þeirra var haft, að ástandið væri þá hið alvarlegasta, enda fengjust ekki lán til þess að kaupa nauðsynlegustu vélar til fiskiðnaðarins, og eftir hinum, að hann hefði eignazt þrjú frystihús áður fyrr, en hann gæti ekki viðhaldið þeim á viðreisnartímum. Hann hefði ætlað að endurbæta lítils háttar eitt frystihúsið, en verið stoppaður við það, því að viðreisnin leyfði það ekki. Þetta sögðu hv. stjórnarandstæðingar fyrir tveimur árum.

Síðar í umr. varð ég fyrir hörðum ávítum frá hv. þm. Eysteini Jónssyni fyrir að draga í efa, að hinir tveir mikilsvirtu hraðfrystihúsaeigendur væru svo illa staddir sem hv. stjórnarandstæðingar vildu vera láta. Ég vitnaði sem sé þegar í stað til þess, að því færi fjarri, að fjármunamyndun í fiskiðnaði hefði minnkað á tímum viðreisnarstjórnarinnar frá því, sem áður var. Hún hefði þvert á móti aukizt mjög í raunverulegum verðmætum og benti ég á það, að harla ólíklegt væri, að hinir tveir miklu framkvæmdamenn, sem raunar eiga ekki einungis hraðfrystihús, heldur fiskimjöls- og síldarbræðslur auk veiðiskipa, hefðu orðið afskiptir í þessari miklu aukningu. En ef svo væri, þá sýndi það einungis fánýti þeirrar kenningar hv. stjórnarandstæðinga, að í tíð núv. stjórnar hefðu hinir ríku orðið ríkari og fátæku fátækari. Því sannarlega hefðu báðir þessir menn verið taldir í hópi hinna efnaðri Íslendinga áður en viðreisnarstjórnin tók við völdum.

Ég minni nú á orðaskiptin á Alþ. 1965, vegna þess að héðan í frá verður ekki um það deilt, hversu rakalausar þessar kvartanir voru. Nú er það ekki einungis staðfest í óvefengjanlegum skýrslum, heldur berum orðum viðurkennt af fulltrúum eigenda hraðfrystihúsa, að árið 1964 hafi verið gott ár fyrir þá og árið 1965 hið bezta, sem sú atvinnugrein nokkru sinni hafi notið. Með sama hætti var árið 1964 eitt hið allra bezta ár, sem þorskveiðibátar hafa hlotið, og var önnur reynsla ekki komin á um miðjan marz 1965, þó að það ár reyndist áður en yfir lauk lakara fyrir bátana. Engu að síður þurftu menn á þessum uppgangstímum hraðfrystihúsanna að standa í hörðum umr. hér á Alþ. og annars staðar til að verjast ásökunum um, að búið væri að leika hina öflugustu eigendur þeirra óhóflega illa. Skiljanlegt er, að þeir sjálfir beri sig ekki allt of vel, því að enginn er búmaður, nema hann berji sér. Á þessum tímum allsherjarkröfugerðar hugsa jafnt ríkir og fátækir svo, að ef þeir beri ekki sjálfir fram kröfur og kvartanir, þá verði þeir aftur úr í kapphlaupinu. Sjálfir skapa atvinnurekendur sér þó hættu með ótímabærum barlómi, því að viðbúið er að fyrir þeim fari eins og fjárhirðinum, sem hræddi þorpsbúa með því að kalla: „úlfur, úlfur“, þó að enginn úlfur væri á ferð, með þeim afleiðingum, að þegar úlfurinn loksins kom, þá trúði honum enginn, svo að fjárhópurinn stóð varnarlaus fyrir gini vargsins. Það er og mjög tortryggilegt, þegar þeir, sem lengst af stjórnmálaferils síns hafa lagt á það megináherzlu, ýmist eins og kommúnistar, að útrýma atvinnurekendum og athafnamönnum með öllu eða hæða þá í orðum og torvelda störf þeirra, snúast einmitt með þeim til ásökunar í garð stjórnvalda, þegar óyggjandi rök eru fyrir, að sízt var á atvinnurekendur hallað. Enn tortryggilegra verður þó þetta athæfi, þegar sömu mennirnir, sem segja of illa búið að atvinnurekendum, fullyrða einnig, að verkalýðurinn fái allt of lítið í sinn hlut. En hverjir fá þá of mikið aðrir en atvinnurekendur? Ekki er á mínu færi að segja, hvað fyrir hv. stjórnarandstæðingum vakir, þegar þeir hafa þessa tvöfeldni í frammi. Ég er þó hræddur um, að mörgum atvinnurekandanum mundi þykja bæði naum og köld vist hjá núv. hv. stjórnarandstæðingum, ef þeir næðu völdum.

