13.10.1966
Sameinað þing: 3. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1804 í B-deild Alþingistíðinda. (1601)
Tilkynning frá ríkisstjórninni
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Það er með öllu þýðingarlaust að fara að kýta hér um þessi vandamál, sem fyrir liggja. Það er líka ánægjulegt, að við höfum allir verið sammála a.m.k. um eitt og það er að hæla hver öðrum fyrir góða greind og skarpskyggni. Og við ættum þá að reyna að nota þessa hæfileika til þess að íhuga þær staðreyndir, sem fyrir liggja.
Ég vil segja það við hæstv. 3. þm. Reykv., að það eru auðvitað margar leiðir án eignakönnunar til þess að átta sig á því, hvert þjóðartekjurnar hafa farið og hvar þær eru. Það er hægt að kanna eftir þeim gögnum, sem fyrir hendi eru og sjá höfuðatriðin í því. Sem betur fer liggur það fyrir, að eignajöfnun er hér meiri á Íslandi en í nokkru öðru þjóðfélagi, sem við þekkjum. Þetta hefur hv. 3. þm. Reykv. viðurkennt áður og ég veit, að hann mun ekki hverfa frá því nú. Við erum báðir stoltir af því að hafa verið í því þjóðfélagi og lifað á þeim tíma, þegar þetta hefur orðið. Ég þarf þess vegna ekki að spyrja hv. 1. þm. Austf. né hv. 3. þm. Reykv., hvert þjóðartekjurnar undanfarið hafa farið. Ég spurði þá: „Er það rétt, að verzlunin hafi fengið þennan gróða?“. Hv. 1. þm. Austf., sem hefur nána þekkingu á stærsta verzlunarfyrirtæki landsins, vék sér undan að svara því. En ég svaraði því sjálfur hvert gróðinn hefur farið. Hann hefur farið í meiri atvinnuuppbyggingu í landinu á þessum tíma en nokkru sinni áður hefur átt sér stað, og hann hefur farið til þess að bæta kjör almennings meira en nokkurn tíma hefur átt sér stað: Þarna er gróðinn ekki fólginn, heldur blasir við öllum að sjá.
Varðandi verðbólguslagorðið og það, að ég hafi verið að gefa bændum hér einhverjar gjafir og þakkað þeim lítt þeirra framlag, segi ég það, að ég tek ósköp rólega öllum gífuryrðum um það. Ég sagði það, sem ég meina. Ég tel jafnfráleitt, að Íslendingar geti lifað án sterks landbúnaðar eins og án sjálfstæðis þjóðarinnar, hvort tveggja, landbúnaður og sjálfstæði, er lífæð. Það kostar okkur mikið að vera sjálfstæð þjóð og það kostar okkur að hafa landbúnað, sem eigi að geta keppt við miklu frjórri og betri lönd. Engu að síður viljum við gera þetta, ætlum að gera þetta, ætlum að leggja á okkur það, sem þarf til að gera það. En menn verða þá að skilja, í hverju vandinn er fólginn og einmitt vegna þess, að menn hliðra sér hjá því að útskýra það, er hægt að vekja tortryggni gegn bændum og telja fólki trú um, að þeirra hlutur sé annar og betri en hann er.
Eitt höfuðmein okkar vanda nú, eða höfuðorsök okkar vanda, svo rétt sé sagt, er þessi, hvað þjóðfélagsstéttirnar framleiða ákaflega misjafnlega mikil verðmæti. Þar með er ekki sagt, að þær séu misjafnlega þarfar. Það þarf á þeim öllum að halda, til að við getum haldið áfram sem sérstakt þjóðfélag. En það sjá allir í hendi sér, um leið og þeir leiða hugann að því, að einn höfuðörðugleiki þorskveiðiflotans nú er sá, hversu hann á erfitt með að keppa við síldveiðiflotann. Þorskveiðimennirnir sætta sig ekki til lengdar við að hafa minni tekjur en síldveiðimennirnir. Bændum er beinlínis áskilið með allsherjarsamkomulagi þjóðarinnar að hafa sambærileg kjör víð aðrar stéttir í þjóðfélaginu, þó að þeirra framleiðsla verði fyrir þær sakir að verðleggjast hærra en hægt er að fá fyrir hana á erlendum markaði. Sá, sem ekki vill viðurkenna þessar staðreyndir, útskýra það jafnt fyrir bændum og almenningi, er í algerri vonleysu um að ráða við verðbólguna. — Ég endurtek, að ég talaði um verðbólguslagorð. Verðbólgan sjálf er alvarlegt vandamál og ég hef sízt dregið úr þeim vanda, en það er gjörsamlega vonlaust að ráða við þennan vanda, nema menn átti sig á, hve hann er margþættur. Það tjáir ekki bak við verðbólguvandræðin ein að fela meginþorra þeirra vandamála, sem við eigum við að etja á Íslandi, vegna okkar sérstöku þjóðfélagshátta, vegna okkar smæðar, en vegna okkar vilja og einlæga ásetnings til þess að vera sjálfstæð þjóð og gefast ekki upp, þrátt fyrir þessa örðugleika. Ég er ekki að gera lítið úr þessum vanda, ég er þvert á móti að segja, að vandinn er meiri en menn oft hafa viljað vera láta. Hann verður ekki leystur með því að leysa einn þátt í honum, heldur með því að átta sig á þeim vandamálum, sem okkar íslenzka þjóðfélag hefur við að etja til frambúðar, og er það orsökin til þess m. a. og ekki sízt, að þó að allar ríkisstjórnir hafi nú í fullan aldarfjórðung reynt að gera allt, sem þær gátu, til að ráða við verðbólguna, hafa þær ekki ráðið við hana, af því að þær hafa ekki viljað eða getað sundurgreint þessa örðugleika eins og skyldi og líka, að jafnvel þó að þeir séu sundurgreindir og menn reki þetta til hlítar, er þarna um að ræða meiri óstöðugleika, sökum okkar atvinnuvega og vegna þess, hvað þeir gefa meira misjafnt af sér en hjá öðrum þjóðum tíðkast.