08.04.1967
Sameinað þing: 32. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1770 í B-deild Alþingistíðinda. (1594)
Framkvæmda- og fjáröflunaráætlun 1967
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það voru hér nokkur atriði, sem ég vildi víkja að, sem fram hafa komið í þessum umr. Hæstv. fjmrh. vék sér nú undan að svara fsp. minni varðandi byggingarframkvæmdir ríkisins eða framkvæmd á þeim samningi, sem gerður var um byggingu íbúðarhúsa á milli verkalýðsfélaganna og ríkisstj. og hefur nú séð við nánari athugun, að í rauninni áttu þessar tölur ekkí heima í áætluninni, sem þar voru birtar. Ég læt mér það nægja, sem hann sagði um þetta mál, í trausti þess, að hér verði gefin skýring á því síðar á þinginu, hvernig ætlað er að afla fjár til þessara framkvæmda, en ég vænti, að það verði svo, sem hér kom fram hjá hæstv. fjmrh., að ekki geti komið til þess, að skert verði það fjármagn, sem ætlað hefur verið að gæti gengið til almennra íbúðarhúsabygginga til annarra staða á landinu heldur en hér til Reykjavíkur í sambandi við þessar framkvæmdir, því það teldi ég auðvitað ósæmilegt með öllu, ef þannig yrði staðið að málinu. Hér hefur nokkuð verið minnzt á það í sambandi við þær upplýsingar, sem hæstv. fjmrh. gaf hér á fundi í gær um framkvæmdaáætlun ríkisins á yfirstandandi ári, að enn mundi verða þrengt talsvert að viðskiptabönkunum í landinu með þeim ráðstöfunum, sem fyrirhugaðar eru af hálfu ríkisstj., þar sem m. a. er ráðgert, að ríkið gefi út spariskírteinalán upp á 125 millj. kr. og áfram verði samið við viðskiptabankana um að leggja inn í fjárfestingarkerfið 70 millj. kr. Mér fannst hæstv. fjmrh. svara þeim aths., sem hér komu fram í sambandi við þetta, þannig, að hann eiginlega sætti sig við það, að ekki væri þrengt meira að viðskiptabönkunum í þessum efnum heldur en verið hefði. Það kann vel að vera, að það megi setja dæmið þannig upp, en að afgreiða þetta mál þannig, held ég, að sé ekki raunhæft.
Sannleikurinn er sá, að það, sem hefur verið að gerast á undanförnum árum og alltaf í vaxandi mæli, er það, að þessar ráðstafanir hafa leitt meira og meira til þess, að rekstrarlánabankar útflutningsframleiðslunnar, þ.e.a.s. aðalviðskiptabankar þjóðarinnar, Landsbankinn og Útvegsbankinn, hafa verið að gefast upp í auknum mæli við það verkefni sitt að veita eðlileg rekstrarlán til þess að halda rekstrinum í gangi. Og nú má segja, að þetta sé komið algerlega í þrot. Þessir bankar draga enga dul á það, að þeir geti ekki haldið uppi hliðstæðum lánum til framleiðslufyrirtækja og þeir hafa gert vegna fjármagnsskorts og af þeim ástæðum er m. a. svo komið nú, að svo að segja öll síldariðnaðarfyrirtæki á Austurlandi hafa t.d. verið stöðvuð og eru