Með því segi ég engan veginn, að svartsýni hv. framsóknarforkólfa sé uppgerð til að koma sér í mjúkinn hjá þeim, sem eðlilegar áhyggjur hafa af umfangsmiklum atvinnurekstri. Eigið vandaleysi og sjálfræði „almúgans“, sem framsóknarmenn kölluðu svo á sínum mestu valdadögum, hefur bersýnilega blindað nokkurn hóp manna á, hvað hefur raunverulega gerzt á Íslandi undanfarin ár. Mætti ætla af lýsingum hv. stjórnarandstæðinga, að þeir byggju í allt öðru þjóðfélagi en við hinir. Þeir hafa í mörg ár talað svo, að hér væri allt í kalda koli, grundvöllur atvinnuvega brostinn og allsherjarupplausn fram undan, eins og hv. þm. Lúðvík Jósefsson gerði hér áðan. Hið einkennilega er þó, að sumir þessara manna segja allt annað í hinu orðinu, enda hefur einn þeirra í blaði sínu látið uppi sérstaka aðdáun á „útsmoginni og neyðarlegri illkvittni“, eins og hann komst að orði. Þetta er maður, sem öðru hvoru bregður sér í annan ham og þá er allt annað á honum að heyra. Hann komst nokkra daga inn á Alþ. í fyrra og sagði þá, hinn 15. des. 1965:

„Við þurfum sannarlega ekki að blygðast okkar í samanburði við aðra fyrir þá efnahagsþróun, sem hér hefur orðið á undanförnum áratugum, og efnahagslega séð erum við betur færir til þess en nokkru sinni fyrr að ráðast í ný verkefni.“

Þetta sagði þessi hv. stjórnarandstæðingur þá, og sami maður sagði í grein, sem hann birti s.l. gamlársdag:

„Mörgum hættir einnig við því á tímum, þegar búksorgir eru ekki eins nærgöngular og endranær, að týna niður félagslegum viðhorfum og hefja eftirsókn eftir vindi. En einstaklingar, sem sökkva sér niður í þvílíka síngirni, fá að sanna þá fornkveðnu speki, að það stoðar lítið að eignast heiminn, ef menn fyrirgera sálu sinni.“

Þetta sagði þessi rithöfundur á gamlársdag, síðast.

Nú fer því að vísu fjarri, að við í ríkisstj. og stuðningsmenn okkar höldum, að „búksorgir“ séu orðnar okkur svo fjarri hér á Íslandi, að nokkur þurfi að lenda í sálarháska þess vegna. Viðfangsefni eru sannarlega enn ærin, þótt það sé satt, að við Íslendingar þurfum sízt að skammast okkar, þegar við berum efnahagsþróun hér á landi saman við það, sem orðið hefur á síðustu áratugum annars staðar. Við getum með sanni sagt, að einni eða tveimur kynslóðum hefur tekizt að gerbreyta landi okkar svo, að það er nú orðið mun betra og viðráðanlegra land að búa, í en áður var. Aldrei hafa framfarir og breytingar til bóta þó orðið meiri en frá því að viðreisnarstjórnin tók við völdum. raunverulegur þjóðarauður Íslendinga hefur aukizt frá árslokum 1959 þangað til nú um 40–50%. Þessi aukning þjóðarauðsins hefur farið til að byggja upp þúsundir og aftur þúsundir heimila í landinu, bæta aðbúnað fólksins sjálfs, bæði heima og að heiman, og ekki sízt til að gera því mögulegt að afla sér öruggara lífsframfæris héðan í frá en hingað til. Skýrslur sýna, að eign landsmanna í ýmiss konar atvinnutækjum hefur á þessu árabili aukizt um enn hærra hlutfall en sjálfur þjóðarauðurinn, eða nokkuð yfir 50%.

