11.04.1967
Sameinað þing: 33. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1633 í B-deild Alþingistíðinda. (1568)
Almennar stjórnmálaumræður
Sigurður Ingimundarson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Málflutningur stjórnarandstöðunnar við þessar útvarpsumr. hér í kvöld er okkur Alþfl.-mönnum hvorki nýstárlegur né lærdómsríkur. En nú hefur þjóðin öll haft tækifæri til að hlusta á þennan málflutning og ætti vissulega að taka hann til gaumgæfilegrar athugunar og bera hann saman við staðreyndirnar. Stjórnmál verða ekki rædd af neinni skynsemi, nema það sé viðurkennt og haft í huga, að þjóðartekjurnar nema ákveðinni upphæð á ári hverju, eða eins og það er stundum orðað, að kakan, sem til skiptanna kemur á milli þjóðfélagsþegnanna, hefur ákveðna, takmarkaða stærð.
Alþfl. lítur svo á, að eitt aðalmarkmið stjórnmálanna sé að stækka þá köku sem mest, ár frá ári, og skipta henni á skynsamlegan og réttlátan hátt. Þetta verður bezt gert með því að efla og auka þær atvinnugreinar, sem mest gefa í aðra hönd, miðað við tilkostnað, búa þær betri og fullkomnari framleiðslutækjum, skv. fyrirfram gerðri framkvæmdaáætlun, en jafnframt að leggja kapp á aukna menntun landsmanna, ekki sízt tæknimenntun og verkmenningu. Það er þetta, sem er undirstaða hagvaxtar og framfara. Að sjálfsögðu ber síðan að beita tiltækilegum hagstjórnartækjum, til þess að atvinnutæki landsmanna og vinnuafl nýtist sem bezt.
Ég tel rétt í lok þessara umr. í kvöld að athuga, þó að ekki verði gert nema í mjög stórum dráttum, hvort þessi markmið núv. ríkisstj. hafa náðst eða hvort málflutningur stjórnarandstöðunnar er á rökum reistur. Það getur verið erfitt að átta sig á dægurmálum líðandi stundar, hvort ákveðið þingmál eða stjórnarathöfn hafi verið nauðsynleg eða horfi til heilla, þegar á hagsmuni þjóðarheildarinnar er litið. Ekki sízt, þegar óábyrg stjórnarandstaða kappkostar af öllu megni að gera alla hluti tortryggilega og lætur einskis ófreistað í því efni. Málin ættu þó að skýrast, þegar yfir lengra tímabil er litið.
Stjórnarandstaðan hefur, að því er virðist, haft langar og stríðar áhyggjur af stjórnarfarinu og afkomu þjóðarinnar. Henni var að vísu nokkur vorkunn, þó að hún væri taugaóstyrk eftir viðskilnaðinn 1958, þegar hún hrökklaðist frá völdum, eftir 17 stiga vísitöluhækkun síðustu 3 mán., sem hún sat við völd. Útflutningsframleiðslan var algerlega strönduð, og ekki náðist samstaða um úrræði. „Hin leiðin“ var þá ekki orðin til í hugskotum framsóknarmanna. Það vantaði ekki, að núv. ríkisstj. væri óskað fararheilla. Spáð var samdrætti og atvinnuleysi og hvers konar óáran af manna völdum, eins og það var svo smekklega orðað. Þegar svo þessi spá vildi ekki rætast og við tók stórfelldari uppbygging, meiri gróska og meiri atvinna en áður hafði þekkzt, var axlað um og farið að tala um framúrskarandi góðæri af náttúrunnar völdum ár eftir ár, og hafa ræðumenn stjórnarandstöðunnar hér í kvöld enn stagazt á góðærinu sem sameiginlegu slagorði. Þennan áróður er rétt að athuga nánar en gert hefur verið. Hér hlýtur að vera átt við árferði í þeim atvinnuvegum, sem mest eru háðir veðurfari og aflabrögðum. Kannast bændur landsins við þetta sérstaka árferði? Flest árin hafa verið meiri eða minni erfiðleikar í einum eða fleiri landsfjórðungum af náttúrunnar völdum. Landsins forni fjandi, hafísinn, hefur verið nær landi en oftast áður undanfarna áratugi og jafnvel valdið samgönguerfiðleikum fyrir Norðurlandi langt fram á vor. Tún hefur kalið í heilum landsfjórðungi, og heyfengur hefur verið misjafn, rétt eins og gengur og gerist, vegna vorkulda og veðurfars. Er þess skemmst að minnast, að kartöfluuppskeran s.l. sumar var aðeins 1/3 af meðaluppskeru. Þetta er nú góðærið í landbúnaðinum. Ég held, að það verði varla talið meira en meðalárferði, þegar á allt er litið. Þrátt fyrir það hefur landbúnaðarframleiðslan í heild vaxið, á sama tíma sem vinnandi höndum við landbúnaðarstörf hefur fækkað. Þessi aukna framleiðni sýnir aðeins, að landbúnaðinum hefur vaxið fiskur um hrygg. Hann hefur eflzt með aukinni ræktun og stækkun búa. Betri tæknibúnaður hefur gert hann óháðari árferði en áður var.