engar líkur til þess, að þau geti hafið sinn rekstur á venjulegum tíma. Viðskiptabankarnir segja bara einfaldlega, að það skipti ekki máli, hvort hér eiga í hlut fjársterk fyrirtæki í eðli sínu eða ekki, bankarnir hafa ekki fé til þess að binda í framleiðslunni eins og þeir hafa gert. Ég álít, að það sé mjög skammsýnt að ætla í þessum efnum að taka undir eitt allt bankakerfið og tala í sífellu um allt bankakerfið. Sannleikurinn er sá, að það er mikill skilsmunur á hinum einstöku aðilum í bankakerfinu. Sú ráðstöfun á sínum tíma að minnka endurkaupalán út á framleiddar sjávarafurðir úr 67% niður í 55%, þýddi það í framkvæmdinni, að Seðlabankinn tók minni þátt í því að veita fjármagni í framleiðsluvörur landsins til útflutnings, en skyldan óx að sama hluta á viðskiptabönkunum, Landsbankanum og Útvegsbankanum. Þeir urðu að leggja fram meira fé en áður í útflutningsvörubirgðirnar á hverjum tíma. Þróunin hefur einnig orðið sú, að vaxandi hluti af sparifjármynduninni í landinu hefur safnazt fyrir í ýmsum öðrum viðskiptabönkum landsins, tiltölulega nýjum bönkum, sem hafa verið að vaxa upp, sem ekki gegna þeim skyldum að lána rekstrarláni til útflutningsframleiðslunnar, en rekstrarlánabankar útflutningsframleiðslunnar, Landsbankinn og Útvegsbankinn, hafa fengið tiltölulega minni hlut af sparifjármynduninni en áður var og á þann hátt hefur þeirra hlutur einnig verið að þrengjast og möguleikar þeirra að minnka til þess að geta staðið eðlilega undir lánaþörf útflutningsframleiðslunnar. Annað hefur einnig komið til. Eftir því, sem framleiðslan hefur aukizt meir, eftir því er bundið meira fjármagn í útflutningsframleiðslunni á hverjum tíma. Enn fremur er svo það, að vegna þess að rekstrarlánabankar sjávarútvegsins, Landsbankinn og Útvegsbankinn, hafa verið viðskiptabankar þess þáttar í framleiðslulífi landsins, sem hefur haft mest að segja og sem hefur verið mikið um uppbyggingu og framfarir í, þ.e.a.s. í sambandi við hina ýmsu þætti sjávarútvegsins, hafa þessir bankar ekki komizt hjá því að festa a.m.k. um stundarsakir talsvert fjármagn í framkvæmdum á vegum sjávarútvegsfyrirtækja og þannig hefur dregið meira og meira að því, að þeir hafa komizt í fjárþröng. Og af þessu leiðir svo það, að það er vitanlega mjög tilfinnanlegt fyrir þessa rekstrarlánabanka útflutningsframleiðslunnar að standa undir sparifjárbindingu og að verða að leggja fram fé í fjárfestingaráætlanir ríkisstj. Ég held því, að það sé alveg ómögulegt annað en gera sér nú fulla grein fyrir því, að eins og nú er komið, er verið að reka undirstöðuatvinnuvegi landsmanna í strand, ef ekki verður linað eitthvað á þeirri peningapólitík, sem hefur verið ríkjandi gagnvart þessum bönkum alveg sérstaklega.