Þetta þrekvirki hefur verið unnið, án þess að á almenning eða launþega hafi verið hallað með of háum sköttum eða án þess að þeir fengju hlutfallslega minna í sinn hlut en áður. Þegar skattar í heild eru skoðaðir, þá eru þeir skv. síðustu skýrslum lægri hér en t.d. í Svíþjóð, Noregi og Danmörku og munar miklu, t.d. miðað við Svíþjóð. Athyglisvert er og, að smáríki eins og Luxembourg, á litlu fullnumdu landsvæði, hefur mun hærri skatta en við.

Stundum er raunar samtímis kvartað yfir því, að skattar séu hér of háir og að lægra hlutfall þeirra fari nú en einhvern tíma fyrr til tiltekinna verklegra framkvæmda. Slíkur samanburður er algjörlega út í hött, þegar af því að nú er varið stórfelldu fé, hlutfallslega miklu meira en áður til ýmiss konar trygginga og tekjuöflunar til þess að bæta hag hinna verr stöddu í þjóðfélaginu. Þegar talað er um hag hinna verst stæðu einan út af fyrir sig, þykjast allir vera sammála um, að hann þurfi að bæta og segjast raunverulega vilja gera enn betur en gert hefur verið. Jafnframt láta sumir sem það sé hneyksli, að þvílík útgjöld taki sinn hluta af ríkistekjunum. Þannig rekst eitt á annars horn hjá þeim, sem ráfa um í svartsýnisþokunni. Að sjálfsögðu verður að taka tillit, bæði til aukinna trygginga og lækkaðra, beinna skatta á láglaunamönnum, þegar meta á hag hinna lakast settu í þjóðfélaginu nú, miðað við það, sem áður var. Upphæð hinna svokölluðu ráðstöfunartekna varðar hér mestu, og stendur þá á sama, hvaða reikningsmáti er, allar aðferðir leiða til sömu niðurstöðu, þeirrar, að launþegar hafa vissulega fengið sinn fyrri hlut og vel það af hinum stórauknu þjóðartekjum, sem orðið hafa á þessu tímabili. Hækkun þjóðartekna stafar af aukinni framleiðslu og hækkuðu verðlagi erlendis á afurðum landsmanna, og hafa þó verðlagssveiflur verið sitt á hvað, því að í fyrstu var verðlagsþróun óhagstæð, en síðan hagstæð um nokkurra ára bil, þangað til á miðju s.l. ári. Þjóðartekjur á mann jukust um þriðjung frá árinu 1959 fram til ársins 1966. Sú þróun er örari en í flestum öðrum löndum, enda sýna alþjóðlegar skýrslur, að á árinu 1965 urðu þjóðartekjur á mann hérlendis með þeim allra hæstu í heiminum. Hefði slíkt til skamms tíma verið talið skröksögu líkast. Á þessu sama tímabili hafa ráðstöfunartekjur kvæntra fjölskyldumanna í fjölmennustu launastéttunum, þ.e.a.s. alls almennings, aukizt um 47%, þegar þjóðartekjurnar jukust um 33%. Þessar tölur sýna, svo að ekki verður um deilt, að verkalýðurinn hefur fengið meira en sinn fyrri hlut til eigin ráðstöfunar, auðvitað nokkuð misjafnt eftir stéttum og aðstæðum.