Á sama hátt verður varla sagt, að gæftir hafi verið betri eða vertíðarafli bátaflotans hafi verið meiri en vænta mátti, miðað við sókn og tæknibúnað, og afli togaraflotans hefur yfirleitt verið mjög rýr. Það er að vísu rétt, að síldarafli hefur stóraukizt, en hitt er vafasamara að tala í því sambandi sérstaklega um góðæri. Það, sem raunverulega hefur skeð í þessu efni, er það, að á stjórnarárum núv. ríkisstj. hefur verið byggður nýr bátafloti til síldveiða á úthafinu með miklu stærri og betur búnum skipum. Það var vitað mál, að síldin hélt sig í hafinu austur af landi, en við áttum ekki bátaflota eða tæknibúnað til þess að nýta þennan afla. Í upphafi þessa stjórnartímabils voru fiskibátar yfir 100 rúmlestir að stærð innan við 50 talsins, en eru nú nærri 200. Fjöldi þeirra hefur m. ö. o. ferfaldazt og rúmlestaaukningin í þessum flokki báta er enn miklu meiri, því að þróunin er sú, að byggðir eru sífellt stærri og fullkomnari bátar og betur búnir tækjum. Á sama tíma hafa afköst síldarverksmiðjanna vaxið úr 70 upp í 130 þús. mál á sólarhring, og fjárfesting í sjávarútvegi hefur numið hátt á fjórða milljarð króna. Það má segja, að á þessu sviði hafi orðið hrein bylting í atvinnurekstri, og nýttir nýir möguleikar. Það er efling útgerðarinnar, þessi mörgu nýju, stóru skip, aukin tækni og fjárfesting, sem gert hefur síldaraflann að veruleika. Niðurstaðan er því sú, að góðærið liggur fyrst og fremst í stórfelldri eflingu atvinnuveganna til lands og sjávar. Þessar niðurstöður er auðvelt að sanna með opinberum skýrslum.
Ríkisstj. gerði á sínum tíma 4 ára fjárhags- og framkvæmdaáætlun fyrir árin 1963–66. Nú hefur komið í ljós, að meðalvöxtur þjóðarframleiðslunnar á þessum árum hefur numið 5.3% á ári, sem er mjög mikil aukning, og aukning raunverulegra þjóðartekna um 7% á ári. Fjármunamyndunin á sama tímabili jókst um 47% og dreifðist tiltölulega jafnt á helztu greinar atvinnulífsins. Þessi mikla fjárfesting á vissulega eftir að bera ávöxt um ókomin ár. Alþfl. hefur um langt árabil beitt sér fyrir gerð þjóðhags- og framkvæmdaáætlana og styrkri hagstjórn. Varla verður annað sagt en að árangurinn af þessari fyrstu þjóðhagsáætlun hafi verið góður, og það, sem mest er um vert, er það, að þjóðin er nú miklu betur búin framleiðslutækjum en nokkru sinni fyrr og betur undir það búin að mæta erfiðu árferði eða öðrum erfiðleikum en áður hefur verið.
Þessar staðreyndir koma einnig glöggt fram í síðustu ársskýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París. Þar kemur m. a. fram, að fjárfesting er orðin meiri á mann á Íslandi en í nokkru öðru þátttökuríki. Það kemur einnig fram, að þessi mikla fjárfesting ber ávöxt. Hvað þjóðarframleiðslu á íbúa snertir, er Ísland, ásamt Svíþjóð, næst á eftir Bandaríkjunum, þessum gamalgrónu og tæknimenntuðu þjóðum, og hvað einkaneyzlu á mann snertir, kemur Ísland, ásamt Kanada, næst á eftir Bandaríkjunum, og er þar orðið á undan gamalgrónum ríkjum eins og Svíþjóð og Sviss.
Þessar upplýsingar Efnahagsstofnunarinnar um hagvöxt og lífskjör Íslendinga koma vel heim við aðrar kunnar staðreyndir og breytingar í ísl. þjóðlífi á síðustu 8 árum. Þjóðin hafði búið við höft og gjaldeyrisskömmtun í nærri 30 ár og stundum svartamarkað á vörum og gjaldeyri. Nú er verzlunin að heita má frjáls. Íslenzka krónan hafði ekki verið skráð í erlendum bönkum í nærri 30 ár og var þjóðinni háðung. Nú er ísl. krónan skráð og keypt eins og hver annar gjaldeyrir, Íslendingar geta nú horft framan í útlendinga ekki aðeins menningarlega, heldur einnig efnahagslega. Lán til stórframkvæmda voru varla fáanleg nema í gustukaskyni eða fyrir sérstakan velvilja. Nú fær þjóðin lán til allra skynsamlegra stórframkvæmda.