Hæstv. fjmrh. talaði um, að það mætti jafnvel búast við því, að bindiskyldan hjá bönkunum minnkaði eitthvað frá því sem áður hefði verið, þannig að nú mundu þeir sleppa með 20% bindingu í staðinn fyrir 30 áður. En hann sleppti einu atriði í þessum upplýsingum alveg. Sannleikurinn var nefnilega sá, að þessir viðskiptabankar eða a.m.k. veit ég nákvæmlega um það með annan af þessum viðskiptabönkum, að hann var ekki s.l. ár skyldaður til þess að binda 30% og ekki heldur einu sinni þau 40%, af því að hann varð að semja um 10% til viðbótar til þess að standa undir fjármögnun á fjárfestingaráætlun ríkisstj., ekki aðeins 40%. En það kom enn annað ákvæði þar til og þar segir, að þó skuli bindingin aldrei í neinu tilfelli vera minni en sem nemur 2% af heildarsparifjárinnstæðu eða heildarinnstæðufé í viðkomandi banka, og sparifjármyndunin á árinu varð ekki meiri en svo, að þetta ákvæði kom til framkvæmda og bankinn varð að binda enn meira en þessi 30%. Og þegar svona er komið, sækir vitanlega hratt í það, að þessir rekstrarlánabankar framleiðslunnar geta ekki veitt hin venjulegu og óhjákvæmilegu rekstrarlán. Þá kemur að því, að þessir bankar segja hverjum, sem hafa vill, miskunnarlaust og skýra út sína afstöðu þannig, að þeir séu komnir í yfirdrátt við Seðlabankann og verði að borga þangað 16% í refsivexti. Og út frá þessu kemur svo það, að beinlínis er knúið á framleiðsluna á mjög óeðlilegan og mjög óæskilegan hátt um það að grípa til ýmissa þeirra ráðstafana, sem eru þjóðhagslega óhagstæðar. Ég hef t.d. í huga atriði, sem auðvelt er að leggja fram sannanir um, að mjög fjársterkt fyrirtæki, sem hafði verið rekið með miklum hagnaði í mörg ár, en vitanlega lagt í talsvert mikla fjárfestingu vegna almennrar uppbyggingar, gat ekki fengið að bíða með sínar útflutningsvörur eftir þeim tíma, sem það taldi sér hagstæðast til þess að selja vöruna á, vegna þess að viðskiptabankinn sagði: Ég er kominn í peningalegt krúkk og þessi vara verður bara að fara, hvort sem hún fer á lægra verði eða hærra verði. Við förum eindregið fram á það, að þið seljið vöruna úr landi, til þess að við getum fengið eitthvað inn af okkar peningum, því að við þurfum á þeim að halda. Svona ástand eins og þetta er vitanlega óæskilegt á allan hátt. Þá er farið að grípa til vandræðaráðstafana, sem stafa af því, að það er orðið of þröngt um hendur þeirra, sem hafa með rekstrarlán til framleiðslunnar að gera.
Það kann vel að vera, að það séu einhverjir möguleikar á því að þrýsta á einhverja þætti í bankakerfinu enn meira heldur en gert hefur verið og taka sem sagt með valdi af þeim það sparifé, sem inn kemur, til þess að standa undir þessum eða hinum framkvæmdum, sem ríkisstj. vill láta vinna að, en ég er ekki í nokkrum vafa um það, að eins og komið er, er enginn möguleiki á því að óbreyttri stefnu í peningamálum, enginn möguleiki á því, að aðalrekstrarlánabankar þjóðarinnar, Landsbankinn og Útvegsbankinn, geti staðið undir eðlilegum rekstrarlánum til framleiðslunnar, ef á að knýja þá til þess að binda fé í Seðlabankanum eins og aðra banka, og ef á að knýja þá til þess að leggja fram fé í framkvæmdaáætlun ríkisins eins og aðra banka, sem aðallega hafa viðskipti sín við þá aðila í þjóðfélaginu, sem sjá um það að eyða peningum þjóðarinnar. Ég geri nefnilega mjög mikinn greinarmun á því, hvort ein regla í peningamálum á að gilda yfir alla línuna eða hvort hún gildir fyrir þá, sem snúa fyrst og fremst að eyðsluþættinum í þjóðfélaginu. Ég held, að við verðum að skapa þeim aðilum nokkurt svigrúm, sem standa undir sjálfri undirstöðunni. Ég tek því undir það, sem hér hefur verið sagt um aðvaranir til ríkisstj. varðandi þessi mál: Óbreytt stefna varðandi afstöðuna til rekstrarlánabankanna í peningamálum hlýtur að leiða til algerra vandræða og það er rétt, að ríkisstj. geri sér grein fyrir því, hvaða ábyrgð hún tekur á sig, ef hún heldur áfram á þessari braut, því að vandinn er þegar kominn upp og kannske orðinn allmiklu meiri heldur en ríkisstj. hefur gert sér grein fyrir.