Í þessu sambandi tjáir ekki að vitna til þess, að kaupmáttur tímakaups vissra launaflokka verkamanna hafi lækkað á fyrri hluta viðreisnartímabilsins, því að um afkomuna kemur fleira til en tímakaupið eitt. Það er engin nýjung, að menn hafi bæði viljað og þurft að bæta kjör sín með löngum vinnutíma. Eitt af því, sem hv. stjórnarandstæðingar höfðu á móti viðreisnarstjórninni í fyrstu, var, að hún mundi afnema eftirvinnu og þar með gera lífskjör verkamanna óbærileg. Hrollvekja hv. þm. Sigurvins Einarssonar um þetta efni á fyrsta ári viðreisnarinnar hljómar enn í eyrum manna um allt land. Annað mál er, að vinnutími hér er of langur og hefur verið leitazt við að fá hann styttan. Nokkur árangur í því efni hefur þegar náðst, þó að betur megi, ef duga skal. Aðalatriðið í þessu sambandi er, að eftir að júnísamkomulagið 1964 var gert, þá hefur tekizt að bæta svo mjög kaupmátt tímakaupsins, að Efnahagsstofnunin telur, að samvegið verkamannakaup hafi að meðaltali hækkað að kaupmætti skv. vísitölu framfærslukostnaðar um tæp 25%, eða sem næst fjórðungi frá árinu 1963 til ársloka 1966. Athuganir kjararannsóknarnefndar staðfesta, svo langt sem þær ná, þessar niðurstöður Efnahagsstofnunarinnar.

Af stórauknum heildartekjum hefur stærri hluta verið varið handa þeim verr settu en áður fyrr var gert. Að því leyti má til sanns vegar færa, að kvartanir hinna tekjuhæstu séu ekki alveg út í bláinn. Þeirra hagur hefur að vísu síður en svo verið skertur, því að hann er einnig mun betri, en ekki í sama hlutfalli og áður. Með þessu hefur tekizt að ná þjóðfélagsumbótum, sem allir töldu sig stefna að, en aldrei hefur fyrr lánazt í jafnríkum mæli og á allra síðustu árum. Fyrir okkur sjálfstm. er boðorðið „stétt með stétt“ lífsregla, sem við leitumst við að láta móta athafnir okkar, eins og raun ber vitni.

En stafa örðugleikarnir nú ekki einmitt af því, að launþegar hafi fengið of mikið í sinn hlut og atvinnurekendur of lítið? Þannig kynnu sumir að spyrja. Bezta svarið við því er það, að hraðfrystihúsin hafa aldrei haft betri afkomu en árið 1965. Þrátt fyrir stórbættan hag verkalýðsins, var þess vegna þá ekki tekið meira af þessum atvinnurekendum en þeir gátu vel undir risið, enda er þess einnig að gæta, að eitt af verkum viðreisnarstjórnarinnar er lagfæring skattalaga, svo að af atvinnurekstri þarf sízt að greiða hærri skatta hér en erlendis, áreiðanlega, þegar til alls er litið, mun lægri beina skatta hér en viðast annars staðar. Þessi skattalagabreyting er einmitt eitt af því, sem ríkisstj. á sínum tíma var ávituð harðast fyrir og það af sumum þeirra, sem nú telja hana hafa leikið atvinnurekendur of illa. Í öllum lýðfrjálsum löndum telja verkalýðsfélögin það skyldu sína að fylgjast með hag atvinnurekenda og gæta þess að þeir taki ekki meira en verkalýðurinn telur góðu hófi gegna f sinn hlut. Þetta á jafnt við, þar sem verkalýðsflokkar hálf-sósíalískir, eins og á Norðurlöndum, ráða, eins og í Bandaríkjunum, þar sem auðvaldið er talið mun voldugra.

Slíkir starfshættir eru jafneðlilegir á Íslandi og í öðrum löndum, enda samþykktu atvinnurekendur án atbeina og milligöngu ríkisstj. á s. 1. sumri, áreiðanlega með hliðsjón af útkomu ársins 1965, að hækka kaup verkamanna um 3½%. Þetta sýndi mat atvinnurekenda á aðstæðum þá. Því fer fjarri, að ég gagnrýni það mat, en ég ítreka, að það sýnir skoðun þeirra á sinni eigin getu, þegar þessir samningar voru gerðir. Það er þess vegna gersamlega rangt að ásaka ríkisstj. fyrir, að þessir atvinnurekendur hafi ekki safnað stórfé, sem þeir gætu geymt í handraðanum, til að vera betur viðbúnir örðugum tímum.