Um aukna neyzlu þjóðarinnar og bætt lífskjör má nefna ýmis dæmi. Á síðustu 8 árum hefur bílaeign landsmanna meir en tvöfaldazt. Hún hefur hækkað úr 19 þús. í rúm 38 þús. Bíllinn er á góðri leið með að verða hér almenningseign, eins og í gömlum og gamalgrónum þjóðfélögum. Sjónvarp þótti fyrir fáum árum fjarlægur draumur, miðað við okkar fámenni og dreifbýli. Nú virðist þjóðin ætla að verða sjónvarpsþjóð á skemmri tíma en hún varð útvarpsþjóð. Bæjarsímstjórinn sagði nýlega í blaðaviðtali, að fólk vildi nú talsíma um leið og eldavél. Þetta eru nú hallærisárin 8, sem þm. framsóknarmanna, Ingvar Gíslason, lét engispretturnar éta, eins og hann orðaði það hér áðan. Það getur verið að Churchill gamla hefði dottið í hug að nota þessi orð um vinstri stjórnar árin, en ég held varla, að hann hefði notað þau um þau lífskjör, sem þjóðin býr nú við.
Þau dæmi, sem ég hef nefnt, sýna, að hagvöxtur og framfarir hafa orðið hér meiri og stórfelldari en nokkru sinni fyrr og lífskjör þjóðarinnar hafa tekið stórstígum framförum. Með því er þó ekki sagt, að öll vandamál almennings hafi verið leyst, því fer fjarri. Í húsnæðismálum eru í undirbúningi stórfelldar framkvæmdir við byggingu íbúða með sérstökum kjörum fyrir meðlimi verkalýðssamtakanna, sem ætla má, að hafi áhrif til lækkunar á söluverð íbúða, og lán húsnæðismálastjórnarinnar hafa verið stórhækkuð, en það þarf enn mikilla átaka við í þessu efni, einkum um lækkun byggingarkostnaðar.
Þegar þessi hagstæða efnahagsþróun og hin stórfellda uppbygging atvinnuveganna er höfð í huga, er varla ástæða til þeirrar svartsýni og þess áróðurs, sem stjórnarandstaðan hefur haft í frammi. Að vísu er það vissulega rétt, að verðbólguþróunin er stöðug ógnun við útflutningsframleiðsluna, sem verður að sætta sig við verðlag á erlendum markaði. Engum hefur verið ljósara en ríkisstj., að boginn hefur verið spenntur til hins ítrasta hvað þetta snertir. En það er nú einu sinni svo, að verðbólga fylgir jafnan miklum framförum, miklum framkvæmdum og mikilli eftirspurn eftir vinnuafli. Verðbólgan er í sjálfu sér tákn velgengni, mikillar fjárfestingar og mikillar neyzlu hjá þjóðinni. Vandinn er bara sá, að hún stöðvi ekki útflutningsframleiðsluna. Aðferðir til að draga úr eða stöðva verðbólgu eru vel kunnar og sömu aðferðirnar eru notaðar til þess um allan hinn menntaða heim. Vandinn er bara sá, að allar koma þær meira og minna illa við skammsýna stundarhagsmuni hinna ýmsu stétta þjóðfélagsins og eru meira og minna óvinsælar, meðan allt getur slarkað. Það er einmitt þetta, sem óábyrg stjórnarandstaða hefur notað sér til hins ítrasta. Ríkisstj. hefur beitt ýmsum ráðstöfunum af þessu tagi, en þó aldrei harkalegri en nauðsynlegt hefur verið hverju sinni vegna útflutningsframleiðslunnar. En í öllum tilfellunum hefur stjórnarandstaðan, eða a. m. k. Framsfl., beitt sér gegn þeim af öllu því afli og með allri þeirri ósvífni, sem hann hefur haft yfir að ráða. Tekið hefur verið undir allar kröfugerðir, hvaðan sem þær hafa komið, jafnt frá atvinnurekendum sem launþegum, og ekki sízt þeirra tekjuhæstu. Þetta er að vera allra vinur, en engum trúr. Tilgangurinn hefur verið sá einn að torvelda stjórn landsins, hvað sem það kostaði þjóðina, og komast á ný í stjórnaraðstöðu. Baráttan við verðbólguna hefur fyrst og fremst verið barátta við stjórnarandstöðuna, og má segja, að þar hafi stjórnarandstöðunni orðið töluvert ágengt.
Útflutningsframleiðslan hefur nú orðið fyrir talsverðu áfalli vegna verðfalls á erlendum markaði, sem vonandi er þó tímabundið. En þjóðin var betur undir það áfall búin en nokkru sinni fyrr. Hún er vel búin að framleiðslutækjum. Afkoma ríkissjóðs hefur verið mjög góð, vegna mikils innflutnings og mikillar neyzlu og þjóðin á 2000 millj. kr. gjaldeyrisforða. Þessar aðstæður gerðu verðstöðvunarstefnuna framkvæmanlega, án þess að leggja á nýja skatta eða skerða lífskjör þjóðarinnar. Þjóðin stendur vörð um verðstöðvunarstefnuna og verkalýðshreyfingin og forystumenn hennar hafa tekið henni vel og drengilega, en hlotið snuprur fyrir hjá framsóknarmönnum. Það ábyrgðarleysi verður þjóðin að muna í kosningunum í vor. Það er öllu öðru nauðsynlegra að kveða niður ábyrgðarleysi í ísl. stjórnmálum. — Góða nótt.