Síðan á miðju s.l. ári hefur hraðfrystur fiskur farið lækkandi í verði, nú þegar yfir 10%, og óttast framleiðendur — því miður að því er virðist ekki að ástæðulausu, — að lækkunin kunni að verða mun meiri. Á s.l. ári tóku síldarlýsi og síldarmjöl einnig stórkostlegum verðsveiflum, þannig að síldarlýsi lækkaði um 37½% frá því, að það var hæst á árinu, og síldarmjöl um 25%, og er þó rétt að geta þess, að lækkunin frá því verði, sem lagt var til grundvallar um vorið, var nokkru minni eða 29 og 15%. Hvar sem væri mundu þvílíkar verðlækkanir á aðalútflutningsvöru þjóðar vera taldar alvöruefni og raunar meira en það.

Hér er um að ræða atvik, sem engin íslenzk stjórn getur ráðið við. Markaðsverð erlendis er utan valdsviðs okkar, og er þó einnig í þessu efni rétt að hugleiða skammsýni stjórnarandstæðinga. Þeir láta sem þessar verðlækkanir skipti ýmist litlu máli eða mundu vera vel viðráðanlegar, ef annarri efnahagsstefnu hefði verið hér fylgt. Ekki hafa þeir þó einu sinni haft tilburði í þá átt að gera grein fyrir, með hvaða undrum það hefði átt að verða. Samtímis tala þeir með ítrustu fyrirlitningu og stöðugum aðvörunum um þátttöku Íslands í hinum miklu markaðsbandalögum, sem nú starfa hér í álfu. Ríkisstj. þarf engrar áminningar við um að gæta fyllstu aðgæzlu í þeim efnum, því að slíka aðgæzlu hefur stjórnin sannarlega sýnt. Fram hjá hinu verður ekki komizt til lengdar, að ein af orsökunum fyrir hinu lága verði á síldarlýsi og því, að háar sölur á ísfiski nýtast ekki sem skyldi, er, að við erum utan þessara bandalaga og njótum þess vegna ekki tollfríðinda af veru þar. Þessi vandi blasir nú þegar við og fer fyrirsjáanlega vaxandi. Algjör misskilningur er, að fram úr honum verði ráðið með því einu að treysta því, að einhvern tíma síðar muni aðrir sjá aumur á okkur. Við erum ekki lengur í hópi þeirra, sem eru taldir þurfa góðverka eða miskunnar við í venjulegum verzlunarviðskiptum og verðum því hiklaust að skoða kost og löst á þvílíkum samskiptum. Ef við sannfærumst um, að fram á meira sé farið við okkur en við viljum af höndum inna, þá er að hafna samstarfi. En þá tjáir ekki heldur að aumkva sig yfir, að illa sé með okkur farið,

Sjálfir verðum við að bera óþægindin af þeirri einangrun, sem við kjósum. Fáir mundu nú hafa geð í sér til að ganga um með sams konar betlibauk og vinstri stjórnin gerði eftir að hún hafði brugðizt loforði sínu um að vísa varnarliðinu úr landi á árinu 1956.

Vegna hins góða fjárhags ríkissjóðs og grundvallarstyrkleika atvinnuvega og efnahags þjóðarinnar í heild, var unnt að bregðast við verðfallsvandanum með verðstöðvunarlögunum fyrir áramót og lögunum um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins nú um páskana. Þrátt fyrir alla gagnrýnina hafa stjórnarandstæðingar ekki getað sýnt fram á, að öðrum úrræðum hefði átt að beita en beitt var, enda voru hvor tveggja lögin samþykkt á Alþ. í einu hljóði, og höfðu stjórnarandstæðingar þó, meðan á samningum við atvinnurekendur stóð, sumir, en engan veginn allir, gert sitt ítrasta til þess að spilla því, að samningar kæmust á. Þótt enginn treysti sér til þess að greiða atkv. á móti stjórnarfrv., höfðu fæstir stjórnarandstæðingar dug til þess að greiða atkv. með þeim, heldur völdu þann kost, sem minnst mannsbragð er að, þeir sátu hjá.

Vöruútflutningur er rúmlega fjórði hluti af þjóðartekjum okkar, og nær verðfallið til rúml. tveggja þriðju hluta af öllum okkar útflutningsvörum. Ef hið gífurlega aflamagn á síldveiðunum bætti ekki úr skák, þá mundi vandinn nú vera miklu meiri en hann þó er. Munurinn á aflamagni og þar með arðbæri skapar einnig sín vandamál. Að vísu er það rangt, sem haldið er fram af hv. stjórnarandstæðingum öðru hvoru, að verðbólga hafi vaxið hér meira hin síðari ár heldur en áður, allt frá atvinnuleysisárunum fyrir seinni heimsstyrjöldina. Þegar yfir þennan rúma aldarfjórðung er litið, sést, að vandamálið hefur ætíð verið svipað. Verðbólguvöxturinn hefur haldið áfram, hverjir sem við völd voru og hvaða úrræðum, sem beitt var: Úrræðin hafa raunar ætíð reynzt hin sömu, að vinna gegn ofþenslu með því að hamla á móti örri lánsfjáraukningu, hækka vexti og hafa opinberar framkvæmdir ekki svo miklar, að það þætti fyrirsjáanlega leiða til stóraukins kapphlaups við atvinnurekendur um vinnuafl.

Þó að verðbólga hafi herjað á allar ríkisstj. og stöðugt skapað örðugleika, hafa engir flúið af hólmi fyrir þeim nema vinstri stjórnin í árslok 1958, þ. á m. kempurnar tvær, hv. þm. Austf., Lúðvík Jósefsson og Eysteinn Jónsson. Berið saman flótta valdhafanna þá og viðbrögðin nú. Ætlan mín er sú, að fleiri en hv. stjórnarandstæðinga grunar muni í vor velja þá, sem vandanum hafa reynzt viðbúnir og vaxnir. Ekki skulum við þó gleyma því, að allt hefur þetta tímabil verið tími ekki einungis meiri framkvæmda og breytinga í ísl. þjóðlífi en nokkru sinni fyrr, heldur einnig tími meiri farsældar og gæfu fleiri Íslendinga en áður í sögu þjóðarinnar. Þess vegna er sízt ástæða til að æðrast vegna þess, að okkur hefur tekizt sumt verr en við sjálfir vildum og vonuðum.

Enginn er alveg fullkominn, en vonin til umbóta liggur í því að huga að því, í hverju okkur hefur yfirsézt. Sjálfur hef ég stundum talað um það, að hin öflugu almannasamtök, og þó einkum verkalýðshreyfingin, hefðu ekki ætíð sýnt næga þjóðhollustu, heldur borið fram óraunhæfar kröfur og beitt sínu mikla valdi frekar til pólitískrar togstreitu en hags fyrir sína fjölmörgu þátttakendur. Ég skal nú vera manna fúsastur til að játa, að á s.l. árum hefur tekizt þjóðhollt samstarf milli ríkisvaldsins, verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda til að ráða fram úr aðsteðjandi vanda. Með þessu samstarfi hefur auðnazt að leysa margt, sem áður virtist lítt leysanlegt, svo sem skapa meiri vinnufrið, ná raunhæfari samningum og þar með bæta kjör hinna verst settu í raun og veru, en ekki með orðum einum. Verðlagshækkanirnar reyndust hins vegar of örar, einkum eftir samningsgerðina 1965.

Sumir segja, að hið háa verðlag stafi af óhóflegum verzlunargróða, það mátti heyra á hv. þm. Lúðvík Jósefssyni áðan, og vilja þó þeir stjórnarandstæðingar, sem sjálfir fást við verzlun, hvort heldur félagsverzlun eða einkaverzlun, sízt af öllu viðurkenna, að álagning sé of há í þeim verzlunargreinum, sem þeir þekkja af eigin raun. Þaðan heyrast stöðugir kveinstafir um, að óhóflega sé þjarmað að verzluninni, en félagar þeirra benda á verzlunarhallir, sem upp hafi risið, og sívaxandi fjölda verzlunarmanna. Sá tölulestur er villandi, því að oft er ruglað saman ýmiss konar þjónustustörfum, sem hvarvetna fer fjölgandi, og verzlunarstörfum í þrengri merkingu. En eðlilegt er, að þeim hafi einnig fjölgað á seinni árum, þegar litið er til hinnar stórkostlegu aukningar kaupmáttar og bóta á lífskjörum, sem yfirleitt hefur orðið hjá öllum almenningi. Sem betur fer höfðu menn almennt til hnífs og skeiðar á Íslandi einnig á vinstristjórnar-árunum. Síðan hefur bati lífskjara orðið allt að 50%. Þessi gerbylting lýsir sér einkum í aukinni eftirspurn margháttaðrar vöru, sem menn áður gátu ekki veitt sér, en þeir nú telja sjálfsagða, ef ekki beina nauðsyn. Það telja sér fleiri leyfilegt að aka í bil heldur en bara framsóknarbroddar og Lúðvík Jósefsson. Útvegun þessarar vöru hlýtur að krefjast mjög aukins mannafla. Hin auknu viðskipti krefjast og aukins húsrýmis, ekki sízt hér í Reykjavík, þar sem árum saman var bannað að byggja venjuleg starfshýsi samtímis því, sem kaupfélagshallir risu upp um allt land.

Vafalaust má gera verzlunarrekstur á Íslandi hagkvæmari, eins og flest annað, sem hér er að unnið. En skýringin á hinu háa verðlagi hérlendis liggur ekki fyrst og fremst í þessu, heldur margháttuðum kostnaði, sem stafar af jöfnun lífskjara í svo sveiflukenndu og misbrigðasömu þjóðfélagi sem við búum i. Menn fást ekki til að stunda þorskveiðar, ef afkomumöguleikar þar eru allt of frábrugðnir því, sem er við síldveiðar. Þess vegna verður að jafna þarna á milli. Bændum eru, með gamalli löggjöf og allsherjarsamþykki, ætluð sambærileg kjör við aðrar tilteknar stéttir, og fékkst þó ekki sæmilegt öryggi fyrir því í framkvæmd, fyrr en með viðbótarlöggjöf, sem núverandi hæstv. landbrh. beitti sér fyrir á árinu 1959. En þessu verður ekki náð, nema mikið fé verði flutt á milli. Ýmiss konar iðnrekstur er hér tollverndaður, þ.e.a.s. nýtur hærra verðlags en ef hann yrði að keppa verndarlaust við innflutning á sambærilegum vörum utanlands frá. Til þess að halda uppi sjálfstæðu ríki með menntun, samgöngum og öllu, sem til þess heyrir nú á dögum, verður hver einstaklingur að leggja meira á sig en þegnar í fjölmennari ríkjum þurfa að gera, til þess að standa undir sambærilegum kostnaði. Allt er þetta nauðsynlegt, ef við viljum efla ekki einungis þær einstöku stéttir og héruð, er af þessu njóta góðs, heldur ísl. þjóðerni, menningu og sjálfstæði. Ef við viljum ekki gerast ættlerar, heldur skila til okkar eftirkomenda þeim arfi, er við hlutum og tókum að okkur að ávaxta, verðum við að gera okkur grein fyrir, hvað það kostar, að glopra honum ekki niður. Það kostar mikið í bili, meira að segja mun hærra verðlag en ella. Verðlag, sem oft hlýtur að koma illa við ýmsa, ekki sízt framleiðendur, er keppa þurfa við erlendan varning, hvort heldur á útlendum eða innlendum markaði. En þegar til lengdar lætur, borgar þessi kostnaður sig betur en nokkur önnur útgjöld, sem við leggjum á okkur. Meira máli varðar samt hitt, að þau verðmæti, sem um er að tefla og við þurfum að inna af höndum, eru í eðli sínu ósambærileg og fánýt miðað við það, sem við mundum glata, ef við legðum ekki lengur á okkur að halda uppi sérstakri menningu, marggreindu þjóðfélagi með sæmilegu jafnvægi og sjálfstæðu ríki.

Ef menn átta sig ekki á, af hverju hærra verðlag er hér en með nágrannaþjóðunum, fá menn og heldur ekki skilið, hvað gera þurfi, til þess að það verði okkur ekki að óeðlilegum farartálma. Vandinn verður ekki leystur, nema ríkið annist um millifærslu fjár til að halda nauðsynlegu jafnvægi, og hlýtur það að hafa í för með sér meiri ríkisafskipti en út af fyrir sig eru æskileg, en þau mega aldrei verða meiri en óhjákvæmilegt er. Ætíð, þegar vafi leikur á, hvort velja beri leið frelsis eða ófrelsis, ber að velja frelsisleiðina, hafna ríkisforsjá og höftum. Á meðan við erum svo háðir sveiflum vegna afla og verðlags sem raun ber vitni, er ógerlegt að segja fyrir um það, hverjum úrræðum þurfi að beita á hverri stundu, en frelsið mun lengst af reynast bezta leiðarstjarnan.

Jafnframt ber að keppa eftir að draga úr óvissu og sveiflum, og verður það ekki sízt gert með því að skjóta fleiri stoðum undir efnahaginn, að hagnýta allar auðlindir landsins. Óskiljanlegt er, að nokkur sá, sem þekkir til á Íslandi og kann að meta kosti þess og galla, skuli neita því, að nýta beri öll landgæði. En ekki er lengra síðan en tæpt ár, að hér á Alþ. voru háðar harðar umr. um það, hvort við þyrftum á því að halda að hefja stórvirkjanir nú þegar, eða hvort við ættum að bíða óákveðinn tíma með upphaf stóriðju á Íslandi. Þá héldu sumir góðviljaðir menn því fram, að út af fyrir sig gætu þeir verið með stórvirkjunum og stóriðju, en þeir teldu ekki tímabært að ráðast í það þá, vegna þenslu í framkvæmdum og velgengni atvinnuvega. Við hinir, sem ekki vildum bíða, játuðum, að þenslan kynni að skapa nokkra erfiðleika í bili, en ef koma ætti í veg fyrir atvinnuleysi, væri of seint að hefja undirbúning stóriðju, eftir að atvinnuleysisvofan væri komin á kreik. Nú hljóta menn að spyrja, eftir reynslu þessa eina árs, með öllum þeim verðsveiflum, sem orðið hafa, og óstöðugleika veðurfars og gæftaleysi að undanförnu: Var of snemma hafizt handa um stórvirkjun og upphaf stóriðju eða mátti þetta ekki seinna vera? Von er, að spurt sé. Jafnframt vek ég athygli á því, að sumir, sem mest hömuðust á móti samningnum um álbræðslu, þó að synjun þeirrar samningsgerðar hlyti að tefja stórlega virkjun Þjórsár, eru nú farnir að saka stjórnina um, að hún hafi látið stórvirkjanir dragast of lengi úr hömlu. Ekki er samræminu fyrir að fara hjá þessum herrum.

Ég skal játa það, að ég sá ekki í fyrra fyrir verðfall á ísl. afurðum né kom mér þá til hugar óstöðugleiki veðurfarsins á þessum vetri, en alveg eins og ég vissi, að hv. stjórnarandstæðingar gerðu allt of mikið úr örðugleikum atvinnurekenda á árinu 1965, vissi ég af reynslunni, að verðlag á einhæfri útflutningsvöru er óvisst, og að afli og veðurfar hafa verið stöðugum breytingum undirorpin. Þessi sígilda reynsla hlýtur að kenna öllum þeim, sem sjá vilja og skilja, að Íslandi er lífsnauðsyn á því, að fá fleiri stoðir undir velmegun sína og að nýta þarf öll gæði landsins, til þess að við getum haldið áfram að inna af höndum þær skyldur, sem fylgja því að vera Íslendingur. Þær skyldur eru okkur velkomnar, en við fullnægjum þeim ekki, nema við skiljum, hverjar þær eru. Þá munum við einnig halda áfram að bæta land okkar á þann veg, að það verði um alla framtíð talið öfundsvert að hafa lifað hér á upphafsárum hins endurreista lýðveldis.